Morgunblaðið - 09.04.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994
33
Alþjóðlega Kópavogs-
mótið hefst í dag
Skák
Margeir Pétursson
SJÖ stórmeistarar tefla á al-
þjóðlega skákmótinu í Kópa-
vogi, sem hefst í dag kl. 17 í
Digranesskóla. Mótið tekur níu
daga og er teflt á hverjum
degi kl. 17 fram til sunnudags-
ins 17. apríl. Þátttakendur eru
22 talsins, þar af átta erlendir
skákmenn. Fjórir þátttakenda
á mótinu hafa unnið heims-
meistaratitil í flokki 16 ára og
yngri, Jón L. Árnason, Hannes
Hlífar Stefánsson, Kumaran
frá Englandi og geysisterkur
Ungveiji, Zoltan Almasi, 17
ára, sem er langstigahæsti
keppandinn.
Af öðrum öflugum gestum má
nefna Grikkjann Skembris, sem
burstaði Jan Timman í einvígi á
Korfu í sumar, og Mark Hebden,
sem tefldi á alþjóðlega mótinu
við ísafjarðardjúp 1992 og sigr-
aði. Honum hefur vegnað vel það
.sem af er árinu.
Þátttakendalistinn:
Z. Almasi, Ungveijal. SM 2.610.
Helgi Ólafsson SM 2.535
M. Hebden, Englandi SM 2.530
Hannes H. Stefánsson SM 2.525
S. Skembris, Grikklandi
SM 2.525
J. Emms, Englandi AM 2.525
Jón L. Árnason SM 2.520
E. Grivas, Grikklandi SM 2.505
P. Wells, Englandi AM 2.490
Þröstur Þórhallsson AM 2.470
D. Kumaran, Englandi
AM 2.465
B. Kristensen, Danm. AM 2.465
Helgi Ass Grétarsson 2.415
Andri Áss Grétarsson 2.355
Guðmundur Gíslason 2.325
Jón Garðar Viðarsson 2.315
Benedikt Jónasson 2.280
Tómas Björnsson 2.260
Guðmundur Halldórsson 2.260
Bragi Halldórsson 2.225
Áskell Örn Kárason 2.225
Ólafur B. Þórsson 2.180
í dag tefla saman: Kristensen-
Almasi, Helgi Ól.-Helgi Áss,
Andri Áss-Hebden, Skembris-
Guðm. Gíslason, Jón Garðar-
Hannes, Emms-Benedikt, Tóm-
as-Jón L., Grivas-Guðm. Halld.,
Bragi-Wells, Þröstur-Áskell og
Ólafur-Kumaran.
Af íslensku þátttakendunum
hljóta augu manna fyrst og
fremst að beinast að Hannesi
Hlífari- Stefánssyni, sem varð
efstur á Reykjavíkurskákmótinu
um daginn, og Þresti Þórhalls-
syni, sem vantar einn áfanga upp
á stórmeistaratitil, og Helga Áss
Grétarssyni, sem einnig vantar
aðeins einn áfanga upp á alþjóð-
legan meistaratitil.
Ein stutt frá New York
Það hafa margir íslenskir skák-
menn dálæti á skoska leiknum.
Þessi skák var tefld á opna mót-
inu í New York um páskana:
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Moulin, Belgíu
Skoski leikurinn
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. d4
- exd4 4. Rxd4 — Dh4!?
Djarfasta svarið við skoska
leiknum, en ekki hátt skrifað í
fræðunum.
5. Rc3 - Bb4 6. Be2!
Fórnar peði. í framhaldinu festist
svarti kóngurinn á miðborðinu og
það gefur hvíti góð færi.
6. - Dxe4 7. Rdb5 - Bxc3+ 8.
bxc3 - Kd8 9. 0-0 - Rf6 10.
Hbl!?
í þekktri skák stórmeistaranna
Azmajparashvili, Georgíu, og
Svíans Jonny Hectors í San Se-
bastian 1991 varð framhaldið 10.
Be3 - He8 11. Hel - Dd5 12.
Dcl - Df5 13. Da3 með góðum
sóknarfærum og hvítur vann í
aðeins 24 leikjum.
10. - He8 11. Bf3 - Dc4 12.
Bg5 - He5 13. Dd2! - a6 14.
Rd4 - Hc5?
Afspyrnulélegur leikur. Hvítur
hefur meira en nægar bætur fyr-
ir peð, en 14. - d6 var nauðsyn-
legt.
a b c d e I g h
15. Bxf6+ - gxf6 16. Dh6 -
Ke7 17. Hfel+ - Re5 18. Rf5+
Ungveijinn Zoltan Almasi, 17
ára, er stigahæsti keppandinn
á Kópavogsmótinu.
- Ke6 19. Be4 - d5 20. Bd3 -
Da4 21. Df8
og svartur gafst upp.
Skákþing Norðlendinga á
Sauðárkróki
Skákþing Norðlendinga 1994
verður haldið á Sauðárkróki dag-
ana 14.-17. apríl, um næstu helgi.
í opnum flokki er teflt um sæmd-
arheitið „Skákmeistari Norður-
lands“ og að auki um eitt sæti í
landsliðSflokki á Skákþingi ís-
lands í haust. Öllum er heimil
þátttaka í opna flokknum og má
jafnvel búast við því að skákmenn
af höfuðborgarsvæðinu mæti til
leiks og geri tilraun til að krækja
sér í landsliðssætið. Veitt eru
fimm peningaverðlaun í opna
flokknum, þar af 20 þúsund krón-
ur fyrir efsta sætið.
Teflt verðut- í Safnaðarheimil-
inu, Aðalgötu 1, og verður mótið
sett fimmtudaginn 14. apríl kl.
13.45. Keppni í unglinga- og
kvennaflokki héfst laugardaginn
16. apríl kl. 13. Sunnudaginn 17.
apríl kl. 14 fer fram Hraðskák-
mót Norðurlands. Þátttaka til-
kynnist í síma 95-35509 (Harald-
ur Hermannsson) og 95-35978
(Guðmundur Gunnarsson).
Skólaskákmót Reykjavíkur,
einstaklingskeppni
Úrslitakeppnin fer fram í fé-
lagsheimili Taflfélags Reykjavík-
ur í Faxafeni 12 dagana 11.-13.
apríl næstkomandi. Taflið hefst
alla dagana kl. 19.
Keppninni er skipt í tvo flokka,
eldri flokk fyrir nemendur í 8.-10.
bekk grunnskólans og yngri flokk
fyrir nemendur 1.-7. bekkjar.
Tefldar verða níu umferðir eftir i
Monrad-kerfi í báðum flokkum.
Umhugsunartíminn er hálftími á'
skák fyrir hvern keppanda.
Rétt til þátttöku í þessum
Reykjavíkurúrslitum eiga tveir
efstu menn í skákmótum hvers
grunnskóla í hvorum aldursflokki
fyrir sig. Þátttökutilkynningum
þurfa að fylgja úrslit í skólaskák-
mótum. Þeim má skila til Taflfé-
lags Reykjavíkur, Faxafeni 12.
Umsjónarmenn Reykjavíkurúr-
slitanna eru Ólafur H. Ólafsson
og Ríkharður Sveinsson.
Þrír efstu menn í hvorum ald-
ursflokki vinna sér rétt til þátt-
töku í Landsmóti skólaskákar,
sem fram fer á Húsavík 5.-8. maí
næstkomandi.
Voratskákmót Hellis
Taflfélagið Hellir í Reykjavík
verður með opið Voratskákmót
mánudagana 11. og 18. apríl.
Tefldar verða sex umferðir eftir
Monrad-kerfi. Mótið fer fram í
Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í Breiðholti og hefst kl. 20
báða dagana. Félagsmenn í Helli
greiða ekkert þátttökugjald en i
fyrir aðra er það kr. 500 fyrir
fullorðna og kr. 300 fyrir 15 ára
og yngri.
Rit um hreppstjórnar-
menn í Kelduneshreppi
Húsavík.
SIGURÐUR Jónsson bóndi í
Garði hefur nýlega sent frá sér
fróðlegt rit um þreppstjórnar-
menn í Kelduneshreppi í Norður-
Þingeyjarsýslu .
Þar er afar fróðleg samantekt
um frammámenn í Kelduneshreppi
í rúm 200 ár, hreppstjóra frá 1790
til 1993 og hreppsnefndarmenn og
oddvita frá árinu 1874 til vorra
daga og stutt æviágrip þeirra. í
fróðlegum inngangi getur Sigurður
þess að fyrst sé minnst á starfsheit-
ið hreppstjóri 1245 og í Jónsbók
sé gert ráð fyrir tveim hreppssam-
komum á ári og allir bændur hafi
þá verið skyldugir að sækja þessar
samkomur.
Sigurður sem á þessu ári verður
75 ára segist að mestu vera hættur
búskap og við hafi tekið Jón sonur
hans svo margar tómstundir hafa
skapast, sem hann hefur notað til
að skrá ýmsan óskráðan fróðleik,
sem fullyrða má að annars hefði
gleymst og glatast.
I sambandi við þetta lofsverða
framtak, kemur mér í hug umræðu-
þáttur „Ingó og Völu“ í sjónvarpinu
nýlega, þar sem efri árin voru til
umræðu og tómstundir eldri borg-
ara voru rædd. Svo til eingöngu var
rætt um hvernig þeir eldri gætu
ejdt tímanum við skemmtanir en
ekki bent á ýmis störf sem þeir
gætu tekið sér fyrir hendur.
Hér er eftirtektarverð fyrirmynd
hjá bónda sem er að hætta eða
hættur búskap og tekur sér fyrir-
hendur skráningu gamalla heimilda
við erfiðar aðstæður því heimilda
þarf hann að afla meðal annars hjá
Þjóðskjalasafninu. En hann býr það
langt frá því, að ekki eru margir
bæir á íslandi í meiri fjarlægð.
„Það er enginn vandi að finna sér
verkefni," segir Sigurður bóndi.
„Ég þekki mann sem hefur tekið
sér fyrir hendur teikningu og skrán-
ingu heimagrafreita og kirkju-
garða, í hans nágrenni, en kirkju-
garðar eru víða á landinu illa eða
svo til óskráðir en hægt að fá heim-
ildir um nú sem eru óðum að hverfa.
Annan þekki ég sem lagt hefur
fyrir sig að skrá örnefni í landar-
Fyrirlestur um heim-
speki Díógenes
NICHOLAS Denyer heldur í dag,
laugardag, fyrirlestur í Fclagi
áhugamanna um heimspeki.
Fyrirlesturinn nefnist „Diogenes
the Dog“ eða Hundurinn Díógenes
og fjallar hann um gríska heimspek-
inginn Díógenes sem uppi var á 4.
öld f.Kr. og afstöðu hans til heim-
spekinnar.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu 101 í Lögbergi og hefst hann
kl. 14. Öllum er heimill aðgangur.
j. Aðgangur er ókeypis.
Nicholas Denyer er staddur hér
á landi á vegum Erasmus-samkipta-
nets í fornaldarheimspeki sem
heimspekiskor heimspekideildar
Háskóla íslands á aðild að. Hann
kennir heimspeki og fornfræði á
Þrenningargarði (Trinity College) í
Cambridge-háskóia. Hann hefur
gefið út bókina „Language,
Thought and Falsehood" (Mál,
hugsun og ósannindi), Routledge
1992, óg Qallar þar m.a. um áhuga
grískra heimspekinga á ósannind-
um.
Morgunblaðið/Silli
Höfundurinn
Signrður Jónsson, höfundur rits-
ins.
t •
eign sinni og enn annar, sem skráð
hefur nöfn gamalla miða til sjós,
en nú eru nöfn þeirra að gleymast
og aðeins talað um dýpið á staðn-
um. Svo er aldrei gert nóg af því
að skrá ýmsa atburði og heimildir
fyrir þeim, sem þeir eldri muna, en
með þeim hverfa. Sumir læra bók-
band, aðrir útskurð og fleira mætti
til telja. En mikilsvert er að finna
sér önnur viðfangsefni en spil og
því um líkt, finna sér einhver verk-
efni fyrir hug og hönd, það er starf-
sömu eldra fólki fyrir mestu liafi
það heilsu til.“
- Fréttaritari.
■ TAFLFÉLA GIÐ Hellir verður
með opið Voratskákmót mánudag-
ana 11. og 18. apríl. Tefldar verða
6 umferðir efitr Monradkerfi. Teflt
verður í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi. Taflið hefst kl. 20
báða dagana. Frítt fyrir félags-
menn, 500 kr. fyrir fullorðna, 300
kr. fyrir fimmtán ára og yngri.
Allir velkomnir.
■ LISTI Jafnaðarmanna við
kosningar til bæjarstjórnar Húsa-
víkur á komandi vori hefur verið
þannig skipaður: 1. Jón Ásberg
Salomonsson, bæjarfulltrúi, 2.
Pálmi Björn Jakobsson, kennari,
3. Guðrún Kr. Jóhannsdóttir,
kennari, 4. Brynjar Sigtryggsson,
framkvæmdastjóri, 5. Þorgrímur
Sigurjónsson, bifreiðastjóri, 6.
Árni Grétar Árnason, rafvirki, 7.
Dóra Fjóla Guðmundsdóttir,
fóstra, 8. Ólafur Hafsteinn Kára-
son, verkstjóri, 9. Árni Sigurðs-
son, sjómaður, 10. Ingunn Hall-
dórsdóttir, fóstra, 11. Geirfinnur
Svavarsson, iðnrekandi, 12. Guð-
rún Kristinsdóttir, íþróttakennari,
13. Magnús Andrésson, sjómaður,
14. Óskar Þ. Kristjánsson, bif-
reiðastjóri, 15. Guðmundur A.
Aðalsteinsson, sjómaður, 16.
Helgi Þór Kárason, afgreiðslu-
maður, 17. Herdís Guðmundsdótt-
ir, húsmóðir, og 18. Ólafur Er-
lendsson, framkvæmdastjóri. í nú-
verandi bæjai-stjórn eiga jafnaðar^
menn einn fulltrúa sem nú leiðir
þennan lista.
- Fréttaritari.
■ MAX-MÓTIÐ sem er íslands-
mót í innanhússknattspyrnu at-
vinnulökkviliða 1994 verður hald-
ið í íþróttahúsinu Austurbergi í
boði lþróttafélags Slökkvistöðvar-
innar í Reykjavík. Keppt er í A- og
B-riðli og hefst keppni kl. 13.30 og
lýkur um kl. 17.
MAN 10,150, árg. '90, 6 cyl., 150 hö,
ek. 127.000, 34 rrúkassi. Á bílnum er 1500 kg.
Z-lyfta með 190 cm álpalli. Nýskoðaður.
Hlutabréf í Sendibílastöðinni hf. getur fylgt.
Uppl. í símum 674406 og 985-23006.