Morgunblaðið - 05.07.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.07.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 29 I I i í 1 : < ; < 4 í i 4 j 4 4 ( 4 4 4 3 SIGURJÓN GUÐNI SIG URÐSSON + Sigurjón Guðni Sigurðsson var fæddur í Eyvindarhól- um undir Austur-Eyjafjöllum 27. maí 1924. Hann lést á Borg- arspítalanum 24. júní síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Eyvindarhólakirkju 2. júlí. Á BJÖRTUM haustdegi fyrir tæp- um 45 árum, kom ég ungur að árum til dvalar sem kennari við Skóga- skóla er þá um haustið hóf starf- semi sína. Síst grunaði mig þá, að það yrði starfsvettvangur minn næstu áratugina og þeir ágætu menn sem ég kynntist þar, starfsfé- lagar mínir. Einn af þeim var Sigurjón Sig- urðsson frá Eyvindarhólum, sem nú hefur kvatt þennan heim, sjötug- ur að aldri. Strax í byijun fór vel á með okkur Sigurjóni, enda var maðurinn einstakt ljúfmenni í við- kynningu. Hann var ekki hávær eða fyrir að láta á sér bera, en vann öll sín verk af hæversku og trú- mennsku hins lítilláta og hógværa manns. Siguijón gekk ekki í framhalds- skóla umfram skóla lífsins, en hlaut þó starfsréttindi rafvirkja. Þó get ég fullyrt að fáir stóðu honum fram- ar á sviði tré- eða járnsmíði. Vél- virkjun og störf á sviði rafvirkjunar vann hann með prýði. Allt lék í höndum hans. Slíka menn er ómet- anlegt fyrir hveija stofnun að hafa í þjónustu sinni og það er vissulega skarð fyrir skildi þegar þeir falla frá. Siguijón kvæntist Magneu Gunn- arsdóttur frá Fossi í Mýrdal. Þau hjón voru einstaklega samhent í einu og öllu og heimili þeirra rómað MINNINGAR fyrir myndarskap. Þeim varð fimm barna auðið og eru þau öll á lífi, hið gjörvilegasta fólk og vel af guði gerð til munns og handa eins og þau eiga kyn til. Þau eru: Sigríður, búsett á Selfossi, Sigrún, skógfræð- ingur, Dýrfinna, kennaranemi, Auður, fóstra, og Ágúst, verðandi trésmiður. Siguijón heitinn sóttist ekki eftir vegtillum á lífsleiðinni, en þau störf sem hann tók að sér, vann hann af einstakri háttvísi. Um langt ára- bil var hann meðhjálpari við sóknar- kirkjuna í Eyvindarhólum og leysti það starf af hendi með einstakri piýði og háttvísi sem hans var von og vísa. Það fór ekki mikið fyrir honum, en nú þegar hann er allur, sjáum við best að við höfum misst mikið og skarð það sem myndast við fráfall hans verður vandfyllt. Fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar vil ég þakka honum sam- starf og hjálp liðinna ára og ára- tuga. Hans er gott að minnast. Albert Jóhannsson. OLIVESTMANN EINARSSON + Óli Vestmann var fæddur í Reykjavík 25. febrúar 1916. Hann lést í Reykjavík 19. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Neskirkju 24. júní. ÞANN 24. júní síðastliðinn var til moldar borinn Óli vinur minn Vest- mann. Langar mig að minnast hans með örfáum orðum. Með okkur tók- ust kynni vorið 1986 er ég hóf störf sem kirkjuvörður í Neskirkju. Óli var þá gjaldkeri sóknarnefndar og bar þá sem endranær hita og þunga af flestu sem viðkom kirkjunni, við- gangi hennar og velferð. Við náðum strax vel saman enda var hann ein- staklega hlýr og ljúfur í öllu við- móti og alltaf stutt í gáskann og grínið. Bar aldrei neinn skugga á okkar samstarf, hlutirnir voru ræddir, komist var að samkomlagi og síðan var framkvæmt. Þannig var Óli. Þá vorum við báðir miklir áhuga- menn um fótbolta, hann KR-ingur fram í fingurgóma og ég, Hafnfirð- ingurinn, FH-ingur. Ég sagði líka stundum við hann að það eina sem ég hefði út á hann að setja væri að hann væri KR-ingur. Það fannst honum fýndið. Mikill er missir Neskirkju. Ennþá meiri er þó missir þeirra sem kveðja og syrgja látinn ástvin, langt um aldur fram leyfi ég mér að segja því að þrátt fyrir að dagatalið segði að Óli hefði einhver ár umfram sjö- tugt var hann síungur í anda. Jóna mín. Ég sendi þér, ijölskyld- um ykkar, ættingjum og ástvinum öllum mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Hafið í huga orð Páls postula: „Ef vér lifum, lifum vér Drottni og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins." Guð blessi ætíð minninguna um Óla Vestmann. Þorsteinn Gunnar. Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit afmælis- og minningar- greina séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í dag- legu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Ertidnkkjnr Glæsileg kaffi- lilaöborð íallegir siffirogmjög göð þjónusta. Ipplýsingar í sínia 2 23 22 FLUGLEIDIR IIÉTEL L0FTLE191K ERFIDRYKKJUR P E R L A in sími 620200 Sjábu hlutina í víbara samhengi! - kjarni málsins! t Móðir mín og dóttir, VALGERÐUR ARADÓTTIR frá Skuld, lést í sjúkrahúsinu á Blönduósi sunnudaginn 3. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Unnur Brynja Guðmundsdóttir, Guðlaug Nikodemusardóttir. t Við þökkum af heilum huga hlýju, sam- úðarkveðjur og skeyti í minningu KLÖRU HELGADÓTTUR, Ásvallagötu 26, Reykjavík. Fyrir hönd vandamanna, Þorsteinn R. Helgason. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GESTUR K. JÓNSSON, Ægisíðu 107, Reykjavík, er lést á heimili sínu 1. júlí, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju miðvikudag- inn 6. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað- ir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Guðrún Sigurjónsdóttir, Sigurjón H. Gestsson, Inga Gunnlaugsdóttir, Trausti H. Gestsson, Almar Gestsson, Elín Jónsdóttir, Baldvin Gestsson, Lotte Gestsson, Guðmundur R. Gestsson, Ásta D. Björnsdóttir, Kristinn Gestsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför ÖNNU RUTAR HAUKSDÓTTUR, Hringbraut 63, Keflavík. Fyrir hönd aðstandenda, Sveinbjörn Þórisson. t Þökkum ættingum, venslamönnum og vinum auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför ástkærrar konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR K. GUÐBRANDSDÓTTUR, Öldugötu 5, Reykjavík. Hákon Tryggvason, Guðný Styrmisdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Hákon O. Hákonarson, Ingibjörg S. Hákonardóttir, Guðrún O. Hákonardóttir Jackson, Douglas A. Jackson, Tryggvi J. Hákonarsson og barnabörn. + Af alhug þökkum við ykkur öllum, sem heiðruðu minningu eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐLAUGS JAKOBSSONAR fyrrverandi verkstjóra, Hjálmholti 5, og auðsýnt hafa okkur samúð og kær- leika við fráfall hans. Guð blessi ykkur. Katrín Kristjánsdóttir, Kristján Guðlaugsson, Guðmundur Guðlaugsson, Margrét Möller, Lilja Guðlaugsdóttir, Hjörtur Gunnarsson, Þorbjörg Guðlaugsdóttir, Grímur Ólafsson og barnabörn. + Þökkum innilega alla samúð og hlýhug við andlát og útför ÓSKARS JÓNHANNESSONAR fyrrverandi bónda frá Svinhóli. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarfólki við heimahlynningu Krabbameinsfélags Islands fyrir frábæra hjálp og stuðning í veik- indum hans. , Ragnheiður Guðmundsdóttir, Guðmundur Ómar Óskarsson, Rósa María Guðmundsdóttir, Heimir Már Óskarsson, Anna Adela Óskarsson, Auðbjörg Vordís Óskarsdóttir, Hans Guðni Magnússon, Jóhannes Halldór Óskarsson, Ólafur Óskarsson, Alvar Óskarsson og barnabörn. Lokað Verslunin Vörukaup, Skipholti 15, verður lokuð í dag, þriðjudaginn 5. júlí, frá kl. 12-18 vegna jarðarfarar SIGURBJARGAR SIGHVATSDÓTTUR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.