Morgunblaðið - 05.07.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 19
AÐSENDAR GREINAR
Silfurrefir
og silfurskottur
Þórarinn Eldjárn
í SVOKÖLLUÐU
silfursjóðsmáli sem
ýmsir fjölmiðlar aðrir
en Morgunblaðið hafa
verið að fjalla um að
undanförnu sýnist mér
augljóst að nokkrir
háttsettir embættis-
menn sem starfa eða
starfað hafa í umboði
menntamálaráðherra
hafi hagað sér ósæmi-
lega og í raun komið á
framfæri þungum
ásökunum og áfellis-
dómum yfir íjórum
vammlausum einstakl-
ingum, þ.e.s. finnend-
unum Hlyni Halldórssyni og Eddu
Björnsdóttur í Miðhúsum, Þór
Magnússyni þjóðminjaverði og loks
Kristjáni Eldjárn sem fyrstur manna
kvað upp úr um háan aldur silfur-
munanna. Þar sem mér rennur blóð-
ið til skyldunnar þegar fræðimanns-
heiður látins föður míns er annars
vegar langar mig að tæpa á nokkr-
um þáttum þessa stórfurðulega upp-
hlaups embættismannanna.
Ólafsþáttur
Einn umræddra embættismanna,
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður
og formaður Þjóðminjaráðs, hefur á
síðum DV og í sjónvarpi ítrekað
fullyrt að hluti gripanna sé frá tutt-
ugustu öld og þeir því falsaðir. Á
þessu þykist hann hafa fengið
óyggjandi staðfestinu í skýrslu frá
prófessor við Lundúnaháskóla, dr.
James Graham-Campbell. Ég tel
mig þó hafa vitneskju um að skýrsla
dr. Campbells sé ekki jafnafdráttar-
laus og í er látið skína, auk þess
sem ljóst er að þessi breski fræði-
maður, hversu ágætur sem hann
Farið hefur verið fram
á það við menntamála-
ráðherra, segir Þórar-
inn Eldjárn, að ýtarleg
rannsókn fari fram á
ásökunum embættis-
manna í tengslum við
silfursjóðinn frá Mið-
húsum.
kann að vera, mun engan veginn
geta talist neinn hæstiréttur um
foma silfuijsóði í íslenskri jörð, hvað
þá alþjóðadómstóll eins og verkbeið-
endur hans og gestgjafar láta í veðri
vaka. Þess má einnig geta til fróð-
leiks að gestgjafar gættu þess vand-
lega þe'gar dr. Campbell staldraði
hér við á dögunum að hann hitti
ekki Þór Magnússon og hefur þó
enginn maður í veröldinni skoðað
umrætt silfur betur en Þór, sem
skrifaði m.a. um það langa ritgerð
í Árbók fomleifafélagsins 1,980. Ég
er alveg viss um að Þór hefði getað
frætt hann um ýmislegt.
Til að fá úr því skorið hvað þarna
er á ferðinni segi ég: Upp með
skýrslu dr. Campells.
Fram í dagsljósið með
hana.
Guðmundarþáttur
Umijöllunin hefur
mest verið í DV, en var
þó víst þjófstartað í
Tímanum, framsóknar-
afbrigði DV. Það er því
ekki úr vegi að minna
á þá staðreynd, að nú-
verandi fréttastjóri
blaðsins, Guðmundur
Magnússon, gegndi
starfi þjóðminjavarðar
til skamms tíma, og
raunar var það því
hann sjálfur sem hlutaðist til um
það ásamt Ólafi Ásgeirssyni að hinn
breski fræðimaður kom til landsins
í lok maí gagngert til að kanna silfr-
ið! Þeir félagar era sem sagt verk-
beiðendumir og gestgjafarnir.
Heimatökin hafa því vissulega verið
hæg við öflun „fréttanna". Starfs-
heitið fréttastjóri á hér rayndar af-
skaplega vel við, því hvað er þetta
annað en fréttaSTÝRING? Sú
spuming hlýtur hins vegar að vakna
hvort það sé ekki ámælisvert að
fyrram embættismaður sem tekur
að starfa við fjölmiðil, skuli fáeinum
vikum eftir að hann lætur af emb-
ætti farinn að mata blað sitt á upp-
lýsingum sem hann hafði aðgang
að sem embættismaður. Ekki fæ ég
betur séð en að slíkt hljóti að vera
mjög alvarlegt trúnaðarbort, a.m.k.
í tilviki eins og þessu þar sem „rann-
sókn“ sem enn virðist á algjöra
framstigi er básúnuð út á svo fran-
talegan hátt og saklausu fólki þann-
ig valdið óþægindum og hugarangri.
Vilhjálmsþáttur
Víkur nú sögunni að uppsprett-
unni: Mér hefur skilist að Islands-
ferð og skýrslugerð dr. Campbells
megi rekja til „grunsemda" um téða
silfurgripi sem dr. Vilhjálmur Örn
Vilhjámsson fornleifafræðingur og
safnvörður á Þjóðminjasafni Islands
mun hafa alið í hugskoti sínu nú
um allnokkur ár. í hvetju þær grun-
semdir felast veit ég ekki, hann
hefur hvergi sett þær fram á prenti
eða opinberað þær á annan hátt þó
meðgöngutíminn sé að sögn orðinn
. alllangur. Það munu vera vísinda-
störf dr. Vilhjálms sem Ólafur Ás-
geirsson á við þegar hann talar í
DV 27. júní sl. um „orðróm“ sem
leitt hafí til þess að dr._ Campbell
var fenginn á vettvang. í fjölmiðla-
ati síðustu daga má því sakna þess
sárlega að þessi lykilmaður í mál-
inu, dr. Vilhjálmur Örn, skuli ekki
láta í sér heyra. Hann virðist algjör-
lega gufaður upp. Vitnisburður hans
hlýtur þó að vera mjög mikilvægur,
enda eru það þessar meintu grum-
semdir hans sem komu málinu af
stað. Ég vil eindregið hvetja dr.
Vilhjálm Öm til að stíga nú fram
og tjá sig opinberlega um það hvar,
hvenær, hvernig og hvers vegna
hans illi grunur kviknaði.
Sveinbj örnsþáttur
Síðast en ekki síst vil ég nefna
til sögunnar dr. Sveinbjörn Rafns-
son formann fomleifanefndar og
sagnfræðiprófessor, einkum hvet ég
fólk til að kynna sér viðtal við hann
sem birtist í DV 28. júní sl. þar sem
hann kveður vægast sagt sterkt að
orði í krafti embættis síns, talar
m.a. um „sviksamlegt athæfi" „lög-
reglumál" ofl. í svipuðum dúr. Slík-
ar ásakanir hljóta meðan annað
kemur ekki fram að beinast að öllum
sem komu að silfurfundinum á sín-
um tíma, þar á meðal Kristjáni Eld-
jám. Lítilsvirðingarorð dr. Svein-
björns um „fræðilega burði" Þjóð-
minjasafnsins og Þórs Magnússonar
hljóta einnig eins og allt er í pottinn
búið að hitta fyrir Kristján og fræði-
mannsheiður hans, þó ekki sé hann
nefndur á nafn.
Sérstaka athygli vekur að þó
árásir dr. Sveinbjörns séu gerðar
með tilvísun til margnefndrar
skýrslu dr. Campbells lætur hann
þess jafnframt gerið í sama viðtali
að hann hafi ekki séð hana!
Alvarlegt mál
Það er skoðun mín að hér sé um
mjög alvarlegt mál að ræða. Emb-
ættismenn þessir hafa allir hagað
sér svíriðilega, hver svo sem niður-
staðan verður á endanum um aldur
silfursins. Þess hefur því verið farið
á leit bréflega við hæstvirtan
menntamálaráðherra að hann láti
umsvifalaust fara fram ýtarlega
rannsókn óvilhallra og dómbærra
aðila á þeim fullyrðingum, ásökun-
um og dylgjum sem ofangreindir
undirmenn hans hafa borið fram í
málinu og að allir þættir þess verði
upplýstir til fulls og viðkomandi
embættismenn síðan víttir og dregn-
ir tii ábyrgðar fýrir málatilbúnað
sinn.
Það er hugboð mitt áð þegar ljósi
verður varpað á allt þetta mál muni
margur sem nú hyggur sig silfurref
ekki reynast annað en silfurskotta.
Höfundur er rithöfundur.
3ja dyra 882.000 kr.
5 dyra 932.000 kr.
í tilefni 40 ára
afmælis B&L höfum
við fengið sendingu
af Hyundai Pony
með ríkulegum
aukabúnaði.
Því er óhætt að
fullyrða að
sambærilegur bíll
er vandfundinn á
þessu verði.
Afmælisútgáfan af Pony
er með:
• 1,3 lítra og
74 hestafla vél
• samlæsingu
• styrktarbitum í hurðum
• tölvustýrðu útvarpi
og segulbandi með
4 hátölurum
• lituðu gleri í rúðum
• samlitum stuðurum
Innifalið f verði:
6 ára ryðvarnarábyrgð og
3ja ára verksmiðjuábyrgð.
Auk þess frír ís í Perlunni fyrir alla
farþega bílsins í átta sunnudaga.
4 dyra 985.000 kr.
HYunoni
...til framliðar
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
Hafið samband við
sölumenn okkar eða
umboðsmenn um land allt