Morgunblaðið - 05.07.1994, Síða 12

Morgunblaðið - 05.07.1994, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Tímaritið Forbes gerir úttekt á fímmtíu voldugustu fyrírtækjunum í heiminum íslenski hlutabréfasjóðurinn hf. Aðalfundur Shell stærst semfyrr New York. Reuter. FYRIRTÆKJASAMSTEYPAN Roy- al Dutch/Shell Group í Hollandi er efst á lista tímaritsins Forbes um 50 voldugstu fyrirtæki heims fímmta árið í röð. Fyrirtækjunum er raðað eftir sölu þeirra, hagnaði, eignum og markaðs- verðmæti. Royal Dutch/Shell er sjöunda sölu- hæsta fyrirtækið, skilar mestum hagnaði, skipar 47. sæti á lista yfir eignir fyrirtækja og 3. sæti á lista yfir markaðsvirði fyrirtækja, en fær beztu meðalútkomuna. Toyota-bifreiðafyrirtækið í Japan er í öðru sæti, en á eftir því koma fyrirtækjasamsteypumar HSBC Group og Deutsche Bank. Sameiginlega eru fyrirtækin vold- ugust að sögn tímaritsins. Stóru verzlunarfyrirtækin í Japan skipa fimm efstu sæti á skrá Forbes um 25 stærstu hlutafélög heimsins. Bif- reiðaverksmiðjumar General Motors em í sjötta sæti, og á eftir fylgja Ford-bílaverksmiðjurnar og Exxon- fyrirtækið. Japan er aðsetur 206 eða 41% af 500 stærstu opinberu fyrirtækjum heims. Það em þrisvar sinnum fleiri fyrirtæki en í Bretlandi, sem er í öðru sæti. Af 25 stærstu heimsfyr- irtækjunum miðað við tekjur ein- göngu em fimm efstu sætin skipuð Mitsui & Co, Mitsubishi, Sumitomo, Itochu og Mambeni. Aöalfundur íslenska hlutabréfasjóösins hf. verður haldinn 20. júlí 1994, kl. 16.30, að Suöurlandsbraut 24,5. hæö, Reykjavík. Aöalfundarstörf í samræmi viö 12. grein samþykkta: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Staöfesting ársreiknings fyrir næstliöiö reikningsár. 3. Ákvöröun um þóknun til stjórnarmanna og endurskoöenda. 4. Ákvöröun um hvernig fariö skuli með hagnað eöa tap félagsins á liðnu reikningsári. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins, ef borist hafa. 6. Kosning stjórnar félagsins samkvæmt 19. grein samþykkta. 7. Kosning endurskoöenda félagsins samkvæmt 26. grein samþykkta. 8. Önnurmál. Reykjavík 1. júlí 1994. Stjórn íslenska hlutabréfasjóðsins. i LANDSBRÉF HF. Landsbankinn stendur meö okkur í Sufturlandsbraut 24, 108 Reykjavik, sími 91-089200, fax 91-888598 < Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aöili aö Veröbréfaþingi íslands. UTSALA - UTSALA Dæmi um verð-. Bómullarpeysa 5.990- 2.990,- Silkipeysa 3.800.- 2.300,- Gallabuxur litaðar 3.900,- 2.300,- Sítt pils 2.990.- 1.800,- Leggings 990,- 600,- Stuttbuxur 1.390,- 800,- íþróttagalli 7.900,- 2.990,- Dömuskyrta 2.300,- 1.400,- T-bolir m/mynd 800,- 490,- Sett - bolur + pils 4.990,- 1.990,- Hörbuxur 4.300,- 1.900,- Sett - buxur + jakkapeysa 6.900,- 2.990,- Sumarkjóll 3.200,- 1.900,- Vesti 3.100,- 1.900,- CRíenötex * aislandi Síðumúla 13, sími 682870. Opið alla virka daga frákl. 09.00-19.00. Gjaldeyrismál Þjóðverjar gera lítið úr erfið- leikum dollars Bonn. Reuter. HÁTTSETTUR þýzkur embættis- maður virtist í gær vilja gera lítið úr vonum fjármálamanna um að meiriháttar ráðstafanir verði gerðar til stuðings dollaranum á leiðtoga- fundi sjö helztu iðnríkja heims (G7) í Napoli í vikunni. Gert Haller, ráðuneytisstjóri í fjár- málaráðuneytinu í Bonn, sagði blaða- mönnum að hugsanlegt væri að rætt yrði um veikleika dollarans að undan- förnu á Napoli-fundinum í tengslum við umræður um almennt ástand í heimsbúskapnum. Það færi eftir þró- un mála á fjármálamörkuðum á næstu dögum. Miðlarar á gjaldeyrismörkuðum hafa látið í ljós áhuga á því að leið- togar G7 — Bandaríkjanna, Japans, Þýzkalands, Frakklands, Bretlands, Ítalíu og Kanada — sýni greinileg merki þess að þeir muni láta erfið- leika dollarans til sín taka. Að öðrum kosti er líklegt að miðlarar geri aðra atlögu gegn dollaranum, þótt það gæti spillt möguleikum á efnahags- bata í Japan og aukið ótta við verð- bólgu í Bandaríkjunum. Fjölmiðlun Haller, sem er sérstakur ráðunaut- ur Helmuts Kohls kanzlara í málefn- um G7, gaf hins vegar í skyn að hann teldi að mesta hrun dollars gegn japönsku jeni í sögunni væri tvíhliða mál Bandaríkjanna og Jap- ans. Hann bætti því þó við að hann hefði „ekki skilið uppnámið að und- anförnu vegna dollarans og evr- ópskra gjaldmiðla". Fyrir dollar fást 1,60 mörk og Heller segir það 'ná- lægt meðallagi ef til lengri tíma sé litið. Um verulega brenglun sé að ræða á gjaldeyrismörkuðum í Evr- ópu. Bandaríkjastjórn hefur hvatt til eflingar dollarans upp á síðkastið, en orð hennar hafa Iítil áhrif haft á mörkuðum, þar sem beðið hefur ver- ið eftir aðgerðum. Einnig hefur verið bollalagt um sameiginlegar ráðstafanir Banda- ríkjamanna og Þjóðverja í vaxtamál- um fyrir leiðtogafund G7, en þýzki seðlabankinn hefur oft sagt að hann taki ekki ákvarðanir um vexti í tengslum við pólitíska atburði. Krefjast verndunar evr ópsks sjónvarpsefnis Brussel. Rcuter. RÆÐUMENN á ráðstefnu um stefnu Evrópusambandsins (ESB) á sviðum sjónvarps, útvarps og kvikmynda hafa krafizt sérstakrar verndar, þar sem Ijósvakamiðlar komi evrópskri menningu á framfæri. Afleiðingar slíkrar stefnu yrðu auknir styrkir og strangari reglur um kvóta af evr- ópsku sjónvarpsefni að dómi margra ráðstefnugesta. Samband evrópskra útvarps- og sjónvarpsstöðva, EBU, hefur lagt til að komið verði á fót 1,2 milljarða dollara sjóði til þess að auðvelda dreifingu efnis utan heimalanda. Auk fulltrúa EBU var hundruðum fag- manna boðið til ráðstefnunnar, sem framkvæmdastjórn ESB efndi til í því skyni að móta stefnu til þess að auðvelda ljósvakafjölmiðlum og kvik- myndaframleiðendum að beijast gegn yfírburðum Hollywood. Meðal umræðuefnis var stuðning- ur ríkisstjórna, fjárhagsstuðningur frá ESB og tilskipun sambandsins um „sjónvarp án landamæra", sem kveður á um að meirihluti sjónvarps- efnis skuli vera evrópskur. Umræð- urnar hafa sýnt að ekki ríkir einhug- ur um stefnuna í þessum málum. EBU, sem er fulltrúi opinberra sjónvarpsstöðva, hefur til dæmis lagt til að kvótar verði einnig látnir ná til nýrra tegunda þjónustu eins og áskriftarsjónvarps. En Etienne Mo- ugeotte, varaforstjóri frönsku einka- stöðvarinnar TFl, lagði eindregið til að ESB íþyngdi ekki sjónvarpsstöðv- um með fleiri kvótum og meiri höft- um. „Farið ekki að dæmi Frakka," sagði hann þegar hann hafði bent á ýmis höft sem hann kvað franskar sjónvarpsstöðvar búa við. Forseti ESB, Jacques Delors, lagði áheerzlu á þýðingu þess að varðveita evrópska menningu, en sagði að rík- isaðstoð væri ekki eina lausnin á vandamálum ljósvakafjölmiðla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.