Morgunblaðið - 14.08.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1994 31
MIIMIMINGAR
HALLA BACHMANN
+ Halla Bachmann, kristni-
boði, fæddist í Reykjavík
7. september 1925. Hún lést á
Landakotsspítala 2. ágúst síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Dómkirkjunni 10. ág-
úst. ____________
MÓÐIR Höllu, frú Guðrún Bach-
mann var föðursystir mín og mikill
vinur minn. Ég lýsti Guðrúnu svo,
þegar ég var barn, að hún væri
bæði falleg og góð. Þannig verður
hún alltaf í mínu minni.
Þegar við Ingólfur vorum í
Kennaraskólanum, þá vorum við
boðin til skírnar hjá Hallgrími Bach-
mann og Guðrúnu frændkonu
minni. Mikið voru litlu börnin fal-
leg. Drengurinn var rúmlega árs
gamall, stúlkan nýlega fædd. Þetta
var fyrsta skírn sem við Ingólfur
vorum boðin til saman. Skírnar-
börnin hétu Helgi og Helga Þrúður.
Svo voru líka tvö stálpuð börn, Jón
og Halla. Áður áttu hjónin tvíbura,
tvo drengi sem voru dánir.
Nokkuð löngu seinna kom einn
sólargeislinn enn, Hanna Guðný.
Hún var jafngömul syni okkar Ing-
ólfs. Við vorum í nokkur ár í þeirra
góða nágrenni á Óðinsgötu í
Reykjavík. Börn þeirra Guðrúnar
og Hallgríms voru fáguð og vel
gefin að öllu leyti. Þau bjuggu við
mikið ástríki og við mildi beggja
foreldra, þau urðu öll framsækin
til menntunar. Gott þótt okkur Ing-
ólfi að mæta þeim og mökum þeirra
þar sem leiðir lágu síðar saman.
Þegar Halla var sex ára fékk ég
að taka hana heim til mín að Fram-
nesi á Skeiðum part úr sumri. Ingi-
björg, fóstursystir mín á líkum aldri
og hún, minnist þess enn að Halla
vildi strax og hún kom, ganga upp
á Vörðufell. En Ingibjörg vissi að
þær gátu það ekki. Þannig bjó það
strax með Höllu að fást við ofurefl-
ið eins og raun bar síðar vitni.
Halla, frændkona mín, var dul á
fyrirætlanir sínar en því stefnu-
fastari. Ég minnist hennar sem
elskulegrar unglingsstúlku. Hún
hafði þykkt ljósbrúnt hár, dökkar
brúnir og vökul blágrá augu, fag-
urt bros.
Utan lands kynntist Halla babt-
istum og gekk í söfnuð þeirra. Hún
fékk þá brennandi löngun til að
boða kristna trú. Hún gekk á trú-
boðsskója í Brussel frá 1953 til
1955. Ári síðar var hún í biblíu-
skóla í París og lauk þaðan burtfar-
arprófi eftir hálft annað ár. Hún
vann þar síðan eitt ár sem aðstoðar-
kennari.
Hún fór sem trúboði til Afríku,
á Fílabeinsströndina. Gleði trúboð-
anna m.a. var að bjarga bömum
sem voru skilin eftir hjá þeim eða
áttu að deyja. Eftir að Fílabeins-
ströndin fékk sjálfstjórn, gekk
ýmislegt erfiðlega og seint, t.d. var
lyflaskortur oft svo að hjúkrunar-
fólkið og trúboðarnir í trúboðsstöð-
inni urðu að horfa upp á mörg börn
deyja úr farsóttum eins og barna-
veiki og kíghósta. Og margar aðrar
nauðsynjar voru af skornum
skammti. Halla var fimm ár í Afr-
íku. Hún fór seinna til Sviss og var
þar eitt ár við barnaheimili.
Hún kom síðan til íslands og
hjálpaði þá móður sinni að annast
föður sinn sem þá var sjúklingur.
Eftir lát hans bjuggu þær mæðg-
urnar saman í nokkur ár. Halla
starfaði þá í KFUK. Á þessum árum
rak hún skóladagheimili um tíma
hér heima.
Mörgu góðu hefur hún Halla
komið til leiðar. Hvað mig snertir,
þá á ég henni það að þakka, að ég
komst til Jerúsalemsborgar.
Henni hafði verið gefinn bæk-
lingur með ýmsum upplýsingum um
Landið helga. Sú gjöf varð örlaga-
rík fyrir hana.
Ódýr hópferð frá London til Jerú-
salem, var boðin á kristilegt mót.
Halla eggjaði mig að koma með og
maðurinn minn studdi það.
Grísk-kaþólska kirkjan stóð fyrir
þessu móti, kristnir gyðingar áttu
að fá margar kirkjudeildir til þess
að tilbiðja Jesúm Krist í samein-
ingu, og leggja öll ágreiningarefni
til hliðar.
Prestur úr grísku kirkjunni var
fylgdarmaður á mótinu. Hann hafði
mikinn áhuga á svona sameiningu.
Hann setti okkur inn í mál gyðinga
og araba. Hann sagði okkur frá
Jóms-kippur stríðinu. Við gátum
farið um alla Jersúsalem, af því að
gyðingar sigruðu.
Sér í lagi minnist ég hvítasunnu-
dagsins 11. júní 1984 í Jerúsalems-
borg. Við fórum til mjög fjölmennr-
ar samkomu í Abrahams-klaustri í
Jerúsalem. Fjöldinn í klausturgarð-
inum minnti okkur á hinn fyrsta
hvítasunnudag í Jersúsalem, eins
og sagt er frá honum í postulasög-
unni. Þarna voru margar þjóðir
saman komnar, bæði gyðingar og
grísk-kaþólskir, margir hvitasunnu-
menn frá Sviss, Englendingar,
Norðmenn, Danir, Svíar og Islend-
ingar. Mikil boðun fór þar fram á
hebresku og ensku.
Við sáum í dagsferðum Kibbúts
og eyðimerkur, þar voru langar
þyrniflækjur með hvössum þyrnum.
Klapparmoskan, öðru nafni Ómar-
moska, setur hvaðanæva sinn tign-
arsvip á alla Jerúsalemsborg. Tyrk-
neskur stíll. Talið er að moskan
standi á musterishæðinni þar sem
Salómonsmusterið stóð. Hún hefur
gulli lagðan kúpil, er áttstrend og
hvílir þakið á átta marmarasúlum
undir hverri hlið. Kúpillinn hvílir á
jafnmörgum innri súlum. Miklir
garðar í kring með pálmum og ký-
pressum.
Við fengum að sjá Betlehems-
kirkjuna, sem er byggð yfir fæðing-
arhellinn. Við fórum einn dag til
Nasaret og einn dag til Joppe, þar
sem Kristur mætti Páli og kallaði
hann til kristniboðs.
Ég vissi, þegar ég kom heim úr
þessari ferð, að ég myndi aldrei
framar líta augum Landið helga,
gröf Jesú Krists og Gestemane.
Ég dáðist mikið að henni Höllu,
þegar hún fór síðar til Gyðinga-
lands, að boða gyðingum fagnaðar-
erindið. En hún hélt aftur til Jerú-
salems 1986 og var þar meira og
minna síðan við trúboð. Ég skil,
eftir þessa ferð með henni, hvers
vegna hún gat aldrei slitið sig frá
Landinu helga.
Halla hafði strax í æsku eignast
hina dýru perlu og kappkostaði að
kynna öðrum ljóma hennar. Nú síð-
ast kom Halla heim frá Minsk í
Hvíta-Rússlandi, þar sem hún hafði
boðað kristna trú í rúmt ár.
Ég vil þakka Helgu systur henn-
ar og henni, að þær komu til mín
í vor. Ég vissi að Halla var sjúk
og sá það. Mér finnst það líka ráð-
stöfun Guðs að hún var síðasta
vorið og sumarið sitt umvafin ástúð
systkina sinna, vina og vanda-
manna.
Halla er talandi dæmi um það,
hvað einbeitni og heit trú getur
komið einstaklingnum langt. Hún
kveður lífið eftir að hafa náð með
kristniboði til fólks af ólíkasta þjóð-
erni. Hún tekur með sér minningar
um blóm sem spruttu upp af fræjum
sem hún sáði og minningu um fræ
sem féllu í þessum fjarlægu löndum,
án þess að hún vissi um afdrif
þeirra.
Hún deyr því eins og æskumaður
með fullan hugann af hugsjónum
og eilífðar blómum. Og huggun er
þegar Jesú nafn stendur yfir dyrun-
um sem síðast er gengið út um frá
flugvelli lífsins með Jesú nafn á
síðasta brottfararspjaldinu.
Blessuð sé hún í minningu vina
og ástvina.
Innileg samúðarkveðja frá húsi
mínu.
Rósa B. Blöndals.
EBBA KRISTIN
EDWARDSDÓTTIR
+ Ebba Kristín Edwardsdótt-
ir, talmeinafræðingur,
fæddist í Reykjavík 18. maí
1941. Hún lést á gjörgæsludeild
Landspítalans 2. ágúst síðast-
liðinn og fór útför hennar fram
frá Kristskirkju, Landakoti,
þriðjudaginn 9. ágúst.
Kveðja frá Félagi talkenn-
ara og talmeinafræðinga
Kallið er komið,
komin er nú stundin.
NÚ ER höggvið stórt skarð í okkar
litla hóp þegar ein okkar er fallin
frá á besta aldri. En stundin henn-
ar Ebbu var komin.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, er fædd-
ur, hvar og hvenær dáinn, um
foreldra hans, systkini, maka,
og börn, skólagöngu og störf
og loks hvaðan útför hans fer
fram.
Tölvur og nám '94
Ráöstefna og sýning
haldin í húsnæði Verslunarskóla Islands,
22. ágúst 1994
- Tölvunotkun í námi og kennslu
- Kennsluforrit og notkun þeirra
- Gagnanet
- Samskiptanet
Þátttökugjald kr. 3.400
Fyrirlestrar
Kynningar
Sýning
Skráning og nánari upplýsingar hjá
Skýrslutæknifélagi íslands í síma 18820
Bókhaldsaðstoð Dísu
kynnir nýja þjónustu — reikningaútskrift
með viðfestum gíróseðli. Sími 885136.
Atvinnuhúsnæði
Til sölu eða leigu á jarðhæð ca 70 fm húsnæði í mjög
góðu ásigkomulagi. Staðsett á einum fjölförnustu
gatnamótum í Reykjavík. Laust í dag. Hentar verslun,
þjónustu eða veitingarekstri.
Uppl. gefur
Fasteignaþjónustan
Skúlagötu 30, sími 26600.
BÚSETI
Sími 25788.
Ebba stundaði nám í tal- og
heyrnaruppeldisfræðum við Kenn-
araháskólann í Árósum. Æ síðan,
eða frá árinu 1972, vann hún að
sínu fagi milli þess sem hún aflaði
sér enn frekari menntunar. Auk
námsdvalar í Bandaríkjunum
1976-1978 var Ebba óþreytandi
við að sækja námskeið og ráðstefn-
ur til að geta orðið sínum skjólstæð-
inum enn frekar að liði. Þeir eru
ófáir, sem hún hefur veitt hjálp í
gegnum árin, en líkega ber þar
hæst aðstoð hennar við þá sjúkl-
inga, sem misst hafa barkakýlið af
völdum krabbameins.
Við í FTT kveðjum góðan félaga
og sendum aðstandendum Ebbu
einlægar samúðarkveðjur.
Anna Jórunn Stefánsdóttir.
BUSETI HSF., HAVALLAGOTU 24, 101 REYKJA-
VÍK, SÍMI 25788, FAX 25749. SKRIFSTOFAN ER
OPIN KL. 10-15 ALLA VIRKA DAGA.
FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
TIL ÚTHLUTUNAR í SEPT. 1994
Aðeins félagsmenn, innan eigna- og tekjumarka,
geta sótt um þessar íþúðir.
ENDURSÖLUÍBÚÐIR:
Staður:
Frostafold 20, Reykjavik
Frostofold 20, Reykjovík
Frostofold 20, Reykjavík
Frostofold 20, Reykjovík
Frostafold 20, Reykjovik
Gorðhús 4, Reykjovík
Garðhús 6, Reykjovik
Gorðhús 6, Reykjovík
Berjorimi 1, Reykjovik
Suðurhvommur 13, Hofnotfirði
Suðurhvammur 13, Hofnarfirði
Suðurhvammur 13, Hofnorfirði
Suðurhvommur 13, Hofnorfirði
Eiðismýri 24, Reykjovík
Birkihlíð 2A, Hofnarfirði
Baejorholt /A (raðh.) Hofnorf.
Frostofold 20, Reykjavik
Frostofold 20, Reykjavík
Berjorimi 3, Reykjovík
Berjorimi 1, Reykjovík
Miðholt 1, Hofnorfirði
Berjorimi 7, Reykjovík
Frostofold 20, Reykjovík
Frostofold 20, Reykjovík
Eiðismýri 24, Reykjovík
Miðholt 5, Hofnorfirði
ALMENNAR ÍBÚÐIR
TIL ÚTHLUTUNAR í SEPT. 1994
Allir félagsmenn, þ.á m. þeir, sem eru yfir eigna- og/eða tekju-
mörkum, geta sótt um þessar íbúðir.
NÝJAR ÍBÚÐIR:
Staður: Steerð: m! Áætl. ofhend:
Amorsmðri 4, Kópovogi 2ja 54 strox
Hvernig sótt er um íbúð:
Umsóknir um íbúðirnar verða að hafa borist skrifstofu Búseta
fyrir kl 15.00 þann 22. þessa mánaðar á eyðublöðum sem þar
fást.
Umsóknir gilda fyrir hverja auglýsingu fyrir sig og falla síðan
úr gíldi.
Félagsmaður, sem sækir um nú og fær ekki íbúð, verður að
sækja um á ný.
Upplýsingar um skoðunardaga íbúða og/eða teikningar fást á
skrifstofu Búseta.
Til að umsókn sé gild er áríðandi að skattayfirlit (staðfest frá
skattstjóra) síðustu þriggja ára fylgi henni. *
VINSAMLEGA SKILIÐ UMSÓKNUM INN FYRIR KL. 15
MÁNUDAGINN 22. ÁGÚST. NÆSTA AUGLÝSING BIRTIST í
MORGUNBLAÐINU SUNNUDAGINN 4. SEPTEMBER 1994.
Stærð: m! Hæð: Laus i:
4ro 88 7 eftir samkomul.
4ra 88 3 eftir samkomul.
4ro 88 5 eftir somkomul.
4ro 88 4 eftir samkomul.
4ra 88 4 des. '94
4ro 115 3 eftir samkomul.
4ro 115 3 apríl ('95 getur losnoð fyrr)
4ro 115 3 eftir somkomul.
4ra 87 2 ágúst '94
4ro 102 1 eftir samkomul.
4ra 102 3 eftir somkomul.
4ro 102 2 eftir samkomul.
4ra 102 2 júní '95 (eðo e. sgmkomul.)
4ro 103 3 sept. '94
4ra 96 3 ágúst '94
4ro 129 strox
3jo 78 4 júni/júlí '94
3jo 78 3 júlí '94
3jo 78 3 sept. '94
3ja 72 2 feb. '95
3jo 90 2 eftir samkomul.
2ja 65 1 des. '94
2jo 62 3 strox
2jo 62 3 strox
2jo 59 1 sept. '94
2ja 76 1 strax
BUSETI
.Hamiogörðum, Hávollagötu 24, 101 Reykjavik, simi 25788.