Morgunblaðið - 14.08.1994, Page 37

Morgunblaðið - 14.08.1994, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1994 37 BREF TIL BLAÐSiNS Afþökkum byssu- og aðrar ofbeldisauglýsing- ar frá kvikmyndahúsum Frá Magnúsi H. Skarphéðinssyni: UNDANFARIN ár hefur Morgun- blaðið tekið upp á þeirri nýbreytni að birta pk. „auglýsingafréttir“ af nýjum kvikmyndum í kvik- myndahúsum borgarinnar. Er í sjálfu sér ekkert við þá góðu þjón- ustu að athuga annað en að lang- oftast sendir kvikmyndahúsið blaðinu kynningarmynd úr kvik- myndinni þar sem söguhetjur film- unnar munda hin ýmsu skotvopn í oftast tilþrifamiklum stellingum og eða mismunandi mikið „hetju- legum“. Og oftar en ekki eru þess- ar sömu sögupersónur beinlínis skjótandi úr þessum drápstólum sínum svo strókarnir rjúka úr byssuhlaupum þeirra eins og sjá má svo oft á þessum myndum. . Ég vil taka það fram að iðulega er hér um vélbyssur að ræða, og alloft munum við langþreyttir Moggalesendur eftir því úr þessum „kynningarmyndum" kvikmynda- húsanna þegar karlkynssöguhetj- an (á miðjum aldri oftast, en ekki hvað) er að strádrepa sumar af hinum sögupersónunum í mynd- inni. Væri nú ekki ráð að Morgun- blaðið og aðrir fjölmiðlar legðust á sveif með okkur sem af veikum mætti erum að reyna að draga úr dýrkun á þessum byssum og öðr- um dráps- og meiðingartækjum sem tröllríður afþreyingariðnaði okkar svo mjög, að yngri kynslóð- ir vesturlanda líta sífellt meir á þessi morðtól sem eðlileg verkfæri til að leysa ágreining sinn við sam- félagið eða aðra þegna þess eins og sífellt meira má lesa um í frétt- um þessa lands og annarra í ver- öldinni? Mannúðlegri auglýsingar kvikmyndahúsanna Hægur vandinn væri að biðja forsvarsmenn kvikmyndahúsanna að senda frá sér kynningarmyndir og aðrar auglýsingar til birtingar af verkum húsa sinna þar sem eðlilegri og mannúðlegri fyrir- myndir kæmu fram en sífellt mundandi þessi drápstól. í raun- inni ættu allir góðhjartaðir og hugsandi menn hvergi að nema staðar í þessu máli fyrr en allri byssunotkun og öðru ofbeldi væri úthýst með öllu úr afþreyingariðn- aði okkar. Því meira en nóg er af því í fréttum heimsins alla daga ársins, hafi einhver ofbeldis- og byssufíkill landsins slíka óstjórn- lega þörf á að sjá aðra menn drepna með köldu blóði með þess- um tækjum. Siðferðisveikir þegnar En byssunotkun í kynningar- myndum eða í öðrum auglýsingum frá kvikmyndahúsunum í blöðum landsins er ekkert annað en leikur að eldi. Og trúlega mun meira en það. Því með sama áframhaldandi afskiptaleysi okkar andspænis yfirgangi byssu- og annarra of- beldisdýrkenda landsins og heims- ins, er ekki spurning um hvort heldur hvenær sífellt fleiri siðferð- isveikir þegnar þessa lands og annarra taki sér þessar aðgerðir til fyrirmyndar í lífinu sjálfu eins og fréttir samtímans bera sífellt meira með sér að lenska er að verða. Byssudýrkendur Allar atferlislegar og félagsleg- ar rannsóknir sýna að óbein og óafvitandi dýrkun okkar á byssum eða öðru ofbeldi leiðir á endanum til aukningar í slíkri hegðun í samfélaginu þótt hægt fari. Það er líka aðeins spurning um hvenær en ekki hvort. Og hvað ætlum við þá að segja við fórnarlömb þessara byssudýrkenda eða aðstandendur þeirra? Að minnsta kosti mun mér og örugglega mörgum öðrum smá- borgaranum verða orðfátt í jarðar- för slíks hálf- eða alsaklauss fórnarlambs byssumanns eða ann- arra ofbeldisdýrkenda samfélags- ins. Svo mikið er víst. MAGNÚS H. SKARPHÉÐINSSON, Grettisgötu 40b, Reykjavík. Gagnasafn Morgunblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýs- ingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á ann- an hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylg- ir fyrirvari hér að lútandi. ÞURÍÐUR Gunnarsdóttir og Jenny Landgrun héldu hlutaveltu nýlega og varð ágóðinn 1.917 krónur, sem þær færðu Rauða krossi Islands til styrktar Rúanda. ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu nýlega til styrktar Rauða krossi Islands og varð ágóðinn 3.840 krónur. Þær heita Sigurlaug Jóns- dóttir, Kristín Rut Jónsdóttir, Þórunn Þórarinsdóttir og Rannveig Magnúsdóttir. LEIKURINN ACJS'0114s % °kume\ cfr Þátttakan í Mjólkurbikarleiknum hefur verið svo gífurleg að við höfum orðið uppiskroppa með verðlaunabikara! En það er aðeins tímabundið ástand því búið er að panta aukasendingu af glösum sem tryggir að allir sem skila inn útfylltum þátttökuseðli fyrir 26. ágúst fá örugglega sinn verðlaunagrip. Þessi metþátttaka skýrist m.a. af því að það er ekki bara unga fólkið um allt land sem skellir sér í leikinn, heldur afar og ömmur, pabbar og mömmur ásamt frændum og frænkum á öllum aldri. Það eru bókstaflega allir með! Þangað til glösin komast í hendur réttra eigenda verðum við að treysta á þolinmæði þátttakenda sem munu að sjálfsögðu fá sérstaka inneignarkvittun fyrir hvern útfylltan þátttökuseðil sem skilað er inn. ALLIR sem skila inn útfylltum þátttökuseðli fyrir 26. ágúst fá sitt glas! Við þökkum frábœrar móttökur! Pað verður að sjálfsögðu auglýst rœkilega þegar glösin koma til landsins svo ekki fari fram hjá neinum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.