Morgunblaðið - 14.08.1994, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
STÓRMÓT FJÖLNIS
í TENNIS
22.-28. ágúst
Mótið verður haldið í íþróttamiðstöðinni
Dalhúsum 2, Reykjavík.
Skráning ferfram mánudaginn 22. ágúst
frá kl. 9-21 í Dalhúsum 2.
Afmælisrit
Gauks Jörundssonar
Til stendur að gefa út afmælisrit í tilefni af 60 ára
afmæli dr. juris Gauks Jörundssonar. Þeir, sem
hafa áhuga á að óska Gauki til hamingju með því
að fá nafn sitt birt í „tabula gratulatoria“ í bókinni,
og kaupa þar með bókina fyrir kr. 4.300, vinsam-
legast hafið samband við Bókaútgáfu Orators í
síma 628202, fax 17725, eða sendið bréf til
Bókaútgáfu Orators, pósthólf 928,121 Reykjavík.
Vinsamlegast hafið samband fyrir 2. september nk.
ÍDAG
BRIPS
Umsjón Guóm. Páll
Arnarson
FYRSTA verkið í vörninni
er að draga upp mynd af
óséðu höndunum. Stundum
er hægt að komast mjög
nærri sannleikanum strax í
fyrsta slag. Tylltu þér í
austur.
Suður gefur; allir á
hættu- Norður
♦ Á874
V Á65
♦ DG102
♦ G2
Austur
♦ K102
▼ K8742
♦ 7
+ K1094
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 grand*
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 3 grönd Ailir pass
•15-17
Vestur spilar út laufþristi,
4. hæsta, og sagnhafi lætur
lítið lauf úr borði.
Hvernig llta spil suðurs
út?
Athugum fyrst punktana.
Austur og blindur eiga sam-
tals 21 punkt. Suður á
15-17, sem þýðir að það er
aðeins rúm fyrir 2-4 punkta
á hendi makkers.
En skiptingin? Suður hef-
ur sýnt fjórlit í hjarta í sögn-
um og hann virðist eiga þrjú
lauf, þvi útspii makkers er
greinilega frá fjórlit. Hvað
með hina litina? Ja, suður á
a.m.k. ekki fjórlit í spaða,
en hvort á hann tvo eða þtjá?
Ef suður á skiptinguna
3-4-3-3, þá á makker
fimmlit í tígli, og hefði senni-
lega komið þar út frekar en
í laufí. Þótt þessi síðasta
ályktun sé ekki fullkomlega
skotheld, þá eru yfirgnæf-
andi líkur á því að skipting
suðurs sé 2-4-4-3.
Norður
♦ Á874
V Á65
♦ DG102
♦ G2
Vestur Austur
♦ 9653 IIIIH ♦ K102
+ 10 | f K8742
♦ 8643 ♦ 7
♦ Á763 * K1094
Suður
♦ DG
V DG93
♦ ÁK95
♦ D85
Og nú er bara að finna
réttu vömina. Hún er þann-
ig: Austur stingur upp lauf-
kóng og spilar íjarkanum til
baka (til að sýna lengdina).
Sé vestur vakandi, ætti hann
að átta sig á því að hann
verður að nota innkomuna á
laufás til að spila spaða.
Sagnhafí neyðist til að svína.
Austur drepur á kónginn og
sækir svo úrslitaslaginn á
lauf.
Farsi
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Gæludýr
Kettling vantar
heimili
SJÖ vikna gamlan fress-
kettling vantar gott
heimili. Hann er ljós-
brúnn og hvítur, kassa-
vanur og blíður. Uppl. í
síma 71966.
Snúlli er týndur
ÞRÍLITUR 4 ára köttur,
dökkgrár, ljósgrár og
hvítur. Hann er eyma-
merktur R3009 og á að
vera með rauða hálsól
með gráu endurskins-
merki. Hann fór frá
heimili sínu í Seláshvergi
3. ágúst sl. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um
hann eru beðnir að
hringja í síma 671377
f.h. eða eftir kl. 17.
Tapað/fundið
Karlmannsúr
fannst
GULLHÚÐAÐ kari-
mannsúr fannst fyrir
rúmri viku síðan milli
Grenibyggðar og Furu-
byggðar í Mosfellsbæ.
Eigandinn má vitja þess
í síma 666821.
Gleraugu fundust
KVENMANNS- eða bar-
nagleraugu, silfurlituð
með hvítum endum,
fundust við gatnamót
Kringlumýrarbrautar og
Bústaðavegar. Eigand-
inn má vitja þeirra hjá
Ólöfu í síma 683115.
Lyklar týndust
ÞRÍR Assa-húslyklar
með rauðu, grænu og
gulu plasti á og tveir bíl-
lyklar töpuðust sl.
fímmtudag á leiðinni
Skipasund, Lágmúli eða
í Kópavogi. Skilvís
finnandi vinsamlega
hringi í síma 686457.
Breiðablik — FH
á Kópavogsvelli í kvöld kl. 19.00
Biikaklúbburinn hittist á Mömmu Rósu kl. 18.00
VIÐAR-HF
byggingaverktaki.
Skandia
Lifandi samkeppni,
lægri iðgjöld.
TILBOÐ
ÓSKAST
í Ford Explorer „Eddie Bauer" 4x4, árgerð '91
(ekinn 49 þús. mílur), Ford RangerXLT 2W/D, ár-
gerð ’92 (ekinn 10 þús. mílur) og aðrar bifreiðar, er
verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn
16. ágústkl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
- kjarni málsins!
(UMÍSBi^ííS/cmltMB-T
/,Fbn5Íjörin*ir stgirað þú QCtir komið
dHor e-f þú biost (xfsöhurtdf'. "
Hlutavelta
ÞÆR Harpa og Heiena héldu hlutaveltu nýlega til
styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn
2.500 krónur.
Víkverji skrifar...
órsteinn Ragnarsson, deildar-
stjóri viðskiptadeildar Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, gerir at-
hugasemd við skrif Víkveija 9. ág-
úst sl.:
„Undirrituðum þykir rétt að
koma á framfæri leiðréttingum við
skrif Víkveija um starfshætti Raf-
magnsveitu Reykjavíkur (RR). Það
er slæmt að Víkveiji skuli hafa
fengið á tilfinninguna að Raf-
magnsveita Reykjavíkur hafi í
frammi starfshætti gamalla einok-
unarfyrirtækja. Starfsmenn RR
kappkosta að veita rafmagnskaup-
endum góða þjónustu og hafa sem
best samskipti við þá fjölmörgu við-
skiptamenn, sem til fyrirtækisins
leita.
Við flutning liggur ávallt fyrir
hver er skráður rafmagnskaupandi,
en einstaka sinnum er ekki vjtað
hver tekur við. Þetta á einkum við,
þegar fráfarandi tilkynnir flutning:
inn og um leigjendur er að ræða. I
þeim tilfellum er óskað eftir því að
fráfarandi hafi samband við eig-
anda húsnæðis, til þess að hann
gefi RR upplýsingar um flutning-
inn, það er að segja.hver taki við.
Ef leigjandinn veit ekki hver er eig-
andi eða vill ekki sjá um þessa
upplýsingaskyldu, sjá starfsmenn
RR úm að fletta eigandanum upp
í Fasteignaskrá og er hann síðan
skráður rafmagnskaupandi frá
flutningsdegi. Tilkynning um
skráningu er síðan send eiganda.
Varðandi aðgang að kennitölum,
er þetta að segja. Ef fráfarandi
veit nafn og lögheimili þess, sem
tekur við, en hefur ekki kennitölu
hans, er yfirleitt vandalaust fyrir
starfsmenn RR að fletta nafninu
upp í þjóðskrá, sem tengd er við-
skiptakerfi rafmagnsveitunnar.
Beintenging við þjóðskrá vegna
nýskráninga hefur verið í notkun
hjá RR um áraraðir."
XXX
Hrefna Ingólfsdóttir, blaða- og
upplýsingafulltrúi Pósts og
síma, sendir og athugasemd:
„Enn einu sinni kastar Víkverji
hnútum í Póst og síma og enn einu
sinni er nauðsynlegt að leiðrétta
hann. Af skrifum Víkveija 9. ágúst
að dæma er hann farinn að finna
upp nýja liði í gjaldskrá Pósts og
síma, eins og geymslugjald að upp-
hæð 5.000 kr., sem ekki eiga sér
stoð í veruleikanum. Þeir, sem þurfa
ekki að nota símann sinn um ein-
hvern tíma, eiga þess kost að leggja
númerið inn og losna þannig við
að greiða stofngjald þegar þeir
þurfa aftur á síma að halda. I stað-
inn greiða þeir ársfjórðungsíega
1.382 kr. Þessi þjónusta er t.d.
hugsuð fyrir þá sem fara af landi
brott um nokkurra mánaða skeið
eða þá sem flytja inn á ættingja
meðan þeir bíða eftir nýju hús-
næði. Hið svokallaða geymslugjald
sem Víkveiji kvartar undan er
hvergi að finna nema í fijóum huga
blaðamannsins. Hins vegar er ekki
óalgengt að beðið sé um flutning
símans í annað hús uiri leið og hann
er tekinn úr geymslu og fyrir vinn-
una sem því fylgir þarf að greiða
5.322 kr. Sú gjaldtaka var útskýrð
fyrir Víkveija í janúar sl.
Stofngjald nýs síma er 10.645
kr. og segir Víkveiji það vera mun
hærra verð en greiða þurfi fyrir
þessa þjónustu víða um lönd. Óvist
er hvetjir eru heimildarmenn hans
í þessu efni. Norðmenn greiða um
7.500 kr. fyrir, Finnar og Bretar
það sama og Islendingar og írar
og Svíar nokkru meira. Spánveijar
þurfa að láta út sem svarar 15.300
kr. og Danir 17.200 kr. Segir það
nokkuð um fullyrðingu Víkveija.
Það er gott til þess að vita að
það sé ekkert alvarlegra sem þjaki
Víkveija þessa dagana en áhyggjur
af gjaldskrá Pósts og síma. Kann-
anir OECD hafa sýnt ítrekað að
hún er með því lægsta sem þekkist
í heiminum og gildir þá einu hvort
um er að ræða rekstur heimilis-
síma, atvinnusíma, farsíma eða
gagnanets."