Morgunblaðið - 31.08.1994, Síða 19

Morgunblaðið - 31.08.1994, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994 19 Drottningin sem hatar ilmandi rósir og kærleika Leikárið 1994-95 hófst í Þjóðleikhúsinu með samlestri á ævintýrinu um Snædrottning- una, barnaleikritinu, sem verður sýnt á Stóra sviðinu í vetur. Súsanna Svavarsdóttir leit inn á æfingu, kynnti sér efni verksins og ævintýraheiminn, sem verður að veruleika á næstu vikum. FYRSTI samlest- urinn á nýju leikári í Þjóðleikhúsinu var í gær, þriðju- dag, þegar hinn fjölmenni og litríki hópur, sem tekur þátt í ævintýrinu um Snædrottning- una, mætti uppi á Gunnlaugur ballettsal og fór í gegnum texta verksins. Snæ- drottningin er eftir Jevgení Shvarts, leikrit skrifað upp úr hinu ástsæla ævintýri H.C. And- ersens og hafa þau Elísabet Snorra- Áifrún dóttir og Andrés Sigurvinsson unnið nýja leikgerð _upp úr þýðingu Árna Bergmann, annars vegar, og Bjarna Guðmundssonar á leikgerð Suria Magito og Rudolf Weil, annars vegar — en sú leikgerð var ensk. Flosi Ólafsson hefur sam- ið vísur barna og sögumanns í leik- gerðinni. Kann að hljóma flókið — en eins og leikstjórinn, Andrés Sig- urvinsson, sagði á fyrsta samlestri: Tilgangurinn var að ná því besta út úr því efni, sem við höfðum til að vinna úr til að setja upp sýn- ingu, sem er ævintýri frá upphafi til enda; fyrir augu og eyru.“ Snædrottningin fjallar um átök milli hins góða og illa, hins hlýja og þess kalda; heim iimandi rósa, ann- ars vegar og veröld frostrósa á glugga, hins vegar. í hlýjum heimi angandi rósa ráða sögumaður og amma ríkjum. Hjá ömmu, sem er öryggið, staðfestan og kærleikurinn, búa Gerða og Kári og Sögumaðurinn er óþreytandi við að skálda brellur og ráð til að viðhalda þessari hlýju. Hann skapar nýja heima; segir krökk- unum Gerðu og Kára ævintýri um átök góðs og ills; kennir þeim dirfsku og eykur skilning þeirra á því að með því að yfirstíga erf- iðleika og óttatil- finningar sé hægt að ná markmiði sínu — hversu erfitt sem það er. Snædrottningin kemur frá öðrum heimi. Hún hatar lifandi blóm og heita drykki, hlýleg hús og kærleika. Hún birtist í húsi ömmu, með öllum sínum kulda og nær að kasta ísk- öldum álagaham yfir Kára, sem hverfur með henni á braut. Þar með hefst ferð Gerðu á vit ævintýranna, því hún ætlar sér að frelsa vin sinn. Hún ferðast daga og nætur, vikúm saman, þar til hún kemur að landamærum hita og kulda. Og, viti menn, landamærin liggja í gegnum miðja höllu kon- ungs eins, sem er ofurseldur valdi Snædrottningarinnar. Hans helm- ingur er á hennar svæði — en hinn helmingurinn er eign dóttur hans, sem er nýgift og ásamt eiginmanni sínum hjálpar Gerðu af stað inn í hrollkaldan heim Snædrottningar- innar. Það gerist ekki átakalaust — en þegar hér er komið sögu á Gerða langa og erfiða ferð fyrir höndum. Leikmyndina hefur Guðný Rich- ards hannað og búningar eru í hönd- um Þórunnar Sveinsdóttur. Þær hafa nú þegar unnið vikum saman að undirbúningi og á fyrsta sam- lestri gaf að líta módel af sviðsmynd- Andrés Signrvinsson leikstjóri. Hilmir Edda MÓDEL af þorpi ræningjanna, þar sem litirnir falla að náttúrunni. LITIRNIR í þorpi Gerðu og Kára eru ny'úkir og hlýjir. BÚNINGUR fulltrúa drottningar og búningur stúlkunnar Gerðu en búningahönnuður er Þórunn Sveinsdóttir. um; þorpið þar sem mýktin og góð- mennskan eru ráðandi, hinn öruggi samastaður barnanna í skjóli ömmu, og kaldar dimmar óbyggðir, þar sem Gerða hittir dálítið sérkennilegar krákur, sem hjálpa henni að landa- mærum góðs og ills, björt höllin, þar sem menn klæðast öllu litrófinu — því heita og því kalda — ræningjas- þorpið í jarðlitum og tónum náttúr- unnar og að lokum höll Snædrottn- ingarinnar — ísköld, skartandi grýlukertum og frostrósum — hönn- uð úr eldvörðu plasti og ptexígleri. Litróf búninganna er unnið í sam- ræmi við þann heim, sem birtist í hverri leikmynd; tilbrigðin — hvort heldur eru pastellitir, grunnlitir eða jarðlitir fylgja því samfélagi, sem Gerða, með hjálp sögumannsins, dvelur í; í höllinni leyfa menn sér allt, ræningjarnir verða að falla inn í náttúruna til að auðveldara sé að dyljast, Snædrottningin og hennar fólk þarf ískalda liti í ísköldum heimi og Gerða og hennar fjölskylda klæð- ist fötum, sem eru fyrir venjulegt fólk í venjulegum heimi. Sögumað- urinn þarf að geta brugðið sér í allra kvikinda líki — þó þannig að áhorf- endur viti alltaf hver þar fer — og svei mér þá, ef einhvers staðar bólar ekki á trúði í honum. Áætluð frumsýning á Snædrottn- ingunni er 23-24 október og kannski vel við hæfi að þessi val- kytja kuldans mæti í kringum fyrsta vetrardag og framundan er löng og ströng æfingatörn, þar sem allt þarf að samræma. Um tónlist- ina sér Árni Harðarson, Páll Ragn- arsson er ljósahönnuðurinn, sem fær að það skemmtilega verkefni að lýsa andrúmslofti kærleika og ógnar, góðs og ills inn í sýninguna. Það er einvala lið leikara, sem tekur þátt í Snædrottningunni: Hilmir Guðnason leikur sögumann- inn og í hlutverkum barnanna, Gerð- ar og Kára, eru þau Álfrún Örnólfs- dóttir og Gunnlaugur Egilsson. Bryndís Pétursdóttir leikur ömmuna. Hinn önuga „fulltrúa" Snædrottn- ingarinnar leikur Jóhann Sigurðar- son. Edda Arnljótsdóttir leikur sjálfa Snædrottninguna. Hjálmar Hjálm- arsson og Halldóra Björnsdóttir leika hið dæmalausa par, Krák og Kráku. Kóngsdóttirin er í höndum Elvu Óskar og prinsinn hennar leikur Hilmar Jónsson. Kónginn ofurselda leikur Gunnar Eyjólfsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir leikur ræn- ingjakerlingu og ræningjar þrír eru í höndum Magnúsar Ragnarssonar, Randvers Þorlákssonar og Flosa Ólafssonar. Steinunn Ólína leikur ræningjastelpu og Helgi Skúlason leikur hrein, sem Gerða mætir í landi drottningar. Snædrottningin var fyrsta barna- leikritið, sem Þjóðleikhúsið sýndi. Það var árið 1951 og upplýsti þjóð- leikhússstjóri á fyrsta samlestri að hann hefði séð þá sýningu og hún hafi verið ógleymanleg. I raun og veru hafi hann strax þá ánetjast leikhúsinu. Við það er ekki öðru að bæta — en að margt verra getur gerst. NYJA BILAHOLLBN FUNAHOFÐA I S: KAUPA, VILTU BREYTA, ÞARFTU 22 BILATORG FUNAHOFÐA f Mazda 323 F '90, grásans., sjálfsk., ek. 67 þ. km. Verö kr. 900.000. Toyota Carina GLI árg. ‘91, ek. 31 þ. km., rauður, sjálfsk., R/O Cen. Verö kr. 1.250.000 stgr. Ath. skipti. Toppbíll. Ford Econoline Club Wagon 7,3 diesel, 4x4 og 2x4,12 manna, árg. ‘89 og ‘91. Góöir f skólaakstur. Citroen AX Sport árg. ‘89, hvltur, ek. 79 þ. km„ álfelgur. Verö kr. 590.000 stgr. Ath. skipti. Ford Explorer Eddy Bauer ‘92, græn- sans. Ek. 36 þ. km. Einn með öllu. Verö kr. 3.200.000. Iveco Daily '90, rauöur, diesel, ek. 50 þ. km. Verð kr. 2.100.000. Skipti á jeppa. Nissan Sunny SLX árg. ‘93, ek. 24 þ. km„ 5g„ hvítur. Verökr. 1.150.000 stgr. Ath. skipti. Subaru DL árg. ‘91, hvítur, ek. 92 þ. km. Verö kr. 980.000 stgr. Ath. skipti. Mazda 323 st. 4x4 ‘93, rauður, álfelgur, ek. 25 þ. km„ Verð kr. 1.240.000, skipti, skuldabréf. Mazda 626 2000 GLX '91, grásans., sjálfskiptur, álfelgur, ekinn 5815. km. Verðkr. 1.230.000.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.