Morgunblaðið - 31.08.1994, Side 31

Morgunblaðið - 31.08.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994 31 EINAR FARESTVEIT 4- Einar Farestveit fæddist 9. * apríl 1911 á jörðinni Farest- veit í Modalen á Hörðalandi í Noregi. Hann lést 14. ágúst síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni miðvikudag- inn 24. ágúst sl. ÞEGAR við vorum ungir að árum deildum við Arthur vinur minn oft um, eins og vinum einum er lagið, hvort betra væri að rekja ættir sínar til Noregs eða Danmerkur. Faðir hans kom frá Noregi, móðir mín frá Danmörku. í þessum mannjöfnuði voru foreldrar okkar undanskildir. A þeim var enga hrukku að finna. Þó að ég leyfði mér að efast um ágæti frændgarðs hans í Noregi og ágæti landsins sjálfs var Einar Farestveit í huga mér hafinn yfir alla gagnrýni. Þannig kom hann mér fyrir sjónir, smápolla. Þannig hugsa ég til hans nú, hálfri öld síðar. Mannkostir felast ekki í útliti manna. En ekki skemmdi það fyr- ir Einari Farestveit að hann var óvenjulega glæsilegur maður og karlmannlegur, hár, teinréttur og jafnan stutt í kankvíst bros þó að framkoman einkenndist af mikiili stillingu og jafnaðargeði. Aldrei veit ég neitt það til Einars sem hver maður væri ekki fullsæmdur af. Hafi ég þekkt vammlausan mann hlýtur Einar Farestveit að hafa verið sá maður. Þau tilviljunarkenndu spor sem leiddu til þess að Einar kom hing- að til lands 22 ára að aldri, á leið hans til Vesturheims í fótspor bræðra sinna, urðu okkur, þessum fámenna félagsskap manna sem byggir þetta land, gæfuspor. Hver slíkur maður bætir félagsskapinn. Stundum er sitthvað gæfa og gjörvuleiki. Þannig var því ekki farið í lífi Einars. Hjá honum fóru þessir þættir saman. Á honum sannaðist hins vegar orðatiltækið: Hver er sinnar gæfu smiður. Hann kom hingað til lands með tvær hendur tómar en hafði í farteskinu það sem skiptir meira máli en allur heimsins auður, dugnað, heiðar- leika, bjartsýni og góðvild til sam- ferðamannanna. Þó að honum hafi vegnað mjög vel í kaupsýslu, sem varð hlut- skipti Einars, og hann hafi byggt upp myndarlegt og traust fyrirtæki sem ber nafn hans, felst gæfa hans fyrst og fremst í þeirri fjöl- skyldu sem þau Guðrún komu á laggirnar. Þar hefur garðurinn verið ræktaður svo um munar enda er kominn frá þeim glæsilegur hópur afkomenda. Fáar fjölskyldur veit ég þar sem ríkt hefur meiri samheldni og eindrægni. Megi við- horfin, sem einkenndu líf Einars og Guðrúnar og ég þekki best í BRIPS llmsjón Arnór G. Ragn arsson Síðsuinarbrids á Suðurnesjum Ágæt þátttaka var sl. mánudags- kvöld en þá spiluðu 14 pör í félags- heimilinu á Mánagrund. Sigurveg- arar urðu Karl Hermannsson og Amór Ragnarsson. Þeir félagar hlutu 183 stig en meðalskor var 156. Næstu pör: Kristján Kristjánsson - Valur Símonarson 179 Stefán Ólafsson - Hjalti Bergmann 177 KjartanSævarsson-SvavarJenssen 168 Gunnar Siguijónsson - Högni Oddsson 168 Næst verður spilað nk. mánu- dagskvöld í félagsheimilinu á Mána- grund og hefst spilamennskan kl. 19.30. Nokkur þrengsli eru og eru spilara beðnir að sjá í gegnum fing- ur sér með það þangað til vetrar- starfið hefst að fullu 19. sept. Silfurstigamót í Sigtúni 9 Laugardaginn 27. ágúst var haldið í Sigtúni 9, síðasta tvímenn- ingasilfurstigamót sumarsins. Að fjölskyldulífí Arthurs sonar þeirra og Drafnar tengdadóttur, breiðast út og verða öðrum til eftirbreytni. Þar er aldrei skortur á tíma til að sinna um þarfír bamanna þó að lífí þeirra hafi fylgt mikill erill og athafnasemi. Enda hafa unglinga- vandamálin ekki verið að þvælast fyrir í fjölskyldunni. Einar miklaðist ekki af verkum sínum. Hins vegar veit ég til þess að hann lagði mörgum samferða- manninum lið og bað ekki um þakklæti. Móðir mín var að rifja upp lítið atvik úr lífí sínu. Á stríðs- áranum komu hún og faðir minn til Hvammstanga þar sem Einar og Guðrún bjuggu þá. Þau höfðu lent í brasi með bílínn og komu seint um kvöld. Ekki var annað tekið í mál en að þau gengju úr rúmum fyrir þau. Móðir mín hafði þá vart séð þetta fólk fyrr, en fað- ir minn var gamall kunningi frá því hann var héraðslæknir á Hvammstanga um nokkurra mán- aða skeið. Lengra verður vart kom- ist í gestrisni. Einhveijir á íslandi kunna yfír- standandi átakadaga að efast um ágæti þess að rekja ættir sínar til Noregs. Ég efaðist aldrei í raun um göfugan upprana Arthurs vinar míns, þó að stjómvöld hafí nú fyr- ir klaufaskap sett rembihnút á vin- áttubönd þjóðanna. Deilur okkar vora auðvitað aðeins þjálfun í þrætubókarlist. Innra með mér gat ég aldrei efast um ágæti þeirrar þjóðar sem gat af sér syni eins og Einar Farestveit. Það er dýrmætt að eiga vináttu slíkra manna því að vináttan býr áfram með manni þó að vinirnir séu gengnir. Valdimar Jóhannesson. Ég kynntist Einari Farestveit er ég hóf störf hjá G. Helgason & Melsteð hf. fyrir réttum 40 áram. Fór vel á með okkur strax í byrjun og höfum við haldið kunningsskap síðan. Einar hafði þá umsjón með umboði Pan American flugfélags- ins, grávöradeild, og ásamt Páli B. Melsteð, viðskiptum við amer- íska herinn á Keflavíkurflugvelli. Páll B. Melsteð var eigandi og for- stjóri en Margeir Siguijónsson veitti útflutningsdeildinni forstöðu, en útflutningur á skreið til Nígeríu var mikill á markað, sem Páll B. Melsteð hafði fundið nokkram áram áður. Einar Farestveit hóf störf hjá G. Helgason & Melsteð hf. árið 1941, er hann tók að sér grávöra- deildina, sem seldi mikið af minka-, refa- og selskinnúm. Hann hafði kynnst loðdýrarækt hér á landi og var verslunarskólagenginn í Nor- þessu sinni mættu 26 pör sem er það mesta í sumar og urðu úrslit eftirfarandi: \ JónBaldursson/SævarÞorbjömsson \ 541 Guðm.PállAmarson/ÞorlákurJónsson 515 Sigurður Sverrisson/Jón Hjaltason 497 Jakob Kristinsson/Júlíus Siguijónsson 495 Kristin Guðbjömsdóttir/Bjöm Amórssbn 488 Síðasta silfurstigamót sumarsins verður sveitakeppni þar sem spilað verður bæði laugardag og sunnu- dag 10.-11. sept. Þar sem húsrúm- ið í Sigtúni 9 leyfír aðeins 30 sveit- ir er vissara að skrá sveitir tíman- lega. Þátttökugjald er kr. 8.000 á sveit og fer helmingur í verðlaun. Lengd leikja og nánara fyrirkomu- lag verður ákveðið þegar ljóst verð- ur með fjölda þátttökusveita, en stefnt er að stuttum leikum með monrad kerfi svipað og á Bridshá- tíð. Frestur til að skrá sveit er til fimmtudagsins 8. sept. og skráð er á skrifstofu BSÍ í síma 91-619360. Eins dags námskeið fyrir keppnisspilara Laugard. 3. sept. kl. 13 verður haldið í Sigtúni 9 síðasta eins dags námskeiðið fyrir keppnisspilara í sumar. MIIMIMINGAR egi. í upphafi vora umsvif grávöra- deildarinnar talsverð, en höfðu næstum rannið sitt skeið, er við Einar kynntumst. Páll B. Melsteð fór til Bandaríkjanna árið 1943, dvaldi þar í 18 mánuði, og keypti inn fyrir fyrirtæki sín í Reykjavík og Þórshöfn í Færeyjum, sem Margeir stjórnaði þá. Áður en Páll fór vestur fól hann Einari að sjá um útflutningsdeild fírmans, en þá var seldur fískur til Bretlands ásamt skinnum. Árið 1947 kom svo Pan American umboðið til G. Helgason og Melsteð hf, var það áður en Loftleiðir hófu Atlants- hafsflug sitt. Fékk Einar Farest- veit þá þann starfa, að sjá um þetta nýja umboð. Pan American var um tíma eina flugfélagið, sem flutti farþega milli íslands og Bandaríkjanna. Sætaframboð var lítið, því íslendingum voru ekki ætluð nema fá sæti í hverri ferð. Varð því að leysa vandann með leiguvélum, jafnvel Sunderland- flugbátum. Ferðir til útlanda vora á þeim tíma háðar leyfum Fjár- hagsráðs um ferðagjaldeyri. Kost- aði þetta oft mikið stapp og tók mikinn tíma. Einar var þolinmóður og laginn og reyndi að leysa hvers manns vanda. Uppúr 1960 var Einari boðin staða stöðvarstjóra Pan American í Flórida, en hann hafnaði því boði. Aftur á móti var þeim Einari og konu hans Guðrúnu síðar boðið í hnattferð af Pan American. Er Páll B. Melsteð tók þann sjúkdóm, sem leiddi hann til bana, varð Einar forstjóri fírmans og var svo til ársins 1964, er hann ákvað að stofna sitt eigið fyrirtæki. Einar Farestveit var alla tíð farsæll í starfí sínu fyrir G. Helgason og Melsteð hf. Hann átti þó lengi við veikindi að stríða, er háðu honum oft. Hann var virtur maður, samn- ingalipur og útsjónarsamur. Eitt sinn, er hann var á Sikiley, á veg- um firmans, að selja skreið, veitti hann því athygli, að Norðmenn höfðu komið inn á þann markað skreið, sem íslendingar annars seldu eingöngu til Nígeríu, og þá á miklu lægra verði en fékkst fyr- ir hana á Ítalíu. Útflutningsleyfi fyrir svona skreið fékkst ekki fyrr en eftir langt og mikið þóf en þetta varð til að stórauka útflutning ís- lendinga á skreið til Ítalíu og höfðu allir hag af, sjómenn, útgerðar- menn og landsmenn. Ég hafði Einar Farestveit fyrir húsbónda í mörg ár, sem urðu mér góður skóli. Hann var hreinskipt- inn, lá ekkert á því ef honum mis- líkaði eitthvað, var ráðagóður og ráðhollur. Hann var bæði Norð- maður og íslendingur og hafði að geyma það besta frá báðum. Við hjónin sendum Guðrúnu Farestveit og fjölskyldunni innilegar samúð- arkveðjur. Ragnar Borg. Þessari nýbreytni hefur verið vel tekið og þátttakendur mjög ánægð- ir. Þennan dag verður eftirfarandi efni tekið fyrir: 1. Upprifjun á Lebensohl og Rubensohl með dæmum. 2. Grandinnákomur og svör við þeim. Fjórar lykilstöður. 3. Skilgreining á doblum. Sekt, úttekt eða lýsandi. 4. Útspil og útspilsdobl. Einnig verða spiluð 12 æfinga- spil úr efninu. Þátttökugjald er 1.000 á mann og skráning er á skrifstofu Brids- sambands íslands í síma 91- 619360. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni 12 pör spiluðu sunnud. 21. ágúst. Lárus Arnórsson - Ásthildur Sigurgísladóttir 225 Ólöf Guðbrandsdóttir - Sæbjörg Jónasdóttir 192 Þórarinn Árnason - Bergur Þorvaldsson 188 Meðalskor 165. 14 pör spiluðu fímmtud. 25. ág- úst. Eysteinn Einareson - Sigurleifur Guðjónsson 192 Þórarinn Ámason - Bergur Þorvaldsson 17 4 Ólöf Guðbrandsdóttir - Jónína Einarsdóttir 171 r- Útför t MAGNÚSAR GRÍMSSONAR skipstjóra, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. september kl. 15.00. Þuriður Magnúsdóttir, Bolli Magnússon, Atli Magnússon, Svanhildur Magnúsdóttir, Matthildur Magnúsdóttir, Helga Magnúsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg dóttir mín, móðir, tengdamóðir og amma, SOFFÍA SIGURBJARNADÓTTIR, Stigahlíð 24, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 1. september kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagiö. Ásta Sigurbjarnadóttir, Edda Herbertsdóttir, Jóhann Gunnar Jónsson, Ragna Soffía Jóhannsdóttir, Jón Birgir Jóhannsson, Gústav Jóhannsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA VERONICA SIGURÐARDÓTTIR, Frostafold 121, sem lést þann 25. ágúst sl., verður jarð- sungín frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. september kl. 15.00. Ólafía Bragadóttir, Gunnar Davíðsson, Guðmundur Friðbjörnsson, Anna Kristjánsdóttir, Sigurður Ómarsson og barnabörn. Móðir mín, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG ÁRSÆLSDÓTTIR, Mjóuhlíð 14, Reykjavík, sem lést 23. ágúst, verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. september kl. 13.30. Jónina Þorbjörnsdóttir, Hjalti Magnússon, Ingibjörg Gunnþórsdóttir, ívar og Kristin Laufey. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför litlu dóttur okkar, systur og dótturdóttur, MÁLFRÍÐAR. Sigurður Vilmundarson, Regína Reginsdóttir, Sigurlaug Sigurðardóttir, Freyr Hólm Ketilsson, Reginn Hólm Ketilsson, Reginn B. Árnason, Málfríður Jónsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTU KRISTÍNAR DAVÍÐSDÓTTUR, Nýbýlavegi 16, Kópavogi. Sigrún Pétursdóttir, Pálmi Jónsson, Anna Pétursdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Davíð Pétursson, Kristjana Kristjánsdóttir, Kristin Pétursdóttir, Hilmar Harðarson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.