Morgunblaðið - 31.08.1994, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 3L ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
FRONSK KVIKMYNDAVIKA
NÆRMYND: ALAIN ROBBE-GRILLET
í kvöld kl. 9.10, L'Eden et aprés frá 1971.
Margræð saga, byggð á þemum úr nútíma-
myndlist (Duchamp, Paul Klee og Mondrian).
16 mm enskur texti.
Miðaverð 400 kr.
ALLIANCE
hreyfimynda-
élagið
FRAN^AIS
Kúgun
kvenna
í Indlandi
INDVERSKI leikstjórinn Shekhar
Kapur var ekki mjúkmáll þegar hann
kynnti kvikmynd sína, The Bandit
Queen, á kvikmyndahátíðinni í Edin-
burgh, en hún fjallar um hrottalega
kúgun á konum í Indlandi og áhrif
stéttaskiptingar þar í landi. „Myndin
er afar umdeild og gengur fram af
fólki. Margir hafa gengið út af henni,
þegar hún hefur verið sýnd. Ef að
þið ákveðið að gera slíkt hið sama
er það skiljanlegt," sagði Kapur á
frumsýningunni fyrir fullum sal af
fólki. Enginn gekk þó út af mynd-
inni, en margir sögðust hafa orðið
fyrir mjög sterkum áhrifum.
Kvikmyndin er gerð eftir sannri
sögu og íjallar um Phoolan Devi,
undirstéttarkonu sem er kúguð af
karlmönnum. Hún gerist útlagi og
líf hennar jaðrar við goðsögn meðal
lágstéttanna í Indlandi. Kvikmyndin
hefur ekki hlotið náð fyrir augum
kvikmyndaeftirlitsins í Indlandi,
enda dregur hún upp ófagra mynd
af þjóðfélagi þar sem ókynþroska
stúlkur eru seldar í hjónaband og
niðurlægðar kynferðislega.
Phoolan Devi - „blómagyðjan" -
strýkur frá sadískum eiginmanni
sínum, er hrakin úr heimabæ sínum
og verður fyrir hópnauðgunum bæði
lögreglu og glæpagengis, sem hún
neyðist þó til að ganga til liðs við.
Hún lifir þessar hörmungar af með
óskert stolt og sem foringi eigin
hóps leitar hún blóðugra hefnda á
mörgum þeirra sem misnotuðu hana.
Þegar henni rennur loks reiðin árið
1983 leggur hún niður vopnin og
er fagnað af fjölda fólks sem hefnd-
arengli lágstéttanna og hinna fá-
tæku.
Kapur sagðist verða mjög von-
svikinn ef myndin yrði ekki sýnd á
Indlandi. „Ákveðinn hluti hástéttar-
innar í Indlandi vill ekki að myndin
verði sýnd. Fjölmargir eru að reyna
að hindra sýningar á henni vegna
þess að hún mun koma við kauninn
á fullt af fólki.“
Phoolan Devi var látin laus úr
fangelsi í febrúar síðastliðnum af
stjórnvöldum í heimahéraði hennar
Uttar Pradesh og hyggur á pólitísk-
an frama. Kapur sagði að hún hefði
ekki enn séð myndina, en hann hefði
mikinn áhuga á að gefa henni tæki-
færi til þess. „En ef kvikmyndin
reyndi á erlenda áhorfendur, reynið
að gera ykkur í hugarlund hvernig
hún myndi orka á hana,“ sagði Kap-
ur jafnframt.
Stallone
stendur
í ströngu
► S YLVESTER Stallone kemst
heill á húfi úr ýmsum svaðilför-
um á hvíta tjaldinu, en útlitið
var ekki bjart fyrir vöðvafjallið
á tískusýningu hjá fatahönnuð-
inum Versace nýlega. Janice
Dickinson var ein fyrirsætanna
á sýningunni, en sambandið milli
hennar og Stallone er ekki upp
á það besta um þessar mundir.
Fjölmiðlar komust í feitt nýlega
þegar í ljós kom að Stallone er
ekki faðir að nýfæddu barni
hennar, þrátt fyrir margítrek-
aðar yfirlýsingar hennar þess
efnis. Eitthvað virtist mótlætið
fara í skapið á henni í veislu sem
haldin var eftir tískusýninguna
og hún lét Stallone fá það óþveg-
ið. í fyrstu reyndi hann að inalda
í móinn, en á endanum gafst
hann upp, sneri kuldalega i hana
bakinu og lést ekki heyra það
sem hún hafði að segja.
Leiðtogafundur
í New Jersey
, ÍSLENSKIR stúdentar í hátíðarskapi, frá vinstri: Dögg, Ólöf,
Sigurður og Helga.
Ljós úr norðri
LJÓS ÚR norðri var hin skemmti-
lega yfirskrift á íslenskri kvik-
myndahátíð sem haldin var í
Mílanó fyrr í sumar í tilefni af
hálfrar aldar afmæli íslendinga.
Það voru Sigríður Heimisdóttir
og Fausto Furio Colombo sem
stóðu að
þessum
skemmti-
lega
menning-
arvið-
burði sem
hófst á
sýningu
kvik-
myndar
Friðriks
Þórs
Friðriks-
sonar,
Börnum
náttúr-
unnar, en
aðgangur
var
ókeypis
og öllum
opinn.
Kvik-
mynda-_
sjóður ís-
lands sá
um
skipu-
lagningu
og bauð
til opnun-
ar hátíðarinnar, „Luci dal Nord“,
ásamt íslensku ræðismannskrif-
stofunni. Hátt í 150 manns voru
við opnunina sem verður að telj-
ast mjög gott, enda svo til hvert
sæti skipað. Boðið var upp á létt-
ar veigar og í fordyri sýningarsal-
arins hélt Haraldur Hannes Guð-
mundsson Ijósmyndanemi sýn-
ingu á verkum sínum, en myndir
hans hafa vakið athygli og fengið
umfjöllun, m.a. í stærsta dagblaði
ítala, Corriera della Sera. Þá var
Fausto með skyggnumyndasýn-
ingu af íslenskri náttúru, íslenski
fáninn blakti við hún og ekki má
gleyma tónlistinni sem auðvitað
Morgunblaðið/Guðlaug L. Arnar
SIGRÍÐUR Heimisdóttir og Fausto
Furio Colombo við íslenska fánann,
en þau báru hita og þunga af af-
mælishátíðinni.
var íslensk. Ljóst er að
full ástæða er til að efna
aftur til íslenskra bíódaga
og jafnvel meiriháttar íslands-
kynningar á ítalskri grund, því
mikill og aukinn áhugi virðist
vera hjá ítölum, ekki síst unga
fólkinu, á landi voru og þjóð.
Hamra ber járn meðan heitt er,
í dag skín ijósið úr norðri.
►Tveir af vinsælustu
dægurlagasöngvurum
Bandaríkjanna, Billy Joel
og Elton John, spiluðu
saman á Giants-íþrótta-
vanginum í New Jersey á
fimm tónleikum sem upp-
selt var á fyrr í sumar.
Upphaf tónleikanna
minnti einna helst á stóran
leiðtogafund. Bandaríska
fánanum var flaggað báð-
um megin á sviðinu og
þegar píanómennirnir
tveir gengu fram á sviðið
heilsuðust þeir formlega:
„Gott kvöld Billy“, „Gott
kvöld Elton“. Áður en tón-
leikarnir hófust hélt siðan
hvor um sig
stutta tölu til
að kynna
mótleikara
ELTON John hefur líflega sviðsfram-
komu...
mm
sinn með tilheyrandi hrósi, bugti og béygingum.
Formlegheitin hurfu hinsvegar eins og dögg fyrir
sólu þegar tónleikarnir hófust. í upphafi sungu þeir
saman lögin „Honesty" og „Your Song“, en siðan skildu
leiðir. Hvorugur gaf þó neitt eftir og þeir sungu og
spiluðu flest vinsælustu lög sín í gegnum tiðina. Billy
Joel gerði lagi Eltons Johns „Goodbye Yellow
Brick Road“ skil og eftir það söng Elton
lag Joels „New York State of Mind“.
Tónleikunum lauk síðan eins og
búist hafði verið við á lagi Joels
„Piano Man“. Þar skilur kannski
einna helst á milli stjarnanna. Hug-
mynd Joels um píanóleikara er sú
að hann sé lágt launaður og van-
metinn lagahöfundur sem spilar á
reykmettuðum bar fyrir afhrök
1 þjóðfélagsins og leiðir huga
þeirra frá ömurlegri tilverunni.
Hugmynd Eltons Johns um píanó-
leikara er á hinn bóginn að hann
sé tígullegur skemmtikraftur
með demantshringa á hveijum
fingri sem spilar á uppákomum
fyrir himinháar fjárfúlgur.
En þótt Billy Joel og Elton
John séu ólíkir tónlistarmenn
að upplagi sem hafa fetað
ólíkar leiðir eftir tónlistar-
brautinni uppgötvuðu þeir
þegar tónleikarnir hófust
fyrr í sumar að þótt þeir
hafi spilað í sitthvoru
herberginu allan sinn
tónlistarferil hefur
það verið í einu og
sömu píanóhöll-