Morgunblaðið - 31.08.1994, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA
Róður Þróttara
þyngist enn
Morgunblaðið/Kristinn
BLIKASTÚLKUR fagna íslandsmeistaratitlinum . Þær hafa ekki tapað leik og gert 56 mörk í deild-
inni en aðeins fengið á sig þrjú og unnu einnig alla leikina í bikarnum og fengu þá ekki á sig mark.
Breiðabliksstúlkur
tryggðu títilinn
•> KJreiðablik tryggði sér endan-
^®lega íslandsmeistaratitilinn í
1. deild kvenna í knattspyrnu í
gærkvöldi með 3:0
Stefán sigri á Hetti. „Við
Stefánsson áttum þrjá leiki eft-
skrifar jr 0g þurftum að-
eins eitt stig svo það
var erfitt að ná upp baráttu. Kröf-
urnar voru miklar en nú er þetta
búið og markmiðið er að tapa ekki
leik,“ sagði Ásta B. Gunnlaugs-
dóttir úr Breiðablik eftir leikinn.
Leikurinn var annars lítið fyrir
FELAGSLIF
Körfuboltaskóli UMFG
Körfuknattleiksskóli UMFG, sem hófst sl.
mánudag, stendur yfir út vikuna. Skólinn
er í íþróttahúsi Grindavíkur, en á meðal
kennara er Friðrik Kúnarsson, þjálfari
meistaraflokks karla.
Meistaramót öldunga
Meistaramót öldunga verður haldið á Laug-
ardalsvelli 2. og 3. september og verður
keppt f fimm aldursflokkum frá 35 ára og
upp úr. Þátttökutilkynningar þurfa að ber-
ast í síðasta lagi í dag til skrifstofu FRÍ.
augað og helst að Blikastelpur
vildu gera að minnsta kosti tvö
mörk í einu og það helst sjálf-
krafa. Olga Færseth skoraði á 15.
mínútu, eftir fyrirgjöf Sigrúnu
Óttarsdóttur, bætti öðru við á 60.
mínútu og Margrét Ólafsdóttir inn-
siglaði sigurinn þremur mínútum
síðar.
„Við vorum of rólegar ef eitt-
hvað er og ákveðið spennufall því
það var erfitt að ná einbeitingu,
sérstaklega þegar mikið af fólki
var byijað að óska okkur til ham-
KAPPAKSTUR
ingju fyrir leikinn," sagði Vanda
Sigurgeirsdóttir þjálfari og leik-
maður Breiðablik." Meistararnir
léku ekki vel og það var helst
Vanda í vörninni ásamt Ástu og
Sigrúnu sem skeiðuðu upp kantana
til að skapa hættu við mark Hattar.
Hattarstúlkur eru enn í fall-
hættu og verða helst að vinna
Dalvík í næsta leik til halda sér í
deildinni. „Við vorum stressaðar
og gekk frekar illa en getum bet-
ur,“ sagði Oddný Freyja Jökuls-
dóttir fyrirliði.
Víkingar sigruðu Þrótt á Nes-
kaupstað 1:3 í 2. deildinni í
knattspyrnu í gærkvöldi og þyngd-
ist róður Þróttar enn
Ágúst við tapið en liðið er
Blöndal í næst neðsta sæti,
skrifar frá þremur stigum á
Neskaupstaö eftir næsta liði. Vík-
ingar skutust hins vegar upp í
fjórða sætið, upp fyrir Þrótt í
Reykjavík og eygja möguleika á að
komast í 1. deild.
Heimamenn réðu gangi mála
framan af og voru áhorfendur farn-
ir að vonast eftir sigri enda lék lið-
ið mjög vel á þessum kafla. Markið
lét þó standa á sér en kom loks á
21. mínútu en gestirnir jöfnuðu á
34. mínútu. Þróttarar áttu skot í
stöng beint úr aukaspyrnu skömmu
síðar en staðan var 1:1 í hléi.
Víkingar réðu því sem þeir vildu
ráða í síðari hálfleik og sigur þeirra
var öruggur enda skoruðu þeir tví-
vegis áður en yfir lauk. Viðar Þor-
kelsson var lang besti maður Þrótt-
ar en í annars mjög jöfnu liði Vík-
ings voru Óskar Óskarsson og Björn
Bjartmarz bestir.
KORFUKNATTLEIKUR
Grissom með ÍBK
Davíð Grissom, sem lék með
KR-ingum í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í fyrra, mun leika
með liði Keflvíkinga í vetur. Félaga-
skiptanefnd úrskurðaði á mánudag-
inn að samningur hans við KR
væri ekki bindandi en KR-ingar
höfðu neitað að skrifa undir félaga-
skiptin og því kom málið fyrir fé-
lagaskiptanefnd.
„Það var nú kominn tími á að
félagskiptanefnd kæmist að niður-
stöðu, því það var í maí/júní sem
Grissom ákvað að koma til okkar.
Ég fagna því að þetta er frágengið.
Grissom er mikill fengur fyrir okkur
því hann lék mjög vel í fyrra og
við höfum misst marga menn,“
sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari Kefl-
víkinga í samtali við MorgTjnblaðið
í gær.
Keflvíkingar hafa misst marga
menn á síðustu tveimur árum.
Hjörtur Harðarson er farinn til
Bandaríkjanna, Guðjón Skúlason til
Grindavíkur eins og Nökkvi Már
Jónsson. Kristinn Friðriksson mun
leika með Þór í vetur. Falur Harðar-
son hefur verið við nám í Bandaríkj-
unum en leikur nú með KR.
Schumacher í bann
ÞÝSKI Formula 1 ökumaðurinn Michael Schumacher hefur verið
dæmdur í tveggja móta keppnisbann af alþjóða bílaíþróttasam-
bandinu. Þessi ákvörðun var staðfest á fundi í París í gær, þar
sem áfrýjun Schumacher var afgreidd. Ástæða bannsins er sú
að hann sinnti ekki stöðvunarskyldu strax í breska kappakstrin-
um fyrir skömmu.
/
ÍSLAND - SVÍÞJÓÐ
Á LAUGARDALSVELLI 7. SEPTEMBER
h*f‘n
.hjá Eymundsson og ESSO.
Hann braut af sér í upphitunar-
hring fyrir keppnina og var
sýnt svart flagg, sem þýðir að öku-
maður á að koma inn á viðgerðar-
svæði til að taka út refsingu, bið á
tíma eða jafnvel þola brottvísun.
Schumacher og Benetton lið hans
sinnti þessu ekki strax og dómnefnd
dæmdi hann fyrir vikið í bann eftir
keppnina. Schumacher áfrýjaði, en
tapaði henni i gær. Auk þessa máls
var dæmdur af honum sigur í belg-
íska kappakstrinum um s.l. helgi,
þar sem skoðunarmenn kváðu bíl
hans ólöglegan. Sérstök plata undir
bílnum var ekki talin eins og reglur
segja til um, en Benetton liðið hef-
ur áfrýjað þessum úrskurði. Damon
Hill er því sigurvegari i keppninni
og hefur með þessu saxað verulega
á forskot Schumacher, sem þó hef-
ur 21 stigs forskot í keppninni."
„Ég græt ekki vandamál Schum-
acher, ef hann hefur verið á ólögleg-
um bíl, það skýrir afhveiju mér
reyndist vonlaust að ná honum í
einu af mikilvægustu mótum árs-
ins,“ sagði Hill eftir að hafa heyrt
niðurstöðuna. „Þetta gefur mér
færi á að nálgast hann að stigum,
en því má ekki gleyma að ég á eft-
ir að aka í tveimur mótum. Ekkert
annað en sigur kemur til greina,
ætli ég að eiga möguleika í heims-
meistaratitilinn."
„Við höfum líka fengið menn og
nú höfum við fengið Sverri Þór
Sverrisson frá Snæfelli, Birgir Guð-
finnsson frá Þór og Einar Einarsson
frá ÍA, en þetta eru strákar héð-
an,“ sagði Jón Kr., sem ætlar að
hefja æfíngar fljótlega. Hann hefur
sjálfur átt við meiðsli að stríða i
læri frá því í vor.
Miklar breytingar verða hjá Val.
Lárus Dagur Pálsson er kominn
heim aftur eftir eitt ár hjá Tinda-
stóli, ívar Webster verður með Val,
Magnús Guðfínnsson einnig, en
hann hefur verið við nám í Banda-
ríkjunum í fjögur ár en lék eitt ár
með ÍBK. Þá hefur Bárður Eyþórs-
son gengið til liðs við Val og Hjört-
ur Arnarsson einnig en hann lék
með Létti í fyrra. Jonathan Bow
leikur með Val eins og áður hefur
komið fram en Brynjar Karl Sig-
urðsson hefur ákveðið að leika með
ÍA.
Hátíð í Höllinni
Úrvalsdeildin hefst 29. septem-
ber en á laugardaginn verður tekið
dálítð forskot á sæluna því þá fara
fram úrslitin í NBA þrír á þijá sem
verið hefur í gangi um allt land í
sumar. Keppt verður í fjórum flokk-
um en keppnin fór fram á 35 stöð-
um i sumar og sigurvegararnir það-
an keppa í Höllinni. Þetta á að vera
fjölskyldudagur því ýmislegt verður
fyrir almenning í Höllinni, meðal
annars verður sérstakt barnahorn
og því ættu mamma og pabbi að
geta fylgst með keppninni, eða tek-
ið sjálf þátt.
B-stigs þjálfaranámskeið verður
á vegum KKÍ og hefst það á föstu-
daginn. Þar kennir virtur þjálfari
frá Spáni, Jose Maria Buceta, sem
er núverandi landsliðsþjálfari
kvenna þar í landi.
Ikvöld
N kl. ,...kl.
Sindri ki.
Magni kl.
Urslitakeppni 4. deildar:
Siglufl.: KS-UMFN.
Ólafsvík: Víkingyi
Leiknisv.: Leiknir-
Seyðisij.: Huginn ■
■Ársþing Fimleikasambands íslands
verður haldið í íþróttamiðstöðinni
Laugardal i dag kl. 17.30. Margrét
Bjarnadóttir, formaður sambandsins
undanfarin sex ár, gefur ekki kost á
sér til endurkjörs.
REYKJALUNDARHLAUP 1994
Um 700 manns tóku þátt
Um 700 manns tóku þátt í
Reykjalundarhlaupinu,, sem er
almenningshlaup og fór fram um
helgina í sjöunda sinn. Flestir fóru
gangandi eða skokkandi þriggja
kílómetra leið, margir fóru 500
metra til fjögurra km leið á hlaði
Reykjalundar, en töluverður hópur
fór sex kílómetra og 29 hlupu 14
km. Helstu úrslit í 14 km urðu þessi:
Konur klst.
Fríða Bjarnadóttir............1:06.01
Ursula Júnemann..................1:07.46
Rósa Friðriksdóttir..............1:14.51
Karlar
Brynjólfur Ásþórsson...............55.44
Jóhann Ileiðar Jóhannsson..........57.05
Jósef G. Sigþórsson................58.22