Morgunblaðið - 13.10.1994, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Breytingar á reglum
um dagpeninga
FRUMVARP til breytinga á lögum
um vemd bama og unglinga gerir
ráð fyrir að Bamavemdarstofa rík-
isins og móttöku- og meðferðarstöð
fyrir unglinga leysi Unglingaheimili
ríkisins af hólmi. Bamaverndar-
stofa heyri undir félagsmálaráðu-
neyti og annist stjórnsýslu verkefna
á vegum ráðuneytisins. Móttöku-
og meðferðarstofnun komi í stað
Unglingaheimilis ríkisins, meðferð-
arheimilisins í Sólheimum 7, mót-
tökudeildar í Efstasundi 86 og
vímuefnadeildar á Tindum og sinni
skammtímavistun, dag- og eftirm-
iðverð og vímuefnameðferð._ Á
blaðamannafundi Guðmundar Áma
Stefánsson, félagsmálaráðherra,
vegna breytinganna kom fram að
35 milljónir væra ætlaðar til bygg-
ingar móttöku- og meðferðarstofn-
unarinnar á fjárlögum. Afgangur-
inn yrði fjármagnaður með sölu
húsnæðis áðurnefndra fjögurra
stofnana. Kostnaður vegna mót-
töku- og meðferðarstofnunar er
áætlaður á bilinu 70 til 80 milljón-
ir. Hún verður staðsett á höfuðborg-
arsvæðinu, líklega í grennd við
Keldur í Grafarvogi.
Barnaverndarstofa
Félagsmálaráðherra fól stjómar-
nefnd Unglingaheimilis ríkisins að
vinna að tillögum um endurskipu-
lagningu málflokksins. Barna-
verndarstofu er ætlað að létta verk-
efnum af sjáifu ráðuneytinu og
SUZUKI SWIFT GLSi
Sparneytinn og vel búinn bíll
á mjög hagstæðu verði,
kr. 945.000.
9MI
SUZUKI BÍLAR HF skeifunni 17 sími 68 51 oo
Spara
líkiega
30 millj.
„Við teljum að breytingarnar gætu
sparað 30 milljónir á ári,“ segir
Steingrímur Ari Arason aðstoðar-
maður fjármálaráðherra og er þá
miðað við fjölda ferða sem farnar
hafa verið í ár að hans sögn. En
Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra, sagði í viðtali við Morgun-
blaðið á sunnudag að ráðgert væri
að breyta reglum um dagpeninga-
greiðslur til ríkisstarfsmanna og
gera þær líkari því sem viðgengist
hjá einkafyrirtækjum, þar sem mið-
að væri við ferðanætur frekar en
daga. Þannig sparaðist hálfur dag-
ur í hverri ferð.
„Við tökum heildarkostnaðinn og
síðan meðaltal dagpeninga og þar
með getum við fengið ferðadaga-
fjölda. Við höfum ekki upplýsingar
um ferðafjölda og verðum því að
áætla hann og höfum áætlað um
5.000 ferðir og sé fyrri talan marg-
földuð með kostnaði fyrir hálfan
dag, það er 7.000 krónum, gerir
það 35 milljónir. En þar sem ekki
er hægt að áætla að við spöram
alveg hálfan dag, höfum við slegið
á 30 milljónir," segir Steingrímur
Ari.
360 milljónir á ári
Bolli Þór Bollason skrifstofustjóri
í fjármálaráðuneytinu, sem sæti á í
ferðakostnaðarnefnd, segir að dag-
peningagreiðslur árið 1992 hafi
numið rúmum 360 milljónum króna
og upphæðin hafí verið svipuð í
fyrra.
Frumvarp til breytinga á lögnm um vernd barna og unglinga
eldsvoða
TALSVERT tjón varð af völd-
um eldsvoða í húsinu Nönnu-
stíg 4 í Hafnarfirði í fýrrinótt.
í húsinu bjuggu hjón með tvö
böm og sakaði þau ekki. Sam-
kvæmt upplýsingum slökkvil-
iðsins varð tjónið aðallega af
völdum hita og reyks. Talið
er að kviknað hafi í út frá
rafmagni.
Tilkynning um eldsvoðann
barst slökkvistöðinni í Hafnar-
firði kl. 1.07 í fyrrinótt, en
hringt var frá Nönnustíg 2.
Þegar slökkvilið kom á vett-
vang stóðu eldtungur út um
glugga á húsinu, en íbúar
hússins voru þá þá komnir út
á götu. Reykkafarar fundu eld
sem logaði á miðhæð hússins
í millilofti. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn, en nokkum
tíma tók að slökkva í spæni á
milli þilja.
Stöðva á
vetrarveið-
ar í Smugu
STJÓRN Sjómannafélags
Hafnaríjarðar hefur samþykkt
að lýsa yfír fullum stuðningi
við ályktun Sjómannasam-
bands Islands varðandi veiðar
skipa, mönnuðum íslenskum
áhöfnum í Barentshafí að vetr-
arlagi.
í ályktun stjómar félagsins
kemur fram að greinargerð sú
sem unnin hefur verið af Einar
Sveinbjömssyni veðurfræðingi
um veðurfarsþætti og ísingar-
hættu í Barentshafi „gefí fullt
tilefni til að koma í veg fyrir
að þessar veiðar verði stundað-
ar yfir vetrartímann. Því beinir
stjómin þeim tilmælum til ís-
lenskra stjómvalda að þau beiti
sér fyrir fýrir fundi eins fljótt
og kostur er með þeim aðilum
sem hagsmuna hafa að gæta í
þessu máli, svo og þeim stofn-
unum sem fara með öryggismál
sjómanna," segir í ályktuninni.
Kona varð
fyrir bíi
FULLORÐIN kona varð fyrir
bíl á Háaleitisbraut um átta-
leytið í gærmorgun.
Konan var að ganga yfír
Háaleitisbrautina þegar hún
varð fyrir bíl sem var ekið frá
Hvassaleiti norður Háaleitis-
braut. Konan var flutt á slysa-
deild. Meiðsl hennar eru talin
minniháttar.
Nýir skólar
BORGARSTJÓRI Reykvíkinga,
Ingibjörg Sólrún Gisladóttir, af-
henti fyrsta áfanga Rimaskóla
og þriðja áfanga Húsaskóla
formlega til rekstrar síðastliðinn
mánudag. í Rimaskóla sátu nem-
endur í 1C og borðuðu nestið
sitt undir upplestri sögunnar um
Stígvélaða köttinn á meðan skól-
inn var vígður í næstu stofu og
á hinni myndinni bregða nokkur
börn á leik við Húsaskóla. Fram-
kvæmdir hófust við Rimaskóla
fjnrir tveimur árum en Húsaskóli
var byggður í nokkrum áföngum.
Var sá fyrsti tekinn í notkun
1992, annar áfangi í fyrrahaust
og sá síðasti 10. október, eins og
fyrr er getið.
Morgunblaðið/Kristinn
Byggð verði móttöku- og
meðferðarstöð fyrir 80 millj.
hafí það fyrst og fremst reglugerð-
ar- og lagasmíð með höndum. Stof-
an hafi hins vegar með höndum
stjómsýslu, samræmingu, fjármála-
stjóm, leiðbeiningar og ráðgjöf við
meðferðarheimili og bamaverndar-
nefndir, þróunar og rannsóknar-
starf, yfíramsjón með vistunum og
fósturráðstöfunum og upplýs-
ingamiðlun.
Bragi Guðbrandsson, formað-
ur stjórnarnefndar Unglingaheimil-
is ríkisins, lagði áherslu á að heild-
arsýn stofunnar stuðlaði að betri
árangri. Um fósturmálin sagði hann
að þau væri nú alfarið á hendi
bamavemdarnefnda. Þær tækju
ákvörðun um úrræði og auglýstu
eftir fósturforeldram. Oft væri að-
eins auglýst í fjölmiðlum og gæfí
augaleið að árangurinn væri mis-
jafnt. Alltof algengt væri að fóstur
gengju ekki upp og bömin þyrftu
síðar á öðrum úrræðum að halda.
Breytingin gerir ráð fyrir að barna-
verndarnefndir taki áfram ákvörð-
un um úrræði. Þær njóti hins vegar
aðstoðar Bamavemdarstofu við val
og undirbúning fósturforeldra.
Móttöku- og meðferðarstofnun
Bragi sagði að á grundvelli fyrri
gagnrýni hefði verið reynt að gera
skýran greinarmun á hlutverki ríkis
annars vegar og sveitarfélaga, hins
vegar. Samkvæmt því sæi ríki alfar-
ið um fyrirhugaða móttöku- og
meðferðarstöð. Markmið hennar
yrði að sinna sérhæfðari meðferð
og mætti þar nefna vímuefnameð-
ferð og vistun í bráðatilvikum. Gert
er ráð fyrir að stöðin rými allt upp
í 20 unglinga, verði staðsett í Graf-
arvogi, líklega nálægt Keldum, og
kosti á bilinu 70 til 80 milljónir.
Ekki er gert ráð fyrir að unglingar
dveljist lengur í stöðinni en 4 mán-
uði.
Sveitarfélög sjá meðal annars um
grunnþjónustu og ráðgjöf. Má þar
nefna að Reykjavík hefur þegar
samþykkt að taka þátt í að setja
upp miðstöð fjölskylduráðgjafar í
borginni. Önnur sveitarfélög á höf-
uðborgarsvæðinu hafa ekki gefið
endanlegt svar. Ákveðið hefur verið
að leggja 13 milljónir til ráðgjafa-
stöðvar af þessu tagi á höfuðborg-
arsvæðinu og 5 milljónir til sam-
svarandi starfsemi á Norðurlandi.
Meðferðarheimili fyrir börn
og unglinga
Bragi sagði að góð reynsla hefði
verið af fjórum einkareknum með-
ferðarheimilum fyrir unglinga og
yrði því samstarfi haldið áfram.
Stefnt er að rekstri að minnsta kosti
eins heimilis til viðbótar og fram kom
á fundinum að fyrirhugað væri að
fjölga plássum á Stóra-Gröf í Skaga-
firði.
Á fundinum var lögð áhersla á
að ekki væri hugmyndin að leggja
niður starfsemi á hinum ýmsu stöð-
um aðeins að færa hana á milli staða.
Má í því sambandi nefna að til stend-
ur að starfsemi fyrir 16 til 18 ára
unglinga á meðferðarstofnuninni á
Tindum verði færð að Vífilsstöðum.
Björgnð-
ustúr
•I
I
I