Morgunblaðið - 13.10.1994, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
231 I3J ')!>() .61 f:TI )#<I JTIII.Ií U
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 5
JAZZGÍTARLEIKARINN
Stanley Jordan
íslendingar óska eftir viðræðum við Grænlendinga um samskipti þjóðanna
Veiðar á Reykja-
neshrygg ræddar
ÞORSTEINN Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, segist hafa óskað eftir við-
ræðum við grænlensk stjórnvöld um
samskipti þjóðanna og hugmyndir
um stjómun fiskveiða á Reykjanes-
hrygg. Hann segir hugmynd Halldórs
Ásgrímssonar, formanns Framsókn-
arflokksins, um sameiginlega stofn-
un þjóðanna til að stýra fiskveiðum
á Reykjaneshryggi samræmast sín-
um eigin sjónarmiðum. Henrik Leth,
ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðu-
neyti Grænlendinga, sagði að ekki
hefði verið tekin ákvörðun um hvar
eða hvenær umræðumar gætu farið
fram. Ekki væri víst að ráðherrann
hefði tíma fyrir kosningar næsta vor.
Þorsteinn sagði að sér þætti Norð-
austur-Atlantshafsfiskveiðinefndin
illa fær að takast á við verkefnið.
Eðlilegra væri að strandríkin mynd-
uðu stjórnunarstofnun um flökku-
stofna inn og út úr lögsögu þeirra.
„Ég hef óskað eftir viðræðum við
grænlensk stjómvöld,“ sagði Þor-
steinn ,„ og meðal annars sent boð
til grænlenska sjávarútvegsráðherr-
ans um umræður um samskiptamál
Íslands og Grænlands, þ.á.m. þessa
hugmynd. Óskað var eftir viðræður
seinnihluta sumars og ekki hefur enn
borist svar frá grænlenskum stjórn-
völdum hvort þeir em tilbúnir til
slíkra viðræðna. Á því geta verið
margar skýringar, t.d. er stjómkerfið
lítið.“
Viðræður dragast
Henrik Leth sagði að borist hefði
óformleg ósk um viðræður. Erindinu
hefði ekki verið svarað enda hefðu
staðið yfir sumarfrí og kosningaund-
irbúningur hæfst brátt. Ekki væri
víst að ráðherra hefði tíma til við-
ræðna fyrr en eftir kosningar næsta
vor. Hins vegar kæmi til greina að
embættismenn ræddust við fyrst.
Hann sagði að vissulega væri margt
að ræða en þjóðirnar hefðu búið við
núverandi ástand í langan tíma og
ekki skipti öllu þó viðræður dræg-
just eitthvað.
Stanley
Jordan
leikur á
íslandi
JASSGÍTARLEIKARINN Stan-
ley Jordan mun koma hingað til
lands og halda tónleika í Há-
skólabíói 1. nóvember nk. TKO-
ísland og Jassvakning standa
fyrir tónleikunum. Stanley Jord-
an er heimsþekktur tónlistar-
maður á sínu sviði og segir
Vernharður Linnet, formaður
Jassvakningar, að Jordan hafi
bylt flestum viðteknum hug-
myndum um gítarleik frá því
að hann öðlaðist frægð fyrir um
áratug síðan.
„Það er gífurlega gaman að
fá hingað til lands mann eins
og Stanley Jordan, sem er tæk-
niundur með tilliti til gítar-
leiks,“ segir Vernharður.
Erum í skýjunum
„Sérstaklega er það einstakt
fyrir alla þá sem spila á gítar
eða hafa áhuga á því hljóðfæri,
hvaða tónlistarstefnu sem þeir
aðhyllast, að fá að berja hann
augum. Gítartækni Jordans er
ólík öllu öðru fyrr og síðar og
hefur hann bæði gefið út plötur
með klassískum jasslögum og
nýjum jass, rokkuðum verkum
o.fl. Ég var að hlusta að nýjustu
geislaplötu hans, Bolero, þar
sem er m.a. um 20 mínútna út-
gáfa af samnefndu verki eftir
Ravel með ýmsum rafhljóðfær-
um. Það gerist ekki orðið nema
á Listahátíð eða Rúrek að svona
stórir listamenn komi til lands-
ins og alveg sérstakt að fá hann
hingað. Við jassistar erum í skýj-
unum en ekki síður gítaráhuga-
menn, hvort sem þeir hafa dá-
læti á Django Reinhardt eða Jim
Hendrix.“
----» ♦ ♦----
Innbrotsþjóf-
ur í gæslu-
varðhald
MAÐUR, sem staðinn var að því
að brjótast inn í fyrirtæki við
Bíldshöfða 14 á þriðjudagsmorg-
un, var í gær úrskurðaður í 45
daga gæsluvarðhald.
Maður, sem kom snemma til
vinnu, varð tveggja manna var,
sem höfðu brotist inn á Bíldshöfða
14. Maðurinn lét lögreglu vita og
náðist annar þeirra. Sá hefur iðu-
lega áður komið við sögu vegna
innbrota. Hann var í gæsluvarð-
haldi fyrir skömmu og á óafplán-
aðan dóm vegna innbrota. I gær
var hann leiddur fyrir dómara og
úrskurðaður í 45 daga gæsluvarð-
hald.
Eins og öllum er kunnugt varð
þötttakan í Mjólkurbikarleiknum
síðastliðið sumar svo gífurleg
að við urðum uppiskroppa
með verðlaunabikara.
Og nú er aukasendingin
komin með það sem
upp á vantaði!
Hér fást bikararnir a
Frá og meö
mánudeginum 17. okt.
venöa mjóikunbikarar
afhentin
í Mjólkunsamsölunni,
Bitnuhálsi, á milli
kl. 13 og 18 vinka daga
til 15. nóvember.
REYKJAVÍK:
Mjólkursamsalan Bitruhálsi: Laugardag og sunnudag 15. og 16. okt. kl. 10 til 16.
Mjólkurbíll v/Laugardalsvöll: Laugardag og sunnudag 15. og 16. okt. kl. 10 til 16
verður mjólkurbíll við miðasölu aðalleikvangs.
HAfNARFJÖRÐUR:
Mjólkurbíll á bílastæðunum við Fjarðarkaup, laugardag og sunnudag
15. og 16. okt. kl. 10 til 16.
YTRI-NJARÐVÍK:
Við Hagkaup, laugardag og sunnudag 15. og 16. okt. kl. 10 til 16.
NJARÐVÍK:
Við Samkaup, laugardag og sunnudag 15. og 16. okt. kl. 10 til 16.
VESTMANNAEYJAR:
Geisli, Flötum 29, laugardag og sunnudag 15. og 16. okt. kl. 13 til 16.
Um leiö og viö þökkum ungum sem öldnum fnábæna fnammistöðu og
ómælda þolinmæði, hvetjum við þá til að láta sjá sig á laugandag eða sunnudag!
nmr
MJÓLKURSAMSALAN
BikarafhendinqMjólkursamsölunnar,
lauqardag oq sunnudaq 15.-16. okt.
m jr A luutjuiuut) u\j