Morgunblaðið - 13.10.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 19
ERLENT
A
„Lævi blandinn friðurinn“ innan Ihaldsflokksins sagður úr sögunni
Deilumar um Evrópu-
málin blossa upp á ný
London. Reuter.
LEIÐTOGAR breska íhaldsflokksins gerðu í gær
lítið úr deilum innan flokksins um Evrópumálin
og sögðu, að þær væru aðeins runnar undan rifj-
um lítils og óánægðs minnihluta. Ekkert bendir
þó tii, að það takist að setja þær niður en þær
hófust þegar Norman Lamont, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, hvatti til, að Bretar segðu skilið
við Evrópusambandið. Forysta íhaldsflokksins
vonast hins vegar til, að flokksþingið, sem nú er
haldið í Boumemouth, snúist um efnahagsmálin
enda eru góðar fréttir af þeim. Verðbólgan er sú
minnsta, sem um getur, og atvinnuleysi minna
en verið hefur í þijú ár.
Deilan um Evrópumálin var á forsíðum bresku
blaðanna í gær og sagði í The Times, að með
ræðu Lamonts væri „lævi blandinn friðurinn" inn-
an íhaldsflokksins úr sögunni. Lamont, sem flutti
ræðuna á þröngum fundi, sagði, að evrópska stór-
ríkið, sem verið væri að þröngva upp á Breta, eldi
á sundurlyndi innan flokksins auk þess sem Bret-
ar hefðu engan efnahagslegan hag að aðildinni.
Sagði hann, að sá dagur kæmi, að Bretar yrðu
að íhuga úrsögn.
Segja Lamont óánægðan
Margir ráðherranna mótmæltu ummælum Lam-
onts og talsmenn flokksins sögðu, að yfirlýsingar
hans væru aðeins til marks um hans eigin óánægju.
Honum hefði verið vikið frá sem fjármálaráðherra
og breytingar á kjördæmamörkum hefðu valdið
því, að nú þyrfti hann að leita sér að nýju kjör-
dæmi. Michael Portillo atvinnumálaráðherra, sem
ekki er allt of hrifinn af Evrópusambandinu, tók
undir gagnrýnina á Lamont en Norman Tebbit,
fyrrverandi ráðherra, þótti hins vegar kynda und-
ir deilunum þegar hann sagði í gær, að meirihluti
flokksfélaga og jafnvel þingmanna Ihaldsflokksins
hefði efasemdir um Evrópusambandið.
Óttast er, að þessi mál og ásakanir um að son-
ur Margaret Thatchers hafi fengið 12 milljónir
punda fyrir vopnasölusamning við Saudi-Arabíu
muni setja svip á flokksþingið en John Major for-
sætisráðherra hafði vonast til að geta gert efna-
hagsmálin að aðalatriði og vegið þannig upp á
móti glæsilegri frammistöðu Tony Blairs, leiðtoga
Verkamannaflokksins, á þinginu í Blackpool.
Tíðindin af efnahagsmálunum eru kærkomin
fyrir íhaldsflokkinn en verðbólgan er nú 2%, sú
minnsta, sem um getur, og atvinnuleysingjunum
fækkaði um 28.000 í september. Er atvinnuleysið
minna en verið hefur í þijú ár eða 9,1%.
Kínverskur elixír
Veldur ótíma-
bærum kyn-
þroska
Peking. Reuter.
ELIXÍR, yflrfullur af hormónum,
hefur valdið ótímabærum kynþroska
meðal margra kínverskra barna. Eru
mörg dæmi um jafnvel fimm ára
gamla stráka fúlskeggjaða og barm-
miklar stelpur ekki nema sex ára
gamlar.
í grein, sem birtist í tímaritinu
Nútímafjölskyldan, segir, að í Shang-
hai hafi verið rannsökuð meira en
1.000 tilfelli um ótímabæran kyn-
þroska.
í Kína er flestum hjónum bannað
að eiga nema eitt bam og því fínnst
foreldrum „litlu keisaranna" eins og
f einbirnin eru kölluð ekkert of gott
handa þeim. Það vita líka framleið-
endur alls kyns næringarefna og
annars fyrir böm og auglýsa því
grimmt, jafnvel í barnatímum sjón-
varpsins. Dæmi er um „Ungbama-
mat úr eggfrumum hænsna", sem
inniheldur stera og aðra hormóna.
Reuter
Ráðherrar Aristides taka við
Port-au-Prince. Reuter.
RÁÐHERRAR í verðandi stjórn Je-
an-Bertrands Aristides, útlægs for-
seta Haítí, bjuggu sig í gær undir
að taka við ráðuneytum sínum af
herforingjastjóminni sem hefur ver-
ið völd í landinu undanfarin þijú ár.
Aðstoðarmaður Aristides sagði
að ráðherrarnir væru að undirbúa
valdatöku forsetans, en ráðgert er
að hann snúi aftur til Haítí á laugar-
dag. Ellefu af 14 ráðherrum forset-
ans eru komnir til Haítí og búist
er við að þeir taki við ráðuneytum
sínum í dag. Robert Malval bráða-
birgðaforsætisráðherra , gegnir
áfram embættinu þar til nýr forsæt-
isráðherra verður tilnefndur.
Nýja stjórnin þarf að fást við
gífurleg vandamál á nánast öllum
sviðum. Efnahagurinn er í rúst eft-
ir áralangt stjórnleysi, samgöngu-
mannvirki þarfnast dýrra viðgerða
og hreinsa þarf til í opinberum
stofnunum vegna spillingar emb-
ættismanna.
Bandarískir embættismenn
sögðu að leiguflugvélar væru á
flugvellinum í Port-au-Prince og
biðu eftir því að flytja Raoul Cedr-
as, fyrrverandi leiðtoga hersins, úr
landi. Enn var þó ósamið um hvert
Cedras færi. Bandaríkjastjórn og
Aristide hafa beðið ráðamenn í
Panama um að veita honum hæli
og þeir sögðust vera að íhuga mál-
ið. Samtök Ameríkuríkja hafa hvatt
þá til að verða við beiðninni. Þau
hafa einnig afnumið bann við far-
þegaflugi til Haítí.
Heiðurs-
vörður á
Akrópólis
GRÍSKUR heiðursvörður var meðal
þeirra sem þátt tóku í hátiðarhöld-
um á Akrópólishæð í tílefni þess
að fimmtíu ár eru liðin frá því að
hernámi nasista lauk í boginni. Við
það tækifæri var ferðamönnum
einnig leyft að skoða hin fornu hof
á hæðinni en enginn aðgangur hef-
ur verið að svæðinu í rúma viku
vegna verkfalls öryggisvarða.
JAMES Kelman fagnar
verðlaununum.
Booker-verðlaunin
*
Oeining
um verð-
launa-
bókina
London. Reuter, The Daily Telegraph.
BOOKER-verðlaunin, mestu
bókmenntaverðlaun í Bret-
landi, féllu að þessu sinni í
skaut skoska rithöfundinum
James Kelman en mikill
ágreiningur var um veiting-
una innan dómnefndarinnar.
Sagði einn nefndarmanna,
að bók Kelmans, „Hve seint,
hve seint“ (How Late It
Was, How Late), hefði ekk-
ert bókmenntagildi.
Bókin, sem er skrifuð á
glasgóskri mállýsku og yfir-
full af ófögrum munnsöfnuði,
segir frá fyrrverandi tugthú-
slim, Sammy, sem rankar við
sér í steininum, blindur og
beinbrotinn eftir misþyrming-
ar lögreglunnar. Lýsir Kel-
man honum sem „fórnar-
lambi ríkisins".
„Lélegasta bókin“
Tveir af fimm dómnefndar-
mönnum voru andvígir því
að verðlauna bókina og annar
þeirra, Julia Neuberger,
sagði, að lélegasta bókin
hefði unnið.
Kelman, sem er 48 ára að
aldri, er sjálfmenntaður sem
rithöfundur en starfaði áður
sem byggingaverkamaður og
strætisvagnastjóri. Hann var
einnig tilnefndur til verðlaun-
anna 1989.
Fyrir þá sem þurfa mestu afköst sem
völ er á oa vilia fiárfesta til framtíðar
Nýr öflugur 60 MHz Pentium örgjörvi frá Intel
Orkusparnaðarkerfi - Búnaður fyrir DMI
"Plug and Play" á PCI og ISA tengibraut
Hraðvirk PCI Local Bus skjástýring
Ný, hraðvirk IDE diskstýring á PCI Local Bus
Hraðvirkt Ethernet tengi á móðurborði
á PCI Local Bus
Nýtt afkastameira ECP hliðartengi (Paralell port)
<o>
NÝHERJI
SKAFTAHLk) 24 - SlMI 8« 77 OO
Alllaf skrcfi á undan
Tulip Computers leggur mikla
áhersiu á gæði og hefur fengið
IS09001 vottun fyrir þróun,
framleiðslu og þjónustu.
Windows tor
Worlcgroupa 3.11
Tulip pentium
Orgjörvi: 60 MHz
Minm; 8 MB
PJskurí 345 MB
Aðeins kr.:
Il
ItJÍI&p compyters
Gæðamerkið frá Hollandi
Opið laugardaga 10-16
U