Morgunblaðið - 13.10.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 21
■'ýé&'M;
DÖNSKUKENNSLA í íslenskum
skólum er talsvert til umræðu_ þessa
dagana enda menningartengsl íslend-
inga og Dana óvenju mikil. í Reykja-
vík stendur nú yfir dönsk menningar-
vika og íslensk vika var í Árósum í
síðasta mánuði. í setningarræðu þeirr-
ar hátíðar gerði Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra dönskukennslu í
íslenskum skólum að umtalsefni. Og
sendiherra Dana á íslandi, Klaus Otto
Kappel, lýsti nýverið áhyggjum af því
að kennslan sé ekki nógu skynsamleg,
námsefnið verði ekki nægilega áhuga-
vert._
í Árósum talaði Ólafur sérstaklega
um norrænu tungumálin í sambandi
við varðveislu sögulegrar og menning-
arlegrar sérstöðu Norðurlanda. Hann
sagði að í samskiptum við Dani vildum
við helst geta notað dönsku, dönsku-
kennsla í skólum landsins ætti veig-
amikinn þátt í að viðhalda tilfinningu
íslendinga fyrir tengslunum við aðrar
Norðurlandaþjóðir og auðvelda þátt-
töku í norrænu samstarfí.
Hann kvaðst gera ráð fýrir að
áhersla á iykilhlutverk móðurmálsins
væri líklega meiri hjá íslendingum en
mörgum öðrum þjóðum. „En afstaða
okkar á sér þá einföldu skýringu, að
við trúum því, mörg okkar, að ef við
hættum að hugsa, tala og skrifa á
íslensku yrði ekki lengur um að ræða
neitt sjálfstætt menningarsamfélag á
íslandi. Menningarleg undirstaða okk-
ar er ekki síst þær bókmenntir sem
færðar voru í letur fyrir meira en sjö
hundruð árum. Ef við hættum að
geta lesið þær án þýðingar, þá höldum
við, að við verðum orðin að annarri
þjóð, eða engri þjóð.“
Síðan sagði Ölafur Ijóst að þessi
rækt við móðurmálið auðveldaði ekki
samskipti við aðrar þjóðir - en þau
yrðu áhugaverðari fyrir vikið. Nor-
rænu málin ættu óneitanlega í vök
að verjast gegn ásókn ensku og hvort
tveggja væri kostnaður og fyrirhöfn
lagður í að kenna dönsku í íslenskum
grunnskólum og framhaldsskólum.
Gagnkvæm þekking á tungum þjóð-
anna væri mikilvæg forsenda árang-
ursríkra samskipta.
Ensemble Nord
í Norræna húsinu
DANSKA kammersveitin Ensemble
Nord heldur tónleika í Norræna hús-
inu í kvöld, fimmtudag, klukkan 20.
Efnisskráin er fjölbreytt, flutt verða
nýsamin tónverk efír dönsku tón-
skáldin Knud Riishojgaard, Mogens
Christensen og Nils Viggo Bentzon.
Einnig verður leikin Fimm píanóverk
op. 3 eftir Carl Nielsen og Tríó í
a-moll eftir Johannes Brahms.
Kammersveitin. Ensemble Nord
heldur einnig tónleika á ísafirði
sunnudaginn 16. október á vegum
Tónlistarfélagsins á ísafirði.
Ensemble Nord hefur starfað sam-
an í fimm ár og lagt áherslu á að
leika nýja kammertónlist. Liðsmenn
Ensemble Nord eru sex. Karen Skri-
ver leikur á flautu, Peter Lindgaard
leikur á klarinett, Otto Andersen á
selló, Curt Kollavik-Jensen er gítar-
leikari, Svein Birch leikur á pínaó
og Torsten Folke Petersen er slag-
verksleikari.
Þau hafa öll stundað tónlistamám
við Jóska tónlistarskólann. Auk þess
hafa þau aflað sér meiri menntunar
í sinni grein hjá þekktum tónlistar-
mönnum, bæði í Danmörku og öðrum
löndum.
LISTIR
Danski kvikmyndaleikstjórinn Anders Refn
Vill vernda sjálfstæði
evrópskrar menningar
DÖNSK kvikmyndahátíð
stendur nú sem hæst í
Háskólabíói í tengslum
við „Danska haustdaga"
í Reykjavík. Danir hafa
brotist til mikils frama á
sviði kvikmyndagerðar
síðustu ár og er skemmst
að minnast tveggja Ósk-
arsverðlaunamynda
þeirra, Gestaboðs Bab-
ettu og Pelle sigurvegara.
Sex myndir eru sýndar á
hátíðinni og segja að-
standendur hennar að
þær endurspegli þá fjöl-
breytni sem einkenni
danska kvikmyndagerð.
Sérstakur gestur hátíð-
arinnar er leikstjórinn Anders Refn
en nýjasta mynd hans, Svart haust,
er ein myndanna á hátíðinni.
Refn hefur leikstýrt fjórum kvik-
myndum og einni röð sjónvarpsþátta
frá árinu 1976. Hann segir að danski
kvikmyndaiðnaðurinn sé smár í snið-
um og fyrir vikið sé bágt að lifa af
leikstjórn. Leikstjórar gangi því í
ýmis önnur störf innan iðnaðarins.
Þannig hefur Refn annast aðstoðar-
leikstjóm og klippingu margra mynda
starfsbræðra sinna. Þeir hafa síðan
liðsinnt honum í staðinn. Samstarf
kvikmyndagerðarmanna er því náið í
Danmörku og segir Refn að þeir veiti
hver öðmm gott aðhald. „Við gagn-
Anders Refn
rýnum hver annan meðan
á vinnslu myndanna
stendur enda hefur leik-
stjóri miklu meiri not fyr-
ir gagnrýni sem kemur
fram áður en myndin er
fullgerð." Refn telur að
velgengni danskra kvik-
mynda í seinni tíð sé mik-
ið til þessari samheldni
að þakka, ekki síst þar
sem hún hafi ekki bitnað
á sérstöðu hvers og eins.
Refn segir að dönskum
kvikmyndahúsagestum
geðjist ágætlega að inn-
lendri framleiðslu nú um
stundir ef marka megi
aðsókn. íslenskar myndir
séu hins vegar ekki fyrirferðarmiklar
í dönskum kvikmyndahúsum enda eigi
evrópsk kvikmyndagerð almennt á
brattann að sækja þar í landi. ítök
stóru kvikmyndaframleiðendanna í
Bandaríkjunum séu mikil og fyrir vik-
ið sé opið fyrir allar flóðgáttir frá
Hollywood. Refn kastar ekki rýrð á
bandaríska kvikmyndagerð en óttast
um sjálfstæði menningarinnar þegar
dönsk ungmenni, mörg hver, kunni
betri skil á Brooklyn og Bronx en eig-
in átthögum. Refn er því hlynntur
frekari samruna Evrópu þvi banda-
rískra áhrifa gæti víðar í álfunni. „Það
er nauðsynlegt að beijast fyrir sjálf-
stæði evrópskrar menningar."
Virtur leikstjóri
„Svart haust“ er enn ein rósin í
hnappagat Refns, sem átt hefur mik-
illi velgengni að fagna sem kvik-
myndaleikstjóri. Um er að ræða
dramatíska fjölskyldusögu frá.síðustu
aldamótum, sem fjallar um yfirgangs-
og kvensaman föður sem heldur fjöl-
skyldu sinni í tilfínningalegri gíslingu.
Sagan er sögð frá sjónarhóli 17 ára
gamallar dóttur hans, hinnar ástríðu-
fullu Klöru, sem sér föður sinn verða
fómarlamb eigin græðgi og yfírgangs
og býður honum birginn. Myndin er
af mörgum talin fræknasta verk
Refns til þessa og hefur hún meðal
annars hlotið tvenn „Bodil“-verðlaun.
Platt Hevea
eldhúsinnrétting
Menntamálaráðherra o g sendiherra
um menningartengsl
Nauðsynleg en ef
til vill óskynsamleg
dönskukennsla
BÆJARHRAUNI 8. HAFNARFIRÐI, SIMI 651499
GOÐ GREIÐSLUKJOR
fh
oda/i
BIRYANI - INDVERSKT:
HRÍSGRJÓN MEÐ GRÆNMETl, KIÚKLING OG KRYDDI.
TORTIGLIONl - ÍTALSKT:
PASTASKRÚFUR MEÐ GRÆNMETl, NAUTAKIÖTI OG KRYDDI.
FARFALLE - ÍTALSKT-
PASTASLAUFUR MEÐ GRÆNMETl, SKINKU OG OST.
Ein msk. smjör á pönnuna,
rétturinn út í og allt tilbúið á 5 mín.
Skyndiréttir sem bragðast og líta út
sem bestu sérréttir!
wmmsmsmmmmmmmmmmmm