Morgunblaðið - 13.10.1994, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994; 23
___________LISTIR_________
Fastir liðir á fangaeyju
ATRIÐI úr framtíðartryllinum Flóttanum frá Absalom.
KVIKMYNPIR
Stjörnubíó/
I j a ii £ a r á s b í ó
FLÓTTINN FRÁ
ABSALOM, „ESCAPE
FROM ABSOLOM" ★ 'A
Laikstjóri: Martin Campell. Fram-
leiðandi: Gale Aime Hurd. Aðalhlut-
verk: Ray Liotta, Lance Henriksen,
Stuart Wilson, Kevin Dillon, Michael
Lerner, Emie Hudson. Columbia/
TriStar. 1994.
FLJÓTLEGA á næstu öld verða
fangelsi alþjóðleg í risastórum
turnum úti í eyðimörkinni og ef
þú hagar þér verulega illa ertu
sendur á fangaeyjuna Absalom.
Þangað eru verstu glæpamenn ver-
aldar sendir og þeir hafa myndað
tvennskonar samfélög; annað er
siðlaust villimannasamfélag sem
byggir á drápum og jafnvel mann-
áti undir forystu brjálæðings, hitt
er menningarlegra, byggir á sjálfs-
þurftarbúskap og manngæsku
undir forystu mjög svo andlegs
leiðtoga. Ókkar maður, Ray Liotta,
fyrrum kapteinn í hernum sem
myrt hefur yfirmann sinn, er settur
á eyna til að veslast upp og deyja
en hann er baráttuglaður og hefur
lag á að snúa aðstæðunum sér í
hag.
Framtíðartryllirinn Flóttinn frá
Absalom er B-myndarlegt samkrull
af hasarmyndunum um Mad Max
og sögunni Flugnahöfðingjanum
þar sem Liotta er í hlutverki Max
en Stuart Wilson („Lethal Weapon
3“, Nonni og Manni) er foringi
óþokkanna á eyjunni og Lance Hen-
riksen er foringi þeirra sem neita
að trúa að Darwin hafi haft rétt
fyrir sér. Wilson hakkar í sig hlut-
verkið með offorsi og látum eins
og hann vilji þakka sérstaklega fyr-
ir að hafa hreppt það en Lance of-
leikur í hina áttina sem ábúðamik-
ill en alltaf mjög mæðulegur gúru
er samfangar hans kalla „Föður“.
Einhverstaðar á milli þeirra reynir
Liotta að halda sönsum og einhver-
staðar tapast að mestu niður öll
spenna.
Það er sáralítið frumlegt við
framtíðarsýn myndarinnar og hinn
ýmist ofkeyrði eða mæðulegi stíll
dregur talsvert úr áhrifunum sem
leikstjórinn, Martin Campell, reynir
að fá fram með villimannslegu
umhverfinu, óhugnaðinum í kring-
um Wilson-gengið og baráttu góðs
og ills. Mikið er lagt í ytra útlit
bæði á eynni sjálfri með búningum
og förðun og í framtíðarsýninni þar
sem hinn ábúðarmikli Michael Lern-
er ríkir í hlutverki fangelsisstjóra
er býr yfir einhverskonar eftirlits-
tækni Stóra bróður. Myndin lendir
líka í talsverðum ógöngum þegar
hún reynir að búa til samúð með
góðu föngunum því í ljós kemur að
hinir góðu hafa í rauninni ekki brot-
ið neitt stórkostlega af sér eða það
er óvíst hvort þeir hafi yfirleitt
nokkuð gert af sér og það virkar
einkar falskt.
Gallinn við myndina liggur þann-
ig í klisjukenndu handriti, sem tekst
ekki að gera söguna trúverðuga,
og andlausri leikstjórn. Sumt er
gott í myndgerðinni og maður
freistast til að halda að með svolít-
ið meiri yfirlegu hefði hún jafnvel
getað orðið ágæt en ekki bara enn
ein myndin rétt undir meðallagi úr
hasardeiidinni.
Arnaldur Indriðason
Það er tilvalið að hefja leikhúskvöldið
með glæsilegum málsverði á Skólabrú.
Við bjóðum upp á þríréttaðan kvöldverð
á tilboðsverði, kl. 18-20,
sérstaklega ætlað ieikhúsgestum,
á aðeins kr. 1.860
Haust-
hátíð á
Kirkjubæj-
arklaustri
HELGINA 15.-16. október verð-
ur fjölbreytt hausthátíð á Hótel
Eddu á Kirkjubæjarklaustri. Dag-
skráin hefst kl. 16 á laugardegi
með því að gengið verður um stað-
inn í fylgd leiðsögumanns og þá
verður einnig opnuð sýning á mál-
verkum Ragnhildar Ragnarsdóttur
og Hrafnkels Birgissonar. A laugar-
dagskvöldinu mun Djassband
Hornaijarðar ásamt söngkonunni
Ragnheiði Siguijónsdóttur sjá um
tónlist undir borðhaldi og síðan leik-
ur hljómsveit Tómasar R. Einars-
sonar ásamt söngvaranum Guð-
mundi Andra Thorssyni og tríói
Ólafs Stephensen. Hljómsveitin
Spaðar ieikur svo fyrir dansi. I
hádeginu daginn eftir verður síðan
boðið upp á ýmsar kræsingar ásamt
cþ'asstónlist, þar sem koma fram
Oskar Guðjónsson, Hilmar Jensson,
Sæmundur Harðarson, Ólafur
Stephensen, Guðmundur R. Einars-
son, Ragnar Eymundsson, Jóhann
Ársælsson og Tómas R. Einarsson.
Hátíðinni lýkur með kveðjukaffi kl.
15, þar sem Einar Kárason rithöf-
undur mun lesa úr nýrri skáldsögu
sinni.
HAPPDRÆTTI
HJARTAVERNDAR
1. VINIUINGUR
Ao veromæti i
KR. 4.000.00(
Pajero Super Wagon jeppi, sjalískiptur, V.6. arg. 19£
MITSUBISHI ------- .
MOTORS HJARTAVERND URVAL UTSYN
FRAMTÍÐ ARM ARKAÐU RIN N
Skíðagallar 2.990
Úlpur 5.990
Skór 990
Ue\9artilboé
I I n.: I I ^:l,l' I I I I ! I
FAXAFENI 10 S 68966 6
Peysur I • 990
oa flelri
girniíeg tilboð