Morgunblaðið - 13.10.1994, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMINGAR
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 33
ÁGÚSTA
INGVARSDÓTTIR
+ Ágústa Ingvars-
dóttir fæddist í
Reykjavík 22. ágúst
1904. Hún lést á
Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund 1.
október síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Ingvar
Sveinsson og Guð-
rún Jónsdóttir. Ólst
Ágústa upp í
Reykjavík og bjó
þar alla sína tið.
Hún var þriðja elst
af tíu systkinum, og
eru fjögur þeirra á
lífi. Hinn 24. júní 1927 giftist
Ágústa Birni Sveinssyni frá
Sveinsstöðum við Kaplaskjól í
Reykjavík, f. 30. nóvember
1900, d. 23. okt. 1983. Þau hófu
búskap á Sveinsstöðum en
fluttu árið 1937 að Brávalla-
götu 48 þar sem þau bjuggu
alla tíð síðan. Þeim varð tíu
barna auðið, en þrjú misstu þau
í bernsku. Eftirlifandi börn
ÞEGAR við systkinin lítum til baka
minnumst við þess hversu rík við
vorum að eiga langömmu og lang-
afa á uppvaxtarárum okkar. í hug-
um okkar voru þau aldrei annað
en amma og afi á Brávallagötunni
og einmitt þar fæddist faðir okkar,
Ásmundur Björn, og ólu þau hann
þar upp sem sinn eigin son.
Það var alltaf jafn gaman að
fara til Reykjavíkur í heimsókn.
Þá var maður klæddur í sín fínustu
föt og svo var haldið af stað. Á
Brávallagötunni tók amma alltaf
vel á móti okkur með bros á vör.
Allir komu sér fyrir við eldhúsborð-
ið, en amma stóð við pönnuköku-
bakstur. Hún fylgdist alltaf vel með
okkur og vildi ætíð fá að vita hvað
við hefðum fyrir stafni. Það var
líka gaman að segja henni fréttir
að sunnan því alltaf mundi hún
eftir því sem henni hafði verið sagt
í heimsókninni á undan. Amma
hafði mjög gott minni og spurði
aldrei tvisvar. Hún amma okkar
var góður hlustandi. Það var alltaf
sama hvað við sögðum henni, það
virtist allt skipta jafn miklu máli.
Ásmundur Ernir, barnabarn föð-
ur okkar, átti því láni að fagna að
fá að kynnast langalangömmu
sinni. Langamma fylgdist einnig
vel með honum og eins og hún
sagði sjálf þá átti hún lítið horn í
honum.
Elsku amma okkar, nú ert þú í
faðmi þeirra sem kvöddu á undan
þeirra eru: Guðrún
Inga Björnsdóttir
Wyman, f. 1928,
búsett í Massachu-
setts í Bandaríkj-
unum, Þorvaldur
Bergmann, f. 1936,
búsettur í Kópa-
vogi, Birna Kristín,
f. ’ 1937, búsett á
Seltjarnarnesi,
Nonní Unnur, f.
1938, búsett í
Reykjavík, Guðný
Ása Björnsdóttir
Stone, f. 1942, bú-
sett í Oklahoma í
Bandaríkjunum, Sveinjón, f.
1943, búsettur í Reykjavík, og
Ásta Droplaug, f. 1945, búsett
í Reykjavík. Að auki ólu þau
upp tvo drengi, Ásmund Björn
Pálmason Cornelius, f. 1946,
búsettur í Keflavík, og Sverri
Bergmann Stone, f. 8. maí 1963,
búsettur í Texas í Bandaríkjun-
um. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag.
þér. Guð blessi þig, elsku lang-
amma.
Þín barnabarnabörn,
Þórir, Inga Sveina og Hrönn.
Það eru rúmlega þijátíu ár síðan
við systur sátum á kollum í eldhús-
inu hjá ömmu og afa á Brá og
sötruðum kringlukaffí. Kaffið sem
við kölluðum svo var mjólk og
nokkrir dropar af kaffi sem amma
bætti út í til að við gætum bleytt
almennilega í kringlunum okkar
eins og annað fólk. Okkur systrun-
um þótti þetta mikil upphefð og
sóttum það fast að skreppa sem
oftast í kringlukaffi á Brávallagöt-
una.
Þetta var á þeim tímum sem
venjulegar fjölskyldur voru að
kaupa sér fyrstu ísskápana með
afborgunum og nokkrum árum síð-
ar voru keyptar þvottavélar með
spaða og rafmagnsvindu á heimilið.
Þá var Brávallagatan og nágrenni
löngu gróið hverfí og við hermdum
eftir leikjunum sem mamma og
systkini hennar höfðu leikið mörg-
um árum áður á sömu slóðum. Við
fórum í leiðangra í Möggubakarí
til að sníkja vínarbrauðsenda og
andabrauð af Möggu sem afgreiddi
brauð á íslenskum búningi og í
Péursbúð til að kaupa fimmaura-
kúlur sem upphaflega kostuðu
fimm, svo tíu og loks fimmtiu aura.
Við höfðum líka til umráða ijórða-
part úr garði við húsið á Brávalla-
KNUD K. LARSEN
+ Knud K. Larsen
fæddist í Pandr-
up í Vendsyssel á
Jótlandi 23. janúar
1901 og átti þar sín
uppvaxtarár. Hann
lést í Óðinsvéum 24.
september síðastlið-
inn. Knud lauk véla-
verkfræðiprófi frá
Danmarks Tekn-
iske Hojskole árið
1944, starfaði sem
verkfræðingur í
nokkur ár, m.a. í
orkuiðnaðinum, en varð síðan
lektor við Tækniskólann í Árós-
um. Árið 1959 varð hann deild-
arsljóri við Tækniskólann í
Óðinsvéum og 1968 var hann
kjörinn rektor þess skóla.
Gegndi hann rektorsembættinu
í 14 ár og átti ríkan þátt í að
móta menntastefnu danskra
tækniskóla.
LÁTINN er í heimabæ sínum Knud
K. Larsen, fv. rektor Tækniskólans
í Óðinsvéum. K.K., eins og hann var
vanalega kallaður, var
einstakur íslandsvinur
og átti dijúgan þátt í
framhaldsmenntun
margi-a íslendinga um
áratuga skeið. Einnig
var hann frumkvöðull
um brautargengi hins
íslenska tækniskóla,
sem á 30 ára afmæli á
þessu ári.
Knud K. Larsen var
sæmdur hinni íslensku
fálkaorðu sem hann
átti fyllilega skilið og
honum þótti vænt um að fá.
K.K. giftist ungur fagurri meyju
frá Ero, ey sem er ein af perlunum
í danska eyjahafinu. Þar fékk hann
sína ekta perlu, frú Rikke, stór-
gáfaða konu og hæfði hún vel sínum
höfðingja. Saman stofnuðu þau ein-
stakt menningar- og listaheimili í
Óðinsvéum, sem gaman og fróðlegt
var að sækja heim.
Við hjónin færum frú Rikke Lars-
en og börnum samúðarkveðjur.
Gamall nemandi og vinur,
Karl J. Karlsson.
götu 48 og stærsta og besta rólu-
völlinn í bænum. Og þó að margt
hafi breyst frá þessum árum er
stóra rennibrautin á sínum stað á
róló og Héðinn stendur þar enn —
líkastur öldubrjótinum karga.
Líklega hafa fáir íslendingar lif-
að aðrar eins breytingar og þeir
sem fæddir voru í kringum alda-
mótin. Amma og afi voru bæði
fædd í Reykjavík, hann aldamóta-
árið og hún árið 1904. Fæðingarár
ömmu Ágústu var að mörgu leyti
merkilegt. Þá varð Hannes Haf-
stein fyrsti ráðherra íslands, ís-
landsbanki tók til starfa, fyrsta
bifreiðin var keypt til landsins með
styrk frá Alþingi og íslendingar
eignuðust fyrsta gufutogarann.
Árið sem amma varð tvítug var
Landsbankahúsið fullgert og flug-
vélar svifu í fyrsta sinn yfir hafið
til íslands. Og árið sem hún varð
fertug var lýðveldi stofnað á ís-
landi.
Amma ólst upp við Grettisgöt-
una. Þar byggði faðir hennar hús
og við þá götu voru bernskuminn-
ingar hennar bundnar þrátt fyrir
að fjölskyldan hafi þurft að færa
sig um set eftir að faðir hennar
lést þegar hún var á tólfta ári.
Eins og svo mörg önnur íslensk
börn fyrr og síðar fór hún ung að
vinna í fiski og þegar hennar eigin
börn voru uppkomin fór hún aftur
í fiskinn. Afi hefur heldur varla
verið hár í loftinu þegar hann fór
á sjó í fyrsta sinn og hann var á
sjónum meðan heilsan leyfði og
eftir það á Eyrinni. Þau amma giftu
sig árið 1927 og eignuðust með
tímanum tíu börn en af þeim dóu
þtjú ung. Fyrstu hjúskaparárin
bjuggu þau á bernskuheimili afa,
Sveinsstöðum við Nesveg, en árið
1937 fluttu þau í þriggja herbergja
íbúð í fyrstu verkamannabústöðun-
um í Reykjavík og þar átti þessi
stóra fjölskylda heima upp frá því.
Þar uxu börnin úr grasi, þar var
áföngum og merkisdögum í lífi fjöl-
skyldunnar fagnað og þar hjúkraði
amma afa eftir að hann veiktist.
Þangað sóttu barnabörnin og þar
heilsaði amma Ágústa mörgum
kynslóðum á stigapallinum. Þess
vegna skipar Brávallagatan sér-
stakan sess í huga afkomenda
ömmu og afa og sem nú nálgst
fimmta tuginn. Og þar munum við
systurnar afa á axlabandabuxun-
um og nærbolnum inn í litla her-
bergi lesandi í blaði eða bók og
ömmu okkar Ágústu í sífelldu
stússi á kjól eða í slopp.
Á legsteini einum norður í landi
er látlaus en eftirminnileg graf-
skrift. Þar segir um konu sem uppi
var á sautjándu öld að hún hafi
verið „níu börnum besta móðir og
átta barna börnum yfír sextigu
nafnfræg amma“. Eitthvað þvílíkt
viljum við systurnar nú segja þegar
við kveðjum hana ömmu okkar
Ágústu í síðasta sinn.
Linda, Hafdís og Ásta.
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N
sími 620200
Erfidrykkjur
(ilæsileg kaffi-
hlaðborð Megir
salirogmjög
góð þjónuslíL
IJpplýsingar
ísíma22322
0
FLUGLEIDIR
HATEL LtFTLEIDIR
t
Hjartkær faðir okkar,
HALLDÓR GUÐMUNDSON
húsasmfðameistari,
lést á hjúkrunardeild Landakotsspítala
11. október.
Börnin.
t
Bróðir minn og frændi,
ÓLAFUR ÞORSTEINSSON
frá Nýborg,
Stokkseyri,
sem lést á húkrunarheimilinu Kumbaravogi 9. október, verður
jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju, laugardaginn 15. október
kl. 13.00.
Helga Þorsteinsdóttir,
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson
og fjölskylda.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir og
tengdamóðir,
ARNBJÖRG INGA JÓNSDÓTTIR,
Furugerði 13,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
föstudaginn 14. október kl. 13.30.
Sverrir Koibeinsson,
Guðjón Steinar Sverrisson,
Patricia E. Velasco De Sverrisson.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
SVERRIS EINARSSONAR
blikksmíðameistara,
Hvassaleiti 45,
Reykjavfk,
verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. október kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd.
Katrfn Jónsdóttir,
Bjarni Ragnarsson, Kristbjörg Gisladóttir,
Alma Eydfs Ragnarsdóttir,
Anna Marfa Sverrisdóttir,
Guðfinna Inga Sverrisdóttir,
Melíssa Katrfn, Brynja Björk,
Gísli Ragnar og Sverrir Tómas.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
RUDOLFTHORARENSEN,
Hamragarði 4,
Keflavík,
sem lést þann 5. október síðastliðinn,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 14. október kl. 14.00.
Edda Emilsdóttir,
Stella María Thorarensen, Skúli Ágústsson,
Ragnar Már Skúlason,
Edda Rós Skúladóttir,
Ástrós Skúladóttir.
t
Elsku eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
LAUFEY SIGRÍÐUR
KRISTJÁNSDÓTTIR,
Naustahlein 17,
Garðabæ,
verður jarðsungin á morgun, föstudag-
inn 14. október, frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði kl. 13.30.
Stefán Jóhann Þorbjörnsson,
Pálmi Stefánsson, Svanhildur Guðmundsdóttir,
Kristján Stefánsson, Sofffa Arinbjarnar, '
Ingibjörg Stefánsdóttir, Massimo Scagliotti,
Þorbjörn Stefánsson, Inga E. Káradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.