Morgunblaðið - 13.10.1994, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
__________MINIMINGAR________
INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Ingibjörg Guðmundsdóttir
var fædd í Kjörvogi í
Strandasýslu 11. júní 1926.
Hún lést á heimili sínu í Hafn-
arfirði 2. október síðastliðinn
og fór útför hennar fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði 9.
október.
ELSKU amma og vinur minn. Hvar
sem við erum og hvar sem við
munum vera munt þú ávallt vera
meðal okkar í huga og hjarta. Minn-
ing þín er og verður mér ávallt svo
jt ljóslifandi að hvar og hvenær sem
er get ég séð þig og þitt hlýja bros.
Þegar erfiðleikar steðja að get ég
ávallt hugsað til þín og fengið ljós-
lifandi mynd af þér og það eitt mun
geta veitt mér mikinn og góðan
styrk til að takast við hvaða verk-
efni sem er. í huga mér er ekki til
neitt eitt sterkt lýsingarorð sem
lýsir þér, því þú varst svo góð,
skemmtileg, fyndin, hreinskilin og
alvörugefín, sannur vinur í raun.
Þú varst alltaf tilbúin að taka á
móti manni þegar maður kom í
heimsókn og það að birtast í dyrun-
um á Ölduslóð 14 þýddi að þú varst
strax farin að bjóða manni eitt-
+ Jón Þorsteinsson, hæsta-
réttarlögmaður og fyrrver-
andi alþingismaður, fæddist á
Akureyri 21. febrúar 1924.
Hann varð bráðkvaddur 17.
september síðastliðinn, sjötug-
ur að aldri, og fór útför hans
fram frá Seltjarnameskirkju
26. september.
SUMIR menn eru svo traustvekj-
andi, að þeir nánast bera traustið
með sér. Þannig var um Jón Þor-
steinsson lögfræðing, sem nú er
látinn. Góðmennskan og velvildin
sem fylgdi Jóni var einstök. Hann
var sérstaklega ráðagóður maður
og ráðhollur, enda átti ég margar
ferðir á hans fund.
Jón Þorsteinsson var alþingis-
maður fyrir Alþýðuflokkinn, þegar
ég fyrst kynntist honum fyrir aldar-
þriðjungi. Eftirtektarvert var
hversu náið menn hlustuðu á skoð-
anir Jóns í flokknum. Jón var mik-
jj- ill ræðumaður og hafði unun af því
hvað, tala við mann um daginn og
veginn og hlæja og spila.
Þú hafðir óendanlega mikinn
kærieik og hjartahlýju sem þú spar-
aðir hvergi að gefa öðrum.
Margs er að minnast um ömmu
og þær stundir sem við áttum sam-
an voru allar miklar gleðistundir.
Sú stund sem er sterkust í huga
mér þessa stundina er þegar ég var
yngri og lagðist upp í rúm hjá henni
þar sem hún var að lesa bók. Það
að liggja hjá henni og finna fyrir
nærveru hennar færði mér svo
margt. sem ég mun lifa á til eilífðar.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Mig langar til að minnast ömmu
minnar, sem var alltaf svo glaðlynd
og skemmtileg, hún amma mín sem
var alltaf svo hrifín af köttum. Það
er og verður erfítt að sætta sig við
að hún er farin, en ég þakka guði
að útskýra flókin mál. í nefndum á
flokksþingum var hann afar fylginn
sér og tókst auðveldlejga að fá fé-
laga sína á sitt band. Eg tel að við-
reisnarstjórninni hafi verið mikill
fengur í því að hafa Jón með sér á
Alþingi. Þótt Jón hætti á þingi,
dofnaði ekki áhuginn á stjórnmál-
unum. Hann gat hvenær sem er
staðið tímunum saman og rætt
stjórnmál. Jón var mikill skákmaður
og ég held innst inni hafí hann oft
fundið samhljóm með leikfléttum
stjórnmálanna og úthugsaðri skák.
Honum var líka mjög skemmt, þeg-
ar ljós rann upp hjá viðmælenda
hans, hvemig raunverulega var í
pottinn búið með atburðina.
Jón var afburða lögfræðingur og
naut mikillar virðingar meðal stétt-
arbræðra sinna. Ég held að hálfur
sigur hafí unnist í hveiju máli bara
við það eitt að fá Jón til þess að
taka það að sér. Þama kom margt
til. Mikil lögfræðikunnátta og
reynsla í málarekstri. Einnig sá
hæfileiki sérhvers afburða ræðu-
fyrir að hafa fengið að þekkja hana
og ég eiga mynd hennar í hjarta
mínu.
Hún hafði alltaf tíma til að hlusta
á mig jafnt sem aðra og það var
gott, því að ef maður ætlar að gefa
góð ráð þarf fyrst að hlusta.
Það var alltaf gaman að koma í
heimsókn til ömmu og afa, þar voru
allir svo hressir. Það er dálítið erf-
itt að sjá að hún er ekki þar leng-
ur, en húsið er samt fullt af minn-
ingum um hana.
Að lokum langar mig að setja
hérna ljóð sem ég samdi um hana
ömmu mína. Guð gefi henni góðan
svefn:
Í eilífðinni eru blóm,
rauð blóm
með gulum hnöppum.
í eilífðinni er hún amma mín
með hvíta vængi og
gullinn geisiabaug.
Hún amma mín gengur
innan um græn engi og akra
og tínir blóm eilífðarinnar.
Hún sendir mér blóm
sem ég geymi í hjarta mínu.
Í eiiífðinni eru blóm
sem hún amma mín tínir.
Hjördís Óskarsdóttir.
manns að hafa alla málafylgjuna
augljósa og hafa rauðan þráð í
gegnum allt málið. Það hlýtur að
vera gaman að vera dómari, þegar
þvílíkir lögfræðingar sem Jón Þor-
steinsson sækja mál. Ég held að
skriflegur málflutningur hans hafí
ekki verið síðri en sá munnlegi. Jón
var líka sérstaklega myndarlegur
að vallarsýn, rómurinn mikill og
skýr, það fór ekki á milli mála að
meint var sem sagt var og allt
óþarfa vafstur í andmælum kom
ekki til greina.
Jón var til hinstu stundar eldheit-
ur alþýðuflokksmaður. Hann þekkti
hvert einasta smáatriði í sögu
flokksins og hafði alltaf tíma til
þess að ræða gjörðir flokksins og
stefnu. Hann var eðalkrati í þess
orðs bestu merkingu, og fjallaði
alltaf um skoðanir andstæðinganna
af alúð. Núna er skarð fyrir skildi.
Þessi hugljúfi baráttumaður er fall-
inn frá. Ég sakna vináttunnar, vel-
vildarinnar og einstæðra gáfna. Ég
sendi eiginkonu og ástvinum öllum
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Drottinn styrki þau í þungri raun
og veiti Jóni vini mínum eilífa hvíld.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
JÓN ÞORSTEINSSON
LOKAUTKALL
Edinborg
5 „átta ferðir) ^
4 4
IM URVÍL-UTSYH
Lágmúla 4,
í Hafnarfirði, ( Keflavík,
á Akureyri, á Selfossi
- og hjá umhoðsmönnum um land allt.
Eitt blab
fyrir alla!
- kjarni málsins!
23. október
tRAVIKA
0UR606NE
Sérstök kynning á búrgúndarvínum
og sælkeraréttum frá Bourgogne í
Frakklandi. Listakokkurinn
G. Forssell töfrar fram veislukrásir.
Forssell hefur m.a. unnið í einu
virtasta eldhúsi Frakklands hjá Paui
Bocuse í Lyon.
með eðalvínum frá Bourgogne.
KafFi og koníak eða líkjör á eftir.
Takmarkaður gestafjöldi hvert kvöld.
lorðapantanir ísíma 25700 aíkrEAUX.
St. St. 5994101319 VII
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
I.O.O.F. 5 = 17610138A =
□ HLÍN 5994101319 IVAf - 2
I.O.O.F. 11 = 17610138V2 =
9.0.
Keith og Fiona Surtees,
Skeifunni 7, sími 881535.
Fimmtudaginn 13. okt. kl. 20.00:
Skyggnilýsing, gleði, lærdómur.
Túlkur á staðnum. Kr. 500.
Allir velkomnir.
Sjálfstyrking - lífefli -
Gestalt
Vertu þinnar gæfu smiður.
7 vikna námskeið að hefjast.
Sálfrasðiþjónusta,
Gunnars Gunnarss.,
simi 641803.
Hjálpræðis-
r| herinn
Kirkjustræti 2
Fræðsluvaka kl. 20.30. „Ég
mætti þeim“. Anna Voldhaug frá
Noregi talar. Léttar veitingar.
\v—
KFUM
V
Aðaldeild KFUK/I
Holtavegi
Kristnihald á Þingvöllum um ald-
ir. Efni og frásögn dr. Sigurður
Árni Þórðarson. Farið frá Holta-
vegi í kvöld kl. 19.30 með lang-
ferðabíl.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir!
Ath! Námskeið annað kvöld með
John Brandström frá Svíþjóð.
FERÐAFELAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Fimmtudagur 13. október
Myndakvöld F.í.
Fjölbreytt myndasýning
Fyrsta myndakvöld vetrarins
verður fimmtudagskvöldið
13. okt. f Fóstbræðraheimilinu,
Langholtsvegi 109-111, og
hefst það kl. 20.30. Myndefni:
Guðmundur Hjartarson kynnir
og sýnir myndir úr árbókarferð-
inni vinsælu á Hornstrandir,
„Ystu strandir norðan Djúps",
7.-14. júlf, Gerður Jensdóttir sýn-
ir myndir úr sumarleyfisferöinni
um undraheim Esjufjalla í Vatna-
jökli 22.-26. júní og úr febrúar-
ferð í Tindfjöll, sýndar verða
myndir Ingólfs Guðmundssonar
frá 40 ára afmælishátíð Skag-
fjörðsskála 1. október sl. og síð-
ast en ekki síst sýnir Steinþór
Hálfdánarson frá gönguferð um
fjalllendi í Mið-Evrópu (Ölpun-
um). Dregið verður í ferðahapp-
drætti Esjugönguársins.
Góðar kaffiveitingar í hléi.
Verð aðeins 500 kr. (kaffi og
meðlæti innifalið).
Nýr staður og dagur. Vegna ,
breytinga á Sóknarsalnum er
ekki lengur hægt að hafa mynda-
sýningarnar þar. (vetur er stefnt
að því að komast í nýjan sal
Ferðafélagsins í Mörkinni 6.
Árbók F.í. 1994. Gerist félagar
og eignist árbókina „Ystu
strandir norðan Djúps“. Innifalin
f árgjaldi kr. 3.100. Einnig fáan-
leg innbundin fyrir 500 kr. auka-
gjald. Árbókin er til sýnis á
myndakvöldinu og þar er hægt
að ganga í félagið.
Við mlnnum á árlega haust-
göngu Hornstrandafara laugar-
daginn 15. október. Brottför kl.
10.00 frá BSf, austanmegin.
Gengið frá Höskuldarvöllum að
Bláa lóninu og kvöldverður á
eftir.
Upplýsingar hjá Guðmundi
Hallvarðs., s. 91-686114, Eiríki
Þormóðs, s. 91-18538, Eiríkl
Þormóðs, s. 91-18538, Guð-
mundi Hjartar, s. 91-654299,
og skrifstofu Feröafélagsins,
s. 91-682533.
Sunnudagsferðir 16. okt.:
Kl. 10.30 Ölkeldurhnúkur- Úlf-
Ijótsvatn, gömul þjóöleið.
Kl. 13.00 Strompahellar (Blá-
fjallahellar).
Ferðafélag fslands.