Morgunblaðið - 30.10.1994, Page 19

Morgunblaðið - 30.10.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER1994 19 stjóri var Indriði Waage. Auk þessa setti Reykjavíkurannáll upp eina revíu, „Eldvígsluna". Ýmislegt fleira var að gerast í bænum sem Guðmundur hefur ef til vill haft áhuga á. Eggert Stef- ánsson hélt söngskemmtanir, Magnús Magnússon ritstjóri hélt fyrirlestur „Um spilling aídarfars- ins“, og Borgfirðingur fáeinum árum eldri en Guðmundur, Jón Helgason frá Rauðsgili, varði dokt- orsritgerð sína í Neðrideildarsal Alþingis að viðstöddu fjölmenni. Annar andmælandi var Sigurður Nordal og ekki ólíklegt að Guð- mundur Böðvarsson hafi reynt að troðast inn í salinn með hinum áhugamönnunum um íslenskar bókmenntir. Á bréfmiða til Ragn- heiðar kemur fram að hann hefur hlustað á fyrirlestur hjá Ágústi H. Bjamasyni, sem var prófessor í heimspeki við Háskóla íslands og virtur og mikilvirkur fræðimaður. En einkamálin skiptu ekki minna máli en þau opinberu. í smásög- unni „Inflúensa“ (Safnrit II) sem gerist þennan vetur í Reykjavík lýsir Guðmundur hvað það er kalt og dimmt í illa lýsftim höfuðstaðn- um. Þar að auki gengur skæð inflú- ensa í bænum sem leggur fólk unnvörpum í rúmið. Sögusviðið er mötuneytið þar sem sögumaður er í fæði. Þetta var áður en veitinga- hús og skyndibitastaðir komu á hvert götuhom í Reykjavík og fóm að keppa um viðskiptavini, og slík mötuneyti vom yfirleitt ópersónu- leg og oft heldur nöturleg: „Mötuneytið hafði á sér svip mikils spamaðar, enda tímamir slíkir að hans þurfti með. Það sást líka á húsbúnaði þess og öllum rekstri. Menn sátu við langborð á baklausum bekkjum og flest annað var í samræmi við það og miðað við það fyrst og fremst að vera sem ódýrast þeim ungu skólamönnum er gengu námsbraut með létta pyngju, komnir að um langan veg. Og þetta notuðu sér auðvitað fleiri en þeir, meðan til vannst rúm á hinum baklausu bekkjum og vissu- lega var það undmnarefni hveiju eldhúsið gat annað með sínu fá- menna liði.“ Frásögn sögumanns snýst að mestu um stúlkuna Ebbu sem þarna vinnur. Þetta er falleg stúlka og skemmtilega sjálfsör- ugg, eins og hún eigi allan heim- inn, en reynist vera eina fyrirvinna fátækrar móður sinnar. Hún er lofuð efnuðum pilti, en það breytir því ekki að hún gimist sögumann- inn Pétur, staðgengil höfundar í sögunni. Þegar hún kyssir hann að skilnaði eftir að hann fylgir henni heim í fyrsta sinn segir hann, sveitapilturinn, hissa og hálf-hneykslaður: — Af hveiju gerðirðu þetta? —Af hveiju? Hvemig þú getur spurt. Nú auðvitað er ég að þakka þér fyrir fylgdina, — og stundum gerir maður þá það sem mann langar til — já, stundum, að gamni sínu drengur. Æ, þú ert eitthvað svo mátulegur, við erum eiginlega jafnstór. Uppgjörið í sögunni tengist svo óskáldlegum hlut sem skóhlífum. Sögumaður á bara eina skó, ný- lega, og skóhlífar voru nauðsynleg- ar, því ekki vom götur steinsteypt- ar eða malbikaðar á þessum tíma. Þess vegna verður hann að sækja skóhlífarnar sínar í mötuneytið að kvöldi dags þegar hann áttar sig á að hann hefur gleymt þeim þar, „ ... á morgun yrði sjálfsagt kom- in rigning og allar götur í svaði“. Ebba er að ganga frá í mötuneyt- inu og kærastinn hjá henni. Hann trúir ekki að sögumaður hafi bara komið eftir skóhlífunum, bölvaður pilsasnatinn, heldur að hann sé á höttunum eftir Ebbu og vill henda honum út. En þótt Pétur sé smár er hann knár og mmurinn kærast- inn hefur ekki nema skömmina upp úr slagsmálunum. PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA í REYKJANESKJÖRDÆMl 5. NÓV. Sigurrós Þorgrímsdóttir stjómmálafræðingur Skrifstofa stuðningsmanna Hamraborg 1 - III hæð Opið virka d^ga kl. 14-22 um helgar kl. 14-18 S. 91-644620, 644621 og 644622 S1QUK Viðbótargisting á Kanarí á frábæru verði Aldrei fyrr hefur verið slík eftirspurn eftir Kanaríferðum eins og í vetur og öll okkar gisting seldist upp. Við höfum nú fengið viðbótargistingu á frábæru verði, góðar stúdíóíbúðir á Europalace gististaðnum þar sem þú færð góða aðstöðu rétt við hjarta ensku strandarinnar. f íbúðarhótelinu eru góð sundlaug, garður, veitingastaður, verslun, sjónvarp, sími og móttaka allan sólarhringinn. Verð frá kr. 66.000 4. janúarog 15. mars, 3 vikur, 3 í stúdíó, Europalace Kr. 72.700,- m.v. 2 í stúdíó ^ saeti'aus 'uólaterð'"3 Austurstræti 17,2. hæð. Sími 624600. Flugvallaskattar og gjöld: Kr. 3.660 f.fullorðinn og kr. 2.405 f. barn. Vikuna 31/10 - 5/11 bjóða eftirtaldar snyrtistofur upp á handsnyrtingu á kr. 1.500,- Snyrtistofa Sigríðar Guðjóns, Eiðistorgi 13—15, sími 611161. Snyrtistofan N.N., Borgarkringlunni 4. hæð norðurturni, sími 685535. Snyrtistofa Jónu, Hamraborg 10, sími 44414. Snyrtistofa Halldóru, Kringlunni 7, sími 881990. Snyrtistofa Ágústu, Hafnarstræti 5, sími 29070. Snyrtistofan Fegrun, Búðargerði 10, sími 33205. Snyrtistofan Gyðjan, Skipholti 70, sími 35044. Snyrtistofan Tara, Digranesheiði 15, sími 641011. Snyrtistofan Ársól, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 31262. Snyrtistofan Litrófið, Grensásvegi 50, sími 689916. Snyrtistofan Mandý, Laugavegi 15, sími 21511. Snyrtistofan Salon Ritz, Laugavegi 66, sími 22460. Snyrtistofan Hár og snyrting, Hverfisgötu 105, sími 612645. Snyrtistofa Birgittu Engilberts, Flókagötu 17, sími 18369. Snyrtistofa Hönnu Kristínar, Kringlunni 8—12, sími 888677. Snyrtistofan Paradís, Laugarnesvegi 82, sími 31330. Snyrtistofan Hrund, Grænatúni 1, sími 44025. Snyrtistofan Rós, Engihjalla 8, sími 40744. Snyrtistofan Gimli, Miðleiti 7, sími 686438. Snyrtistofan Greifynjan, Rofabæ 39, sími 879310. Snyrtistofa Ágústu, Hilmisgötu 2a, Vestmannaeyjum, s. 98-12268. Snyrtistofa Lindu, Hafnargötu 61, Keflavík, s. 92-14068. FÉLA G ÍSLENSKRA SNYRTLFRÆÐINGA Jön Spunisson Skartgripaverzlun Laugavegi 5 - Rejkjavik - simi 13383 að tUkynna heiðmöm |muleicíisgenegVÍ I fljótt og vel af hen i y.rðingaífyist Sl safold 29/10 1904 M AFMÆUSAFSLÁmiR 90ára 1904-1994

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.