Morgunblaðið - 30.10.1994, Side 24
24 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga bandarísku kvikmyndina
When a Man Loves a Woman með þeim Andy Garcia og Meg Ryan í aðalhlut-
verkum. Myndin hefur verið meðal þeirra mest sóttu í Evrópu upp á síðkastið.
reyrnr
sína að öllu leyti og byggja
að nýju þann grunn sem hún
áður taldi að ekkert fengi
grandað. Þá fyrst reynir fyr-
ir alvöru á mátt ástarinnar
og úr læðingi leysast ýmsir
eiginleikar sem áður voru
ómeðvitaðir.
Raunsæiog
trúverðugheit
Það sem einna helst hefur
komið bæði gagnrýnendum
og áhorfendum á óvart er
að þótt myndin fjalli um við-
kvæm málefni fellur hún
ekki í gryfju tilfinningasemi
og væmni, sem oft á tíðum
hefur einkennt Hollywood-
myndir sem fjallað hafa um
svipuð efni. Virðast þessi
ÞAU Meg Ryan og Andy
Garcia þykja sem snið-
in í hlutverk sín í kvikmynd-
inni When a Man Loves a
Woman og samieikur þeirra
á allan hátt búinn miklum
sannfæringarkrafti. Ryan er
að sönnu aðalstjarna mynd-
arinnar, og er þegar farið
að gera því skóna að hún
verði tilnefnd til óskarsverð-
launa fyrir leik sinn, en
Garcia þykir þó ekkert gefa
henni eftir.
Meg Ryan skipaði sér á
bekk með helstu leikkonum
í Bandaríkjunum með eftir-
minnilegum leik sínum sem
hin taugaveiklaða Sally Al-
bright í gamanmyndinni
When Harry Met Sally, en
fyrir leik sinn vann hún
Golden Globe verðlaunin
sem besta gamanleikkonan.
Fram að When Harry Met
Sally var Meg Ryan lítt
þekkt þrátt fyrir að hafa
komist vel frá hlutverki sínu
í Top Gun þar sem allt sner-
ist í kringum Tom Cruise.
Hún lærði blaðamennsku við
New York háskóla áður en
hún ákvað að reyna fyrir sér
sem leikari, og fyrsta hlut-
verk hennar var aukahlut-
verk í myndinni Rich and
Famous.
I dag er Meg Ryan gift
leikaranum Dennis Quaid,
en hún hefur einmitt leikið
á móti honum í myndunum
D.O.A., Innerspace og Flesh
and Bone. Af öðrum hlut-
verkum hennar má nefna
Presidio þar sem Sean Conn-
ery var í aðalhlutverki,
mynd Olivers Stone um The
Doors og Sleepless in Se-
attle og Joe Versus the Volc-
ano þar sem hún lék á móti
Tom Hanks.
Andy Garcia er fæddur í
Havana á Kúbu en fluttist
til Miami með fjölskyldu
sinni þegar hann var fimm
ára gamall. Hann hefur
leikið í fjölmörgum vinsæl-
um kvikmyndum en þó oft
og einatt í næststærsta
hlutverkinu, og í fyrstunni
lék hann einatt í ofbeldis-
fullum kvikmyndum og þá
gjarnan hlutverk lögreglu-
manna. Meðal mynda hans
má nefna Dead Again, Int-
ernal Affairs, Black Rain,
The Untouchables, Hero,
Jennifer 8, Stand and Deli-
ver og Eight Million Ways
to Die. Það er hins vegar
fyrir frammistöðu sína í The
Godfather, Part III, sem
hann hefur hlotið mesta lof-
ið, en fyrir hlutverk sitt í
myndinni var hann tilnefnd-
ur bæði til óskarsverðlauna
og Golden Globe verðlauna.
Varð þetta hlutverk hans
ásamt hlutverkinu í Int-
ernal Affairs til þess að
hann var kosinn stjarna
ársins 1990 af samtökum
kvikmyndahúsaeigenda í
Bandaríkjunum.
WHEN a Man Loves a
Woman, eða í blíðu
og stríðu eins og hún kallast
á íslensku, var frumsýnd í
Bandaríkjunum síðastliðið
vor og hefur hún reynst vera
einn af óvæntu smellum
sumarsins. Hún gerir það
mjög gott um þessar mund-
ir, en fyrir skömmu náði
myndin 100 millj. dollara
markinu og er rúmlega
helmingur teknanna vegna
sýninga utan Bandaríkj-
anna. Myndin er framleidd
af Touchstone sem er í eigu
Disney-samsteypunnar og
er Jordan Kerner annar að-
alframleiðandi myndarinn-
ar. Hann er íslendingum að
góðu kunnur frá því að hann
kom hingað til lands í sumar
til að vera viðstaddur frum-
sýningu D2 The Mighty
Ducks, sem María Ellingsen
fór með veigamikið hlutverk
í, en Kemer var einmitt
framleiðandi þeirrar mynd-
ar.
When a Man Loves a
Woman fjallar um hjónin
Alice og Michael Green
(Meg Ryan og Andy Garc-
ia). Hjónaband þeirra ein-
kennist af ósvikinni ástúð
og umhyggju og í samein-
ingu annast þau af mikilli
natni uppeldi tveggja dætra
sinna. Þetta er sannkölluð
fyrirmyndarfjölskylda á
bandarískan mælikvarða.
En undir yfirborði ástríks
sambands þeirra liggur í
læðingi nagandi leyndarmál
eiginkonunnar, sem hefur
reynt hvað hún getur til að
halda drykkjusýki sinni
Ieyndri fyrir sínum nánustu
og reyndar sjálfri sér líka.
Það er þó óumflýjanlegt að
þetta vandamál sem hún á
við að stríða komi upp á
yfirborðið, og þegar það
gerist reynir það svo um
munar á þolrif hinnar sam-
hentu fjölskyldu. Álagið
reynist á endanum vera of
mikið og hin fullkomna ver-
öld sem fjölskyldan taldi sig
lifa í splundrast.
Þegar fjölskyldan svo í
sameiningu reynir að tína
saman brotin og takast á
við vandamál Alice verður
hún að endurmeta stöðu
Sannfærandi samleikur
efnistök sérstaklega hafa
höfðað til Evrópubúa, en þar
hafa gagnrýnendur keppst
við að hlaða lofi á myndina
fyrir raunsæi og trúverðug-
heit.
Leikstjóri When a Man
Loves a Woman er Luis
Mandoki sem að baki á
meðal annars myndirnar
Born Yesterday með Mel-
anie Griffith og Don John-
son í aðalhlutverkum,
White Palace með þeim
Susan Sarandon og James
Spader, og Gaby — A True
Story með Liv Ullmann í
aðalhlutverki. Sú mynd
hlaut tvær tilnefningar til
Golden Globe verðlauna, og
auk þess var Norma Ale-
andro tilnefnd til óskars-
verðlauna fyrir bestan leik
kvenna í aukahlutverki.
Mandoki sem er fæddur
í Mexíkó segir að When a
Man Loves a Woman sé
óvenjuleg ekki síst vegna
þess að hún byiji þar sem
flestar aðrar ástarsögur
endi. „Flestar ástarsögur
enda á því að söguhetjurnar
ná loksins saman, en þessi
mynd byijar hins vegar á
erfiðasta tímapunktinum,
nefnilega þegar erfiðleik-
arnir byrja.“
Mandoki var fyrst ákveð-
inn í að ráðast í gerð mynd-
arinnar þegar þau Meg Ry-
an og Andy Garcia gáfu
kost á sér í aðalhlutverkin.
„Þá rættust sannarlega allir
mínir draumar. Þegar mað-
ur byijar á kvikmynd velur
maður í huganum þá leikara
sem manni þykja heppileg-
astir í hlutverkin, og þeim
eru síðan send handritin að
myndinni til lestrar. Venju-
lega er það samt svo að
þeir gefa ekki kost á sér og
þá er leitað til annarra leik-
ara. En í þessu tilfelli leituð-
um við til þeirra sem við
töldum heppilegust og þau
sögðu sem betur fer bæði
já.“
ÞAÐ verður hatrömm barátta sem fjölskyldan verður að takast á hendur þegar leyndarmál Alice kemur upp
á yfirborðið og hótar að leggja fjölskyldulífið í rúst.
Uppbyggjandi áhrif
Höfundar handritsins að
When a Man Loves a Wo-
man eru þeir A1 Franken,
sem hefur skrifað mikið fyr-
ir Saturday Night Live, og
Ronald Bass, sem á meðal
annars að baki handritin að
The Joy Luck Club, Gardens
of Stone, Sleeping With the
Enemy, Black Widow og
Rain Man, en fyrir handritið
að þeirri mynd deildi hann
óskarsverðlaunum með
Barry Morrow. Þykir þeim
félögum hafa tekist fádæma
vel upp með að gera handrit
um fjölskyldu sem á skilið
að komast yfir að því er virð-
ist óyfirstíganiega erfiðleika
og varðveita ástina, en um
leið gera söguna skiljanlega
jafnvel þeim áhorfendum
sem aldrei hafa lent í hjóna-
bandserfiðleikum af neinu
tagi. „Vonandi vilja áhorf-
endur leggja harðar að sér
við að treysta stoðir hjóna-
bandsins og leggja rækt við
uppeldi bama sinna eftir að
þeir hafa séð myndina," seg-
ir Bass. „Myndin fjallar í
raun og veru um ástarsam-
band sem ekki hefur verið
krufið til mergjar og jafn-
framt það hve nauðsynlegt
það er að skilja sjálfan sig
og eigin þarfir þegar ein-
hveijar hremmingar verða í
MEG Ryan í hlutverki Alice Green ANDY Garcia í hlutverki Michaels sem
sem verður að takast á við drykkju- gerir allt hvað hann getur til að koma
vandamál sitt til að bjarga hjónaband- í veg fyrir að fjölskyldan sundrist.
inu og fjölskyldunni.
hjónabandinu og einnig ást-
vin sinn og þarfir hans.“
Jordan Kemer, framleið-
anda myndarinnar, er að
fullu Ijóst hvaða áhrif kvik-
mynd sem ijallar undan-
bragðalaust og af heiðarleika
um mannleg vandamál getur
haft á áhorfendur. „When a
Man Loves a Woman veitir
tækifæri til að segja sögu
sem hefur uppbyggjandi
áhrif á áhorfendur án þess
að gripið sé til predikunar
af neinu tagi. Við erum að
vonast til þess að fólk sjái
myndina og fínni til með
þeim Alice og Michael ásamt
dætmm þeirra, og sjái jafn-
framt breytingar í eigin lífí
eða lífí ástvina sinna. Ef
okkur tekst það markmið að
hafa jafnvel hin minnstu
áhrif á tilfínningar eða
þankagang einhvers, og sýna
honum að það em til leiðir
til hjálpar, þá mun okkur
öllum sem að myndinni
stöndum fínnast við hafa náð
mikilsverðum árangri.“
Þegar á