Morgunblaðið - 30.10.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1994 31
AÐALSTEINN
EGILSSON
+ Aðalsteinn Eg-
ilsson fæddist í
Hafnarfirði 10.
júní 1991. Hann
lést á heimili sínu
í Hafnarfirði 24.
október síðastlið-
inn. Foreldar hans
voru Egill Jónsson
sjómaður og Þjóð-
björg Þórðardótt-
ir. Aðalsteinn lærði
málaraiðn hjá
Birni Bjarnasyni I
Hafnarfirði og
lauk sveinsprófi
1945. Fékk meist-
arabréf 1948. Félagi í MFH,
formaður 1963-1965 og sat í
prófnefnd frá 1950. 15. maí
1943 kvæntist hann eftirlifandi
konu sinni Sigurlaugu Jóns-
dóttur, f. 12. janúar 1922. For-
eldrar Sigurlaugar voru Jón
Eiríksson múrarameistari í
Reykjavík og Kristín Jónsdótt-
ir. Börn Aðalsteins og Sigur-
laugar eru: Jón, f. 21. nóvem-
ber 1943, kvæntur Guðbjörgu
Jónu Eyjólfsdóttur; Björg, f.
9. nóvember 1944, gift Ómari
Ólafssyni; Kristín Jóhanna( f.
12. apríl 1947, gift Birni Ag-
ústssyni; Stefanía Eygló, f. 13.
nóvember 1950, gift Berg-
sveini Halldórssyni. Útför Að-
alsteins fer fram frá Víðistaða-
kirkju á morgun.
Um þig stóð ei styr né pijál,
stærst í óði og hreimi,
en með þér góð og göfug sál
gekk svo hljóð úr heimi.
(Guðrún Jóhannsdóttir frá Brautarholti.)
Á jafn fögrum haustmorgni og
var hinn 24. október var eins og
dregið væri fyrir sólu er mér barst
4 andlátsfregn tengdaföður míns,
* Aðalsteins Egilssonar. Þessum
1 dagfarsprúða og hægláta manni
| kynntist ég þegar ég giftist yngstu
dóttur iians. Nú þegar tengdafaðir
minn er allur hef ég margs að
minnast og tel ég það mikið lán
að hafa fengið að
kynnast þessum öð-
lingsmanni.
Sérstaklega minnist
ég yndislegra stunda
sem við fengum notið
saman í sumarfríum
bæði í Eyjafirði og
Borgarfirði. Þá lifa í
minningunni þær
mörgu stundir þegar
hann naut þess að
segja mér frá því er
hann 'var í sveit á
Bakka á Seltjarnar-
nesi. Svo lifandi var
frásögn hans að maður
var kominn mörg ár aftur í tímann.
Með þakklæti í huga minnist ég
þess hve hjálpsamur hann var þeg-
ar við hjónin fluttum frá Hafnar-
firði og austur fyrir fjall. Þó vega-
lengdin væri löng þá breytti það
engu. Hann lét heiðina ekki aftra
sér frá því að koma til okkar ef
aðstoðar var þörf. Böm hændust
að honum og nutu barnabörnin
þess að fá að vera undir hand-
leiðslu hans.
Elsku Sigga mín. Ég votta þér
innilega samúð mína.
Þinn tengdasonur,
Bergsveinn Halldórsson.
Margt er það og margt er það
sem minningarnar vekur.
Þær eru það eina
sem enginn frá mér tekur.
(Davíð Stefánsson.)
„Nei, ég trúi því ekki,“ sagði
ég þegar mamma sagði mér, að
morgni 24. októbers að afi í Hafn-
arfirði væri dáinn. Það voru bara
nokkrir dagar síðan ég talaði við
hann í síma og þá sagði hann að
amma væri farin að færa til ferða-
töskurnar, „því við ætlum saman
til útlanda", en hann var bara að
grínast í mér.
Það eru svo margar minningarn-
ar sem koma upp í kollinn á mér,
eins og þegar amma bauð mér á
páskabingó og afi fussaði og svei-
aði yfir því. En þegar ég kom með
1
2
:
4
4
4
4
BALDUR S. PÁLSSON
+ Baldur S. Páls-
son fæddist á
Akureyri 21. apríl.
Hann lést á heimili
sinu í Nivá, Dan-
mörku, 20. október
síðastliðinn, en þar
bjó hann sl. ellefu
ár. Foreldrar hans
voru Ragnheiður
Stefánsdóttir og
Páll A. Pálsson.
Baldur átti þijár
dætur, Ragnheiði,
lækni, gift Sigfúsi
Aðalsteinssyni og
eiga þau tvö börn;
Eddu Jóhönnu,
þjúkrunarfræðing, og Ernu Mar-
inu, nema. Einnig átti hann
fósturson, Dennis Jensen. Eftir-
lifandi sambýliskona Baldurs er
Bente Larsen. Baldur var raf-
virki að mennt en starfaði að
meðferðarmálum áfengissjúkra
siðustu árin. Útför hans fer fram
frá Akureyrarkirkju á morgun.
Ég man það allt hvem ævidag,
sem okkar milli fór.
Þín vinsemd hálf ei var né
rausn.
Þú varst í öllu stór.
Sem barn ég þér af heilum hug
og hjarta tryggðir sór.
Þú þreyttir leik við þungan sjó
og þor ei brast né afl.
Og þó um stund þér kæmi á
kné
hinn krappi báru skafl,
þú reist í fulla hæð og heim
þú hélst með unnið tafl.
Og einn þú gekkst á guðs þíns
fund.
Þá grúfðist þokka dökk
um vin er eftir stóð á strönd,
mín stjama í djúpið sökk'.
En fógur minning birtu ber.
Og bijóst mitt andar þökk.
(Kristján frá Djúpalæk.)
Kveðja frá dætrum.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfda 4 — sími 871960
$
V
MINNINGAR
eitt páskaegg fór hann með mér
næsta dag út í búð að kaupa egg
handa Jóni og Brynju, svo ég kæmi
heim með páskaegg handa öllum.
Það var alltaf gaman að koma
til ykkar ömmu um helgar með
rútu og fá að gista yfir helgi og
stundum mátti ég koma upp í, sem
var mjög notalegt þegar ég var
hrædd við sláttinn í klukkunni og
önnur hljóð sem ég hræddist. Allt-
af fengum við eitthvað gott eða
tyggjó í vasann.
Þegar afi var að vinna fyrir
Andrés gamla, þá vildi hann ekk-
ert taka fyrir það, en Andrés bauð
honum rautt stelpuhjól sem afi og
amma gáfu mér í afmælisgjöf því
þau vissu að ég átti ekkert hjól.
Yfirleitt fékk afi alltaf möndluna
í grautnum á jólunum þegar hann
og amma voru hjá okkur. Þá
geymdi hann möndluna uppi í sér
og lét engan vita til að allir borð-
uðu grautinn.
I sumar varð afi 75 ára. Þá
komu hann og Stína frænka og
gistu hjá okkur og við héldum upp
á afmælið hans.
Ég vil þakka þér fyrir þessi 20
ár sem ég fékk að vera með þér.
Elsku amma, ég votta þér inni-
lega samúð mína.
Þín,
Guðbjörg.
Ó, Jesús bróðir bezti
og bamavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á bamæskuna mína.
Með blíðum barnarómi
mitt bænakvak svo hljómi:
þitt gott bam gef ég veri
og góðan ávöxt beri.
(P. Jónsson.)
Elsku Alli afi.
Okkur systkinin langar að þakka
þér fyrir þann tíma, sem við áttum
með þér. Þú og amma komuð oft
í heirhsókn og alltaf áttir þú eitt-
hvað í litlu munnana.
Við kveðjum - og geymum minn-
inguna um þig í hjörtum okkar.
Ómar, Sindri og Berglind.
Nú legg ég aupn aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson.)
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(M. Joch.)
Hann Alli langafi er dáinn. Hann
var alltaf svo góður. Það var svo
gott að stinga köldum lófa inn í
hlýju höndina hans. Nú er hann
hjá Guði og kíkir á okkur í gegnum
skýin. Ég mun sakna þín en ég
veit að nú líður þér vel.
Þinn langafastrákur,
Aron Kristinn.
t
Elskuleg dóttir okkar og systir,
KRISTÍIM FÖNN ÓMARSDÓTTIR,
sem lést 24. október verður jarðsungin frá Eskifjarðarkirkju þriðju-
daginn 1. nóvember kl. 14.
Jóhanna Friðgeirsdóttir, Ómar Jónsson,
^ Björgvin Ómarsson,
Dagný Ómarsdóttir,
Kristrún Ómarsdóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
VALDIMAR PÉTURSSON
bakarameistari,
Heiðarbraut 1,
Blönduósi,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 31. október kl. 10.30.
Anna Marfa Sigurbjörnsdóttir,
Steingrfmur Reynir Valdimarsson, Inga Sigurpálsdóttir,
Halla Björg Valdimarsdóttir, Ronald L. Smith,
Gunnbjörn Valdimarsson,
Gunnar Valdimar Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýju við
andlát og útför
LAUFEYJAR SIGRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Naustahlein 17,
Garðabæ.
Stefán Jóhann Þorbjörnsson,
Pálmi Stefánsson, Svanhildur Guðmundsdóttir,
Kristján Stefánsson, Soffia Arinbjarnar,
Ingibjörg Stefánsdóttir, Massimo Scagliotti,
Þorbjörn Stefánsson, Inga E. Káradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu
samúð og vinarhug og studdu okkur
við andlát og jarðarför föður okkar,
ÞÓRÐAR GÍSLASONAR,
Ölkeldu II,
Staðarsveit.
t
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
STEINUNNAR HALLGRÍMSDÓTTUR
frá Skálanesi,
Skipholti 61,
Reykjavfk.
Árni Jónsson,
Jenný G. Godby, Jim Godby,
Jón Steinar Árnason,
Halla Marfa Árnadóttir, Tryggvi L. Skjaldarson,
Sverrir Kristinsson, Sigríður Blöndal,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns, föður, tengdaföður, afa, langafa
og bróðurs,
MAGNÚSARÓSKARS
GUÐBJARTSSONAR.
Hallgerður (Halla) Guðmundsdóttir,
Herdís Erla Magnúsdóttir, Herbert Árnason,
Halla Magnúsdóttir, Guðbrandur Gíslason,
Magnús Óskar Magnússon,
Þórarinn Jón Magnússon, Oddfrjður Steindórsdóttir,
Guðmundur Magnússon, Inger Mariana Fransson,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
Börnin.