Morgunblaðið - 30.10.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1994 43
Hjartakökur Silfurskottumannsins
og hættulegur brjóstsykurskokkteill
Matthew Broderick og
Sarah Jessica Parker
Farsælt
leikarapar í
Hollywood
►LEIKARAPARIÐ Matt-
hew Broderick og Sarah
Jessica Parker gerir það
gott í Hollywood um þessar
mundir. Hún leikur aðal-
hlutverkið á móti Johnny
Depp í kvikmyndinni „Ed
Wood“ og Broderick leikur
aðalhlutverkið í myndinni
„The Road to Welville“. Þar
leikur hann í rómuðum
farsa á móti gagnteknum
heilsubrjálæðingi Dr. John
Harvey Kellogg, sem leik-
inn er af Anthony Hopkins
en kvikmyndin var frum-
sýnd í Bandarikjunum 28.
október. Islenskir kvik-
myndahúsagestir muna
kannski einna helst eftir
Broderick úr gamanmynd-
inni vinsælu „Ferris Buell-
er’s Day Off“.
GESTUR númer eitt tvö
og þrjú á Kaffi List þessa
dagana hefur hengt jakk-
ann sinn á einn vegg stað-
arins og hangir þar
reyndar sjálfur uppi á
öðrum. Þetta er Silfur-
skottumaðurinn snjalli,
teiknaður af Steingrími
Eyfjörð. Myndasagan um
manninn birtist fyrst í
Pressunni og síðan Ein-
taki og var upphaflega
unnin bæði af Steingrími
og Sjón. Svo hvarf Sjón
til annarra verka en
Steingrímur sleppti ekki
hendinni af Silfurskott-
unni. Hann breytti henni
úr eins konar landsmála-
hetju íþersónu úr daglegu
lífi. Bjargar þá Silfur-
skottumaðurinn engum
lengur?
„Fyrst og fremst sjálf-
um sér,“ svarar Steingrímur. „Frá drykkju og óreglu
og öðrum vanda sem kannski má nefna ástarfíkn.
Hann er sem sagt í vissri klemmu. En hann er ofur-
menni og sýningin var opnuð á afmælisdegi ofur-
Morgunblaðið/Knstinn
STEINGRÍMI Eyfjörð finnst silfurskottan eitt-
hvað svo íslensk og nefnir hetju sína eftir henni.
mennisfræðingsins Fri-
edrichs Nietzsches hinn 15.
ágúst.“
Á List eru upprunalegar
teikningar myndasögunnar
og nokkrir rammar ‘sem
Steingrímur stækkaði með
bleki. Þar er líka jakkinn,
til að sýna fram á að Silfur-
skottumaðurinn er til í
raun og veru, og kjóll sem
hann þekkir vel. Glansandi
og , ofurmannlega síður
kjóll. Auk þessa rúllá
þrívíddarmyndir Silfur-
skottunnar af myndbandi
eftir Torfa Frans Ólafsson.
Og þá er ekki allt upp
talið, kaffíhúsið hefur á
boðstólum hjartalaga kök-
ur Silfurskottumannsins og
hættulegan kokkteil úr
lakkrísbijóstsykri og
vodka. „Hann dettur nefni-
lega stundum í það,“ segir
Steingrímur og telur ekki ólíklegt þegar á hann er
gengið að Silfurskottumaðurinn éti líka stundum yfir
sig af hjartakökum. Sýningunni á Kaffí List lýkur
seinni partinn í nóvember.
Lennon í
kvikmynd
► JULIAN Lennon er bæði
söngvari og sönglagahöfundur
og ætlar núna að reyna fyrir sér
í kvikmyndum. Hann hefur feng-
ið sitt fyrsta hlutverk sem bar-
þjónn í nýrri mynd með Nicolas
Cage. Talsmaður Lennons segir:
„Julian hefur alltaf haft áhuga á
leiklist og hann er mjög ánægður
með að hafa fengið tækifæri til
að reyna fyrir sér í kvikmynd."
MINJAGRIPASAFN
um Dan Quayle.
Minjasafn um Quayle
►DAN QUALE fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna hefur öðl-
ast heimsfrægð fyrir að misstafa orðið kartafla (potato), halda
að Rómansk-Ameríkubúar (Latin Americans) töluðu latínu og rugla
saman Bólivíu og Búlgaríu.
Heimabær hans, Huntington í Indiana-fylki, kann að nýta sér
þessa frægð og hefur byggt minjasafn Quayle til heiðurs. Þar
gefur að líta skrá yfir mikilvæga atburði í lífi James Danforth
Quayle — Biblíuna sem hann sór varaforsetaeið sinn við, stól sem
uppáhalds heimabæjarveitingastaður hans gaf safninu og útskrift-
arskírteini hans úr lagaskóla, sem slapp naumlega við að vera
étið af heimilishundinum Barnaby.
Til minningar um heimsóknina á safnið er liægt að kaupa spila-
stokk, kúlur á jólatré og áritaðar myndir. Það er jafnvel hægt
að fara í sýnisferð um bæinn Huntington og sjá æskuheimili Quay-
les og golfklúbbinn þar sem hann tók sinn fyrsta golftíma. Síðan
er haldið aftur á veitingastað safnsins þar sem sterkt kaffi bíður
og Quayle-hamborgari - það eina
sem vekur grunsemdir varðandi
matseðilinn er að á hann vantar
kartöflur.
Hvað viltu losna
við mörg kíló?
Átak gegn umframþyngd, A-tími.
Átak gegn umframþyngd framh. B-tími.
- Átak gegn umframþynd, A - tími
7 vikna námskeið fyrir þá sem vilja
losna við aukakílóin. Tilvalið fyrir
byrjendur. Lokaður hópur.
- Námskeiðið hefst 31. okt. og er
skráning þegar hafin. Takmarkaður
fjöldi.
- Átak gegn umframþyngd framhald,
B - tími, nýtt 7 vikna námskeið fyrir þá
sem þegar hafa lokið námskeiði A, og
aðra sem komnir eru í einhverja
æfingu en vilja gott aðhald.
Lokaður hópur.
- Námskeiðið hefst 31. okt. og skrán-
ing þegar hafin. Takmarkaður fjöldi.
verð 9.990,-
Þeir sem missa 8 kíló eða meira
fá frítt mánaðarkort
Ný tæki í tækjasal
Heitir pottar
Vatnsgufa L|qS
FROSTASKJÓLI 6 • SÍMI: 12815 OG 12355
DAN Quayle er ekki mikið fyrir kartöflur.