Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 1
92 SÍÐUR B/C/D
254. TBL. 82. ÁRG.
SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Framliðinn í
framboði og
annar í felum
Boston. Morgunblaðið.
ÞETTA er undarlegt kosningaár. Fram-
bjóðendur ata hver annan auri, sveipa sig
bandaríska fánanum, deila um kosti og
galla hárieysis og hárprýði í pólitík og
guma sig af því að hafa ekkert vit á
stjómmáium. En þegar frambjóðendur
hverfa sporlaust og framliðnir eiga sigur-
inn vísan getur fátt komið lengur á óvart.
Robert Garner sigraði í forkosningum
repúblikana á Hawaii um framboð til
Bandaríkjaþings 17. september en síðan
hefur ekkert til hans spurst. Flokks-
systkini Garners hafa leitað hans log-
andi ljósi enda ekki seinna vænna að
hefja kosningabaráttuna því að gengið
verður að kjörborði á þriðjudag.
Kunningjar Garners segja að hann
hafi siglt á haf út á báti sínum. „Hann
er hinn framúrskarandi óháði repúblik-
ani,“ sagði Jared Jossem, frammámaður
í Repúblikanaflokknum.
Odell Huffman verður að öllum líkind-
um endurkjörinn til setu á ríkisþinginu
í Vestur-Virginíu enda vinsæll meðal
kjósenda. Þetta væri svo sem ekki í frá-
sögur færandi ef ekki vildi svo til að
Huffman er ekki lengur í tölu lifenda.
En nafn hans verður á atkvæðaseðlinum
þótt hann hafi látið lífið í september og
á þessari upplýsingaöld er talið að kjós-
endur muni grípa til þess ráðs að merkja
við nafnið sem þeir þekkja.
Nema kjósendur hafi fengið svo mikla
andúð á stjórnmálamönnum að þeir kjósi
frambjóðendur til að gegna ekki embætt-
um sinum.
Sú er ailtjent von Mörthu Whitehead,
sem sækist eftir embætti ríkisféhirðis í
Texas. Hennar kosningaloforð er að
leggja niður embættið og allar skrifstof-
ur þess. „Færri skriffinnar, minni sóun
og ég fer fyrst,“ segir Whitehead í sjón-
varpsauglýsingu um leið og mynd af
henni rennur út í eitt.
■ Martröð Clintons/14
Fergie leikur
í Strandvörðum
SARAH Ferguson, Fergie, hertogaynjan
af Jórvík, býr sig nú undir að koma fram
í sjónvarpsþáttunum „Strandverðir".
Hefur hún samið við framleiðendur þátt-
anna að þeir muni styrlya eftirlætislíkn-
arfélag hennar, „Börn í vanda". Hún
mun þó ekki koma fram á sundfötum.
Þátturinn verður sendur út í apríl á
næsta ári. Auk hertogaynjunnar kemur
milljónamæringurinn Richard Branson,
eigandi Virgin-samsteypunnar, fram í
þáttunum. I þáttunum mun Branson
lenda í sjávarháska og strandverðirnir
bjarga honum. Hann mun að því búnu
eiga samtal við Fergie í myndsíma.
Harðnar á dalnum hjá hrossunum
Morgunblaðið/RAX
HROSSAEIGENDUR eru farnir að huga að heygjöf, enda
vetur genginn í garð og farið að harðna á dalnum hjá úti-
gangshrossum. Þáðu þau heyið með þökkum í fyrsta siyó
vetrarins á suðvesturlandi en myndin er tekin við Akranes.
The New York Times segir vopn flæða til Bosníu frá Króatíu
Her múslima sækir að
bænum Bosanska Krup
Sarajevo, New York. Reuter.
FRIÐARGÆSLULIÐAR Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) sögðu í gær að harðir bardagar stæðu nú
á milli stjórnarhers Bosníu og Bosníu-Serba
um bæinn Bosanska Krup í norðvesturhluta
Bosníu. Bærinn er á valdi Serba, sem verja
hann af mikilli hörku. Segjast Bosníu-Serbar
stefna að allsherjar herútboði, þar sem múslim-
ar séu staðráðnir í að beijast áfram.
Dagblaðið The New York Times sagði í
gær að vopnasölubannið á Bosniu væri virt
að vettugi. Króatar smíðuðu og settu saman
allt frá skriðdrekum til MIG-21 orrustuþotna
og að vopn flæddu til Bosníu frá eða í gegn-
um Króatíu.
Friðargæsluliðar SÞ kváðust óttast að
mannfall yrði mikið í bardögunum um Bos-
anska Krup og að stjórnarhernum myndi
ganga erfiðlega að ná honum á sitt vald.
Múslimar hafa sótt að bænum í tíu daga en
hann er á mörkum Bihac-svæðis múslima.
Herir múslima og Króata náðu borginni
Kupres á sitt »vald í vikunni. Er hart barist
suðvestur af Sarajevo en talsmenn SÞ segja
múslima sækja fram að borginni Trovo en
um hana liggur mikilvæg flutningaleið.
Yfimaður hers Bosníu-Serba, Ratko Mladic,
hótar múslimum því að ofbeldi muni færast
í aukana í Bosníu, í viðtali sem birtist í Der
Spiegel. Segir Mladic að múslimar kunni að
„tapa öllu“ og að landamæri ríkjanna verði
dregin upp með blóði.
Mikið framboð vopna á
svörtum markaði
Að sögn The New York Times láta banda-
risk yfirvöld sem þau viti ekki af umfangsm-
iklum vopnaflutningum frá Króatíu til Bosn-
íu. „Ég fæ það sem ég þarf,“ sagði varnar-
málaráðherra Króatíu, Gojko Susak, í sam-
tali við blaðið. Sagði ráðherrann að svo mikið
framboð væri af vopnum á svörtum markaði,
að væru þau fengin löglega, yrði það þrisvar
sinnum dýrara.
Líkti Susak vopnakaupum í Póllandi, Búlg-
aríu og Rússlandi við kaup á opnum markaði
og sagði að Króatar sæju stjórnarher Bosníu,
sem aðallega er skipaður múslimum, fyrir
sprengjuvörpum, og skotum í þær og aðrar
tegundir skotvopna.
Tsjúbajs fær stöðuhækkun
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti skipaði í gær
umbótasinnann Anatolíj Tsjúbajs í embætti
fyrsta aðstoðarforsætisráðherra. Hann hefur
stýrt einkavæðingaráætlun stjórnarinnar.
Skipun Tsjúbajs fylgir í kjölfar uppstokk-
unar í stjórninni en tveir miðjumenn hafa
látið. af embætti og landbúnaðarráðherra
verið skipaður með stuðningi kommúnista.
10
Barnið
mitter
fíkill
MARTRÖÐ
CLINTONS
VEDSKIPn AIVINNULÍF
Á SUNIMUDEGI
20
HEPPNIOG
ÚTSJÓNARSEMI
FYRSTI
FORSETINN