Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 9
FRETTIR
Kynning á
feminísk-
um laga-
kenningxim
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla íslands og Rannsóknar-
stofa í kvennafræðum standa sam-
eiginlega fyrir námskeiði um nokk-
ur viðfangsefni feminískra laga-
kenninga, dagana 10., 11. og 14.
nóvember.
í fréttatilkynningu segir, að á
námskeiðinu verði fjallað um nokk-
ur atriði sem hafa verið í brenni-
depli í kvennabaráttu og feminísk-
um lagakenningum síðan á sjöunda
áratugnum, s.s. ofbeldi á heimilum,
nauðgun, klám, kynferðislega
áreitni og tæknifrjóvganir. Kynnt-
ar verða rannsóknir og umræður
sem fram hafa farið einkum í
Bandaríkjunum.
Námskeiðið er einkum ætlað
fagfólki sem með einhveijum hætti
kemur að þessum viðfangsefnum,
s.s. lögfræðingum, læknum, sál-
fræðingum og félagsráðgjöfum, en
námskeiðið er öllum opið.
Leiðbeinandi verður Claire Ann
Smearmann lögfræðingur (Juris
Doctor), en hún ér Fulbrightkenn-
ari við Háskóla íslands nú á haust-
misseri.
Skráning fer fram mánudaginn
7. nóvember á skrifstofu Endur-
menntunarstofnunar.
Bókin um Erró
400 eintök
seldust
fyrsta
daginn
FJÖGUR hundruð eintök af
bók Marcs Augé um list-
málarann Erró, sem komin
er út í íslenskri þýðingu Sig-
urðar Pálssonar, voru pöntuð
og seld hjá Pennanum, dreif-
ingaraðila bókarinnar, fyrsta
söludaginn.
Bókin, sem kostar tæplega
tíu þúsund krónur, kemur út
í aðeins eitt þúsund eintökum.
Henni fylgir númerað silki-
þrykk eftir Erró. Listamaður-
inn áritar bókina í verslun
Pennans í Kringlunni í dag
milli kl. 13.30 og 16.
í tilefni íslenskra daga í
Kringlunni eru einnig til sýn-
is þar nokkur stór listaverk
eftir Erró, sem ekki hafa ver-
ið sýnd á íslandi áður.
varahlutir og vinna hjá Volvo
Smurning’
*vinna, olia á vél og olíusía
Volvo fólksbílar allar gerðir
Spindilkúla
Volvo fólksbílar allar gerðir
Bremsuklossar’
*aö framan eöa að aftan
Volvo fólksbílar allar gerðir
(án ABS)
Tímareim*
*ekki fjölventlavélar
Volvo 240/740/940
Pústkerfi
*án fremsta pústs
Volvo 240/ekki Turbo
2.490 kr.
Með vinnu og efni.
Original varahlutir og
fagleg vinnubrögð.
4.990 kr.
Með vinnu og efni.
Originai varahlutir og
fagleg vinnubrögð.
5.990 kr.
Með vinnu og efni.
Original varahlutir og
fagleg vinnubrögð.
6.990 kr.
Með vinnu og efni.
Original varahlutir og
fagleg vinnubrögð.
11.990 kr.
Með vinnu og efni.
Original varahlutir og
fagleg vinnubrögð.
Þetta eru að sjálfsögðu aðeins örfá dæmi
- hringdu og aflaðu frekari upplýsinga
eða pantaðu tíma í síma 67 36 OO.
Gildir til 31.12.1394
VOLVO
BIFREIÐ SEM ÞÚ GETUR TREYST
ra
BRIMB0RG
VERKSTÆÐI
BÍLDSHÖFÐA 6 • SÍMI91-67 36 00
TEKIST HEFUR AÐ UTVEGA
FÁEIN VIÐBÓTARSÆTI 11.-14.15. DES.
Jólin eru stutt í ár, en HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS OG FERÐASKRIFSTOFAN
PRÍMA bjóða þér einstakt tækifæri til að kynnast orðlagðri jólastemmningu
LUNDÚNA og taka forskot á jólin.
LONDON er aldrei fegurri né skemmtilegri. Skrautlýst strætin, jólatónlist,
jólamatur, leikhús, tónleikar, ópera, listasöfn, glæsilegar verslanir.
Háklassagisting með morgunmat í hjarta borgarinnar á áður óþekktu verði.
Ógleymanleg skemmtun, upplifun og hagstæð jólainnkaup.
Kynnisferð um heimsborgina býðst í fylgd Ingólfs. Hvaða heimsborg önnur jafnast á við London í jólaskarti?
Tilboðsverðiö er aðeins kr. 38.900 fyrir heimsborgarferð með stíl, sem gildir
ef staðfest er fyrir 10. nóvember.
FERÐASKRIFSTOFAN
PRIMAt
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
AUSTURSTRÆT117, 4. hæð 101 REYKJAVÍK»SÍMI 620400»FAX 626564