Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 27

Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 27 • • BJORN I.GUNNLA UGSSON + Björn J. Gunn- laugsson skip- stjóri fæddist í Reykjavík 18. októ- ber 1918. Hann lézt 17.október síðast- liðinn á North- ridgesj úkrahúsinu í Fort Lauderdale í Florida og fór út- fðr hans fram frá Christ Lutheran Church í Fort Lauderdale 19. október. Foreldrar hans voru Gunn- laugur Illugasou, togaraskipstjóri, f. 1885, d. 1977, og kona hans Guðríður Guðmundsdóttir, f. 1894, d. 1919. Fósturforeldrar hans voru Guðrún Guðmundsdóttir, móðursystir lians, f. 1895, d. 1973, og Eyjólfur Björnsson, vélstjóri, f. 1883, fórst með línu- veiðaranum Jarlinum 1941. Al- bróðir Björns er Guðmundur, skipstjóri, f. 1912. Fóstursystk- ini hans eru Rósa, f. 1918, d. 1992, og eftirlifandi Kristófer, tannsmiður, f. 1920, og Frið- mey, hjúkrunarkona, f. 1923. Björn kvæntist árið 1947 Ásu Maríu Þórhallsdóttur, Gunn- laugssonar símstjóra í Vest- mannaeyjum, f. 1923. Ættleidd börn þeirra eru Ingrid, sjúkra- liði, f. 1955, og Thor, bátsmað- ur, f. 1959. Ingrid á son, Björn Andrew, f. 1979. BJÖRN Illugi Gunnlaugsson, fyrr- verandi skipstjóri á risaskipum Exx- on-olíufélagsins, er látinn. Heimsigl- ingin var veðrasöm fyrir skipstjór- ann, helsjúkan af illkynja meini sem hann hafði kljáðst við um skeið og haldið hnaiTeistur velli þar til fyrir nokkrum vikum. Undirritaður var, lánsamur að atvik höguðu svo til að dvelja í hans heimabæ frá 2.-15. október sl. Mér hafði borist til eyrna fyrir komuna til Pompano Beach, að nú syrti í álinn og kveið því hvernig okkar fundi myndi bera að. Gleði mín varð mikil að heyra rödd hans í síma á fyrsta degi dvalarinnar og fínna æðruleysi hans og höfðings- skap, því að engu fyrr hafði hann sagt mér frá áliti lækna sinna, að nú væri siglingin senn á enda, að bann bauð til veizlu og myndi hann nota tækifærið og kalla á nokkra vini til viðbótar. Veizlan fór fram hinn 6. október með gnótt matar og veiga og bilbugur enginn uppi hafður, rætt um heima og geima fyrri funda og aðeins drepið á eilífð- armálin og var Björn skipstjóri sam- ,ur við sig í því efni sem öðrum, augljóslega búinn að setja stefnuna og gera allar ráðstafanir til þess lokadags, þegar akkeium skyldi endanlega kastað. Þetta varð síð- asta veizlan, því þremur dögum síð- ar fór hann á sjúkrahús og viku síðar var hann allur en aldrei einn, því að böm hans, Ingrid og Thor, ásamt eiginkonunni, Ásu Maríu, stóðu allar vaktir til siglingarloka. Ég trúi því að þessi vika hafí hnýtt enn sterkar fjölskylduböndin og tryggt þau út yfír gröf og dauða. Undirritaður var Ijónheppinn að kynnast Birni fyrir 34 árum. Ég hafði þá, rétt byijaður í framhalds- námi við háskólaspítalann í Miami fengið „tæringu eins og skáldin “ og var búinn að dúsa í þijá mánuði á spítala á 30. afmælisdajginn, 25. júní. Þá birtust Björn og Asa Malla ásamt Úlfari heitnum Jónssyni lækni og Guðnýju Ámundadóttur konu hans, og hafi það ekki verið mér ljóst áður hvað velvild og hvatn- ing er mikilvæg fyrir sjúklinga, varð það á þeirri stundu, að öll bölsýni yfirgaf mig og ég hlakkaði til að þiggja boð Björns, sem sagði að skilnaði: „Ég verð aftur í fríi eftir 90 daga og þá skulum við fara út í Golfstrauminn og fiska.“ Og það varð. Mörgum sinnum. Björn, eða Bangsi eins og hann var kallaður af öllum, sem hann þekktu, var annar sonur hjónanna Guðríðar Guðmunds- dóttur og Gunnlaugs 111- ugasonar. Móðir Bangsa dó úr berklum, þegar hann var tæpra tveggja ára og hlaut hann því uppeldi sitt hjá fósturforeldrum, Guð- rúnu móðursystur sinni og manni hennar Eyjólfi vélstjóra Björnssyni. Bangsa varð tíðrætt um æsku sína og uppvaxt- arár og auðheyrt að lán- ið fýlgdi honum alla tíð og leyfði honum að blómstra sem því „lífs- skáldi" sem hann varð. Hann hlaut auðheyrilega góða menntun hjá fósturforeldrum sínum og kynntist íslenzku sveitalífi í Laxnesi í Mos-- fellssveit. Hann útskrifaðist úr Verzlunarskóla Reykjavíkur 1937 í miðri kreppunni. í stað þess að þreyja og bíða tækifæra hér bauð faðir hans honum til Boston, sem Bangsi hugði að myndi verða bara stutt heimsókn. Raunin varð önnur. Hann gerðist háseti á togurum í toppskiprúmum, þar til Bandaríkin drógust inn í síðari heimsstyijöld- ina. Þá réðst hann sem 3. stýrimað- ur í kaupskipaflotann og sigldi klakklaust öll stríðsárin í skipalest- um og horfði upp á skipstapa allt í kringum sig og var með 1. stýri- manns réttindi í stríðslok. Árið 1947 varð sögulegt fyrir Bangsa, en þá birtist Ása María Þórhallsdóttir frá Vestmannaeyjum í Boston snemmsumars og giftu þau sig tveimur mánuðum síðar. Jafn- framt fékk hann skipstjómarréttindi og réðst tii Exxon-olíufélagsins sem stýrimaður og síðar skipstjóri til starfsloka 1983. Ása og Bangsi fluttu til Flórída 1956 og hafa alið þar aldur sinn ásamt bömum sínum, Ingrid og Thor. Þar eins og í Boston hafa þau verið mannvinir og mannabætar. Gestrisin og umhyggjusöm i hví- vetna og veittu bæði fóstru Bangsa, Guðrúnu, og föður hans athvarf á ævikvöldi, Guðrúnu í rúman áratug og Illuga í hálfan. Ég sakna vinar í stað og votta ástvinum samúð mína. Blessi Bangsa allir heilagir. Bálför hefur farið fram en aska hans mun fá að hvíla í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu innan tíðar. Sigurður Þ. Guðmundsson. Látinn er heiðursmaðurinn Björn Illugi Gunnlaugsson, skipstjóri, Pompano Beach í Flórída. Björn vantaði einn dag upp á að ná 77 ára aldri. Fjölmenni var við jarðar- för hans og margir mjög langt að komnir. Ég kynntist Birni I. Gunnlaugs- syni, sem hér er kvaddur hinstu kveðju, fyrst árið 1970, er hann bauð mér á heimili sitt og sinnar ágætu konu, Ásu Maríu Þórhalls- dóttur, hér í Pompano Beach. Björn, eða Bangsi eins og hann var oftast kallaður, og Ása höfðu verið búsett hér í Suður-Flórída frá árinu 1956. Þau höfðu þá komið sér glæsilega fýrir í nýju húsi, sem þau höfðu keypt árið áður, við síkin innan skeijagarðsins hér og bjuggu þar ásamt börnum sínum tveim, Ingrid, sem þá var 14 ára og Þór, sem var 10 ára. Eftir örfáar mínútur á heim- ili Björns og Ásu leið mér eins og ég hefði þekkt þessi indælu hjón árum saman. Viðmót þeirra var svo alúðlegt og hlýtt. Björn var opinn, viðræðugóður og óvenju vel upplýst- ur um allt sem gerðist á Islandi, mjög ættfróður og víðlesinn. Seint mun líða úr minni sú gestrisni og yfirlætislausa gleði sem ég varð aðnjótandi á heimili Björns og Ásu við fyrstu kynni, og ávallt síðan. Það gat ekki farið fram hjá nein- um að heimilið var rammíslenskt þrátt fyrir 32 ára búsetu húsbónd- ans í Bandaríkjunum. Þegar þetta var höfðu þau Bjöm og Ása verið gift í 23 ár en hún dvalið hérlendis í 28 ár. Þau giftu sig árið 1947, en það heillaár réð Björn sig til olíu- félagsins Esso, þar sem hann vann samfleytt í 35 ár. Fyrst sem stýri- maður og síðar skipstjóri á risaolíu- skipum til 1982 er hann fór sam- kvæmt hérlendum reglum á eftir- laun 65 ára gamall. Mér vitanlega er hann fyrsti og eini íslendingurinn sem fékk réttindi og var treyst fyr- ir skipstjóm á hinum risastóru olíu- skipum eftir að þau komu til sög- unnar. Vík var á milli vina á annan ára- tug en síðustu ár höfum við um- + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RÓSA JÓRUNN FINNBOGADÓTTIR, Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, sem lést föstudaginn 28. október, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Bjarni B. Ásgeirsson, Elín Guðmundsdóttir, S. Þórdís Ásgeirsdóttir, Hörður G. Albertsson, Finnbogi Á. Asgeirsson, Edda Valgarðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t systur, Innilegar þakkirtil allra sem sýndu okk- ur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur, tengdadóttur, mágkonu og frænku, SIGRÍÐAR MARÍU STEINGRÍMSDÓTTUR, Torfastöðum I, Grafningi. Sérstákar þakkir til íbúa og hreppsnefndar Grafningshrepps og starfsfólks gjörgæsludeildar Landsspítalans. Guð blessi ykkur öll. Bergur Geir Guðmundsson, Guðmundur Bergsson, Andri Már Bergsson, Kristin Hanna Bergsdóttir, Birna Jónsdóttir, Þrúður Sigurðardóttir, Birgir Árdal, Árný V. Steingrfmsdóttir, Jensína S. Steingrímsdóttir, Jóna Steingrfmsdóttir, Gfsli Steingrfmsson, Kristín R. Steingrímsdóttir, Steingrfmur Gfslason, Guðmundur Bergsson, Margrét Jónsdóttir, Friðgeir Jónsson, Ægir Hilmarsson, Björn Magnússon, Magnús Guðmundsson, Sigurður Þór Steingrímsson, Guðbjörg Bergsteinsdóttir og systkinabörn. gengist mjög mikið, oft daglega. Bjöm I. Gunnlaugsson skipstjóri var svo hlýr og sterkur persónuleiki. Afskaplega vinsæll, hjálplegur og jákvæður maður. Hann var óvenju- lega félagslýndur og leið best þegar hann hafði nógu mikið fyrir stafni og margt fójk í kring um sig. Björn barðist mjög fyrir bættum réttindum þeirra, sem störfuðu í kaupskipaflotanum bandaríska á styijaldarárunum, í félagi sem heit- ir Master Maririe, en þeir nutu ekki sömu réttinda og aðrir sem tóku þátt í stríðsrekstrinum, að stríði loknu. Hann stofnaði deild félagsins hér í Suður-Flórída og var aðaldrif- ijöðrin í starfsemi þess og fulltrúi deildarinnar í landsstjórn félagsins. Réttindabaráttunni lauk er þingið í Washington veitti þeim fulla viður- kenningu á við sjóherinn. Þeim hafði verið haldið niðri, því þeir voru ekki taldir vera á sjálfum vígvellinum, þrátt fyrir að þeir væru í stöðugri lífshættu við að fljdja vistir og alls- konar birgðir til þeirra sem á orr- ustuvellinum vom. Björn varð inni- lega ánægður þegar sigur vannst í þessu mikla réttlætismáli. Björn I. Gunnlaugsson var einn þeirra sem stofnuðu íslendingafé- lagið hér í Suður-Flórída. Þar gegndi hann ýmsum embættum og var formaður þess í tvö ár. Áhugi hans á málefnum félagsins var engu líkur. Hann var sívakandi yfír starf- semi þess og vann kappsamlega að því að fá alla til að ganga í félagið og sækja fundi þess og skemmtanir. Björn gat ekki sagt skilið við sjó- inn þegar hann fór á eftirlaun og keypti því 40 feta skemmtibát. Hann naut þess að fara í skemmtisigling- ar með vinum sínum til nærliggj- andi eyja hér úti fyrir Flórídaströnd- inni og til Mexíkóflóa, ásamt því að fara út og renna fyrir fisk. Ekki verður annað sagt en Björn hafi notið lífsins til fulls á eftirlauna- árunum. Síðastliðin ár hef ég oft orðið vitni að því, hversu gífurleg hjálparhella heiðursmaðurinn kapteinn Gunn- laugsson hefur verið öllum íslend- ingum sem hér hafa búið og komið til skemmri eða lengri dvalar. ís- lendingar hafa svo sanriarlega átt hauk í horni í Birni I. Gunnlaugs- syni. Heimili þeirra hjóna Ásu og Bjöms hefur ávallt staðið íslending- um opið. Nú munu margir heima á Fróni minnast ánægjulegra daga hér í Suður-Flórída á heimili þeirra hjóna. Það var með ólíkindum hve gestrisin, greiðvikin og samhent þau vora. Sjúkdóms þess sem varð Birni að aldurtila varð fyrst vart 1987. Þá fékk hann geislameðferð sem' hélt sjúkdómnum niðri, en fyrir röskum tveimur árum tók sjúkdóm- urinn sig upp aftur og var honum haldið niðri með lyfjameðferð þar til í byrjun þessa árs. Þegar Björn var orðinn fullviss um að hveiju stefndi dreif hann sig í sína síðustu íslandsferð sumarið 1993 til að hitta ættingja og vini heima á Fróni. Af sínum íslandsferðum hafði hann ávallt mjög mikla ánægju, enda vinmargur og aufúsugestur alls staðar þar sem hann kom. Skemmti sér ávallt konunglega. Síð-;. an var það upp úr áramótunum síð- ustu að sjúkdómurinn var kominn á það alvarlegt stig að hann þurfti á síaukinni læknisaðstoð að halda og líkamsþrek fór að gefa sig. Björn var mjög hamingjusamur yfir að geta verið viðstaddur þegar Þór sonur þeirra Ásu gifti sig í Newport, Rhode Island, í júní sl. Kona Þórs heitir Therese og er stýri- maður hjá olíufélaginu Exxon eins og Esso heitir i dag hér í Bandaríkj- unum. Dóttirin Ingrid vinnur hjá augnlækni sem aðstoðarstúlka, auk þess að sinna uppeldi sonar síns, Björns Andrews, sem er 15 ára. Birni auðnaðist að dvelja heima allan sinn veikindatíma, nema sex síðustu dagana sem hann þurfti að vera á spítala. Síðustu mánuðir hafa verið Ásu og fjölskyldunni gríðar- lega erfiðir. Eftir að á spítala kom vöktu Ása og börnin tvö, Ingrid og Þór, ásamt Tracy, eins og eiginkona Þórs er kölluð, yfír honum allan sólarhringinn. Sem betur fer virtist Björn ekki þjást mikið, þó að lífs- þrótturinn fjaraði smátt og smátt út. Hann hélt reisn sinni og andleg- um styrk til hinstu stundar. Góður maður og vinsæll er geng inn. Bjöms I. Gunnlaugssonar skiptjóra er sárt saknað af öllum sem þekktu hann. Eiginkonu Bjöms, Ásu M. Þórhalldóttur, Ingrid dóttur hans, afabaminu Birni Andrew, syni Ingrid, syninum Þór og tengdadótt- urinni Therese sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur ásamt öll- um ástvinum Björns. Guð blessi minningu Björns I. Gunnlaugssonar. Þorkell Valdimarsson, Pompano Beach, Flórída. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar okkar, tengdasonar og bróður, GUÐMUNDAR MARKÚSSONAR, hæstaréttarlögmanns, Hrauntungu 36, Kópavogi. Guöriður Kjartansdóttir, Markús Guðmundsson, Davíð Guðmundsson, Kristjana G. Guðmundsdóttir, Markús Guðmundsson, Hallfri'ður Brynjólfsdóttir, Kjartan Olafsson og systkini. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð vegna andláts föður okkar, tengdaföð- ur, afa, langafa og bróður, BRANDS JÓNS STEFÁNSSONAR, Kirkjuvegi 3, Vík i' Mýrdal. Jóhannes Brandsson, Þuríður Halldórs, Hrönn Brandsdóttir, Guðjón Þorsteinsson, Birgir Brandsson, Jóhanna Þórhallsdóttir, Hörður Brandsson, Gréta Sigurjónsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og systkini.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.