Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 34
34 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og ienni
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Svör til Arna
Finnssonar með
kveðju til Greenpeace
Frá Albert Jensen:
ÁGÆTT bréf sem Ámi Finnsson,
Starfsmaður Greenpeace, sendi mér
vegnar greinar sem ég skrifaði í
Morgunblaðið 29. september gefur
tilefni að fjalla nánar um efni henn-
ar og skilda þætti. í greininni færi
ég rök fyrir, að gera má slæm mál
að einu góðu. Rætt er að nota pen-
inga til sköpunar, ekki til að eyða
og spilla. Það sé eyðsla og skamm-
sýni að lengja frárennslislagnir
byggða í átt að hrygningarstöðvum
og grafa plastbaggað sorpið í jörð.
Það sé aftur á móti nýting og vemd-
un sjávar að safna í þrær og hreinsa
allt frárennsli. Menn séu að eyða
og bjóða hættunni heim er þeir
grafi sorp í jörð. En það sé nýting
að gera skarna úr sorpi, sem síðan
er, ásamt frárennslismassa notaður
til jarðvegsframleiðslu.
Fok
Staðreynd sem ætti að vera hugs-
andi mönnum til hvatningar er, að
hundmð þúsunda tonna af jarðvegi
fjúka á haf út árlega. Það hlýtur
því að vera mikil hugar auðn sem
hijáir menn þegar þeir sjá ekki
betri leiðir í atvinnuleysinu en borga
stórfé fyrir að eyðileggja fyrir sjálf-
um sér og öðrum. Ef farið yrði eft-
ir þeim tillögum sem ég hef sett
fram um jarðvegsframleiðslu til
uppgræðslu foksanda og annarra
erfiðra svæða, yrði hægt að bjóða
fjölda manns framtíðarvinnu í fjöl-
þættu skapandi verkefni.
Fiski hent
Það er lygilegt, en staðreynd, að
gífurlegu magni fiskjar er fleygt
fyrir borð fiskiskipa okkar. í Morg-
unblaðinu 14. október aðvarar Guð-
jón Ingólfsson stjórnmálamenn í
þessum efnum. En það er hvorki
hlustað á hann né aðra sem sjá
hættuna sem þessi heimska skapar.
Allir vita að með brögðum hefur
fjöreggi þjóðarinnar verið komið á
fárra hendur, þeirra er meira hugsa
um eigin hag en landsmanna. Fólk
horfir í hryggð og vanmætti á
nokkra valdamikla sérklára menn
eyðileggja möguleika þess til betra
lífs. Stjórnmálamenn hafa gerst svo
þrasgjarnir að þeir virðast hafa
gleymt tilgangi veru sinnar á þingi.
Reynt að gera þeim ljóst hvað þeir
hafa fjarlægst þjóðina. Ef dæmi eru
tekin af kæruleysi þeirra í stórmál-
um, sést hvergi að þeim þyki um- t
talsvert hvernig farið er með fiski-
mið okkar. Hvað hugsa þeir, þegar
þeim er sagt að ýsukvótaskip kast-
aði átta tonnum af góðum þorski
til að ná einu tonni af ýsu. Að á
rækjuveiðum sé öllum físk hent
fyrir borð. Það verður að fá þing-
menn til að skilja að allt sem sjó-
menn draga úr sjó verður að koma
á land. Ónýtanlegum úrgangi má
breyta í áburð eða jarðveg. Úrelding
vistvænna veiðiskipa á sér stað í ]
stórum stíl. Skipin verða stærri og
eyðileggingin og kostnaðurinn
meiri. Atvinnulausir til sjós og lands
verða fleiri.
Gremja
Fyrir ekki löngu, þá eins og nú,
var mikil gremja hjá þjóðinni með
stjórnmála- og embættismenn. Er
þingkona ein, áberandi, var spurð
um ástæðu óánægjunnar svaraði
hún því til, að þjóðin hefði kosið
það yfir sig sem hún ætti skilið.
Hún var sjálf við völd og þóttist
ekki skilja, að það eru slæmir kost-
ir að kjósa annað hvort það sem
manni lýst ekki á, eða skila auðu.
Vonandi kemur að því, að þjóðin
fái þing sem greinir kjarnan frá
hisminu.
ALBERT JENSEN,
• Háaleitisbraut 129, Reykjavík.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skíptiborð: 691100. Aug-
lýsingar: 691111. Áskriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, fréttir 691181,
íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrifstofa 681811, gjaldkeri
691115. Áskriftargjald 1.500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
ÓHEMJU fjármunir liggja í þeim fiski sem fleygt er í sjóinn á
ári hverju, og ætti að banna það skilyrðislaust, segir Albert Jensen.