Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKIMATTLEIKUR
Bandaríska NBA-deildin í köríuknattleik byrjuð og Houston Rockets ekki líklegt til að verja titilinn
Loksins ár
Barkleys?
Ekki lengra
DAVID Robinson hjá San Antonio Spurs var stigahæstur í NBA-deildinnl á síðasta tímabili, en
hann er ekki síður sterkur í vörn og hér ver hann frá Patrick Ewing í New York Knicks.
Eins og fram kom í laugardags-
blaðinu hófst nýtt tímabil í
bandarísku NBA-deildinni um helg-
ina. í gær var fjallað
, Gunnar um Austurdeildina,
Valgeirsson en nú er það Vestur-
sé komið að Charles
Barkley og samheijum í Phoenix
Suns að fagna titlinum.
Houston best í miðvesturriðli
Meistarar Houston Rockets unnu
þennan riðil nokkuð auðveldlega á
síðasta keppnistímabili og allt lítur
út fyrir að sama sagan endurtaki
sig í vetur. Hvorki Denver, San
Antonio eða Utah hafa styrkt sig
nægilega í sumar til að veita meist-
urunum verulega keppni. Stóra
spurningarmerkið í þessum riðli er
, Dallas.
Houston Rockets: Sjaldan hefur
nokkuð meistaralið mætt til keppni
eftir sigur í deildinni og nánast
hvergi verið talið líklegt til að end-
urtaka sigurinn af íþróttafrétta-
mönnum. Þetta er þó sú staða sem
Rockets er í. Liðið hóf síðasta keppn-
istímabil með miklum látum, vann
fyrstu 15 leiki sína, sem gaf tóninn
fyrir það sem eftir var keppnistíma-
bilsins. Það var síðan Hakeem
Olajuwon sem sá um restina þegar
í úrslitakeppnina kom. Liðið er
óbreytt frá síðasta keppnistímabili,
en talið er líklegt að framkvæmda-
stjóri þess muni reyna leikmanna-
skipti ef að illa fer að ganga. Ástæð-
an fyrir að flestir íþróttafréttamenn
telja liðið ólíklegt til að vinna titilinn
aftur er að Olajuwon hélt liðinu á
floti allt síðasta keppnistímabil og
óvíst er að hann geti leikið jafn
margar mínútur að meðaltali og þá.
Það var fyrst og fremst hittni ba-
kvarðanna Vemons Maxwells,
Kenny Smiths og Sams Cassells sem
gaf Olajuwon tækifæri undir körf-
unni, þar sem hann skorar nánast
sjálfkrafa ef hann hefur aðeins einn
andstæðing til varnar. Maxwell átti
frábært síðasta tímabil, en hann á
• í allskonar persónulegum vandamál-
um sem margir halda að muni koma
honum í koll. Enginn skildi samt
afskrifa þetta lið, einkum þegar að
þriggja stiga línan hefur verið færð
nær körfunni.
Denver Nuggets: Hið unga lið
Nuggets kom geysilega á óvart í
síðustu úrslitakeppni og sló meðal
annars Seattle og Utah út. Sú
reynsla kemur liðinu eflaust til góða
í vetur. Liðið skartar ekki neinni
stórstjömu, en er jafnt og ungt.
Miðheijinn og Keníubúinn Dikembe
Mutombo er frábær varnarmaður og
hefur bætt sóknarleik sinn mikið.
Bakverðirnir Mahmoud Abdul Rauf
(hét áður Cris Jackson) og Robert
Pack og framheijarnir LaPhonso
Ellis og Brian Williams léku allir
mjög vel í úrslitakeppninni, og nýlið-
inn Jalen Rose frá Michigan háskóla
mun eflaúst styrkja Nuggets í vetur.
San Antonio spurningarmerki
San Antonio Spurs: Farinn er
þjálfarinn John Lucas, sem næstum
einsamall gat tamið Dennis Rodman
eftir að hann kom frá Detroit. Eftir
að Lucas hætti í lok síðasta á síð-
asta keppnistímabili, var eins og
Rodman hefði misst alla festu. Það
sama hefur verið upp á teningnum
fyrir þetta keppnistímbabil, kappinn
mætir illa og seint á æfingar og í
leiki! Spurs þarf á Rodman að halda
í fráköstum til að besti leikmaður
liðsins, miðheijinn David Robinson,
geti einbeitt sér meira að sókninni
Robinson vann stigameistaratitilinn
á síðasta keppnistímabili og leikur
liðsins fer að mestu í gegnum hann.
Spurs fékk Sean Elliott til baka frá
Detroit og framheijann Chuck Per-
son frá Minnesota, en missti Daie
Ellis í burtu. Bæði Elliott og Person
eru körfuhrókar og ættu að veita
Robinson stuðning í sókninni.
Spurningarmerkið við þetta lið
(fyrir utan hvaða háralit Rodman
mætir með í leik!) er hversu vel Bob
Hill, hinum nýja þjálfara liðsins, tak-
ist að hemja Rodman og leysa ba-
kvarðarvandamál þess, en þar er
veikasti hlekkurinn.
Utah Jazz: Þrír bestu leikmenn
liðsins, Jeff Hornacek, Karl Malone,
og John Stockton eru allir komnir
yfir þrítugt. Þeir léku allir mikið á
síðasta keppnistímabili og þjálfari
Jazz, Jerry Sloan, vildi gjarnan geta
hvílt þá meira, en vandamálið er að
varamannabekkur liðsins er ekki
nægilega sterkur til að það gangi
upp. Engar breytingar hafa orðið á
liðinu í sumar, þannig að ekki er
hægt að búast við að það bætl árang-
ur sinn mikið frá fyrri árum.
Dallas Mavericks: Hinum ungu
leikmönnum Dallas kom aldrei vel
saman við Quinn Buckner, þjálfara
liðsins síðasta keppnistímabil, og var
hann rekinn í sumar. Fyrrum þjálf-
ari, Dick Motta, tók við liðinu að
nýju og miklar vonir eru bundnar
við að hann geti loks náð að snúa
gengi Mavericks við. Dallas fékk
hinn frábæra leikstjórnanda Jason
Kidd í háskólavalinu og framvörður-
inn Roy Tarpley hefur að nýju snúið
til liðsins eftir þriggja ára bann
vegna síendurtekinna brota á vímu-
efnalöggjöf deildarinnar. Tarpley
hefur leikið í Evrópu og staðið sig
vel, en hann var talinn einn af bestu
framvörðunum í deildinni þegar
hann var settur í bann. Ef þessir
tveir leikmenn eiga gott keppnis-
tímabil munu þeir eflaust gera þeim
Jamal Washburn og Jimmy Jackson
auðveldara að athafna sig í sókn-
inni. Þessir leikmenn eiga allir fram-
tíðina fyrir sér, en vandamál Dallas
er að fyrir utan þessa fjóra leikmenn
er ekki mikið um góða leikmenn.
Minnesota Timberwolves: Úlf-
arnir voru nálægt því að vera seldir
til New Orleans í sumar, en deildin
tók fyrir það og nýir eigendur voru
fundnir í Minnesota. Þetta lið hefur
aldrei náð að vinna 30 leiki á keppn-
istímabili í sögu þess og því miður
er ekki mikið útlit fyrir að það muni
breytast á þessu keppnistímabili.
Barátta í Kyrrahafsriðli
Þijú lið í þessum riðli gætu vel
unnið meistaratitiiinn. Baráttan um
sigur í þessum riðli verður mjög
hörð. Phoenix, Seattle, og Golden
State verða sterk og öll hafa gert
einhveijar breytingar frá síðasta
keppnistímabili. Flestir sérfræðingar
halda því fram að Seattle og Phoen-
ix séu tvö bestu liðin í deildinni og
að annað þeirra vinni Ilklega titilinn
í vor.
Phoenix Suns: Meiðsl Charles
Barkleys, Kevins Johnsons og
Cedrics Ceballos settu mikið strik í
reikninginn hjá þessu liði á síðasta
keppnistímabili og það náði aldrei
að endurheimta sama kraftinn og
það hafði í lokaúrslitunum 1993.
Framkvæmdastjóri Suns ákvað að
gera breytingar á liðinu í sumar.
Liðið fékk Danny Manning frá Atl-
anta, Wayman Tisdaie frá Sacra-
mento, og miðheijann Danny Scha-
eyes, en frá liðinu fóru Cebaílos (LA
Lakers), Mark West og Oliver Miller
(báðir til Detroit). Með þá Manning,
A.C. Green, Tisdale, og Barkley í
stöðum framheija, og með bakverð-
ina Dan Majerle, Danny Ainge, og
Kevin Johnson, er ljóst að Suns er
lið með næga breidd og getu til að
vinna meistaratitilinn. Manning og
Tisdale eru báðir reyndir leikmenn
sem neituðu mun stærri tilboðum
annarra liða (báðir sömdu til eins
árs) til að ganga til liðs við Phoenix.
Báðir sögðu að með Phoenix ættu
þeir besta tækifærið á að vinna
meistaratitil. Eini veikleiki Phoenix
er í stöðu miðheija, en það ætti
ekki að koma að sök, nægt er úrval-
ið fyrir þjálfarann Paul Estphal.
Þeir sem veðja á annað borð, ættu
að veðja á þetta lið framar öðrum.
Ef Barkley verður nægilega góður
í baki er erfitt hægt að sjá hvaða
lið getur staðist Suns snúning.
Seattle Supersonics: Það er
geysileg breidd í þessu liði. Kendall
Gill, Shawn Kemp, Nate Mcmillan,
Gary Payton, Sam Perkins og Detlef
Schrempf eru allir mjög sterkir. Lið-
ið gerði eina breytingu á mannskap,
sendi Ricky Pierce til Golden State
í skiptum fyrir Sarunas Marciulion-
is. Óvænt tap Seattle gegn Denver
í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í
vor var eins og rafstuð fyrir leik-
menn og þjálfara liðsins. Lengi vel
vissi enginn hvað hafði gerst. Sonics
vann flesta leiki allra liða í riðla-
keppninni, en náði sér aldrei á strik
gegn Denver. George Karl, þjálfari,
eyddi mestum hluta sumarsins í að
auka samheldni í liðinu. Hann réði
sérstakan aðstoðarþjálfara sem á að
sjá um að öll samskipti leikmanna
og þjálfara séu sem best, en nokkuð
vantaði á að það væri í lagi. Ef liðs-
andinn verður í lagi hjá iiðinu ætti
það að ná langt í vetur.
Golden State: Eins og hjá Cleve-
land eru meiðsli leikmanna stóra
spurningarmerkið við Warriors. Tim
Hardaway og Sarunas Marciulionis
léku ekki með allt síðasta keppnis-
tímabil og nýverið meiddist Chris
Mullin á hné og verður ekki með
fyrstu sex vikurnar á keppnistíma-
bilinu. Warriors er með góðan mann-
skap. Liðið fékk Ricky Pierce frá
Seattle í skiptum við Marciulionis.
Fyrir í bakvarðarstöðum eru Tim
Hardaway, og Latrell Sprewell.
Chris Webber er í stöðu miðheija,
en það er hinsvegar staða sem hann
vill losna úr. Loks eru þeir Billy
Owens og Cris Mullin í framheija-
stöðunum. Það eina sem Don Nel-
son, þjálfari, þarf er meiri breidd
undir körfunni. Án þess er líklegt
að bæði Seattle og Phonix geti ráð-
ið við Warriors í úrslitum.
Portland: Vandamál hins nýja
þjálfara, P.J. Carlisimos (frá Seaton
Hall háskóla), er að aidurinn er far-
inn að segja til sín hjá flestum bestu
leikmönnum liðsins, t.a.m. Clyde
Drexler, Buck Williams, Terry Port-
er og Jerome Kersey. Portland gat
forðum reitt sig á að sókn liðsins
myndi bæta úr veikri vörn, en á síð-
asta keppnistímabili kom í ljós að
það gekk ekki lengur upp. Fram-
kvæmdastjórn liðsins verður einfald-
lega að stokka það upp. Þessi mann-
skapur hefur þegar fengið sín tæki-
færi.
Los Angeles Lakers: Eftir langa
sigurgöngu kom loks í ljós á síðasta
keppnistímabili að Lakers er lið sem
verður að byggja upp á nýtt. Liðið
styrkist verulega fyrir nokkrum vik-
um þegar samið var við Cedric Ce-
ballos frá Phoenix. Nokkrir af yngri
leikmönnum liðsins munu eflaust
reyna að sýna hinum nýja þjálfara,
Del Harris, hvað í þeim býr. Anth-
ony Peeler, Nick Van Exel og Eddie
Jones munu sennilega fá það tæki-
færi. Lakers er lið sem erfitt er að
segja til um hvað muni gera.
Sacramento Kings: Þrír nýliðar
komu til liðsins í sumar og gætu
bætt árangur þess í vetur. Nýliðum
undanfarinna ára hefur annars
gengið afleitlega með Kings. Komi
þeir hinsvegar vel út gæti liðið unn-
ið 30 leiki, en ekki búast við því í
úrslitakeppninni.
L.A. Clippers: Sorgarsaga Clipp-
ers heldur áfram. Liðið missti tvo
bestu leikmenn sína í sumar, þá
Dominique Wilkins til Boston og
Mark Jackson til Indiana. Bill Fitch,
níundi þjálfari liðsins á ellefu árum,
mun eiga fullt í fangi.