Morgunblaðið - 09.11.1994, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kjörsókn í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
á Reykjanesi
1990
Hafnarfjörður 1.702 1.642
Keflavík/Njarðvík/ Hafnir 1.157 1.336
Kópavogur 1.290 926
Garðabær 1.133 602
Grindavík 155 520
Mosfellsbær 499 420
Seltjarnarnes 603 377
Garður 143 174
Besastaðahr. 120 156
Sandgerði 68 88
Kjalarneshr. 73 60
Kjósarhr. 25 23
Vogar vantar 41
Utankjörstaðar 99 0
Samtals 7.067 6.364
Prófkjör á
Reykjanesi
Meiri kjör-
sókn á Suð-
urnesjum
KJÖRSÓKN í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi um seinustu helgi var
nokkru minni í stóru bæjunum í
grennd við Reykjavík en í prófkjör-
inu fyrir síðustu alþingiskosning-
ar. Kjörsókn jókst hins vegar í
mörgum sveitarfélögum á Suður-
nesjum.
Þannig minnkaði kjörsókn um
u.þ.b. 60 manns í Hafnarfirði milli
prófkjöra, um nærri 80 manns í
Mosfellsbæ, meira en 500 manns
í Garðabæ, hartnær 230 á Sel-
tjamamesi og um 360 í Kópa-
vogi. Hins vegar jókst kjörsóknin
um hátt í annað hundrað í samein-
aða sveitarfélaginu á Suðurnesj-
um, í Grindavík rauk hún úr 155
í 520 og í Garði og Sandgerði jókst
hún um 50 manns samtals.
í tölunum frá 1990 er utankjör-
staðaratkvæðum ekki dreift niður
á sveitarfélög.
Einkaréttur Aðalverktaka á framkvæmdum fyrir NATO afnuminn
Verktaka fijáls frá 1. apríl
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
gær að verktaka vegna fram-
kvæmda á vegum Mannvirkjasjóðs
Atlantshafsbandalagsins verði
fijáls frá og með 1. apríl næstkom-
andi og einkaréttur Islenzkra aðal-
verktaka til framkvæmda fyrir
vamarliðið þar með afnuminn.
Þetta er í samræmi við samþykkt
ríkisstjómarinnar frá í júní 1992.
Öll verk, kostuð af Mannvirkja-
sjóðnum, verða auglýst opinber-
lega og öllum verktökum, hér á
landi og í öðmm Atlantshafs-
bandalagsríkjum, gefinn kostur á
að taka þátt í forvali. Útboðsskil-
málar verða einfaldir.
Samkomulag náðist um þessa
tilhögun við bandarísk stjómvöld
á fundi í Norfolk 1. nóvember.
„Um er að ræða samkomulag við
Bandaríkin um framkvæmdaatriði
þar sem Bandaríkin hafa umsjón
með framkvæmdum á vegum
Mannvirkjasjóðsins hér á landi, en
eins og kunnugt er á ísland ekki
aðild að sjóðnum," segir í tilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu.
Ríkisstjómin ákvað í febrúar
1992 að aðlaga verktökumálin
venjulegum háttum í aðildarríkjum
NATO. Fjárveitinganefnd Mann-
virkjasjóðsins samþykkti síðar
sama ár að veita fé til fram-
kvæmda á íslandi, gegn því að
einkaréttur Aðalverktaka yrði af-
numinn eigi síðar en 1. apríl 1995
og almennar reglur Mannvirkja-
sjóðsins látnar gilda. Ýmsar aðild-
arþjóðir, þar á meðal Norðmenn
og Bretar, höfðu gagnrýnt harð-
lega það kerfi, sem hér gilti.
Oft leyfilegt að bjóða aðeins
út innanlands
Samkvæmt reglunum ber að
bjóða út verk á vegum sjóðsins í
öllum aðildarríkjum NATO. Að
sögn Benedikts Ásgeirssonar,
skrifstofustjóra vamarmálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins, er
hins vegar algengt að frá þeim
fáist undanþága ef verkið er ekki
mjög umfangsmikið eða ef um
venjulegar byggingaframkvæmdir
er að ræða. Hann segir því líklegt
að í mörgum tilfellum fáist undan-
þága þannig að verk yrðu aðeins
boðin út hér innanlands.
Frá því í júní 1992 hafa Aðal-
verktakar orðið að bjóða út á
innanlandsmarkaði þau verk, sem
þeir fólu áður undirverktökum.
Morgunblaðið/Kristinn
Seltiming-
ar eignast
Gróttu
SAMNINGUR um kaup Seltjara-
araesbæjar á Gróttu var undirrit-
aður í gær. Hann undirrituðu Sig-
urgeir Sigurðsson bæjarstjóri,
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra og Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra. Grótta hefur lengi
verið ríkisjörð og í vörslu Vita- og
hafnarmálastofnunar. Kaupverðið
var 900.000 krónur, jafngildi fast-
eignamate að sögn bæjarstjóra, og
var eyjan keypt með húsakosti að
vitanum undanskildum.
„Við erum mjög ánægðir og
hugsum gott til glóðarinnar að
gera meira fyrir eyjuna. Það eru
hús þar sem þarfnast gagngerrar
viðgerðar og era að okkar mati
það mikill hluti af Gróttu að við
viljum alls ekki að þau hverfi,“
segir Sigurgeir.
Samningurinn var undirritaður
í bátanausti Alberts Þorvarðarson-
ar, sem var síðasti vitavörður í
Gróttu og drukknaði er hann var
að vitja netja sinna fyrir 24 árum.
Enginn hefur búið í eyjunni frá
þeim tíma.
Samningaviðræður FÍ A og Atlaiita hf. sigldu í strand í fyrrinótt
FIA leitar stuðnings
við verkfall hiá ASÍ
FORMAÐUR Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna, Tryggvi Baldurs-
son, hittir Benedikt Davíðsson,
forseta Alþýðusambands íslands,
og forsvarsmenn stéttarfélaga á
Suðurnesjum fyrir hádegi í dag til
þess að ræða stuðning vegna
hugsanlegra verkfallsaðgerða fé-
lagsmanna FÍA. Samningaviðræð-
ur í kjaradeilu félagsins við flugfé-
lagið Atlanta hf. sigldu í strand
eftir 11 klukkustunda fund hjá
ríkissáttasemjara, sem lauk í fyrri-
nótt, og hefur ekki verið boðað til
nýs fundar.
Auk forseta ASÍ verða á fund-
inum í dag, að sögn Tryggva, for-
svarsmenn stéttarfélaga á Suður-
nesjum, sem sent hafi stuðningsyf-
irlýsingar til FÍA og segist hann
munu fara fram á stuðningsað-
gerðir. Einnig segir hann að stjórn
FÍA, trúnaðarráð og starfsmenn
félagsins hjá flugfélaginu, sex
talsins, hittist á morgun til þess
að taka ákvörðun um hvort gripið
verði til víðtækari verkfallsað-
gerða erlendis. Þótt verkfall hafi
verið boðað frá og með 17. októ-
ber sl. hafi ekki verið lögð sérstök
áhersla á að framfylgja því til
fullnustu hingað til því teikn um
samkomulag hafi veríð á Iofti.
Lakari staða óásættanleg
Tryggvi segir að samningar
hafi verið komnir vel á veg í fyrri-
nótt þegar ágreiningur hafi komið
upp vegna „ójafnrar stöðu“ félags-
manna FÍA og Frjálsa flugmanna-
félagsins, FFF, hjá Atlanta hf.
Segir hann að forgangsréttará-
kvæði í kjarasamningi Fijálsa
flugmannafélagsins við Atlanta hf.
til vinnu hjá félaginu gildi ekki
gagnvart félagsmönnum FÍA,
samkvæmt niðurstöðu Félagsdóms
frá 17. október 1994. „Þar fyrir
utan er það algerlega óásættanlegt
að staða okkar félagsmanna gagn-
vart vinnu hjá flugfélaginu verði
lakari þar sem þeir eru meðal elstu
og reyndustu flugmanna félags-
ins.“
Kröfðust uppsagna
Arngrímur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Atlanta, hefur sent
frá sér yfirlýsingu þár sem segir
að FÍA hafi krafist þess á samn-
ingafundinum að núverandi starfs-
mönnum og félagsmönnum í
Frjálsa flugmannafélaginu yrði
sagt upp störfum og félagsmenn
FÍA, sex talsins, ráðnir í þeirra
stað.
Segir Arngrímur að sú ráðstöf-
un myndi kosta endurþjálfun nýrra
flugmanna auk þess að tvöfalda
launakostnað á meðan uppsagnar-
frestur rynni út. Jafnframt væri
uppsögn skýlaust brot á kjara-
samningi flugfélagsins við FFF.
Einnig segir i yfirlýsingunni að
sumir félagsmanna FIA, sem flog-
ið hafi vélum félagsins að undan-
förnu, hafi aldrei verið í samninga-
réttarlegu sambandi beint við flug-
félagið heldur á launum hjá er-
lendri áhafnaleigu. Hafi það verið
afstaða forsvarsmanna Atlanta að
í þeim tilvikum sem um slíkt sam-
band hafi hugsanlega verið að
ræða hafi verið litið svo á að því
hafi verið lokið áður en verkfall
FÍA gagnvart flugfélaginu hófst.
Afgreiðslufólk sem vopn
Loks segir í yfirlýsingunni að
vegna yfirlýsinga FÍA um sam-
úðaraðgerðir gagnvart flugfélag-
inu vilji forsvarsmenn þess benda
á að einungis sé verið að „nota
fámennan hóp fólks sem starfar
við afgreiðslu flugvéla Atlanta hf.
á íslandi sem vopn“ gegn fyrirtæk-
inu „vegna sex einstaklinga í FÍA
sem reyndar hefur verið boðin
vinna af hálfu flugfélagsins um
leið og hún er fyrir hendi“.
Leitin að „gull-
skipinu“
Mega
leita, ekki
grafa
BJARNI F. Einarsson fornleifa-
fræðingur, sem tilnefndur hefur
verið í fomleifanefnd af Félagi
íslenskra fomleifafræðinga,
segir að ef þeir sem ætla að
leita að gullskipi á Skeiðarár-
sandi fínni skipið eða eitthvað
annað markvert í sandinum
verði að kalla til menntaða forn-
leifafræðinga og fela þeim að
stjóma uppgreftrinum. Auk
þess þurfi fomleifanefnd að
veita leyfí fyrir uppgreftri.
Kristinn Kristinsson hjá
Björgun hf. hefur sagst ætla
að standa fyrir leit að skipinu
næsta sumar með nýrri tækni.
„Honum er heimilt að leita
að skipinu, en á því augnabliki
sem hann finnur skip gilda þjóð-
minjalög og þá má hann ekki
hreyfa eða hrófla við einu eða
neinu," sagði Bjami.
Bjarni sagði að eldri loforð,
sem hugsanlega hefðu verið
gefin við fyrri leitir um að leit-
armenn mættu sjálfír grafa,
hefðu ekkert gildi, þar sem ný
lög giltu nú sem tækju af öll
tvímæli í þessu efni.