Morgunblaðið - 09.11.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1994 17
ERLEIMT
Ferguson
Fergie
ekki í
Strand-
vörðum
SARAH Ferguson, hertoga-
ynjan af Jórvík, hefur hafnað
boði bandarískrar sjónvarps-
stöðvar um að koma fram í
hinum vinsælu sjónvarpsþátt-
um Strandverðir. Um síðustu
helgi sagði David Hasselhoff,
aðalleikari
þáttanna, að
hann teldi
næsta víst að
Ferguson
myndi koma
fram í þeim.
Samkvæmt
bráðabirgða-
handriti átti
hún í þættin-
um að ræða við viðskiptajöfur-
inn Richard Branson í gegnum
farsíma um góðgerðarkvöld
sem hún væri að skipuleggja.
Óvissa um
Niim-Hansen
DANSKUR áfrýjunardómstóll
hefur farið þess á leit við
danska þingið að ekki verði
réttað í máli Eriks Ninn-Hans-
ens af heilsufarslegum ástæð-
um. Ninn-Hansen, sem er 72
ára gamall,
hefur verið
ákærður
vegna þáttar
síns í Tamíla-
málinu svo-
kallaða, sem
varð ríkis-
stjórn Poul
Schliiters að
falli árið
1993. Ninn-Hansen fékk heila-
blóðfall í júnímánuði og telja
læknar óvíst að hann muni
nokkurn tíma verða nógu
heilsuhraustur til að geta tekið
þátt í réttarhöldum.
Flóttamenn
til Svíþjóðar
SÆNSKA strandgæslan
bjargaði í gær um fjörutíu
ólöglegum innflytjendum af
þremur gúmbátum á Eystra-
salti. Fólkið, karlar, konur og
börn, var frá Sri Lanka og
írak. Að sögn embættismanna
var veður gott og fólkið vel
klætt í hlý föt. Strandgæslan
telur líklegt að rússneskt vöru-
flutningaskip hafí siglt með
flóttamennina til Svíþjóðar.
Geislavirk
hreindýr
JAPANSKA heilbrigðisráðu-
neytið hefur stöðvað innflutn-
ing á sendingu af finnsku
hreindýrakjöti eftir að of mikil
geislavirkni mældist í því. Er
talið að geislavirknin eigi ræt-
ur að rekja til Tsjernóbýl-
slyssins árið 1986.
Svín leitar
húsbóndans
BRESKA lögreglan hefur
ákveðið að láta svín taka þátt
í að bera kennsl á eiganda sinn.
Svínið fannst fyrir skömmu
tjóðrað við póstkassa í borginni
Exeter í suðvesturhluta Eng-
lands. I'jórir menn hafa gert
tilkall til dýrsins og mun lög-
reglan stilla þremur þeirra upp
og láta svínið gera upp hug sinn.
Ninn-Hansen
Sljórn Bretlands heimilar olíuvinnslu í lindum sunnan við Færeyjar
Lundúnum. The Daily Telegraph.
BRESKA stjórnin hefur heimilað
olíuvinnslu úr olíulindum vestan
Hjaltlands og sunnan við Færeyj-
ar. Áætlað er að olíulindirnar
gefi af sér 3,5 milljarða fata -
um 10% af olíunni sem fundist
hefur í Norðursjó.
Tim Eggar, iðnaðarráðherra
Bretlands, tilkynnti að olíufélög-
unum BP og Shell hefði verið heim-
ilað að vinna olíu í Foinaven, einum
af fjórum olíulindum sem fundist
hafa nýlega í Atlantshafi. Eggar
Gætu gefið af sér
3,5 milljarða fata
sagði að Foinaven og fleiri olíulind-
ir sem fundist hafa ættu að tryggja
að Bretar yrðu sjálfum sér nógir
um olíu langt fram á næstu öld.
Áætlað er að fjárfest verði fyrir
9,5 milljarða punda, rúma 1.000
milljarða króna, í olíuvinnslunni,
sem gæti skapað hundruð starfa.
Gert er ráð fyrir að olíuvinnslan
hefjist í lok næsta árs og framleidd
verði um 85.000 fata á dag.
Vinnslukostnaðurinn er áætlaður
um 4-5 dalir á fatið, eða svipað og
í Norðursjónum.
Vinnslutækni, sem þróuð hefur
verið undanfarin fimm ár, gerir
Bretum kleift að vinna olíuna, sem
er á 450 metra dýpi, án þess að
festa olíuborpallana kirfilega við
sjávarbotninn eins og gert er í
Norðursjó. Þetta hefur minnkað
vinnslukostnaðinn um 30% á síð-
ustu tveimur árum. •
VETRflRÚTfALfl
flllt ðð
]00.000
króna afsláttur af
notuðum bílum Jöfurs.
1
Fríar tnjvvin?ar
Við bjóðum þér fríar tryggingar í
iKCTþegar þú kaupir notaðan bíl
hjá Jöfri.
í. vreiðda í mart 1995
Vetrardekk í kaupbati
Þú getur greitt með skuldabréfi til
allt að 36 mánaða með gjalddaga
^2Eleða Visa og Euro raðgreið-
slum til allt að 18 mánaða.
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af
vetrarhörkunni því öllum notuðum
bílum Jöfurs fylgjal-
vetrardekk.
6 mánaða ábijrvð o?jkoðim^$\ JOf6 m6naða ábyr9ð
___________________fylgir öllum
bílunum og að sjálfsögðu eru þeir
allir meðr
skoðun 1995.
KflnnTU rð PRúrrn?
Kíktu í prútthornið til Lúlla
og láttu reyna á hæfni þína.
BOpið virka da?a frá 9-18
o?lauvardavafrá 12-16.
NOTAD/R B/LAR
Skeljabrekku 4, Kópavogi, sími 642610 og 42600.