Morgunblaðið - 09.11.1994, Qupperneq 28
28 MIÐVHCUDAGUR 9. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLADIÐ
GREIIMARGERÐ EMBÆTTISMANNA UM LISTAHÁTÍÐ í HAFNARFIRÐI
Efasemdir um ákvarðanir
Á AUKAFUNDI bæjarráðs
Hafnarfjarðar var lögð fram greinar-
gerð bæjarritara, fjármálastjóra, yfír-
manns kostnaðareftirlits og deildar-
stjóra innheimtu- og greiðsludeildar
Hafnarfjarðar, vegna fjármála lista-
hátíðar 1993. Rakinn er aðdragandi
hátlðarinnar, framkvæmdir og fjár-
veitingar á árunum 1992 og 1993.
Fram kemur að við lok listahátíðar
1993 hafi heillegt bókhald ekki verið
til og efasemdir uppi um ákvarðanir
í fjármálum. Greinargerð embættis-
manna fer hér á eftir í heild sinni.
„Varðandi listahátíð 1993,
fjármál
Aðdragandi: Listahátíð sú sem
haldin var 1991 þótti takast vel en
ástæða þótti þó til að treysta ýmsa
þætti í framkvæmd hátíða af þessu
tagi þar sem bæjarsjóður lagði fram
fjármagn en annaðist ekki á venjuleg-
an hátt framkvæmdina heldur fól
hana aðila utan stjómsýslu sveitarfé-
lagsins. Af þessari ástæðu var t.d.
lagt fyrir þá sem höfðu annast fram-
kvæmd listahátíðar 1991 að stofna
hlutafélag til þess m.a. að fyrir hendi
væri lögformlegur aðili til að veita
framlögum bæjarsjóðs og annarra
styrktaraðila viðtöku. Einnig var talið
eðlilegt að slíkt hlutafélag greiddi
laun, semdi við listamenn, aflaði
styrktaraðila, sæi um auglýsingar
o.þ.h. fremur en bæjaryfirvöld stæðu
í slíku enda vandséð hvemig þau,
eðli máls samkv., gætu beitt sér að
viðfangsefninu eins og til þess var
stofnað. Hlutaðeigandi féllust á þessi
rök og stofnuðu Listahátíð í Hafnar-
firði hf.
Árið 1992
Frá upphafi var ljóst að undirbún-
ingur listahátíðar (menningardaga)
1993 kallaði á fjárveitingar þegar á
árinu 1992 en til þeirra þarfa fóra
kr. 5.297.029 samkv. bókhaldi bæj-
arsjóðs og ársreikningi 1992, en
áætlun ársins hafði gert ráð fyrir 4,2
m.kr. framlagi.
Um framkvæmd mála á árinu 1992
og fjárreiður fór sem hér segir:
Starfsmaður bæjarins, Hreinn Garð-
arsson, sá um tengsl listahátíðar og
bæjarsjóðs frá 1. júní þ.á.
Hann tók við reikningum til lista-
hátíðar og sá um að þeir væra áritað-
ir af framkvæmdaaðilunum (stjóm
Listahátíðar hf.). Reikningamir voru
bókaðir af Hreini Garðarssyni, en það
bókhald var síðan afhent bæjarendur-
skoðun og eru þau gögn hluti af bók-
haldi ársins 1992.
í fjármálum
Greiðsla reikninga fór þannig
fram, að fengnum árituðum reikning-
um og í samræmi við þar með sann-
aða skuldbindingu (Listahátíðar hf.),
fór fram greiðsla af reikningi 1660
sem Hreinn veitti viðtöku (ávísun)
og afhenti hana forsvarsmönnum
listahátíðar sem kvittuðu fyrir mót-
töku. Þeir önnuðust' síðan greiðslur
til kröfuhafa/reikningseigenda.
Tekjufærslur vora engar á þennan
lið I bókhaldi bæjarsjóðs 1992. Enda
þótti þessi háttur væri viðhafður átti
Listahátíð hf. að halda bókhald sitt,
sem sjálfstæður aðili. í þessu sam-
bandi má segja að raunveralega hafi
verið að hluta til um tvöfalt bókhald
að ræða. Greiðslur þær er inntar
vora af hendi til Listahátíðar vora í
raun framlög til þessa félags og I
staðinn átti fyrirtækið að sjá til þess
að Listahátíð 1993 yrði að raunveru-
leika í samræmi við áætlanir þar um.
Ekki verður annað séð en að þessi
tilhögun hafi gefist sæmilega vel
a.m.k. hvað bæjarsjóð varðar og ljóst
var hvernig tilteknum fjármunum var
ráðstafað. Hin formlegu skil milli
bæjarsjóðs og framkvæmdaraðila
listahátíðar vora enn óljós, þ.e. bók-
hald listahátíðar og rekstur var sett
fram sem hluti af umsvifum bæjar-
sjóðs að hluta, sem ekki var raunin
þar sem framkvæmd (skuldbinding
útgjalda) fór fram utan bæjarkerfis-
ins hjá stjórn Listahátíðar og hefði
eðli máls samkvæmt átt að koma
fram í ársreikningi 1992 sem framlag
til Listahátíðar (framkvæmdaraðila)
jafnvel þótt að bærinn hefði annast
bókhald og fjárreiður.
Árið 1993
í upphafi árs 1993 komu málefni
listahátíðar 1993 til umfjöllunar m.a.
á fundum með stjóm Listahátíðar hf.
og á fundum embættismanna og
bæjarstjóra. Til umræðu var m.a.
hvemig tryggja mætti greið og skil-
virk en jafnframt öragg fjármálaleg
samskipti Listahátíðar hf., sem fram-
kvæmdaaðila listahátíðar í Hafnar-
flrði 1993 og bæjarsjóðs. Á þessum
fundum var ævinlega lögð á það
áhersla að Listahátíð í Hafnarfirði
hf. væri sjálfstæður aðili sem tæki
að sér að annast framkvæmd listahá-
tíðar I Hafnarfirði 1993 m.a. fyrir
framlög frá Hafnarfjarðarbæ. Hjá-
lagðir samningar annars vegar við
Amór Benónýsson og hinsvegar við
Listahátíð í Hafnarfirði hf. bera ljós-
lega með sér hvernig ætlunin var að
haga m.a. hinum fjármálalegu sam-
skiptum. Athygli er hér vakin á dags.
saminganna beggja.
Þegar frá upphafi var ljóst að út-
gjöld Listahátíðar hf. og tekjur
mundu ekki haldast í hendur og
kæmi því til tímabundinna fjárfram-
laga frá bæjarsjóði til að brúa þau
bil þar til tekjur kæmu til enda gert
ráð fyrir fjárveitingu bæjarsjóðs á
arinu 1993. Að athuguðu máli og
m.t.t. reynslunnar frá árinu 1992 var
ákveðið að nota ímegin atriðum sömu
grundvallarvinnubrögð og tíðkast
höfðu að því viðbættu að tekjur Lista-
hátíðar hf. yrðu lagðar á reikn. 1660.
Með þessu móti var talið að best yfír-
sýn og stjórn fengist á útgjöldum og
tekjum enda yrðu fjármálaleg sam-
skipti bæjarsjóðs og Listahátíðar í
Hafnarfirði hf. gerð upp að listahátíð
lokinni og kæmi þá í Ijós hugsanlegur
„halli“ eða „tekjur" af hátíðinni,
þ.e.a.s. hvert endanlegt framlag bæj-
arsjóðs (og hugsanleg önnur fjáröflun
Listahátíðar I Hafnarfirði hf.) þyrfti
þá að vera. Af framansögðu má Ijóst
vera að af hálfu bæjarsjóðs var litið
á greiðslur þessar, sem framlag til
Listahátíðar hf., sem átti að sjá um
að listahátíð 1993 gengi upp miðað
við þær áætlanir, er lágu fyrir um
hana.
Samkvæmt áætlunum og áformum
Listahátíðar I Hafnarfirði hf. og þeirri
aðferð sem ákveðin hafði verið um
fjármálaleg samskipti bæjarsjóðs og
fyrirtækisins, var talið og reyndar
séð, að nauðsynlegt yrði a.m.k. þegar
nær drægi hátíðinni að ráða starfs-
mann auk Hreins Garðarssonar til
að annast hina fjármálalegu hlið á
rekstri Listahátíðar I Hafnarfírði hf.
og listahátíðar 1993. Til þess starfs
var ráðinn Amór Benónýsson saman-
ber samning þar um. Með því að tveir
starfsmenn á vegum bæjarins sinntu
eftirliti og stjómun fjármála vegna
listahátíðar 1993 og samskiptum við
Listahátíð í Hafnarfírði hf. var talið
að vel væri fyrir því séð að góð regla
yrði á fjármálum hátíðarinnar.
Á þessu stigi máls var ekki gert
ráð fyrir að sérstakt eftirlit þyrfti að
hafa með þeim sem áttu að hafa eftir-
lit með fjárreiðum LÁstahátíðar í
Hafnarfirði hf. og listahátíðar 1993.
Frá því í janúar 1993 era því tveir
starfsmenn á vegum bæjarsjóðs sem
vinna að málefnum listahátíðar 1993.
Hreinn Garðarsson með aðsetur á
bæjarskrifstofunum og Arnór Ben-
ónýsson sem m.a. hafði starfsaðstöðu
I Straumi og á Strandgötu 50. Samkv.
framkomnum upplýsingum var sam-
starfið við stjóm Listahátíðar í Hafn-
arfirði hf. bæði náið og gott.
Sami háttur var hafður á með
geiðslur til félagsins og áður, þ.e.a.s.
gjaldkeri bæjarsjóðs greiddi tiltekna
og umbeðna fjárhæð þegar fyrir lá
samþykki og áritun Hreins/Árnórs
og/eða stjórnarmanna Listahátíðar í
Hafnarfirði hf. en Arnór annaðist síð-
an greiðslur til viðskiptamanna.
Hreinn Garðarsson hélt utan um
fylgiskjöl og sjóðsbók. Bókhald fór
ekki fram á vegum bókhaldsdeildar
bæjarins og þangað bárust ekki fylgi-
skjöl (reikningar) eða fjárkröfur
vegna listahátíðar. Rétt er og að taka
fram að embættismenn sem standa
að þessari greinargerð áttu aldrei
hlut að samningum við listamenn eða
umboðsmenn listamanna.
Það fyrirkomulag sem hér hefur
verið lýst virðist, samkvæmt gögnum
málsins, hafa gengið snuðrulaust
fram yfír miðjan maímánuð 1993.
Frá þeim tíma er ekki haldin sjóðsbók
og afskiptum Hreins Garðarssonar
af rekstri listahátíðar nánast lýkur
en Arnór Benónýsson er einn um að
gera grein fyrir fjárþörf listahátíðar.
Ástæða þessa er vafalaust sú að það
kerfi áritunar og að leitað væri til
„margra" aðila áður en greiðsla
fékkst, sem ákveðið hafði verið, þótti
nú þunglamaleg í hita leiksins og því
var eftir því leitað að greiðslur til
Listahátíðar í Hafnarfirði hf., og þar
með viðskiptavina þess, þyrftu ekki
að tefjast meðan leitað væri sam-
þykkis aðila s.s. stjórnar fyrirtækis-
ins, heldur nægði munnleg greinar-
gerð og beiðni Arnórs eins. Á þetta
sjónarmið var fallist og því m.a. kom-
ið á framfæri við deildarstjóra
greiðslu- og innheimtudeildar af bæj-
arstjóra.
Á sama hátt var á þessum tíma
talið sjálfsagt og eðlilegt að SPH
væri kynnt að Arnór mundi leggja
veralegar fjárhæðir inn á reikning
bæjarsjóðs (tekjur Listahátíðar í
Hafnarfirði hf.) og ennfremur að
hann mundi taka út af reikningnum
Ijármuni til kaupa á gjaldeyri, með
samþykki deildarstjóra innheimtu- og
greiðsludeildar. Öll umsvif listahátíð-
arinnar urðu mun umfangsmeiri en
gert var ráð fyrir, bæði tekjur og
gjöld.
í júní 1993 áttu embættismenn
fundi með stjórnarmönnum Listahá-
tíðar í Hafnarfirði hf. og fundi með
Arnóri Benónýssyni. Á fundunum
með stjómarmönnum komu fram um
þessar mundir bæði áhyggjur og efa-
semdir um ýmsar ákvarðanir og af-
greiðslur Amórs varðandi fjármál og
ekki síður samninga við ýmsa aðila
og hvernig að hefði verið staðið. All
margir fundir voru haldnir með Arn-
óri og reynt að fá sem gleggsta mynd
bæði af gjöldum og tekjum hátíðar-
innar. Ekki reyndist unnt að sann-
reyna fullyrðingar Arnórs um stöðu
mála enda kom nú að því að hann
hvarf af vettvangi við lok listahátíðar
án þess að hafa gengið frá eða lokið
því verki sem hann hafði þó verið
ráðinn til.
Á það skal lögð áhersla að ekki
reyndi á eftirlits- og greiðslukerfi
bæjarsjóðs Hafnarfjarðar, í viðskipt-
um bæjarsjóðs og Listahátíðar í
Hafnarfírði hí, af þeirri einföldu
ástæðu að því var vísvitandi ekki
beitt í þessu tilviki.
Eftirmáli
Við lok listahátíðar 1993, þ.e. í lok
júní, stóðu mál því þannig gagnvart
bæjarsjóði að heillegt bókhald var
ekki til, efasemdir upp komnar um
margvíslegar ákvarðanir Amórs Ben-
ónýssonar í fjármálum en hann ekki
tiltækur til að ljúka samningsbundnu
verkefni sínu né heldur til að veita
upplýsingar og skýringar.
Hreini Garðarssyni var nú falið, í
bytjun ágúst 1993 að taka við fjár-
málum listahátíðar 1993 og Listahá-
tíðar í Hafnarfirði hf. með það fyrir
augum m.a. að ná inn lofuðum tekjum
(framlögum), greiða útistandandi
kröfur og síðast en ekki síst hefja
vinnu við gerð bókhalds. Þetta verk-
efni allt vann Hreinn í samvinnu við
stjórn Listahátíðar I Hafnarfirði hf.,
m.a. ákvarðanir um greiðslu krafna
og reikninga. í sept. 1993 var Helga
Má falið að vinna með Hreini að bók-
haldinu og koma því á tölvutækt
form.
Fljótlega, þegar I ágúst, kom í Ijós
að fjárreiðum öllum, þ.á m. frágangi
fylgiskjala, var verulega ábótavant
og mjög mikill tími áður nefndra
starfsmanna fór I að „eltast" við
kröfuhafa og fá hjá þeim skýringar
ásamt því að sannreyna fylgiskjöl og
greiðslur. / okt./nóv. 1993 var þó svo
komið að umfang þessa máls alls lá
svo Ijóst fyrir að bæjaryfirvöld gátu
tekið það til umfjöllunar og af-
greiðslu við endurskoðun fjárhagsá-
ætlunar 1993.
Þess skal og getið, að gefnu til-
efni, að þeim Hreini og Helga Má
var falið að telja fram í nafni Listahá-
tíðar í Hafnarfirði hf. um sl. áramót.
Samkv. fram komnum upplýsingum
gerðu þeir launamiða á einstaklinga
og sendu viðkomandi í ársbyijun
1994. Rétt mun vera að ekki var
talið fram á lögaðila (verktaka). Fram
hefur komið að skattayflrvöld telja
sig ekki hafa fengið í hendur þá
launamiða sem hér um ræðir og er
nú unnið að athugun þess máls o.fl.
atriða í samvinnu við þau.
Hafnarfirði 25. október 1994.
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson
Þorsteinn Steinsson
Sveinn Bragason
Eygló Hauksdóttir."
Bókun bæjarstjóra Hafnarfjarðar
Aðdragandi ákvarðana
MAGNÚS JÓN Árnason, bæjarstjóri Hafnar-
fjarðar, lagði fram sérstaka bókun á aukafundi
bæjarráðs, þar sem rakinn er aðdragandi að
helstu ákvörðunum vegna listahátíðarinnar
1993.
Þar segir:
„1. Fjárhagsáætlun 1992 4,2 m., í ársreikn-
ingi 1992 sést að 5.297 m. hafa farið til listahá-
tíðar.
2. 1993 19. febrúar ræður bærinn Amór
Benónýsson sem fjármálastjóra og listrænan
ráðgjafa hátíðarinnar.
3. 23. febrúar samþykkir Alþýðuflokkurinn
fjárhagsáætlun ársins 1993 10 milljóna króna
framlag.
4. GÁS undirritar samning við Listahátíð í
Hafnarfirði hf. að þeir reki Listahátíð fyrir 17
milljónir. (15 m. + 1 m. v/Péleikhússins og 1 m.
I húsnæði.) Samningur aldrei lagður fram.
5. 6. aprfl 1993 undirritað „Letter of Intent"
við TKO. Undirritað af GÁS, SÓ og GG fyrir
hönd „The Hafnarfjörður Arts Festival". Hvorki
þetta bréf né samningar sem fylgdu í kjölfarið
vora lagðir fram í bæjarráði eða bæjarstjóm,
þrátt fyrir að þeir væra undirritaðir af þáver-
andi bæjarstjóra.
6. 6. apríl 1993 undirritaður samningur milli
TKO og Listahátíðar Hafnarfjarðar (Hafnar-
fjörður Art Festival). Samningurinn gefur m.a.
TKO einkaleyfi á erlendum hljómleikum á Lista-
hátíð Hafnarfjarðar árin 1993 og 1995. Undir-
ritað af GÁS (Mayor of Hafnarfjörður), SÓ og
GG. Samningur aldrei kynntur eða lagður fram.
7. í lok apríl hafa farið 4,5 m. úr bæjarkass-
anum. (Auk framlags frá ’92 að upphæð 5,2
m. króna.)
8. í lok maí hafa 11,5 m. farið úr bæjarkass-
anum. (Auk framlags frá ’92 að upphæð 5,2
m. króna.)
9. í lok júní hafa 25 m. farið úr bæjarkass-
anum. (Auk framlags frá ’92 að upphæð 5,2
m. króna.) Fjármálastjóri hátfðarinnar hverfur
og flnnst ekki þó hann eigi eftir samkvæmt
samningi að ganga frá og gera upp og eigi að
vera að störfum til loka júlí.
10. í lok júlí hafa 30,5 m. farið úr bæjarkass-
anum. (Auk framlags frá ’92 að upp hæð 5,2
m. króna.)
11. í ágústmánuði eru starfsmenn bæjarins
settir I að reyna að greiða úr óreiðunni og
gera sér grein fyrir í hveiju kostnaður liggur.
12. í nóvember er ljóst að 34 m. eru farnar
úr bæjarkassanum. (Auk framlags frá ’92 að
upphæð 5,2 m. króna.)
13. 18. nóvember svar við fyrirspum EBÞ frá
4.11. m.a.: „... hefur einhvers staðar verið gef-
ið loforð um að bæjarsjóður greiði tap hátíðar-
innar hverrar upphæðar sem nefnist". Svar: Nei!
14. 30. nóvember samþykkir Alþýðuflokk-
urinn endurskoðaða fjárhagsáætlun og bætir
við upphaflegu áætlun 11,576 m. þannig að
beint heildarframlag verður 21,576 m. Þar að
auki samþykkjá þeir listaverkakaup af Listahá-
tíð Hafnarfjarðar hf. fyrir 3 m. króna þannig
að upphæðin er 24,576 m.
15. 1. mars 1994 sþ. þáverandi meirihluti
Alþýðuflokksins fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar
fyrir árið 1994 og samþykkir þá 3,5 m. kr.
framlag til undirbúnings hátíðarinnar 1995.
Þá upphæð lækkaði slðan núverandi meiri-
hluti í krónur 1.353.000 við endurskoðun fjár-
hagsáætlunar nú í haust. En þetta er sú upp-
hæð sem var þá búið að greiða úr bæjarsjóði
á árinu 1994, út af ofangreindum lið, vegna
fjármála listahátíðar 1993.
16. 13. júní 1994. Reikningur frá SÓ, GG og
ÖÓ dagsettur 13.6. kr. 114.881 fyrir listræna
ráðgjöf og vinnu við frágang bókhaldsgagna
greiddur ásamt fleiri reikningum vegna listahá-
tíðar úr bæjarsjóði, alls 1.270.528 krónur. GG
kvittar fyrir móttöku.
17. 13. júní er loks ársreikningur bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar fyrir 1993 afgreiddur af bæjar-
stjórn. Reikningurinn sýnir að vegna Listahátíð-
ar Hafnarfjarðar hf. var ráðstafað beint á árinu
1993 krónum 21.244.017. Þar að auka sýna
þeir kaup á listaverki fyrir krónur 3 m., kostn-
að vegna bæjarvinnu við listahátíð, laun og
vélavinna, krónur 1.296.976. Kaup á boðsmið-
um fyrir krónur 3.903.000 og viðskiptakröfu á
Listahátíð Ilafnarfjarðar upp á krónur
6.400.621. (Sem þýðir að bæjarsjóður lánaði
LH þessa upphæð.)
18. Þar með er heildarframlag til listahátíðar
orðið krónur 37.197.614 auk framlagsins frá
1992 að upphæð 5,297 m. króna og því til við-
bótar er sú fjárhæð sem greidd er á árinu 1994.
19. 7. september skilar stjórn Listahátíðar
Hafnarfjarðar hf. bæjarráði möppum með
pappírum og telur að þeir geti ekki lokið reikn-
ingum þrátt fyrir að listahátíð hafi lokið fyrir
14 mánuðum.
20. 8. september samþykkir bæjarráð að láta
Ijúka endurskoðun og stilla upp reikningum
miðað við tiltæk gögn. Jafnframt bókar bæjar-
ráð m.a. að „... á þessu stigi málsins geti eng-
inn sem tók þátt í rekstri listahátíðar 1993 firrt
sig ábyrgð ..."
21. 20. október. Skýrsla Reiknisskila og end-
urskoðunar hf. lögð fram.
22. 25. október. Bæjarstjórn samþykkir að
fela bæjarlögmanni og bæjarendurskoðanda að
reyna að fylla í eyður fyrri skýrslu.
23. 7. nóvember. Bæjarráð kemur saman til
aukafundar."