Morgunblaðið - 09.11.1994, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Fjögur brúðkaup
og jarðarför
Sýnd kl. 5.05, og 7.
Sýningum fer fækkandi
HASKOLABIO
SÍMI 22140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
BLOWN AWAY
Magnaðasta
flugeldasýning ársins í
Reykjavík föstudaginn
11. nóvember
ÞRIR LITIR: HVITUR
ZBICNIEW ZAMACHOWSKI
JULIE DELPY
TROIS COULEURS
FORREST GUMP
**++ E.H. Morgunposturinn
ssr#
KRZYSZTOF KIESLOWSKI
MEDíA
Romantik og gamansemi í annarri myndinni í þríleik meist-
ara Kieslowski eftir litunum í franska fánanum, bláum, hvít
um og rauðum - táknum hugsjóna frönsku byltingarinnar
frelsis, jafnréttis og bræðralags. Karol getur ekki gagnast
konu sinni sem heimtar skilnað og hann leitar hefnda.
Synd kl. 5.05, 7 og 9.
Tom
Hanks
Forrest
Gum
Veröldin ver&ur
ekki sú
sama...
... eftir a& þú
hefur séð hana
með augum
Forrest Gump.
140 mín.
Geislaplatan frábæra fæst í öllum hljómplötuverslunum
Sýnd Kl. 5.05, 6.30 og 9.
Nýjar hljómplötur
Hriiiguriun
rofinn
Trúbadúrinn og netagerðarmaðurinn Bjami
Tryggvason hefur ekki látið á sér kræla á
útgáfusviðinu alllengi. Hann rýfur sjö ára
þögn með breiðskífu í dag.
Morgunblaðið/Ingibjörg
BJARNI Tryggvason, netagerðarmeistari og trúbadúr.
LANGT er um liðið síðan
Bjami Tryggvason var áber-
andi í íslensku tónlistarlífi,
sem trúbadúr og rokkari sem söng
gjaman um delkkri hliðar mannlífs-
ins og ýmislegt alvöruefni, sem
ekki var í hámæli. Bjami sendi síð-
ast frá sér breiðskífu 1987, en
kveðpur sé hljóðs að nýju í dag, því
þá kemur út með honum breiðskífan
Svo lengi sem það er gaman.
Þó Bjami Tryggva hafí ekki verið
í sviðsljósinu undanfarin ár, hefur
hann fengist við tónlist og víða leik-
ið. Hann segist hafa sankað að sér
lögum á rokktrúbadúr plötu og þeg-
ar ákveðið var að setja saman plötu
hafi hann leitað til þeirra sem við
áttu til að vinna hvert lag; „Þor-
steinn Magnússon til að spila það
sem átti að verða fágað og dútlerí
og Tómas Tómasson til að spila það
sem átti að vera hrátt kæruleysis-
legt rokk, Gumundur Gunnarsson
og Ásgeir Óskarsson leika á tromm-
ur, Steinar Gunnarsson er gegnum-
gangandi á bassa og raddir, hann
á þar með mér nokkur lög og að
auki koma Qölmargir við sögu, til
að mynda Rut Reginalds, Sigurgeir
Sigmundsson, Þorleifur Guðjóns-
son, Jakob Magnússon og Jens
Hansson."
Lög á misjöfnum aldri
Alls em á plötunni þrettán lög
fá ýmsum tímum og Bjami segist
hafa tekið hana upp í Mosfellsbæn-
um, tvö lög í maí og restina svo í
haust. Hann segir að lögin séu á
misjöfnum aldri, elsta lagið yfir
fimmtán ára gamalt, en svo eru
allmörg nýleg, en hann hafi valið
úr lagasafni sínu lög sem væru með
léttari yfírbragði, en það sem hann
hefur áður sent frá sér.
Bjami segir að textamir séu létt-
ari ef oft áður, það sé mikill húmor
í þeim, en alltaf broddur, „annars
er ekkert gaman að þessu“. Bjarni
segir að þó hann hafí haft það orð
á sér að vera gefínn fyrir þunga
texta og við eigandi lög, hafí hann
aldrei tekið sjálfan sig of alvarlega.
Mér fannst einfaldlega meira varið
í þessi þungu lög og texta, fannst
þau höfða meira til mín.“ Hann
segir að plata sé hæfilega létt að
sínu mati, það sé ágætt jafnvægi á
henni, þó lögin séu úr öllum áttum,
ýmist hrátt rokk, fágað eða mjúkt
og á milli dæmigerð trúbadúrlög.
Úr sviðsljósinu
Bjami sendi síðast frá sér breið-
skífu 1987, en þó ekki hafí hann
sent frá sér breiðskífu hefur hann
samið lög með og fyrir Súellen, en
einnig sendi hann frá sér lag fyrir
útvarp 1989, svona rétt til að minna
á sig.
„1989 ákvað ég að hætta í tón-
listinni í bili og fór að læra neta-
gerð. Á síðustu önninni í því, sem
var tekin í Keflavík, fór ég að spila
með náminu, vann mér inn fyrir
leigu og mat á meðan ég var að
klára, og þegar ég búinn í náminu
fór ég af stað aftur, segir Bjami,
sem hefur verið á samfelldri tón-
leikaferð um landið síðan í septem-
ber á síðasta ári, landshornanna á
milli. „Ég hef því ekki fengist við
fagið, enda ekki tími til, ég hef
ekki tekið mér frí nema tvær til
þijár helgar síðustu Qórtán mán-
uði, ég hef það bara í bakhöndinni."
Bjarni segist hafa tekið þá
ákvörðun á sínum tíma að draga
sig í hlé frá sviðsljósinu, „ég var
mjög sáttur við að hverfa á sínum
tíma; það gaf mér tíma til að meta
hvað það var sem ég vildi Ég vakn-
aði upp við það einn morguninn og
áttaði mig á því að ég var að fara
sífellda hringi, ég þróaðist ekkert,
ég var ekki að gera ekkert nýtt,
og því ákvað ég að draga mig í hlé
og reyna að breyta til. Ég var ekki
í tónlistinni til þess að hafa af henni
lifíbrauð; mig langaði til þess að
skapa eitthvað nýtt og skemmti-
legt. Það má segja að heiti nýju
plötunnar sé mottó mitt í tónlist:
Svo lengi sem það er gaman."
Ekki segist Bjarni búast við að
Ienda í erfíðleikum með það kynna
plötuna, enda sé hann að setja sam-
an hljómsveit til að fylgja henni
eftir með blandaðri dagskrá, enda
er platan blanda af rokki og trúbad-
úr.
Sígild tón-
list fyrir
nýja út-
varpsstöð
AÐSTANDENDUR útvarpsstöðv-
arinnar FM-Reykjavík 94.3 taka
kampakátir við geisladiskum með
leik Sinfóníuhljómsveitarinnar úr
höndum Runólfs Birgis Leifssonar,
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
framkvæmdastjóra sveitarinnar. Út-
varpsstöðin leggur áherslu á ljúfa
sígilda tónlist, s.s. óperutónlist,
danshljómsveitir og djass - að
ógleymdri harmónikkutónlistinni.
Að ofan taka þeir Jóhann Briem,
framkvæmdastjóri Myndbæjar,
Markús Öm Antonsson, útvarps-
stjóri, og Karl Lúðvíksson, dagskrár-
gerðarmaður, við áðumefndri gjöf
Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Fyrir utan útvarpsreksturinn
sendir Myndbær hf. út sjónvarps-
dagskrá á hótelin í Reykjavík, fram-
leiðir sjónvarpsmyndir, kynningar-,
fræðslu- og heimildarmyndir. Jafn-
framt sinnir fyrirtækið útgáfu
og kynningarstörfum ýmis konar.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Háskólabíói vfð Haaatorq sírmi 622255
Grœnir tónleikar Háskólabíói
fimmtudaginn lO.nóvember, kl. 20.00
HIjómsveitarstjóri: Guillermo Figueroa
Einleikari: Gunnar Kvaran
Efnisskrá
Felix Mendelssohn: Draumur á Jónsmessunótt, forleikur
Luigi Boccherini: Sellókonsert í B-dúr
IV. A. Mozart: Sinfónía nr. 41, Júpíter
Iðasda er olla vlita dago á skilfstorutína og vlð ringanglnn vlð H3pba( tónleto. Gielðslulolaþiónusl