Morgunblaðið - 30.11.1994, Síða 1
72 SÍÐUR B/C/D
274. TBL. 82. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Brundtland, forsætisráðherra Noregs, um úrslitin í þjóðaratkvæðagreiðslunni
Áhersla lögð á að bjarga
samningunum um EES
Ósló. Morgnnblaðið, Reutcr.
„ÞJÓÐIN hefur kveðið upp sinn dóm og nú verðum við að gera allt,
sem hægt er, til að bjarga samningnum um Evrópska efnahagssvæð-
ið, EES,“ sagði Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, í
gær eftir að landsmenn höfðu hafnað aðild að Evrópusambandinu,
ESB, í þjóðaratkvæðagreiðslunni á mánudag. Eru úrslitin mikill per-
sónulegur ósigur fyrir Brundtland en hún mun þó sitja áfram sem
forsætisráðherra og vísar á bug kröfum um, að stjórnin verði stokkuð
upp og andstæðingar ESB-aðildar í Verkamannaflokknum teknir inn.
Talsmenn stjómvalda í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð hafa lýst
miklum vonbrigðum með niðurstöðuna í Noregi og einnig frammámenn
í ýmsum Evrópuríkjum og ESB. Jacques Delors, forseti framkvæmda-
stjómar ESB, lagði þó áherslu á, að samskiptin við Norðmenn yrðu
áfram góð og sambandið stæði þeim opið.
Á fréttamannafundi í gær sagði
Brundtland, að stjórnin myndi
vinna að hagsmunum Norðmanna
með því að tryggja, að samningur-
inn um Evrópska efnahagssvæðið,
EES, yrði óbreyttur áfram en sum-
ir embættismenn ESB hafa gefið
í skyn, að nauðsynlegt sé að taka
hann upp að einhverju leyti. Sagði
hún, að Svíar og Finnar yrðu beðn-
ir að tala máli Norðmanna innan
ESB.
Erfiðar ákvarðanir
Brundtland og aðrir frammá-
menn í Verkamannaflokknum
iögðu áherslu á, að erfiðar ákvarð-
anir biðu Norðmanna í efnahags-
málunum en margir spá því, að hún
muni víkja fyrir Thorbjörn Jagland
sem forsætisráðherra á landsfundi
Verkamannaflokksins nú í vetur
en þingkosningar verða í Noregi
1997.
Torstein Moland, seðlabanka-
stjóri í Noregi, sagði, að úrslitin
kölluðu á enn meira aðhald en áður
í efnahagsmálum til að auka áhuga
erlendra fjárfesta á landinu. „Ef
við ætlum okkur að halda uppi háu
atvinnustigi og hagvexti verða
launa- og verðhækkanir hér að
vera minni en í ESB-ríkjunum,“
sagði Moland.
Talsmenn ESB-andstæðinga í
Noregi hafa að sjálfsögðu fagnað
úrslitunum mjög og sumir þeirra
hafa hvatt til myndunar rauð-
grænnar fylkingar í norskum
stjórnmálum. Dagblaðið Aftenpost-
en sagði hins vegar, að Norðmenn
hefðu skákað sjálfum sér til hliðar
og ákveðið að skipta sér ekki af
ákvörðunum, sem þó vörðuðu þá
miklu.
EES í uppnámi?
Aneurin Rhys Hughes, sendi-
herra ESB í Noregi og á íslandi,
sagði um úrslitin, að margir Norð-
menn lifðu augljóslega í heimi Lísu
í Undralandi og hefðu enga hug-
mynd um þær miklu breytingar,
sem átt hefðu sér stað í umheimin-
um frá 1972. Kvað hann norska
neiið vera gott tækifæri fyrir ís-
lendinga og fullyrti, að semja yrði
að nýju um EES-samninginn, hugs-
anlega segja honum upp. Útilokað
væri, að ráðherrar frá 15 ESB-ríkj-
um legðu það á sig reglulega að
funda með Islendingum og Norð-
mönnum einum.
„Það er ekki inni í myndinni að
halda áfram með EES-samninginn
eins og hann er nú,“ sagði Hughes
og kvað það ekki koma sér á óvart,
að Norðmenn sæktu aftur um ESB-
aðild eftir tvö eða þtjú ár.
■ Norðmenn hafna/20.
Bjartar horfur
í Bretlandi
KENNETH Clarke, fjármálaráð-
herra Bretlands, kynnti fjárlaga-
frumvarpið fyrir næsta ár í gær
og sagði það endurspegla betri
horfur í efnahagsmálunum en
um langt skeið. Gert er ráð fyrir
3,25% hagvexti á næsta ári og
því er spáð, að verðbólga verði
undir 2,5% fram á árið 1997. Þá
er atvinnuleysi á niðurleið. Hér
er starfsmaður í raftækjaverslun
að fylgjast með boðskapnum.
■ Stjórn Majors/21.
Ofurefli
í Bosníu
SERBAR í Bosníu þrengja enn
að Bihac þar sem 70.000 manns
eru innikróuð og virðast geta
tekið borgina hvenær sem er.
Þá var búist við, að bærinn
Velika Kladusa skammt frá Bi-
hacborg væri að falla í hendur
Serbum en þar hafa um 3.000
manns leitað skjóls í kjöllurum
húsa yegna linnulausrar skot-
hríðar í marga daga. Þessir
Serbar sóttu að múslimska
bænum Pritok í gær en þeir eru
vel búnir vopnum júgóslavn-
eska sambandshersins, sem áð-
ur var. Bosníustjórn hefur fall-
ist á tillögu Sameinuðu þjóð-
anna um vopnahlé en Serbar
hafa ekki virt samtökin svars.
^ Reuter
Múshmar venast enn í Bihac
Saraievo. Genf. Zaereb. Reuter.
HER múshma, sem enn verst í
Bihac, segist munu verjast Bosn-
íu-Serbum til síðasta manns. „Við
búumst við hörðum bardögum í
dag en ætlum ekki að gefast upp.
Við beijumst fram í rauðan dauð-
ann,“ sagði talsmaður herliðsins
í gærmorgun. Serbar treysta enn
stöðu sína í borginni og nota til
þess þyrlur, skriðdreka og bryn-
varðar járnbrautarlestir en full-
trúar Sameinuðu þjóðanna segja
að múslimar hafi gert gagnáhlaup
í suðurhluta Bihac á mánudag.
Á sunnudag samþykkti stjórnin
í Sarajevo, sem að mestu er skip-
uð múslimum, nauðug áætlun SÞ
um að hersveitir múslima í Bihac
yrðu fluttar þaðan og borgarsvæð-
ið yrði lýst vopnlaust. Leiðtogar
Bosníu-Serba hafa átt langa fundi
um áætlunina en hafa enn ekki
sagt álit sitt á henni.
Saka Sameinuðu
þjóðirnar um glæpi
íbúar í Sarajevo létu þung orð
falla í garð SÞ í gær vegna að-
gerðaleysisins í Bihac sem á að
heita griðasvæði samtakanna.
Fréttir bárust af því að Boutros
Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri
samtakanna, hygðist heimsækja
Sarajevo og vöktu þær engan
fögnuð.
„Boutros-Ghali ber mesta sök
allra á því sem er að gerast í
Bosníu,“ sagði miðaldra kona.
Hún sagði helstu embættismenn
SÞ vera „glæpamenn", þeir litu
svo á að múslimar væru frum-
stæður ættbálkur en í reynd væru
múslimar siðmenntaðri en aðrir
Evrópumenn. „Þeir halda að þar
sem við séum múslimar sé hægt
að hola okkur niður á verndar-
svæðum.“ Er Boutros-Ghali sótti
Saravejobúa heim í desember
1992 sagði hann þeim m.a. að
hann gæti nefnt tylft staða í heim-
inum þar sem verra væri að búa
og féllu þessi ummæli hans í grýtt-
an jarðveg.
Engar tilslakanir
Charles Thomas, fulitrúi
Bandaríkjanna í fimmveldahópn-
um, neitaði í gær, að Bandaríkja-
stjórn hefði fallist á að heimila
Bosníu-Serbúm að stofna sam-
bandsríki með Serbíu. Kvaðst
hann kannast við orðróm þess
efnis en hann væri ekki réttur,
Bandaríkjamenn héldu fast við
friðaráætlunina, sem Serbar
hefðu hafnað.
Fyrsta
Bítla-
platan
í 25 ár
Lundúnum. Reuter.
BÍTLARNIR gefa í dag út
fyrstu piötu sína í tæp 25 ár,
upptökur á 56 lögum sem
fundust í safni breska ríkisút-
varpsins, BBC.
„Þetta var eins og að finna
grafhýsi Tutankamons
Egyptalandskonungs," sagði
Kevin Howlett, framleiðandi
hjá BBC, um gersemarnar
sem hann fann í safninu þeg-
ar hann leitaði að efni í heim-
ildarmynd um Bítlana.
Tekin upp fyrir
útvarpsþátt
Lögin voru tekin upp á
staðnum fyrir útvarpsþætti á
árunum 1962-65 og George
Martin, fyrrverandi sam-
starfsmaður Bítlanna, endur-
vann þau til útgáfu á geisla-
diskum. Meðal laganna eru
níu eftir Chuck Berry, sex frá
Carl Perkins og fjögur eftir
Elvis Presley. Flest eru þau
sígild rokklög sem höfðu ver-
ið gefin út áður en Bítlarnir
urðu heimsfrægir.
Ein af helstu hljómplötu-
verslunum Lundúna á Picea-
dilly Cireus var opnuð á mið-
nætti vegna útgáfunnar fyrir
hörðustu aðdáendur Bítlanna.