Morgunblaðið - 30.11.1994, Page 4

Morgunblaðið - 30.11.1994, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Barnasöngkeppni á Italíu um helgina í beinni sjónvarpsútsendingu Sara Dís komst í úrslitin S ARA DÍS Hjaltested, átta ára stúlka úr Hafnarfirði, komst í úrslit í bamasöngkeppninni á Italíu sem fram fór um síðustu helgi. Keppninni, senver sú þekktasta sinnar tegundar í heiminum, var sjónvarpað beint víða um heim og er talið að miHj- ónir manna hafi horft á hana. Sara vakti mikla athygli og þótti standa sig einstaklega vel. Keppnin er mjög umfangs- mikii og fer fram í beinni út- sendingu fjögur kvöld í röð á sjónvarpstöðinni Worldvision. Sara söng öll kvöldin og á úrsli- takvöldinu söng stórsöngvarinn Luciano Pavarotti með bömun- um. Richard Attenboroug var gestur á úrslitakvöldinu, en hann hefur kynnt sér hjálpar- starf Antoniano-munkareglunn- ar sem skipuleggur keppnina. Erfitt en skemmtilegt Sara er nýkomin heim til landsins ásamt foreldrum sín- um, Maríu Björk Sverrisdóttur og Pétri Hjaltested. „Þetta var erfitt en skemmti- legt,“ sagði Sara þegar hún var spurð um keppnina. Sara þurfti að syngja á ítölsku, en lagið sem hún söng var lag Valgeirs Skag- fjörð, Íslandsvísun „Það gekk bara vel að læra að syngja á ítölsku. Við æfðum okkur vel fyrir keppnina.“ Mikið umstang var í kringum keppnina, enda er henni sjón- varpað víða um heim. Sara vildi ekki gera mikið úr heimsfrægð- inni og sagði að þetta hefði ekki verið ósvipað því að syngja í íslenska sjónvarpinu, en hún hefur m.a. komið fram í þætti Hemma Gunn. Sara viðurkenndi að hún hefði verið dálítið spennt á úrslita- kvöldinu, en sagðist ekki vera óánægð þó að hún hefði ekki unnið. Allir keppendur hefðu fengið sömu verðlaun. Keppnin fékk mikla umfjöllun í fjölmiðlum á Ítalíu og víðar og birtust myndir af Söru í blöð- um og tímaritum meðan á keppninni stóð. Sjálf vákti hún talsverða athygU þar sem hún skar sig úr hópi annarra kepp- enda, sem nær allir voru dökk- hærðir. Sara er Ijóshærð. Börn og fullorðnir stoppuðu hana á götu í Bologna; þar sem keppnin fór fram, en á Italíu hefur keppnin svipaða stöðu og Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva hefur á íslandi. Átta lög í úrslitum Átta lög komust í úrslit í keppninni.fjögur frá Ítalíu, og lög frá Úiúgvæ, Portúgal, Eistlandi og íslandi. Lag frá It- alíu sigraði i úrsUtakeppninni. Á úrslitakvöldinu heiðraði Pava- rotti börnin með nærveru sinni og söng með hinum heims- Morgunblaðið/RAX SARA var ánægð við heimkomuna eftir frægðarför til Ítalíu. Foreldrarnir, María Björk og Pétur Hjaltested, voru stoltir yfír árangri dótturinnar. þekkta Piccolo-barnakór. Það er hjálparstofnun á veg- um ítölsku Antoniano-munk- anna sem stendur fyrir keppn- inni. Á hveiju ári safnast miklir peningar vegna keppninnar og er þeim varið til barnahjálpar víða um heim. í fyrra var pen- ingunum varið til uppbyggingar heimila fyrir götubörn í Brasil- íu, enl ár beina munkarnir kröftum sínum til aðstoðar við börn í Rúanda þar sem þúsundir barna ganga um munaðarlaus og heimilislaus. SIGURVEGARINN í keppn- inni hét Leonardo, sex ára drengur frá Ítalíu. Vel fór á með honum og Söru. Félagsmálaráðherra fjölgar afborgunum húsbréfalána Gjalddagar úr 4 í 12 Esso vill líka lóðir OLÍUFÉLAGIÐ hf., Esso, lagði í gær umsókn fyrir borgarráð, þar sem farið er fram á lóðir fyrir bensín- og þjónustustöðv- ar í Reykjavík. Eins og skýrt hefur verið frá fór kanadíska fyrirtækið Irving Oil fram á að fá úthlutað lóðum undir sams konar starfsemi, en fyrirtækið hefur áhuga á að hasla sér völl hér á landi. Leit- un er að slíkum lóðum í borg- inni, en í framhaldi af umsókn Irving Oil óskuðu Olíuverslun íslands og Skeljungur eftir lóð- um og nú hefur Olíufélagið nú bæst í þann hóp. FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefiir ákveðið að fjölga gjalddögum vegna greiðslu húsbréfalána úr fjórum í tólf á ári og Húsnæðis- málastjóm hefur ákveðið að ný skuldabréf Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna verði einnig með mánaðarlegum afborgunum frá og með 1. janúar næstkomandi. Nýjar lánveitingar verða hér eftir einungis með mán- aðarlegum afborgunum, 12 á ári. Þá verður skuldurum eldri fast- eignaverðbréfa, húsbréfa eða hús- næðislána í kerfinu sem sett var Skuldarar í eldra kerfi eiga þessa einnig kost á laggirnar árið 1986, svo og lána úr Byggingarsjóði verkamanna eftir 1. júlí 1980, gefinn kostur á mánaðarlegum afborgunum. Verður viðkomandi sent um- sóknareyðublað, sem hann getur fyllt út og endursent, óski hann þessara breytinga. Pjölgun gjalddaga á eldri lánum húsbréfadeildar tekur gildi eftir 15. mars næstkomandi og getur því fyrst komið til framkvæmda þann 15. apríl. Tekur síðar gildi í eldra kerfi Þegar eldri lán úr Byggingar- sjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna eiga í hlut tekur breytingin hins vegar gildi á næsta gjalddaga 1. febrúar og kemur til framkvæmda 1. mars. Reglugerð um holræsagjald var lögð fyrir borgarráð í gær Reykvíkingar greiði holræsa- gjald í janúar REGLUGERÐ um holræsagjald í Reykjavík var lögð fyrir borgarráð á fundi þess í gær. Samkvæmt reglugerðinni á holræsagjald að nema 0,15% af heildarfasteigna- mati. Borgarráðsfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins segja að með þessu sé R-listinn að hækka fast- eignagjöld á hvert heimili um 26%. Borgarstjóri bókaði, að ekki væri um fasteignaskatt að ræða, heldur þjónustugjald vegna fortíðarvand- ans, sem stjóm Sjálfstæðisflokks- ins í borginni hefði skapað. Greitt af öllum fasteignum í reglugerðinni segir, að greiða skuli holræsagjald af öllum fast- eignum í Iögsagnarumdæmi Reykjavíkur, sem liggja við vegi eða opin svæði, þar sem holræsa- lagnir liggja. Holræsagjald fellur í gjalddaga 15. janúar ár hvert og skal innheimt með sama hætti og fasteignagjöld. Reglugerðin tekur gildi við álagningu holræsa- gjalds árið 1995, hljóti hún sam- þykki borgarstjómar. í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins segir m.a., að holræsagjaldið þækki fasteigna- gjöld á hvert heimili um 26% eða á bilinu 10-30 þúsund krónur ár- lega á hvert heimili í Reykjavík. Borgarstjóri svaraði mótmælum sjálfstæðismanna með bókun, þar sem segir að holræsagjald sé lagt á í nær öllum sveitarfélögum landsins og sé yfirleitt 0,1 til 0,2%. Reykjavíkurborg standi frammi fyrir 8 milljarða fjárfestingu í hol- ræsamálum á næstu 10-12 árum. 550-600 milljónir á ári Aftur lögðu fulitrúar Sjálfstæð- isflokksins fram bókun, þar sem segir, að unnið hafi verið átak í hreinsun strandlengjunnar á und- anförnum árum fyrir 1.900 millj- ónir án þess að sérstakur nýr skattur væri lagður á borgarbúa. Afborganir lána sem hlutfall skatttekna séu lægri í Reykjavík en hjá nágrannasveitarfélögunum, en þar sé þó ekki talin þörf á svo stórtækri skattaukningu sem R- listinn hyggist knýja fram og nemi um 550-600 milljónum á ári. Skorti pólitískan kjark Borgarstjóri svaraði aftur með bókun, þar sem segir að af þeim 8 milljörðum, sem áætlað sé að fari til holræsaframkvæmda, séu um 1,6 milljarðar afborganir og vextir af lánum sem sjálfstæðis- menn hafi tekið vegna þessara mála. Reikningarnir hafi verið sendir inn í framtíðina, því sjálf- stæðismenn hafi skorl pólitískan kjark til að takast á við vandann, t.d. með holræsagjaldi. Reglugerðinni var vísað til borg- arstjórnar, þar sem fyrri umræða um hana er á fimmtudag. Sprengjuhótun í Flugleiðavél Málinu lokið af háifu flug- vallarins BROTTFÖR Flugleiðavélar, sem var í leigu Ferðaskrifstof- unnar Alís, tafðist um klukku- stund á flugvellinum í New- castle í Bretlandi að kvöldi mánudags vegna hótunar um að sprengja væri um borð. Rannsókn málsins er lokið af hendi flugvallayfirvalda í Newcastle, að sögn Sally Dewhirst blaðafulltrúa. Hún kvaðst ekki geta gefið aðrar upplýsingar um atburðinn en þær að fyllsta öryggis flugfar- þega hefði verið gætt. Að sögn Einars Sigurðs- sonar blaðafulltrúa l'lugleiða er framhald málsins ekki ljóst. í „Við munum væntanlega fá skýrslu frá Newcastle og ég geri ráð fyrir að ákvarðanir verði teknar í framhaldinu." Hluti farþega um borð Skömmu eftir að farþegar voru kallaðir um borð í vélina barst sprengjuhótun símleiðis. Að því er heimildir Morgun- blaðsins herma var farþegum sagt að símtalið hefði verið rakið til salarins þar sem far- þegar vélarinnar biðu. í kjöl-: farið hefðu nokkrir farþegar verið yfirheyrðir. Laufey Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Alís sagð- - ist ekki skilja hvaða hvatir lægju að baki hótunum eins og þessum. „Fyrst énginn gaf sig fram í flugvélinni er ólík- legt að sökudólgurinn finnist, ' en svona nokkuð kostar ekki: smáræðis peninga auk óþæg- inda fyrir farþega,“ sagði hún. Bretar í fang- elsi vegna fíkniefna HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík- ur dæmdi í gær tvo Breta, 41 árs karl og 23 ára konu í 18 og 6 mánaða fangelsi fyrir að hafa stuðlað innflutningi á samtals 9 kg af hassi til lands- ins. íslendingur, sem talið er að fólkið hafí borið efnin fyrir inn í landið, er nú í haldi fíkni- efnalögreglu. Tekin með 6 kíló Tollgæsla handtók fólkið við komu til landsins um síðustu mánaðamót og reyndist hvort þeirra hafa um 3 kg af hassi í fórum sínum. Fólkið hefur síðan setið í gæsluvarðhaldi og við yfirheyrslur játaði maðurinn að hafa einu sinni áður borið 3 kg af hassi til landsins. Fólkið játaði sakargiftir og var ákæra gefin út í fyrradag og málið dæmt í gær. Maður- inn var dæmdur í 18 mánaða fangelsi en hæfileg refsing konunnar var talin 6 mánaða fangelsi. Gæsluvarðhald- tíminn kemur til frádráttar refsingu fólksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.