Morgunblaðið - 30.11.1994, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Barnasöngkeppni á Italíu um helgina í beinni sjónvarpsútsendingu
Sara Dís komst
í úrslitin
S ARA DÍS Hjaltested, átta ára
stúlka úr Hafnarfirði, komst í
úrslit í bamasöngkeppninni á
Italíu sem fram fór um síðustu
helgi. Keppninni, senver sú
þekktasta sinnar tegundar í
heiminum, var sjónvarpað beint
víða um heim og er talið að miHj-
ónir manna hafi horft á hana.
Sara vakti mikla athygli og þótti
standa sig einstaklega vel.
Keppnin er mjög umfangs-
mikii og fer fram í beinni út-
sendingu fjögur kvöld í röð á
sjónvarpstöðinni Worldvision.
Sara söng öll kvöldin og á úrsli-
takvöldinu söng stórsöngvarinn
Luciano Pavarotti með bömun-
um. Richard Attenboroug var
gestur á úrslitakvöldinu, en
hann hefur kynnt sér hjálpar-
starf Antoniano-munkareglunn-
ar sem skipuleggur keppnina.
Erfitt en
skemmtilegt
Sara er nýkomin heim til
landsins ásamt foreldrum sín-
um, Maríu Björk Sverrisdóttur
og Pétri Hjaltested.
„Þetta var erfitt en skemmti-
legt,“ sagði Sara þegar hún var
spurð um keppnina. Sara þurfti
að syngja á ítölsku, en lagið sem
hún söng var lag Valgeirs Skag-
fjörð, Íslandsvísun „Það gekk
bara vel að læra að syngja á
ítölsku. Við æfðum okkur vel
fyrir keppnina.“
Mikið umstang var í kringum
keppnina, enda er henni sjón-
varpað víða um heim. Sara vildi
ekki gera mikið úr heimsfrægð-
inni og sagði að þetta hefði ekki
verið ósvipað því að syngja í
íslenska sjónvarpinu, en hún
hefur m.a. komið fram í þætti
Hemma Gunn.
Sara viðurkenndi að hún hefði
verið dálítið spennt á úrslita-
kvöldinu, en sagðist ekki vera
óánægð þó að hún hefði ekki
unnið. Allir keppendur hefðu
fengið sömu verðlaun.
Keppnin fékk mikla umfjöllun
í fjölmiðlum á Ítalíu og víðar
og birtust myndir af Söru í blöð-
um og tímaritum meðan á
keppninni stóð. Sjálf vákti hún
talsverða athygU þar sem hún
skar sig úr hópi annarra kepp-
enda, sem nær allir voru dökk-
hærðir. Sara er Ijóshærð. Börn
og fullorðnir stoppuðu hana á
götu í Bologna; þar sem keppnin
fór fram, en á Italíu hefur
keppnin svipaða stöðu og
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva hefur á íslandi.
Átta lög
í úrslitum
Átta lög komust í úrslit í
keppninni.fjögur frá Ítalíu,
og lög frá Úiúgvæ, Portúgal,
Eistlandi og íslandi. Lag frá It-
alíu sigraði i úrsUtakeppninni. Á
úrslitakvöldinu heiðraði Pava-
rotti börnin með nærveru sinni
og söng með hinum heims-
Morgunblaðið/RAX
SARA var ánægð við heimkomuna eftir frægðarför til Ítalíu.
Foreldrarnir, María Björk og Pétur Hjaltested, voru stoltir yfír
árangri dótturinnar.
þekkta Piccolo-barnakór.
Það er hjálparstofnun á veg-
um ítölsku Antoniano-munk-
anna sem stendur fyrir keppn-
inni. Á hveiju ári safnast miklir
peningar vegna keppninnar og
er þeim varið til barnahjálpar
víða um heim. í fyrra var pen-
ingunum varið til uppbyggingar
heimila fyrir götubörn í Brasil-
íu, enl ár beina munkarnir
kröftum sínum til aðstoðar við
börn í Rúanda þar sem þúsundir
barna ganga um munaðarlaus
og heimilislaus.
SIGURVEGARINN í keppn-
inni hét Leonardo, sex ára
drengur frá Ítalíu. Vel fór á
með honum og Söru.
Félagsmálaráðherra fjölgar afborgunum húsbréfalána
Gjalddagar úr 4 í 12
Esso vill
líka lóðir
OLÍUFÉLAGIÐ hf., Esso, lagði
í gær umsókn fyrir borgarráð,
þar sem farið er fram á lóðir
fyrir bensín- og þjónustustöðv-
ar í Reykjavík.
Eins og skýrt hefur verið frá
fór kanadíska fyrirtækið Irving
Oil fram á að fá úthlutað lóðum
undir sams konar starfsemi, en
fyrirtækið hefur áhuga á að
hasla sér völl hér á landi. Leit-
un er að slíkum lóðum í borg-
inni, en í framhaldi af umsókn
Irving Oil óskuðu Olíuverslun
íslands og Skeljungur eftir lóð-
um og nú hefur Olíufélagið nú
bæst í þann hóp.
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefiir
ákveðið að fjölga gjalddögum
vegna greiðslu húsbréfalána úr
fjórum í tólf á ári og Húsnæðis-
málastjóm hefur ákveðið að ný
skuldabréf Byggingarsjóðs ríkisins
og Byggingarsjóðs verkamanna
verði einnig með mánaðarlegum
afborgunum frá og með 1. janúar
næstkomandi. Nýjar lánveitingar
verða hér eftir einungis með mán-
aðarlegum afborgunum, 12 á ári.
Þá verður skuldurum eldri fast-
eignaverðbréfa, húsbréfa eða hús-
næðislána í kerfinu sem sett var
Skuldarar í eldra
kerfi eiga þessa
einnig kost
á laggirnar árið 1986, svo og lána
úr Byggingarsjóði verkamanna
eftir 1. júlí 1980, gefinn kostur á
mánaðarlegum afborgunum.
Verður viðkomandi sent um-
sóknareyðublað, sem hann getur
fyllt út og endursent, óski hann
þessara breytinga.
Pjölgun gjalddaga á eldri lánum
húsbréfadeildar tekur gildi eftir
15. mars næstkomandi og getur
því fyrst komið til framkvæmda
þann 15. apríl.
Tekur síðar gildi
í eldra kerfi
Þegar eldri lán úr Byggingar-
sjóði ríkisins og Byggingarsjóði
verkamanna eiga í hlut tekur
breytingin hins vegar gildi á
næsta gjalddaga 1. febrúar og
kemur til framkvæmda 1. mars.
Reglugerð um holræsagjald var lögð fyrir borgarráð í gær
Reykvíkingar
greiði holræsa-
gjald í janúar
REGLUGERÐ um holræsagjald í
Reykjavík var lögð fyrir borgarráð
á fundi þess í gær. Samkvæmt
reglugerðinni á holræsagjald að
nema 0,15% af heildarfasteigna-
mati. Borgarráðsfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins segja að með
þessu sé R-listinn að hækka fast-
eignagjöld á hvert heimili um 26%.
Borgarstjóri bókaði, að ekki væri
um fasteignaskatt að ræða, heldur
þjónustugjald vegna fortíðarvand-
ans, sem stjóm Sjálfstæðisflokks-
ins í borginni hefði skapað.
Greitt af öllum
fasteignum
í reglugerðinni segir, að greiða
skuli holræsagjald af öllum fast-
eignum í Iögsagnarumdæmi
Reykjavíkur, sem liggja við vegi
eða opin svæði, þar sem holræsa-
lagnir liggja. Holræsagjald fellur
í gjalddaga 15. janúar ár hvert
og skal innheimt með sama hætti
og fasteignagjöld. Reglugerðin
tekur gildi við álagningu holræsa-
gjalds árið 1995, hljóti hún sam-
þykki borgarstjómar.
í bókun borgarráðsfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins segir m.a., að
holræsagjaldið þækki fasteigna-
gjöld á hvert heimili um 26% eða
á bilinu 10-30 þúsund krónur ár-
lega á hvert heimili í Reykjavík.
Borgarstjóri svaraði mótmælum
sjálfstæðismanna með bókun, þar
sem segir að holræsagjald sé lagt
á í nær öllum sveitarfélögum
landsins og sé yfirleitt 0,1 til 0,2%.
Reykjavíkurborg standi frammi
fyrir 8 milljarða fjárfestingu í hol-
ræsamálum á næstu 10-12 árum.
550-600 milljónir á ári
Aftur lögðu fulitrúar Sjálfstæð-
isflokksins fram bókun, þar sem
segir, að unnið hafi verið átak í
hreinsun strandlengjunnar á und-
anförnum árum fyrir 1.900 millj-
ónir án þess að sérstakur nýr
skattur væri lagður á borgarbúa.
Afborganir lána sem hlutfall
skatttekna séu lægri í Reykjavík
en hjá nágrannasveitarfélögunum,
en þar sé þó ekki talin þörf á svo
stórtækri skattaukningu sem R-
listinn hyggist knýja fram og nemi
um 550-600 milljónum á ári.
Skorti pólitískan kjark
Borgarstjóri svaraði aftur með
bókun, þar sem segir að af þeim
8 milljörðum, sem áætlað sé að
fari til holræsaframkvæmda, séu
um 1,6 milljarðar afborganir og
vextir af lánum sem sjálfstæðis-
menn hafi tekið vegna þessara
mála. Reikningarnir hafi verið
sendir inn í framtíðina, því sjálf-
stæðismenn hafi skorl pólitískan
kjark til að takast á við vandann,
t.d. með holræsagjaldi.
Reglugerðinni var vísað til borg-
arstjórnar, þar sem fyrri umræða
um hana er á fimmtudag.
Sprengjuhótun
í Flugleiðavél
Málinu
lokið af
háifu flug-
vallarins
BROTTFÖR Flugleiðavélar,
sem var í leigu Ferðaskrifstof-
unnar Alís, tafðist um klukku-
stund á flugvellinum í New-
castle í Bretlandi að kvöldi
mánudags vegna hótunar um
að sprengja væri um borð.
Rannsókn málsins er lokið af
hendi flugvallayfirvalda í
Newcastle, að sögn Sally
Dewhirst blaðafulltrúa. Hún
kvaðst ekki geta gefið aðrar
upplýsingar um atburðinn en
þær að fyllsta öryggis flugfar-
þega hefði verið gætt.
Að sögn Einars Sigurðs-
sonar blaðafulltrúa l'lugleiða
er framhald málsins ekki ljóst. í
„Við munum væntanlega fá
skýrslu frá Newcastle og ég
geri ráð fyrir að ákvarðanir
verði teknar í framhaldinu."
Hluti farþega um borð
Skömmu eftir að farþegar
voru kallaðir um borð í vélina
barst sprengjuhótun símleiðis.
Að því er heimildir Morgun-
blaðsins herma var farþegum
sagt að símtalið hefði verið
rakið til salarins þar sem far-
þegar vélarinnar biðu. í kjöl-:
farið hefðu nokkrir farþegar
verið yfirheyrðir.
Laufey Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri Alís sagð- -
ist ekki skilja hvaða hvatir
lægju að baki hótunum eins
og þessum. „Fyrst énginn gaf
sig fram í flugvélinni er ólík-
legt að sökudólgurinn finnist, '
en svona nokkuð kostar ekki:
smáræðis peninga auk óþæg-
inda fyrir farþega,“ sagði
hún.
Bretar í fang-
elsi vegna
fíkniefna
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur dæmdi í gær tvo Breta, 41
árs karl og 23 ára konu í 18
og 6 mánaða fangelsi fyrir að
hafa stuðlað innflutningi á
samtals 9 kg af hassi til lands-
ins. íslendingur, sem talið er
að fólkið hafí borið efnin fyrir
inn í landið, er nú í haldi fíkni-
efnalögreglu.
Tekin með 6 kíló
Tollgæsla handtók fólkið
við komu til landsins um
síðustu mánaðamót og
reyndist hvort þeirra hafa um
3 kg af hassi í fórum sínum.
Fólkið hefur síðan setið í
gæsluvarðhaldi og við
yfirheyrslur játaði maðurinn
að hafa einu sinni áður borið
3 kg af hassi til landsins.
Fólkið játaði sakargiftir og
var ákæra gefin út í fyrradag
og málið dæmt í gær. Maður-
inn var dæmdur í 18 mánaða
fangelsi en hæfileg refsing
konunnar var talin 6 mánaða
fangelsi. Gæsluvarðhald-
tíminn kemur til frádráttar
refsingu fólksins.