Morgunblaðið - 30.11.1994, Side 19

Morgunblaðið - 30.11.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Sykur Hæsta verð á sykri í fjögur og hálft ár Meiri verðhækkunum spáð London. Reuter. VERÐ á sykri hefur ekki verið hærra í fjögur og hálft vegna tals um væntanleg sykurkaup Kínveija og Rússa og frekari hækkunum er spáð. í London hækkaði verð á sykri til afhendingar í marz um 20 cent í 421 dollara tonnið og hafði ekki verið hærra síðan um mitt ár 1990. í New York fékkst einnig hæsta verð í 4 1/2 ár eða 15.25 dollarar á pundið. Hækkunin stafar meðal annars af orðrómi um að sterkur evrópsk- ur aðili standi í samningum um sölu á sykri til rússneska hersins. Að sögn kunnugra er þetta endur- bætt útgáfa á gömlum sögusögn- um um að kínverski herinn hafi keypt sykur. Þótt ef til vill sé ekk- ert hæft í þessum sögum eru þær taldar góðs viti, þar sem þær stuðli að aukinni sölu. Aukinn markaður í Kína Gert er ráð fyrir, þótt það sé óstaðfest, að Kínveijar hafi nýlega keypt næstum því 300,000 tonn af sykri og kunni að kaupa meira. Alþjóðasykursamtökin, ISO, segja í síðasta ársfjórðungsyfirliti sð Kínveijar verði að flytja inn 1.5 milljónir lesta af sykri 1994/95 miðað við 875,000 tonn ári áður vegna minni uppskeru heima fyrir. Sérfræðingar telja að ein skýr- ingin á kaupum Kínveija að und- anförnu kunni að vera sú að þeir verði að fullnýta innflutningsleyfi, sem renni út í lok desember. Einn- ig megi vera að evrópskir framleið- endur haldi að sér höndum til að meta stöðuna og það auki sölu- tregðu í næstu framtíð. Léleg uppskera Léleg uppskera í ESB, Austur- Evrópu, Rússlandi og Úkraínu hefur leitt til birgðarýrnunar og kaup hefðbundinna viðskiptaþjóða í Vestur-Asíu og Norður-Afríku hafa verið stöðug. Alsír keypti 100,000 tonn í síðustu viku og virðist vilja meira. Egyptar munu vilja um 150,000 tonn, Jórdaniumenn bjóða í tvo farma og Sýrlendingar hyggjast kaupa 13,000 tonn í næstu viku. Bœndur Qthugið! Óskum eftir nautakjöti, lambakjöti, svínakjöti og fuglakjöti í vöruskiptum. Vörur og þjónusta yfir 200 fyrirtækja í boði. y VIÐSKIPTANETIÐ HF. Vöruskipti fyrirtækja S: (9í) 68 S8 70 240 aðildarfyrirtæki Fax; 0Ö* Óskum eftir 80 - 150 m2 iðnaðarhúsnæði með stórum dyrum, til kaups eða leigu, í vöruskiptum, fyrir eitt aðildarfyrirtækja okkar. Staðsetning austan Elliðáa. y VIÐSKIPTANETIÐ HF. Vöruskipti fyrirtækja S: (91) 68 38 70 240 aðiidarfyrirtæki Fax: (91) 68 38 75 Umslagapökkun Notið tæknina - sparið tíma og kostnað! Höfum til sýnis og sölu notaða umslagapökkunarvél í mjög góðu ástandi. Hagstætt verð - greiðslukjör. OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33- 105 Reykjavík Símar 624631 og 624699

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.