Morgunblaðið - 30.11.1994, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Sykur
Hæsta verð á
sykri í fjögur
og hálft ár
Meiri verðhækkunum spáð
London. Reuter.
VERÐ á sykri hefur ekki verið
hærra í fjögur og hálft vegna tals
um væntanleg sykurkaup Kínveija
og Rússa og frekari hækkunum
er spáð.
í London hækkaði verð á sykri
til afhendingar í marz um 20 cent
í 421 dollara tonnið og hafði ekki
verið hærra síðan um mitt ár 1990.
í New York fékkst einnig hæsta
verð í 4 1/2 ár eða 15.25 dollarar
á pundið.
Hækkunin stafar meðal annars
af orðrómi um að sterkur evrópsk-
ur aðili standi í samningum um
sölu á sykri til rússneska hersins.
Að sögn kunnugra er þetta endur-
bætt útgáfa á gömlum sögusögn-
um um að kínverski herinn hafi
keypt sykur. Þótt ef til vill sé ekk-
ert hæft í þessum sögum eru þær
taldar góðs viti, þar sem þær stuðli
að aukinni sölu.
Aukinn markaður í Kína
Gert er ráð fyrir, þótt það sé
óstaðfest, að Kínveijar hafi nýlega
keypt næstum því 300,000 tonn
af sykri og kunni að kaupa meira.
Alþjóðasykursamtökin, ISO,
segja í síðasta ársfjórðungsyfirliti
sð Kínveijar verði að flytja inn 1.5
milljónir lesta af sykri 1994/95
miðað við 875,000 tonn ári áður
vegna minni uppskeru heima fyrir.
Sérfræðingar telja að ein skýr-
ingin á kaupum Kínveija að und-
anförnu kunni að vera sú að þeir
verði að fullnýta innflutningsleyfi,
sem renni út í lok desember. Einn-
ig megi vera að evrópskir framleið-
endur haldi að sér höndum til að
meta stöðuna og það auki sölu-
tregðu í næstu framtíð.
Léleg uppskera
Léleg uppskera í ESB, Austur-
Evrópu, Rússlandi og Úkraínu
hefur leitt til birgðarýrnunar og
kaup hefðbundinna viðskiptaþjóða
í Vestur-Asíu og Norður-Afríku
hafa verið stöðug.
Alsír keypti 100,000 tonn í
síðustu viku og virðist vilja meira.
Egyptar munu vilja um 150,000
tonn, Jórdaniumenn bjóða í tvo
farma og Sýrlendingar hyggjast
kaupa 13,000 tonn í næstu viku.
Bœndur Qthugið! Óskum eftir nautakjöti, lambakjöti,
svínakjöti og fuglakjöti í vöruskiptum.
Vörur og þjónusta yfir 200 fyrirtækja í boði.
y VIÐSKIPTANETIÐ HF.
Vöruskipti fyrirtækja
S: (9í) 68 S8 70 240 aðildarfyrirtæki Fax;
0Ö* Óskum eftir 80 - 150 m2 iðnaðarhúsnæði með stórum dyrum,
til kaups eða leigu, í vöruskiptum, fyrir eitt aðildarfyrirtækja
okkar. Staðsetning austan Elliðáa.
y VIÐSKIPTANETIÐ HF.
Vöruskipti fyrirtækja
S: (91) 68 38 70
240 aðiidarfyrirtæki
Fax: (91) 68 38 75
Umslagapökkun
Notið tæknina - sparið tíma og kostnað!
Höfum til sýnis og sölu notaða umslagapökkunarvél
í mjög góðu ástandi. Hagstætt verð - greiðslukjör.
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33- 105 Reykjavík
Símar 624631 og 624699