Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ 20 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 EVRÓPA Viðbrögð við norska þjóðaratkvæðinu Segja Noreg geta sótt aftur um ESB-aðild Brussel, Bonn. Reuter. JACQUES Delors, forseti fram- kvæmdastjómar Evrópusambands- ins, kvaðst í gær hafa orðið fyrir vonbrigðum með þá ákvörðun Norð- manna í þjóðaratkvæðinu á mánu- dag að hafna aðild að sambandinu. Hann 'sagði þó að Norðmönnum væri velkomið að sækja aftur um aðild ef þeim snerist hugur. „Við erum vonsviknir. Norðmenn hefðu getað lagt mikið af mörk- um,“ sagði Delors á blaðamanna- fundi í Brussel. „Við höldum dyrun- um opnum áfram.... fyrir norska vini okkar.“ Delors bætti við að Evrópusambandið vildi bíða þar tii eftir ríkjaráðstefnuna árið 1996 áður en hafnar yrðu viðræður við nýja umsækjendur um aðild að ESB. Austurríkismenn vonsviknir Noregur ÍESB síðar? Vín. Reuter. FRANZ Vranitzky, kanslari Austurríkis, kvaðst vonsvik- inn vegna ákvörðunar Norð- manna en lét í ljós þá von að þeir samþykktu aðild að Evrópusambandinu þegar fram líða stundir. „Þetta er sorglegt, en hef- ur ekki slæmar afleiðingar fyrir Austurríki,“ sagði Vranitsky og bætti við að Austurríkismenn myndu ekki þurfa að taka á sig meiri efnahagslegar byrðar við inngönguna í ESB þótt Norð- menn gengju ekki í samband- ið. „Ef til vill ganga Norð- menn í sambandið eftir nokk- ur ár, þegar Evrópusam- bandið stækkar frekar,“ sagði Vranitsky. Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, tók í sama streng. „Ég mun vinna að auknum tengslum milli Evrópusambandsins og Noregs til að halda. leið Norðmanna að Evr- ópusambandinu opinni." Ekkert stórslys „Þetta kom ekki alveg á óvart, en veldur samt vonbrigðum," sagði Hans van den Broek, sem fer með utanríkismál innan framkvæmda- stjórnarinnar og stjómaði samn- ingaviðræðum ESB við Norðmenn. Klaus Hánsch, forseti Evrópu- þingsins, sagði ákvörðun Norð- manna óheppilega en ekkert stór- slys. „Evrópusambandið er jafn vel sett með 15 ríki og það hefði verið með 16.“ •BRETAR og Frakkar hafa stöðvað bandarísk-þýsk áform um efnahagslega aðstoð við Úkraínu. Kenneth Clarke, fjármálaráðher- ar Breta, segir ESB ekki vera alþjóðlega fjármálastofnun og eigi því ekki að fara inn á verk- svið Alþjóðabankans eða Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. • ÞÝSKA viðskiptablaðið Hand- elsblatt greinir frá því að rann- sókn á fyrirtækjum með tengsl við kommúnistaflokka, sem grun- uð eru um að hafa svikið fé út úr sjóðum ESB og einstakra ríkja nái nú einnig til fyrirtækja með tengsl við PDS, arftakaflokk aust- ur-þýska kommúnistaflokksins. Til þessa hefur rannsóknin fyrst og fremst beinst að fyrirtækjum í ítalska héraðinu Veneto. Viðbrögðin í Frakklandi „Kemur sér verr fyrir Norðmenn“ Parfs. Reuter. FRAKKAR sögðu að sú ákvörðun Norðmanna að hafna aðild að Evr- ópusambandinu kæmi sér ver fyrir þá sjálfa en sambandið. Frakkar taka við formennsku í ráðherraráði sambandsins 1. janúar - daginn sem Svíþjóð, Finnland og Austurríki ganga í ESB. „Norska þjóðin hefur tekið þá áhættu að lifa við hliðina á öflugu efnahagsbandalagi og þurfa að hlíta reglum sem það setur án þess að hafa áhrif á ákvarðanir um þær,“ sagði Evrópumálaráðherra Frakka, Alain Lamassoure. Hann bætti við að með því að hafna kvöð- um, sem fylgdu aðild að Evrópu- sambandinu, hefðu Norðmenn einn- ig hafnað tækifærum. Chirac gagnrýnir Delors Jaques Chirac, sem hefur lýst því yfir að hann bjóði sig fram í frönsku forsetakosningunum á næsta ári, notaði tækifærið til að gagnrýna Jacques Delors, sem nýtur mests fylgis þeirra sem hafa verið orðaðir við embættið. „Við sjáum það núna í Noregi að stefna framkvæmda- stjómarinnar í Brussel hefur gert marga Evrópubúa afhuga sam- bandinu," sagði hann. NORÐMENN HAFNA ESB-AÐILD Niðurstöðunnar beðið EIVINN Berg, sendiherra Noregs hjá Evrópusambandinu, fylgist spenntur með fréttum frá talningu í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Noregi á mánudag. Berg tók þátt í samningaviðræðum Norðmanna og ESB nú og fyrir 22 árum og er þetta því í annað sinn sem þjóðin hafnar samningi sem hann hefur unnið að. Viðbrögð á Norðurlöndum við norska þjóðaratkvæðinu Djúpstæð vonbrig’ði ESB-fylgismanna Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. VONBRIGÐI og aftur vonbrigði er orðið, sem sænskir og danskir stjórn- málamenn takar sér í munn, þegar þeir eru spurðir álits á niðurstöðu norsku þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB. Carl Bildt fyrrum forsætisráðherra Svía og leiðtogi Hægri flokksins sagði úrslitin „sögulegan ósigur fyrir Norðurlöndin“. Hans Engell leiðtogi danska Íhaldflokksins segir óhjákvæmi- legt að taka mið af ESB í norrænni samvinnu. an ESB og beita sér þar, til dæmis varðandi Eystrasaltslöndin. Skortur á styrk gæti grafið undan norrænum hagsmunum, þegar til lengdar léti. Um áhrifin á norræna samvinnu sagði Bildt að klofningur landanna myndi vísast verða eins og hægfara sjúkdómur, sem draga myndi mátt- inn úr samvinnunni. Nú yrði að hugsa hana upp á nýtt og aðlaga nýjum aðstæðum. Meðal ESB-andstæðinga í Dan- mörku og Svíþjóð er norsku niður- stöðunum ákaft fagnað. í samtali við Morgunblaðið sagði Gudrun Schyman formaður sænska Vinstri- flokksins að úrslitin væru uppör- vandi. Hún hefði ekki þorað að trúa því að norskir andstæðingar hefðu sitt í gegn. Mikill styrkur væri fyrir ESB-andstæðinga í Svíþjóð að eiga Norðmenn að nágrönnum. Drude Dahlerup talsmaður dönsku Júníhreyfingarinnar, sem berst gegn ESB-aðild, sagði norsku úrslitin hleypa auknum krafti í and- stöðuna á Norðurlöndum. Norræn samvinna erfiðari Esko Aho, forsætisráðherra Finn- lands, sagði í gær að sú ákvörðun Norðmanna að hafna aðild að Evr- ópusambandinu myndi gera norræna samvinnu erfiðari. „Ég verð að við- urkenna að norræn samvinna, jafnt innan ESB sem á vettvangi Norður- landa, verður erfiðari eftir þessa ákvörðun," sagði Aho. Heikki Haavisto, utanríkisráð- herra Finnlands, sagði að efnahagur Noregs væri svo sterkur að hann teldi að Evrópusambandið þyrfti meira á Noregi að halda en Noregur Evrópusambandinu. Lítil breyting frá kosningunum ’ 7 2 Ósló. Morgunblaðið. ÞJÓÐARATKVÆÐIÐ í Noregi um aðild að Evrópusambandinu (ESB) leiddi í ljós margháttaðan klofning norsku þjóðarinnar, fyrst og fremst eftir bú- setu og atvinnu. Einna mesta athygli vekur, hversu lítill munur er á at- kvæðagreiðslunni nú og árið 1972 er Norðmenn greiddu atkvæði um hvort þeir ættu að ganga í Evrópubandalagið. Á landsbyggðinni greiddu 41% atkvæði með aðild en 59% höfnuðu í samtali við Morgunblaðið í gær sagðist Hans Engell hafa vonast eftir samþykki Norðmanna í þjóðar- atkvæðagreiðslunni, þó að niður- stöðurnar kæmu honum ekki á óvart. Nauðsynlegt væri að átta sig á hve efnahagslegar aðstæður Noregs væru ólíkar þvi sem gerðist á hinum Norðurlöndunum. Olíuhagnaðurinn hefði verið notaður í víðtækt styrkja- kerfi handa dreifbýlinu og því hefðu hin Norðurlöndin ekki efni á. Um norræna samvinnu sagði En- gell að hann áliti að nota ætti Norð- urlandaráð sem samnorrænt svið gagnvart ESB, ekki með því að að- laga Norðurlandaráð að ESB-mál- efnum, heldur nýta þann styrk, sem samvinnan og tengslin sem hún skapaði fælu í sér. Um áhrif niður- stöðunnar á ísland sagðist Engell telja að hún myndi draga úr Evrópu- umræðunni þar. Poul Nyrup Rasmussen forsætis- ráðherra Dana sagði í viðtali við danska útvarpið að úrslitin væru sér vissulega mikil vonbrigði. Sögulegur ósigur í sama streng tók Ingvar Carlsson forsætisráðherra Svía. Hann hefði vonast eftir Norðmönnum í norræna hópinn innan ESB, meðal annars til að styðja við norræna viðleitni þar til að draga úr atvinnuleysi. í samtali við .Morgunblaðið sagði Mats Hellström, sem bæði er Evr- ópuráðherra og norrænn samstarfs- ráðherra, um niðurstöðurnar að þær fylgdu leikreglum lýðræðisins. Sem áhugamaður um norræn málefni gæti hann hins vegar ekki annað en harmað niðurstöðurnar, því aðild Noregs hefði verið kærkominn stuðningur við norræn áhersluatriði innan ESB. Nú þyrftu norrænu að- ildarlöndin hins vegar að vinna því betur að því að koma þeim áleiðis, um leið og löndin þijú þyrftu að sinna hagsmunum Noregs og íslands innan ESB. Carl Bildt kallaði úrslitin söguleg- an ósigur Norðurlandanna, því með þeim hyrfi tækifærið til að safna Norðurlöndunum fjórum saman inn- henni. í borgum og stærri bæjum voru 55% fylgjandi aðild en 45% andvígir. Því minni sem bæimir eru, þeim mun meiri andstaða við aðild. Mest fylgi við aðild var í Bærum á Óslósvæðinu, 74,7%. Mest andstaðan var í Flakstad í N-Noregi, 93,7%. Meðal þeirra sem greiddu atkvæði gegn aðild, voru sjómenn í suður- hluta Noregs og er óhagstæðum samningi Norðmanna við ESB um makrílveiðar kennt um. Meiri and- staða var við aðild þar sem atvinnu- ástand er gott en þar sem atvinnu- leysis gætir og mikil andstaða var við aðild í landbúnaðarhéruðum í N-Noregi, þrátt fyrir að þau myndu njóta enn frekar góðs af styrkjum við landbúnað en suðurhéruðin. Helmingur hafði kosningarétt 1972 Þá vekur það athygli hversu lítill munur er á niðurstöðunni nú og í atkvæðagreiðslunni um aðild að EB árið 1972, því aðeins 53,3% kjósenda nú höfðu kosningarétt fyrir 22 árum. Þá greiddu 53,5% Norðmanna at- kvæði gegn aðild en 46,5% voru henni meðmæltir. í kjölfar atkvæðagreiðslunnar, sem fram fór 25. september 1972, sagði ríkisstjórn Verkamannaflokks- ins, undir forsæti Trygve Bratteli af sér og við tók þriggja flokka stjórn Kristilega þjóðarflokksins, Mið- flokksins og frjálslyndra. Forsætis- ráðherra varð Lars Korvald. Ríkis- stjórn hans hóf viðræður við EB um viðskiptasamning, sem náðist og tók hann gildi 1. júlí 1973.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.