Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Tónlistarskóli íslenska Suzuki-sambandsins Fullveldistónleikar í Fella- o g Hólakirkju Nýjar bækur • SÍGA UNAJÖRÐIN eftir Agötu Chrístieer komin út. Þýð- andi er Ragnar Jónsson. Í kynn- ingu segir: „Bókin Sígaunajörðin segir frá ungum Breta sem kynn- ist ríkri bandarískri stúlku. Þau verða ástfangin og ákveða að búa á stað sem kallast Sígaunajörðin. Þetta er dularfullur staður sem sagt er að bölvun hvíli á. Allt bendir til að eitthvað sé í uppsigl- ingu ... jafnvel morð. Hér er á ferðini mjög sérstök bók eftir Agötu Christie. “ Útgefandi er Skjaldborg hf. Bókin er 170 bls. og kostar 2.480 krón- ur. • ÚT er komið ritið Sparisjóður í 80 ár. Saga Sparísjóðs Olafs- fjarðar 1914-1994. Höfundur er Fríðrík G. Olgeirsson sagnfræð- ingur. Sparisjóður Ólafsfjarðar var stofnaður árið 1914 og var í fyrstu í hópi minnstu sparisjóða landsins. Með árunum óx stofnun- inni fískur um hrygg og á áttatíu ára afmælisdaginn er sjóðurinn í hópi stærstu sparisjóða landsins. Frá þessari þróun er greint í máli og myndum í ritinu. Ritið er 140 bls. í stóru broti með um eitt hundrað ljósmyndum og línuritum, þar af er meira en helmingur þeirra litmyndir. Útgefandi ritsins er Sparisjóður Ólafsfjarðar. Bókin er unnin í Odda hf. BOKMENNTIR Náttúrufræði VILLT ÍSLENSK SPEN- DÝR Páll Hersteinsson og Guttormur Sigbjamarson ritstýrðu. Hið ís- lenska náttúrufræðifélag og Land- vemd, 1993. VIÐHORF okkar til villtra spen- dýra þ.e. refa, hvala, sela, minka, hreindýra og músa, hafa mótast af því hvernig þessi dýr snerta lífsaf- komu okkar. Viðhorfin hafa hingað til byggst áfremur barnalegum hug- myndum um þessi dýr og ofurein- földun á samhengi náttúrunnar. Dýr sem éta físk eru sett í flokk með óvinum og talin ógna efnahag- inum. Dýrunum eru gerðar upp sakir, haldið uppi áróðursherferðum gegn þeim, og gengist er fyrjr út- rýmingaraðgerðum. Þannig ríkir ófriðarástand. Lagt er kapp á eyð- ingu refa, þótt vitað sé, að tjón af þeirra völdum sé óverulegt. Staðið er fyrir fækkun sela, þótt engin lík- indi séu á, að slíkt leiði til fækkun- ar hringorma í físki. Hart er geng- TÓNLISTARSKÓLI íslenska Suzuki-sambandsins heldur upp á fullveldisdaginn 1. desember með tónleikum í Fella- og Hóla- kirkju kl. 15. Eingöngu verður flutt íslensk tónlist. Efnisskráin er fjölbreytt, ið eftir því að fá að veiða hvali til að viðhalda jafnvægi í hafinu, jafn- vægi, sem líklega er ekki til nema í kolli okkar mannanna. Ofurkapp er lagt á útrýmingu minks, mest vegna þess hve blóðþyrstur minkur- inn er, og til að votlendisfuglunum okkar hætti að fækka. Væri kannski betra ráð að verja fjármun- unum til að moka ofan í framræslu- skurðina? Sú hvöt er afar rík að grípa til byssunnar þegar leysa skal vanda- mál er tengjast villtum spendýrum. Er það miður því aðrar aðferðir duga oft betur og flest vandamálin virðast byggð á misskilningi eða skorti á yfirsýn. Á síðari árum hefur, þrátt fyrir allt, orðið nokkur hugarfarsbreyt- ing. Stafar hún einkum af þrýstingi frá umhverfísverndarfólki. Sá samleiks- og einleiksatriði verða flutt á selló, píanó og fiðlu, strengjakvartettar leika og strengjasveit nemenda kemur fram. Nemendurnir sem fram koma er á aldrinum 7-15 ára. Flutt verða verk eftir Elías Dav- þrýstingur hefur leitt til rannsókna, sem sjálfar leiða til enn frekari breytinga á hugarfari okkar. Bók sú, sem hér er fjallað um, endurspeglar einmitt þá hugarfars- breytingu sem orðið hefur. Bókin Villt íslensk spendýr er afrakstur ráðstefnu sem Líffræðifélag íslands hélt árið 1991, en þar fluttu 16 höfundar 24 erindi um rannsóknir síftar á villtum spendýrum. í bók- inni eru 22 kaflar eftir nær jafn marga höfunda og spanna þeir flestar þær tegundir villtra spen- dýra sem fínnast hér á landi og í hafínu í kring, — allt frá hagamús- um til steypireyða. Eins og verða vill um ráðstefnu í fagfélagi er umfjöllunin nokkuð fræðileg á köflum, en ritstjórar hafa leitast við að fylla myndina með almennum köflum af léttara KVIKMYNPIR Saga-bíó Kominn í herinn „In the Army Now“ ★ Vi Leikstj&ri: Daniel Petrie. Aðalhlutvcrk: Pauly Shore, Lory Petty, David Alan Grier og Andy Dick. BANDARÍSKA gamanmyndin Kominn í herinn gæti vel virkað sem kynningarmynd fyrir bandaríska herinn. Tveir voða vitlausir skrá sig til herþjónustu og mannast í henni svo um munar og drýgja hetjudáðir í einhveiju eyðimerkurstríðinu ná- lægt Líbýu. Herinn hefur breytt þeim úr ræflum í Rambóa og það er það eina sem er ekki brandari í allri myndinni. Persaflóastríðið virðist hafa breytt mjög ímynd hers- ins vestra til hins betra ef eitthvað er að marka þessa mynd. Reyndar er ekki margt fyndið í Kominn í herinn og það vantar tals- vert upp á frumleikann. Hún er eins og snýtt útúr „Stripes", annarri og betri herkómedíu. Þarna er atriðið íðsson, Jón Leifs, Jón Múla Árna- son, Gunnar Reyni Sveinsson, Hafliða Hallgrímsson, Sigfús Halldórsson, Sigvalda Kaldalóns og Friðrik Bjarnason. Tónleikarnir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis. tagi. Úr verður bók sem hefur mik- ið upplýsingagildi og gefur ágæta yfirsýn yfir þekkingu á þessum löndum okkar. Munar þar mestu að fá innsýn í nýjustu rannsóknir á villtum íslenskum spendýrum. Af einstökum viðfangsefnum bókarinnar má nefna kafla um tóf- una, hreindýr, hvalrannsóknir, ís- lenska seli, minkinn og nagdýr á íslandi. Þá eru kaflar um dýr sem flækjast til landsins frá nálægum löndum og höfum, t.d. leðurblökur, hvítabirni, rostunga og íshafsseli. Víða í bókinni eru stuttir, innramm- aðir, hálfrar til einnar síðu kaflar sem fjalla um afmörkuð atriði úr lífi dýranna. Þessir kaflar og ítar- legar heimildaskrár auka gildi bók- arinnar sem fróðleiksnámu. Bókin er vel úr garði gerð og hin eigulegasta. Villur eru ekki áber- andi, ef undan er skilinn texti und- ir litmynd af sæljóni, sem sagt er vera kampselur. Kápuhönnun hefði mátt heppnast betur, en það er gömul saga, að útlitið skiptir ekki öllu máli, heldur er það innihaldið sem allt veltur á þegar upp er staðið. þar sem hinir hárprúðu nýliðar fara til rakarans, þjálfí er btjálaður ösk- urapi, armbeyjubrandarar koma með reglulegu millibili og þar fram eftir götunum. Þetta er herbúðalífið eins og við þekkjum það úr ótal myndum og þessum kvikmynda- gerðarmönnum tekst ekki að gera það neitt sérlega fyndið þrátt fyrir ýmsa tilburði. Til þess hefur efnið gengið of oft í gegnum endur- vinnslu. Pauly Shore heitir sá sem fer með aðalhlutverkið og virðist hafa sérhæft sig í minniháttar gaman- myndum eins og þessari. Hann hef- ur í raun eina almennilega hlutverk- ið og veldur því ágætlega sem brandarakall er leiðir um síðir fé- laga sína í gegnum eyðimörkina og bjargar hernum ef ekki hreinlega heimsbyggðinni allri. Það má hlægja að einstöku atriði á stangli og það er þekkilegur grín- andi yfir myndinni en hún er ákaf- lega lítils virði nema fyrir banda- ríska herinn. Arnaidur Indriðason Nýjar bækur • BRYNJA ogErlingur- fyrir opnum tjöldum, nefn- ist ný bók. Bók þessi er skrif- uð af leikhúshjónunum Brynju Benediktsdóttur og Erlingi Gíslasyni í félagi við Ingunni Þórunni Magnús- dóttur. Brynja og Eríingur hafa sett svip á íslenskt leik- húslíf um áratugaskeið, sem leikarar og leikstjórar en hafa ekki síður átt sér viðburðaríkt líf utan leikhússins. Meðal þess sem sagt er frá í bók- inni er Inúk ævintýrið, leikfé- lagið Gríma, sigrar og ósigr- ar í atvinnuleikhúsum sem í einkalífi, uppfærslan á Hár- inu, kynni af Dario Fo og Vaclav Havel og fjölmörgum íslenskum samtíðarmönnum, vinnu að tjaldbaki og sameig- inlegum verkefnum. Útgefandi erMál ogmenn- ing. Bókin er 287 bls. og unnin í Odda hf. Kápu hann- aði Sigutjón Jóhannsson. Verð 3.480 krónur. • AÐ SJÁLFSÖGÐU Svan- ur eftir Anders Jakobsson og Sören Olsson er komin út. Þýðandi er Jón Daníelsson. Þetta er þriðja bókin um Svan. í þessari bók lýkur Svanur öðrum bekk, en er ekki viss um að hann vilji fara í þann þriðja. Hann er nefnilega búinn að læra flest sem hann þarf að kunna og í þriðja bekk er sennilega bara upprifjun. „Þessi bók kitlar hláturtaugarnar ekki síður en hinbar fýrri, en bæk- urnar um grallarann Svan eru eftir sömu höfunda og metsölubækurnar um Bert, “ segir í kynningu útgefanda. Útgéfandi er Skjaldborg. Bókin er 134 bls. Verð 1.280 krónur. • ENN fleirí athuganir Berts eftir Anders Jacobs- son og Sören Olsson. Þýð- andi er Jón Daníelsson. Þetta er fjórða bókin um Bert. „Eins og venjulega eru það stelpurnar sem mest ber á í huga Berts og dagbókinni hans. Annars er ekki svo að skilja að hann hugsi bara um stelpur. Hann hugsar líka um skvísur. Ef hann bara fengi nú eins og eitt ástarbréf“... segir í kynningu útgefanda. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 250 bls. ogkostar 1.380 krónur. • LÍSA Dóra súpersterka heitir ný barnabók eftir Þorf- inn Sigurgeirsson. Þetta er fyrsta bók Þorfinns Sigurðs- sonar sem bæði semur texta og teiknar myndir. í fréttatil- kynningu segir að Lísa Dóra sé skemmtileg stelpa sem bíð- ur óþreyjufull eftir jólunum. I tilhlökkuninni dreymir hana ýmis ævintýri, m.a. að hún sé prinsesssa í stórri höll og dansi við fallegan prins. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er24 bls. ogkostar 1.280 kr. • NANCY-bækumar: Dularfulla sumnarhúsið eftir Carolyn Keene er kom- in út. Þýðandi er Gunnar Sigurjónsson. í kynningu segir: „Meginástæðan fyri vinsældum Nancy-bókanna er spennan sem helst á hverri síðu allt til loka.“ Það hafa verið gefnar út 50 bækur um Nancy og þær selst í milljón- um eintaka. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 108 bls. og kostar 1.280 krónur. BH, stæröir 32-40, skálar AA-DD. Buxur S-XL „Wonderbra“, stærðir 34-38, skálar AA-B. Brái fuglinn, Borgarkringlunni, sími 887488. Póstsendum. j - kjarni málsins! Frá hagamúsum til steypireyða Arni Einarsson Allir í herinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.