Morgunblaðið - 30.11.1994, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tónlistarskóli íslenska Suzuki-sambandsins
Fullveldistónleikar
í Fella- o g Hólakirkju
Nýjar bækur
• SÍGA UNAJÖRÐIN eftir
Agötu Chrístieer komin út. Þýð-
andi er Ragnar Jónsson. Í kynn-
ingu segir: „Bókin Sígaunajörðin
segir frá ungum Breta sem kynn-
ist ríkri bandarískri stúlku. Þau
verða ástfangin og ákveða að búa
á stað sem kallast Sígaunajörðin.
Þetta er dularfullur staður sem
sagt er að bölvun hvíli á. Allt
bendir til að eitthvað sé í uppsigl-
ingu ... jafnvel morð. Hér er á
ferðini mjög sérstök bók eftir
Agötu Christie. “
Útgefandi er Skjaldborg hf. Bókin
er 170 bls. og kostar 2.480 krón-
ur.
• ÚT er komið ritið Sparisjóður
í 80 ár. Saga Sparísjóðs Olafs-
fjarðar 1914-1994. Höfundur er
Fríðrík G. Olgeirsson sagnfræð-
ingur. Sparisjóður Ólafsfjarðar
var stofnaður árið 1914 og var í
fyrstu í hópi minnstu sparisjóða
landsins. Með árunum óx stofnun-
inni fískur um hrygg og á áttatíu
ára afmælisdaginn er sjóðurinn í
hópi stærstu sparisjóða landsins.
Frá þessari þróun er greint í máli
og myndum í ritinu.
Ritið er 140 bls. í stóru broti
með um eitt hundrað ljósmyndum
og línuritum, þar af er meira en
helmingur þeirra litmyndir.
Útgefandi ritsins er Sparisjóður
Ólafsfjarðar. Bókin er unnin í
Odda hf.
BOKMENNTIR
Náttúrufræði
VILLT ÍSLENSK SPEN-
DÝR
Páll Hersteinsson og Guttormur
Sigbjamarson ritstýrðu. Hið ís-
lenska náttúrufræðifélag og Land-
vemd, 1993.
VIÐHORF okkar til villtra spen-
dýra þ.e. refa, hvala, sela, minka,
hreindýra og músa, hafa mótast af
því hvernig þessi dýr snerta lífsaf-
komu okkar. Viðhorfin hafa hingað
til byggst áfremur barnalegum hug-
myndum um þessi dýr og ofurein-
földun á samhengi náttúrunnar.
Dýr sem éta físk eru sett í flokk
með óvinum og talin ógna efnahag-
inum. Dýrunum eru gerðar upp
sakir, haldið uppi áróðursherferðum
gegn þeim, og gengist er fyrjr út-
rýmingaraðgerðum. Þannig ríkir
ófriðarástand. Lagt er kapp á eyð-
ingu refa, þótt vitað sé, að tjón af
þeirra völdum sé óverulegt. Staðið
er fyrir fækkun sela, þótt engin lík-
indi séu á, að slíkt leiði til fækkun-
ar hringorma í físki. Hart er geng-
TÓNLISTARSKÓLI íslenska
Suzuki-sambandsins heldur upp
á fullveldisdaginn 1. desember
með tónleikum í Fella- og Hóla-
kirkju kl. 15.
Eingöngu verður flutt íslensk
tónlist. Efnisskráin er fjölbreytt,
ið eftir því að fá að veiða hvali til
að viðhalda jafnvægi í hafinu, jafn-
vægi, sem líklega er ekki til nema
í kolli okkar mannanna. Ofurkapp
er lagt á útrýmingu minks, mest
vegna þess hve blóðþyrstur minkur-
inn er, og til að votlendisfuglunum
okkar hætti að fækka. Væri
kannski betra ráð að verja fjármun-
unum til að moka ofan í framræslu-
skurðina?
Sú hvöt er afar rík að grípa til
byssunnar þegar leysa skal vanda-
mál er tengjast villtum spendýrum.
Er það miður því aðrar aðferðir
duga oft betur og flest vandamálin
virðast byggð á misskilningi eða
skorti á yfirsýn.
Á síðari árum hefur, þrátt fyrir
allt, orðið nokkur hugarfarsbreyt-
ing. Stafar hún einkum af þrýstingi
frá umhverfísverndarfólki. Sá
samleiks- og einleiksatriði verða
flutt á selló, píanó og fiðlu,
strengjakvartettar leika og
strengjasveit nemenda kemur
fram. Nemendurnir sem fram
koma er á aldrinum 7-15 ára.
Flutt verða verk eftir Elías Dav-
þrýstingur hefur leitt til rannsókna,
sem sjálfar leiða til enn frekari
breytinga á hugarfari okkar.
Bók sú, sem hér er fjallað um,
endurspeglar einmitt þá hugarfars-
breytingu sem orðið hefur. Bókin
Villt íslensk spendýr er afrakstur
ráðstefnu sem Líffræðifélag íslands
hélt árið 1991, en þar fluttu 16
höfundar 24 erindi um rannsóknir
síftar á villtum spendýrum. í bók-
inni eru 22 kaflar eftir nær jafn
marga höfunda og spanna þeir
flestar þær tegundir villtra spen-
dýra sem fínnast hér á landi og í
hafínu í kring, — allt frá hagamús-
um til steypireyða.
Eins og verða vill um ráðstefnu
í fagfélagi er umfjöllunin nokkuð
fræðileg á köflum, en ritstjórar
hafa leitast við að fylla myndina
með almennum köflum af léttara
KVIKMYNPIR
Saga-bíó
Kominn í herinn „In the
Army Now“ ★ Vi
Leikstj&ri: Daniel Petrie. Aðalhlutvcrk:
Pauly Shore, Lory Petty, David Alan Grier
og Andy Dick.
BANDARÍSKA gamanmyndin
Kominn í herinn gæti vel virkað sem
kynningarmynd fyrir bandaríska
herinn. Tveir voða vitlausir skrá sig
til herþjónustu og mannast í henni
svo um munar og drýgja hetjudáðir
í einhveiju eyðimerkurstríðinu ná-
lægt Líbýu. Herinn hefur breytt
þeim úr ræflum í Rambóa og það
er það eina sem er ekki brandari í
allri myndinni. Persaflóastríðið
virðist hafa breytt mjög ímynd hers-
ins vestra til hins betra ef eitthvað
er að marka þessa mynd.
Reyndar er ekki margt fyndið í
Kominn í herinn og það vantar tals-
vert upp á frumleikann. Hún er eins
og snýtt útúr „Stripes", annarri og
betri herkómedíu. Þarna er atriðið
íðsson, Jón Leifs, Jón Múla Árna-
son, Gunnar Reyni Sveinsson,
Hafliða Hallgrímsson, Sigfús
Halldórsson, Sigvalda Kaldalóns
og Friðrik Bjarnason.
Tónleikarnir eru öllum opnir
og aðgangur er ókeypis.
tagi. Úr verður bók sem hefur mik-
ið upplýsingagildi og gefur ágæta
yfirsýn yfir þekkingu á þessum
löndum okkar. Munar þar mestu
að fá innsýn í nýjustu rannsóknir
á villtum íslenskum spendýrum.
Af einstökum viðfangsefnum
bókarinnar má nefna kafla um tóf-
una, hreindýr, hvalrannsóknir, ís-
lenska seli, minkinn og nagdýr á
íslandi. Þá eru kaflar um dýr sem
flækjast til landsins frá nálægum
löndum og höfum, t.d. leðurblökur,
hvítabirni, rostunga og íshafsseli.
Víða í bókinni eru stuttir, innramm-
aðir, hálfrar til einnar síðu kaflar
sem fjalla um afmörkuð atriði úr
lífi dýranna. Þessir kaflar og ítar-
legar heimildaskrár auka gildi bók-
arinnar sem fróðleiksnámu.
Bókin er vel úr garði gerð og hin
eigulegasta. Villur eru ekki áber-
andi, ef undan er skilinn texti und-
ir litmynd af sæljóni, sem sagt er
vera kampselur.
Kápuhönnun hefði mátt heppnast
betur, en það er gömul saga, að
útlitið skiptir ekki öllu máli, heldur
er það innihaldið sem allt veltur á
þegar upp er staðið.
þar sem hinir hárprúðu nýliðar fara
til rakarans, þjálfí er btjálaður ösk-
urapi, armbeyjubrandarar koma
með reglulegu millibili og þar fram
eftir götunum. Þetta er herbúðalífið
eins og við þekkjum það úr ótal
myndum og þessum kvikmynda-
gerðarmönnum tekst ekki að gera
það neitt sérlega fyndið þrátt fyrir
ýmsa tilburði. Til þess hefur efnið
gengið of oft í gegnum endur-
vinnslu.
Pauly Shore heitir sá sem fer
með aðalhlutverkið og virðist hafa
sérhæft sig í minniháttar gaman-
myndum eins og þessari. Hann hef-
ur í raun eina almennilega hlutverk-
ið og veldur því ágætlega sem
brandarakall er leiðir um síðir fé-
laga sína í gegnum eyðimörkina og
bjargar hernum ef ekki hreinlega
heimsbyggðinni allri.
Það má hlægja að einstöku atriði
á stangli og það er þekkilegur grín-
andi yfir myndinni en hún er ákaf-
lega lítils virði nema fyrir banda-
ríska herinn.
Arnaidur Indriðason
Nýjar bækur
• BRYNJA ogErlingur-
fyrir opnum tjöldum, nefn-
ist ný bók. Bók þessi er skrif-
uð af leikhúshjónunum
Brynju Benediktsdóttur og
Erlingi Gíslasyni í félagi við
Ingunni Þórunni Magnús-
dóttur. Brynja og Eríingur
hafa sett svip á íslenskt leik-
húslíf um áratugaskeið, sem
leikarar og leikstjórar en hafa
ekki síður átt sér viðburðaríkt
líf utan leikhússins. Meðal
þess sem sagt er frá í bók-
inni er Inúk ævintýrið, leikfé-
lagið Gríma, sigrar og ósigr-
ar í atvinnuleikhúsum sem í
einkalífi, uppfærslan á Hár-
inu, kynni af Dario Fo og
Vaclav Havel og fjölmörgum
íslenskum samtíðarmönnum,
vinnu að tjaldbaki og sameig-
inlegum verkefnum.
Útgefandi erMál ogmenn-
ing. Bókin er 287 bls. og
unnin í Odda hf. Kápu hann-
aði Sigutjón Jóhannsson.
Verð 3.480 krónur.
• AÐ SJÁLFSÖGÐU Svan-
ur eftir Anders Jakobsson og
Sören Olsson er komin út.
Þýðandi er Jón Daníelsson.
Þetta er þriðja bókin um
Svan. í þessari bók lýkur
Svanur öðrum bekk, en er
ekki viss um að hann vilji
fara í þann þriðja. Hann er
nefnilega búinn að læra flest
sem hann þarf að kunna og
í þriðja bekk er sennilega
bara upprifjun. „Þessi bók
kitlar hláturtaugarnar ekki
síður en hinbar fýrri, en bæk-
urnar um grallarann Svan
eru eftir sömu höfunda og
metsölubækurnar um Bert, “
segir í kynningu útgefanda.
Útgéfandi er Skjaldborg.
Bókin er 134 bls. Verð 1.280
krónur.
• ENN fleirí athuganir
Berts eftir Anders Jacobs-
son og Sören Olsson. Þýð-
andi er Jón Daníelsson.
Þetta er fjórða bókin um
Bert. „Eins og venjulega eru
það stelpurnar sem mest ber
á í huga Berts og dagbókinni
hans. Annars er ekki svo að
skilja að hann hugsi bara um
stelpur. Hann hugsar líka um
skvísur. Ef hann bara fengi
nú eins og eitt ástarbréf“...
segir í kynningu útgefanda.
Útgefandi er Skjaldborg.
Bókin er 250 bls. ogkostar
1.380 krónur.
• LÍSA Dóra súpersterka
heitir ný barnabók eftir Þorf-
inn Sigurgeirsson. Þetta er
fyrsta bók Þorfinns Sigurðs-
sonar sem bæði semur texta
og teiknar myndir. í fréttatil-
kynningu segir að Lísa Dóra
sé skemmtileg stelpa sem bíð-
ur óþreyjufull eftir jólunum.
I tilhlökkuninni dreymir hana
ýmis ævintýri, m.a. að hún
sé prinsesssa í stórri höll og
dansi við fallegan prins.
Útgefandi er Skjaldborg.
Bókin er24 bls. ogkostar
1.280 kr.
• NANCY-bækumar:
Dularfulla sumnarhúsið
eftir Carolyn Keene er kom-
in út. Þýðandi er Gunnar
Sigurjónsson. í kynningu
segir: „Meginástæðan fyri
vinsældum Nancy-bókanna
er spennan sem helst á hverri
síðu allt til loka.“ Það hafa
verið gefnar út 50 bækur um
Nancy og þær selst í milljón-
um eintaka.
Útgefandi er Skjaldborg.
Bókin er 108 bls. og kostar
1.280 krónur.
BH, stæröir 32-40, skálar AA-DD.
Buxur S-XL
„Wonderbra“, stærðir 34-38, skálar AA-B.
Brái fuglinn, Borgarkringlunni, sími 887488. Póstsendum. j
- kjarni málsins!
Frá hagamúsum
til steypireyða
Arni Einarsson
Allir í herinn