Morgunblaðið - 07.12.1994, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Heimta að Serbíu
verðiumbunað
Segir mannréttindi sums staðar hundsuð
Búdapest, Saríyevo. Reuter.
TILRAUNIR Evrópuríkja til að binda enda á ófriðinn í Bosníu virðast vera
í hnút eftir að ekkf náðist einu sinni samstaða á fundi 53 ríkja á Ráð-
stefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu, RÖSE, í Búdapest um yfir-
lýsingu þar sem hvetja átti til vopnahlés í átökum Bosníu-Serba og músl-
ima í Bihac-borg. Rússar beittu neitunarvaldi gegn yfírlýsingunni, sögðu
að ekki hefði verið nóg komið til móts við Serbíu/Svartfjallaland sem
hefur hætt vopnastuðningi við þjóðbræðurna í Bosníu. Frakkar segja að
verði engar framfarir í friðarviðræðum á næstu vikum geti farið svo að
þeir kalli heim gæsluliða sína í liði Sameinuðu þjóðanna í Bosníu.
Helmut Kohl Þýskalandskansalri
og fleiri ráðamenn söfnuðust saman
í litla hópa á göngum ráðstefnu-
hússins í Búdapest og ræddust við,
þungbúnir á svip, er ljóst var að
ekki næðist samstaða. Kohl reyndi
m.a. að fá menn til að sættast á
að aðildarþjóðirnar réðu því hvort
þær undirrituðu lokayfirlýsinguna
en tillagan hlaut ekki hljómgrunn.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hélt heimleiðis þegar á mánudag
og Borís Jeltsín Rússlandsforseti
snemma í gærmorgun. Andrej Koz-
yrev, utanríkisráðherra Rússa,
reyndi að draga úr ótta manna við
að sambúð Rússa og Vesturveld-
anna myndi versna mjög vegna
harðra deilna á mánudag um út-
þenslu Atlantshafsbandalagsins,
NATO, til austurs. Hann sagði í
gær að engin hætta væri á nýju
köldu stríði.
Friðargæsla í
Nagorno-Karabak
Samkomulag náðist um að RÖSE
myndi senda um 3.000 manna frið-
argæslulið til héraðsins Nagomo-
Karabak, þar sem Armenar og
Azerar beijast um yfirráð. Skilyrðið
er að raunverulegt vopnahlé hafi
komist á og viðræður séu hafnar
um friðsamlega lausn; ljóst er að
aðildarríkin vilja ekki að sagan frá
BosnSu og örlög friðargæslu SÞ þar
endurtaki sig.
Alain Juppé, utanríkisráðherra
Frakka, lagði í gær áherslu á að
hæfi Bandaríkjaþing á ný umræður
um að aflétta vopnasölubanni á
Bosníu og herða loftárásir á Bosníu-
Serba myndi það auka líkurnar á
að gæsluliðið yrði kallað á brott.
Milan Gervo, háttsettur liðsforingi
í her Bosníu-Serba, greindi í gær
frá þeim skilyrðum sem uppfylla
yrði ef liðsmenn SÞ ættu á ný að
fá hindrunarlaust að gegna störfum
sínum í Bosníu. Mikilvægast væri
að SÞ tryggðu með ótvíræðum
hætti að ekki yrði um frekari loft-
árásir flugvéla Atlantshafsbanda-
lagsins NATO, að ræða.
Talsmenn SÞ sögðu að Serbar
hefðu veitt leyfí fyrir flutningum
hjálpargagna til múslimaborgarinn-
ar Srebrenica þar sem alvarleg neyð
ríkir, borgarbúar em sagðir beijast
um þann mat sem eftir er. Enn
munu geisa harðir bardagar í Bihac
og nágrannabyggðum borgarinnar.
Reuter
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra svalar þorstanum að loknu
ávarpi sínu á fundiinum í Ungverjalandi í gær.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
á leiðtogafundi RÖSE
Ahersla á sam-
vinnu Evrópu
og N-Ameríku
Statoil sagt fjáxmagna
veiðar í Smugunni
Þórshöfn. Morgunblaðið.
SAMKVÆMT færeyska blaðinu
Sosialurin hefur norska olíufyrir-
tækið Statoil um langt skeið fjár-
magnað óbeint rekstur erlendra
skipa, sem veiða meðal annars í
Smugunni.
Hefur blaðið fengið í hendur af-
rit af reikningum sem sýna að
Statoil eigi að greiða alls 76.000
færeyskar kr. eða tæpar 800.000
ísl. kr. fyrir salt. Er reikningurinn
greiddur fyrir „Atlantic Norma“
fyrirtækið í Belize City, höfuðborg
Mið-Ameríkuríkisins Belize.
Einn af heimildarmönnum blaðs-
ins fullyrðir að um langa hríð hafí
það verið viðtekin venja að Statoil
hafi fjármagnað hluta af rekstri
skipa sem sigla undir hentifána,
einnig þeirra sem veiði í Smug-
unni. „Það er rétt að við höfum
veitt lán til þessara skipa, rétt eins
og við höfum veitt öðrum viðskipta-
vinum okkar. En við höfum nú lát-
ið af samstarfi við þessi skip og
fyrirtæki utan Færeyja hafa tekið
yfir,“ segir Soren Christiansen, for-
stjóri Statoil í Færeyjum.
Efasemdir eru hins vegar um
hvort fullyrðingar Christiansen eru
með öllu réttar, þar sem Sosialurin
birtir reikninga sem dagsettir eru
1. desember 1994, fyrir tæpri viku.
an hluta aldarinnar“, sagði Davíð.
Hann sagði að tekist hefði að
skilgreina það hlutverk sem RÖSE
myndi geta leikið í því að tryggja
öryggi og frið í Evrópu. Nokkur
árangur hefði náðst í að ákveða
verkefni á sviði friðargæslu en
þess hefði þó verið vænst að hann
yrði meiri.
Lýðræði, réttaröryggi
og mannréttindi
Forsætisráðherra sagði að ætti
árangur að nást yrðu aðildaríkin
að eiga sameiginlega hagsmuni,
það væri ljóst en ekki væri kannski
jafn ljóst að þau yrðu að deila
sama gildismati.
Ríkin hefðu heitið því að efla
nokkur grundvallargildi, fyrst og
fremst lýðræði, réttaröryggi og
virðingu fyrir mannréttindum.
Þessi gildi, sem hefðu verið undir-
staða starfs RÖSE, væru leiðarljós
sem hefðu bein áhrif á stöðugleika
innanlands og stefnu ríkisstjórna.
„Þau hafa samt sem áður ekki
náð tryggri fótfestu alls staðar í
Evrópu. Óðru nær, þau eru illa
hundsuð í sumum ríkjum og eiga
erfitt uppdráttar í öðrum. Ef tak-
ast á að ná markmiðum RÖSE
verður það ávallt að vera ótvírætt
að þau gildi, sem ráðstefnan bygg-
ist á, séu almenn og algild og all-
ir skuli halda þau í heiðri."
Reuter
Fagnaðaii-
fundur
VINIR og ættingjar Peggy Grina-
ker fögnuðu henni vel þegar hún
kom heim til Jóhannesarborgar í
Suður-Afríku í gær en Peggy var
með ítalska skemmtiferðaskipinu
Achille Lauro í hinstu ferð þess.
Fyrir réttri viku kom upp eldur
í því úti af ströndum Sómalíu og
tveimur dögum síðar sökk það í
saltan mar.
DAVÍÐ ODDSSON forsætisráð-
herra lagði áherslu á mikilvægi
tengsla Evrópu við Norður-Amer-
íku í ávarpi sínu á síðari degi fund-
ar Ráðstefnunnar um öryggi og
samvinnu í Evrópu, RÖSE, í Búda-
pest í gær. Hann sagði ljóst að
fyrirhugaður arftaki ráðstefnunn-
ar, Samtökin um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu, myndu aðeins fá
þann styrk til að takast á við verk-
efni sín sem aðildarríkin væru fús
að láta samtökunum í té.
Forsætisráðherra sagðist koma
frá ríki við Atlantshaf, þess vegna
vildi hann í upphafi vilja minna á
mikilvægi Atlantshafssamvinn-
unnar fyrir öryggi og stöðugleika
í Evrópu.
Hann sagði eðlilegt að áhugi
manna hefði einkum beinst að
þeirri geijun sem endalok kalda
stríðsins hefðu valdið á meginlandi
Evrópu.
Lærdómar dregnir
af sögunni
,,Samt er okkur ljóst að geta
RÖSE er ekki síst undir því komin
hvernig ráðstefnunni tekst að
þætta saman málefni Evrópu allr-
ar og ríkjanna handan Atlants-
hafsins. Þessi grundvöllur RÖSE
var ekki einvörðungu lagður af
nauðsyn eftir kalda stríðið heldur
á hann rætur í lærdómi sem menn
hafa dregið af sögu Evrópu mest-
Ríkisstjórakosningar á Taiwan
Þjóðeniissiiin-
ar signiðu
Taipei. Reuter.
FLOKKUR þjóðernissinna á Taiw-
an, sem er í ríkisstjóm, vann mikil-
vægan kosningasigur á laugardag
er frambjóðandi flokksins varð
hlutskarpastur í ríkisstjórakosn-
ingum. Er litið á það sem ótvíræð-
an stuðning við þá stefnu stjómar-
innar að sameinast Kína þegar
kommúnistar hafi látið af völdum.
Endanleg úrslit urðu þau að
James Soong, frambjóðandi flokks
þjóðernissinna, hlaut 56,3% at-
kvæða í ríkisstjórakosningunum
en Chen Ding-nan, frambjóðandi
Lýðræðislega framfaraflokksins
(DPP), 38,8%. Flokkur Chens hef-
ur barist fyrir fullu sjálfstæði og
er andvígur sameiningu við Kína.
Tárin streymdu
Ríkisstjóri hefur umtalsverð völd á
Taiwan og þetta er æðsta embætt-
ið sem landsmenn hafa nokkru
sinni fengið að kjósa til.
Soong, ser er 52 ára, flutti hjart-
næma ræðu þegar sigur hans lá
fyrir. Streymdu tárin niður kinn-
amar er hann ítrekaði stefnu
stjórnarflokksins um að leitast eft-
ir því að Taiwan og Kína yrðu
sameinuð þegar íbúar á megin-
landinu hefðu snúið baki við
kommúnisma.
Töpuðu í Taipei
Þjóðernissinnar töpuðu hins
vegar í kosningu um borgarstjóra
höfuðborgarinnar Taipei þar sem
frambjóðandi DPP hafði sigur.
Flokkurinn tapaði jafnframt meiri-
hluta í borgarstjórninni en er þó
áfram langstærstur borgarstjórn-
arflokkar.na.
Þjóðernissinnar fá borgarstjóra
í næststærstu borg landsins, Kao-
hsiung, og halda meirihluta í
borgarstjórninni.