Morgunblaðið - 07.12.1994, Síða 56
V í K
G
L®TTt
alltaf á
Miðvikudögnm
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Réðust á rúmlega 50 ára konu í bílskýli og rændu 30 þúsund krónum
Festu höfuð
konunnarí
bílglugga
ÞRJÚ ungmenni réðust á rúmlega
fimmtuga konu í bílskýli á Skelja-
granda uppúr hádegi í gær. Snúið
var upp á handlegg konunnar, rifið
í hár hennar og höfuðið fest í
glugga á bíl hennar. Árásarmenn-
irnir þrifu af henni seðlaveski með
30.000 kr. og hlupu á brott.
Konan heitir Margrét Guðna-
dóttir og var á leiðinni út í banka
til að greiða reikninga með pen-
ingunum. „Eg hafði verið á 14 tíma
næturvakt og ætlaði að skreppa í
bankann til að greiða reikninga
áður en ég legði mig. Fyrst þurfti
hins vegar að færa dekk úr skott-
inu og ég var dálitla stund þarna
að athafna mig við bílinn áður en
__ komið var að mér, einn að framan
og tveir aftan frá. Þeir kipptu í
hárið á mér, sneru upp á hándlegg-
inn og þegar ég reyndi að sparka
aftur fyrir mig fékk ég blótsyrði
yfir mig.
Skyndilega var einn af árásar-
mönnunum kominn inn í bílinn og
sagði: „Látum hana hafa það.“ Síð-
an rúlluðu þeir glugganum niður
og festu höfuðuð á mér þegar þeir
rúlluðu upp aftur. Þeir hrifsuðu svo
peningaveskið sem ég hélt á og
hlupu í burtu.
Atburðarásin var mjög hröð og
það var ekki fyrr en ég kom aftur
upp í íbúðina áð sjokkið kom. Ég
titraði öll, skalf og nötraði, og há-
grét,“ sagði Margrét og bætti við
að árásarmennirnir hlytu að hafa
setið fyrir sér á bakvið bílinn.
Hún sagði að mennirnir hefðu
verið hávaxnir, líklega yfir 1,80
m, tveir piltar og stúlka eða ungl-
ingur. Þremenningarnir hafi verið
í svörtum hermannaklossum, dökk-
um buxum og úlpum. Þeir höfðu
brett prjónahúfur niður á andlitið.
Bílskýli séu lokuð
Margrét rifjaði upp að þegar hún
og eiginmaður hennar hafi byrjað
að nota bílskýlið ekki alls fyrir
löngu hafi hún sagt við hann að á
svona stað væri ekki langt í hroll-
inn. Hann hefði þá sagt við hana
að hún hefði greinilega séð of marg-
ar bíómyndir. En því miður væri
ofbeldi á borð við þetta orðið alltof
algengt í Reykjavík. Margrét hvatti
fólk til að gæta þess að hafa bíl-
skýli ekki opin.
Árásarmennimir eru ófundnir.
Lögregla fann hins vegar seðla-
veskið tómt í bílskýlinu skömmu
eftir atburðinn.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Lemstruð eftir átökin
MARGRÉT Guðnadóttir er með marbletti á kinn og hálsi og
rispu á handlegg eftir átökin við þrjá árásarmenn, sem rændu
hana við heimili hennar um bjartan dag.
Ríkisspít-
alar fá
aukafjár-
veitingu
RÍKISSPÍTALAR gengu í gær frá
samkomulagi við heilbrigðis- og
fjármálaráðherra um aukaijárveit-
ingu vegna yfírstandandi árs og við-
bótarfjárveitingu vegna næsta árs
miðað við fjárlög. Guðmundur Karl
Jónsson, formaður stjórnar Ríkissp-
ítala, sagði að fjárveitingin næmi
1-2% af heildarkostnaði sem er um
7 milljarðar króna á ári eða 100-150
milljónum króna.
Guðmundur Karl sagði að með
samkomulaginu væri verið að ganga
frá halla ársins í ár, en á fjárveiting-
ar hefði skort meðal annars vegna
fjölgunar hjartaaðgerða. Þetta væri
í raun og veru sams konár sam-
komulag og gert hefði verið við
Borgarspítala og Landakot vegna
sameiningar spítalanna. Þá hefði
verið gert sérstakt samkomulag til
að rétta af þann halla sem hefði
myndast, þannig að hægt yrði að
halda áfram með eðlilegum hætti á
næsta ári.
Reksturinn enn erfiður
Hann sagði að engu að síður yrði
rekstur Ríkisspítala mjög erfiður á
næsta ári. Farið hefði verið út í
margar nýjungar að undanförnu og
það væri eðlilegt að þegar Landa-
kotsspítali hætti skurðaðgerðum
þýddi það fleiri aðgerðir og aukið
álag á Ríkisspítalana. Þá hefðu Qár-
veitingar verið skomar niður til
sjúkrahúsa úti á landi og það gerði
það að verkum að fleiri sjúklingar
sæktu til Reykjavíkur.
Samkeppnisráð um kæru Norma hf. vegna styrks til flotkvíar
Hafnalögin verði
endurskoðuð
SAMKEPPNISRÁÐ leggur til að
hafnalög verði endurskoðuð, þar
sem ákvæði í þeim um ríkisstyrki
til skipasmiða á vegum fyrirtækja
í eigu sveitarfélaga stangist á við
^markmið samkeppnislaga. Þetta
kemur fram í áliti ráðsins vegna
kæru Norma hf. í Garðabæ, sem
telur að fyrirhugaður ríkisstyrkur
til flotkvíar á Akureyri skekki sam-
keppnisstöðu einkafyrirtækja í
skipasmíðaiðnaði.
Ráðið tekur ekki afstöðu til þess
hluta kæru Norma, sem snýr að
því hvort ríkisstyrkir til sveitarfé-
laga vegna skipasmíða brjóti í bága
við samninginn um Evrópskt efna-
hagssvæði. Kæra þess efnis er nú
jafnframt til meðferðar hjá Eftirlits-
stofnun EFTA (ESA).
Ekki efni til
aðskilnaðar rekstrar
Samkeppnisráð gagnrýnir að
hafnarsjóðir leigi upptökumann-
virki til skipasmíðastöðva á þeim
kjörum að leigutekjur séu langt
undir kostnaði við rekstur mann-
virkjanna. Ráðið segir þó að með
tilliti til stöðu skipasmíða séu ekki
efni til að mæla fyrir um fjárhags-
legan aðskilnað þeirrar starfsemi
hafna, sem tengist skipaiðnaði, og
vemdaðrar starfsemi þeirra.
í áliti sínu vekur samkeppnisráð
athygli samgönguráðherra á því að
ákvæði í hafnalögum og markmið
samkeppnislaga samrýmist ekki.
Eðlilegt sé að einkafyrirtæki sitji
við sama borð, hvað varðar aðgang
að styrkjum, og opinber fyrirtæki.
Ráðið bendir ráðherra á „nauðsyn
þess að hlutaðeigandi ákvæði
hafnalaga verði endurskoðuð með
það fyrir augum að mismunun varð-
andi aðgang að styrkjum byggð á
eignarhaldi verði afnumin."
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra vildi ekki svara spurningu
Morgunblaðsins um það hvort hann
hygðist í framhaldi af þessu láta
endurskoða hafnalög. Halldór benti
á að fyrrverandi viðskipta- og iðn-
aðarráðherra, Jón Sigurðsson, hefði
lagt fram núverandi samkeppnislög
og jafnframt beitt sér fyrir því að
ákvæði um styrki til upptökumann-
virkja í höfnum yrðu áfram inni í
hafnalögum. „Alþingi er búið að
tala í þessu máli,“ sagði Halldór
Förum eftir EES-lögum
Ráðherrann sagðist myndu fara
eftir þeim lögum, sem í gildi væru
á Evrópska efnahagssvæðinu. „Eft-
ir því sem ég veit bezt, og eftir
þeim upplýsingum, sem ég hef um
Evrópskt efnahagssvæði, er höfn-
um fullkomlega heimilt að reka
slippa, sem fyrirtæki hafa aðgang
að,“ sagði Halldór.
■ Hafnalög samrýmast ekki/11
Morgunblaðið/Kristinn
Síðasta peran
SIGURÐUR Haraldsson kaupmaður í verzluninni Elfi við Lauga-
veg var að skrúfa síðustu peruna í jólaljósakeðjuna um helgina.
Laugavegnrinn er nú alskreyttur í tilefni komandi jóla.
Chile stýrir veiðum að
íslenskri fyrirmynd
CHILEBÚAR styðjast nú við kvóta-
kerfi að íslenskri fyrirmynd við
stjórnun veiða á tveimur fisktegund-
um og eru íslenskar fyrirmyndir í
umræðu þar í landi varðandi fisk-
veipistjórnun.
Islendingar og íslensk fyrirtæki
hafa þegar sett mark sitt á sjávarút-
veg í Chile. Aflakóngur á lýsings-
veiðum þar er íslenski skipstjórinn
Albert Haraldsson og þátttaka
Granda í sjávarútvegsfyrirtækinu
Friosur hefur skilað árangri í útgerð-
arstjórn og fiskvinnslu.
Þá eru íslenskar vörur fyrir sjáv-
arútveg orðnar þekktar í landinu
fyrir tilstilli íslenska fyrirtækisins
Intertec í Santiago.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra er nýlega kominn úr opin-
berri heimsókn til Chile og Perú og
mun sjávarútvegsráðherra Chile
væntanlega endurgjalda heimsókn-
ina á næsta ári.
■ íslendingar setja mark/Cl