Morgunblaðið - 20.12.1994, Page 2

Morgunblaðið - 20.12.1994, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR GATT-samningar varla afgreiddir fyrir áramót ÍSLAND verður að öllum líkindum ekki meðal stofnenda Alþjóðaviðskiptastofunarinnar, sem sett verður formlega á stofn um áramótin í sam- ræmi við nýja GATT-samninga. Fyrir Alþingi liggur þingsályktunartillaga um að ríkisstjómin fái heimild til að fullgilda samn- ing um Alþjóðaviðskiptastofnunina. En fram kom á Alþingi í gær að tillagan er ekki á for- gangslista ríkisstjómarinnar um mál sem áhersla er lögð á að ljúka fyrir jólaleyfi. Þingsályktunartillagan er til meðferðar hjá utanríkismálanefnd þingsins og Bjöm Bjamason formaður nefndarinnar segir að þótt æskilegt sé að staðfesta GATT-samninginn fyrir áramót sé það ekki nauðsynlegt. „Ríki hafa tveggja ára frest til að gerast aðil- ar að samkomulaginu og nokkur ríki hafa bein- línis lýst því yfir að þau muni ekki afgreiða þetta mál fyrir áramótin. Við höfum ekki lýst því yfir heldur hefur það þvert á móti verið vilji okkar að ljúka þessu fyrir jólin. En við höfum hins vegar sagt að við þurfum að sjá fyrst hvem- ig á að laga íslenska löggjöf að GATT-samningn- um og það hefur ekki komið fram enn,“ sagði Bjöm. Umfjöllun ríkisstjórnar ólokið Nefnd fulltrúa fimm ráðuneyta hefur síðan í vor farið yfir íslenska innflutningslöggjöf með hliðsjón af GATT-samningnum, einkum um framkvæmd á væntanlegum milliríkjaviðskiptum með landbúnaðarvörar. Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri í forsætis- ráðuneytinu og formaður nefndarinnar sagði, að búið væri að vinna mikla undirbúningsvinnu og margt heíði skýrst. Hins vegar hefðu ríkis- stjórnarflokkamir og þeir ráðherrar, sem þyrftu að koma að málinu, ekki lokið umfjöllun um það sín á milli. Loks væri endanleg útfærsla á vænt- anlegum tillögum veralega umfangsmikil og flókin. Þau ráðuneyti sem koma að málinu era land- búnaðaráðuneyti, ljármálaráðuneyti, utanríkis- ráðuneyti, viðskiptaráðuneyti og forsætisráðu- neyti. Samkvæmt nýja GATT-samningnum verð- ur innflutningshöftum á landbúnaðarvöram breytt í tollígildi. Stjórnarflokkarnir og einstök ráðuneyti hafa ekki verið sammála um hvernig beita eigi þessum tollígildum og hvar forræði þessara mála eigi að vera í stjórnkerfinu. Morgunblaðið/Hallgrímur Erlendsson HALLI kom að skipinu þegar fjaraði undán því í Þorlákshöfn. Engar skemmdir urðu þó á því og komst það út þegar flæddi að aftur. Þorlákshöfn Vikurskipið sat fast í höfninni Rafmagnstruflanir víða á Vestfjörðum Þorlákshðfn. Morgunblaðið. VIKURSKIPIÐ Zafrino frá Möltu sem va^ð að forða úr höfninni í Þor- lákshöfn á laugardagsmorgun vegna veðurs sat fast í botni í sex klukku- stundir í gær. Þessi ferð Zafrino gekk ekki alveg þrautalaust. Landfestar skipsins vora famar að slitna eftir gífurlegt hvassviðri aðfaranótt laugardags. Af þeim sökum var farið með skipið úr hofninni og hélt það sjó úti á leim- um. Ekki tókst þó að loka öllum lest- arlúgum, Sjúkraliðadeilan Ríkið ítrek- ar tilboð sitt SAMNINGANEFND ríkisins ítrekaði í gær tiiboð sitt um gerðardóm og kjarasamning við Sjúkraliðafélagið til áramóta. „Við eru í þessu. tilboði búnir að taka inn í samningstextann það sem við höfum samþykkt af sérkröfum, sem hefur komið út úr viðræðum undanfama daga. Við ítrekum þá tillögu sem við lögðum fram 9. des- ember og viljum með því fá afger- andi svar við því hvort sjúkraliðar geta fallist á þetta,“ sagði Þorsteinn Geirsson, formaður samninganefnd- ar ríksins. Tillagan gerir ráð fyrir 3-4% launahækkun og að kjarasamning- urinn gildi til næstu áramóta. Jafn- framt er tekið á ýmsum sérkröfum sjúkraliða um launaflokkaröðun, menntamál sjúkraliða og um launa- mál sjúkraliða sem starfa á.heilbrigð- isstofnunum á landsbyggðinni. Ekki tókst að ná tali af forsvars- manni sjúkraliða í gærkvöldi. Um miðjan dag á sunnudag var farið að lægja og skipið því tekið inn til hafnar til að klára að lesta. Ekki tókst betur til en svo að siglt var á bryggjuna en skemmdir urðu þó ekki teljandi. Þegar búið var að ferma skipið um áttaleytið í gærmorgun kom í ljós bilun og fresta varð brottför. Það varð til þess að skipið komst ekki út á flóðinu og tafðist um sex klukku- stundir. Skipið sat fast í fjörubotnin- um á meðan. GERT ER ráð fyrir að arður af fyrirtækjum borgarinnar verði 1,5 milljarðar árið 1995 samkvæmt til- lögu R-lista, sem kynnt hefur verið í borgarráði. Að sögn borgarstjóra er lagt til að arður af borgarfyrir- tækjum verði 4,2%, arður af eignar- hlut Rafmagnsveitu Reykjavíkur í Landsvirkjun verði 3,2% og arður af Hitaveitu Reykjavíkur verði 5,5%. Á síðasta ári var arðgreiðsla veitustofnana 3% og 4% af öðram fyrirtækjum borgarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði að endanleg af- staða til hækkananna yrði tekin þegar fjárhagsáætlun borgarinnar yrði lögð fram. „Þetta era okkar TÖLUVERÐAR rafmagnstraflamr urðu á Vestfjörðum og V^sturlandi um helgina. Nokkrir bæir á Strönd- um vora rafmagnslausir í tvo sólar- hringa. Þorsteinn Sigfússon, um- dæmÍEstjóri Orkubús Vestfjarða á Hólmavík, sagði að nýir jarðstrengir sem lagðir hafa verið á síðustu tveimur árum hefðu komið í veg fyrir enn meiri rafmagnstruflanir. Rafmagnslínur tóku að bila um hádegisbil sl. laugardag í Reykhóla- sveit og á Ströndum. Rafmagni var komið á í Reykhólasveit með bráða- birgðatengingu, en fullnaðarviðgerð hugmyndir um arðgreiðslur," sagði Ingibjörg. „Eftir að hafa farið í gegnum fyrirtækin teljum við að þau geti þetta án þess að hækka gjaldskrár sínar. Þetta era fyrir- tæki sem era yfirleitt vel stæð. Skulda lítið og era ekki í mikium framkvæmdum. Öðra máli gegnir um borgarsjóð og þar sem við eig- um þessi fyrirtæki teljum við eðli- Iegt að þau leggi sitt af mörkum við þessar aðstæður." í tillögunni er miðað við hlutfall af endurmet- inni eign fyrirtækjanna. Stöndug fyrirtæki Borgarstjóri sagði að fyrirtæki eins og Rafmagnsveitan, Vatns- bíður. í gær var enn rafmagnslaust í Ámeshreppi og Bjamarfirði, en viðgerð var að mestu Iokið undir kvöld. Rafmagnstraflanir urðu á Hólmavík og bæjum sunnan við á sunnudag og voru díselvélar keyrðar meðan verið var að gera við bilanir. Þorsteinn sagði að vandræðin hefðu aðallega stafað af því að línur slitnuðu vegna ísingar. Minna hefði verið um staurabrot, en þó hefðu 10 staurar brotnað í Reykhólasveit. Aðstæður til viðgerða vora mjög slæmar um helgina vegna veðurs. veitan og Hitaveitan væra mjög stöndug. Þau væra ágætlega rekin en oft mætti gera betur. Ingibjörg benti á að til þessa hefðu þau ekki verið í sérstakri þörf fyrir að spara og sjálfsagt væri að kánna á næsta ári hvort ekki mætti spara og hag- ræða í rekstri. Ingibjörg sagði að horft hefði verið til ríkisins og þá meðal ann- ars til Pósts og síma, sem greiðir 7% á ári í arð til ríkissjóðs. „Við teljum þetta því ekki nema eðlilegt en síðan verður að taka sjálfstæða afstöðu til þess eftir ár hvort greiðslur verði áfram með sama hætti,“ sagði hún. Framsóknar- menn á Vestfjörðum Pétur tekur ekki 2. sæti PÉTUR Bjamason ætlar ekki að taka^. sætið á framboðs- lista Framsóknarflokksins í Vestfjarðakjördæmi fyrir kosn- ingamar í vor. Hann útilokar ekki sérframboð undir merkjum flokksins. Pétur Bjamason, sem er fyrsti varaþingmaður fram- sóknarmanna á Vestfjörðum, lenti í 2. sæti í prófkjöri flokks- ins fyrir skömmu en Gunnlaug- ur M. Sigmundsson fékk 1. sætið. Pétur sagði við Morgunblað- ið, að sér þætti ekki eðlilegt að Vestfirðingar leiti til Reykjavík- ur eftir þingmönnum og með því að taka 2. sæti á framboðs- listanum væri hann í raun að taka undir þau sjónarmið að slíkt væri réttlætanlegt. Gunn- laugur er Reykvíkingur en Pét- ur býr á ísafirði. Engar hótanir Talsverð umræða hefur verið meðal framsóknarmanna á Vestfjörðum að efna til sér- framboðs undir merkjum flokksins með Pétur sem odd- vita. Pétur sagði aðspurður að ekkert væri ákveðið í því efni og hann sagði að í ákvörðun sinni nú fælust engar hótanir um sérframboð. „Það hefur ver- ið mikill áhugi fyrir einhveiju slíku, en hins vegar verður maður að meta hvort slíkt er sagt í hita augnabliksins eða hvort sá áhugi endist. Það verð- ur að koma í ljós,“ sagði hann. Breytingartil- iaga við fjárlög 15,3 millj- ónir í heið- urslaun listamanna SAMKVÆMT tillögu níu þing- manna úr öllum flokkum á Al- þingi munu heiðurslaun lista- manna árið 1995 nema 15,3 milljónum króna og skiptast á i 7 einstaklinga. Hver þeirra hlýtur 900 þúsund krónur. A þessu ári var 14 milljónum króna varið til heiðurslauna 16 listamanna. Komu 875 þúsund krónur í hlut hvers þeirra. Tveir listamenn í heiðursflokki létust á árinu, þau Jakobína Sigurðar- dóttir og Stefán íslandi. Nú koma ný inn á listann Ásgerður Búadóttir, Helgi Skúlason • og Stefán Hörður Grímsson. Samkvæmt tillögunni hljóta eftirfarandi listamenn heiðurs- laun Alþingis á næsta ári: Atii Heimir Sveinsson, Árni Krist- jánsson, Ásgerður Búadóttir, Guðbjörg Þorbjamardóttir, Halldór Laxness, Hannes Pét- ursson, Helgi Skúlason, Indriði G; borsteinsson, Jón Nordal, Jón úr Vör, Jórunn Viðar, Krist- ján Davíðsson, María Markan, Matthías Johannessen, Sigfús Halldórsson, Stefán Hörður Grímsson og Thor Vilhjálms- son. Tillaga R-listans við gerð fjárhagsáætlunar Arður af borgarfyrirtækj- um verði 1,5 milljarðar Gjaldskrár veitustofnana hækki ekki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.