Morgunblaðið - 20.12.1994, Side 28

Morgunblaðið - 20.12.1994, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR í stöðugri geðshræringru BðKMENNTIR Ævisaga OFURHUGINN ÓLI í OLÍS eftir Bjarka Bjarnason. Skjaldborg, 1994 — 242 síður. 3.880 kr. EIN MANNGERÐ er nokkuð al- geng í íslenzku þjóðfélagi. Það eru venjulega um að ræða karlmenn, en þó ekki alltaf. Þeir eru yfirleitt mjög uppteknir, eða telja sig vera ómissandi á mörgum stöðum; þeir haldast illa heima hjá sér, eru þar rétt á matartímum, og þykir gott, ef það tekst. Þeir líta ekki á fjöi- skyldu sína sem mikilvægt verk- efni, vanrækja hana jafnvel, og eru uppstökkir ef hún truflar það sem þeir eru að gera annars staðar, gjaman önugir heima fyrir og láta ekki hvarfla að sér að eyða jafn miklum tíma í sína nánustu og allt annað, sem togar í þá. Þeir hafa ýmis einkenni streitu, eru skapbráð- ir og ráða tæplega við allt sem þeir era að gera, en þegar þeir fá stund til að íhuga hlutskipti sitt, þá bera þeir iðulega væmnislegt lof á fjölskylduna og allt sem henni tengist eða náttúruna og kyrrðina, þ.e.a.s. yfirleitt allt sem þeir sækj- ast ekki eftir í reynd. Það er yfir- leitt ekki svo, að þeir hafi ætlað sér að haga lífi sínu með þessum hætti heldur hefur þetta þróast svona. Stundum felst eðlilegur metnaður í þessu hlutskipti, mun oftar þó sinnuleysi eða hugsun- arleyfi um breytni sýna. Óli Kr. Sigurðsson, Óli í Olís, varð lands- þekktur í einni svipan, þegar hann keypti meirihluta hlutabréfa í Olís á haustdögum 1986. Það er fremur hvimleið klisja að kalla þetta kaup aldarinnar, en þau vora umtalsvert afrek. Óli Kr. var við stjórnvölinn í Olís í tæp sex ár, þegar hann lézt af hjartaslagi í laxveiði- ferð. í þessari bók er rak- inn æviferill Óla Kr. Sigurðssonar frá því hann var ung- ur sveinn vestur á Melum, þar til hann var kominn í hóp auðugri manna í íslenzku fjármálalífi. Hann átti ekki ættir að rekja til auðugra foreldra heldur hófst af sjálfum sér á eigin dugnaði. Hann var mikill sölumaður, stóð sig vel í innflutn- ingi, var mjög glöggur á þær upp- lýsingar sem skipta máli í viðskipt- um. Þetta kom honum vel og hann átti Vöramarkaðinn á Eiðistorgi, áður en hann náði meirihlutanum í Olís. Eins og eðliegt er þá snýst bókin að verulegu leyti um kaupin á Olís og hvernig málin þróuðust eftir það. Það er greint vel og rækilega frá kaupunum sjálfum og eftirmál- anum, hvemig Landsbankinn tók á vandamálum Olís og hinum nýja eiganda tókst að sleppa fram hjá þeim hindrunum, sem bankinn setti. Að síðustu er Olís komið á lygnan sjó, orðið hlutafélag skráð á al- mennum markaði og Texaco á í því nokkurn hlut. Þetta er í sjálfu sér ekkert sér- staklega merkileg saga nema kannski vegna þess að olíufélög virðast hafa einhveija táknræna stöðu í íslenzku viðskiptalífi. Það er kaonski vegna þess að þau hafa tengst stjómmálum svo náið. En maðurinn, sem sagan fjallar um er ekki sérlega geðfelld- ur. Hann hefur haft nokkur einkenni þeirr- ar manngerðar, sem nefnd var í upphafi. Hann hefur verið af- leitur heimilisfaðir, eiginmaður af erfið- asta tæi, en góður son- ur. Stjórnandi hefur hann verið miðlungi góður, glöggur á rekstur og tækifæri, hirðulaus um skipu- lega upplýsingasöfnun í nútíma- rekstri, en hann hefur haft gott lag á að laða til sín unga hæfileika- menn. Þessi bók er nokkuð trúverðug. Það er ekki verið að draga fjöður yfir brestina í skapgerð söguhetj- unnar og er raunar lofsvert í ævi- sögu af þessu tæi, þar sem það er allt of algengt að gefa mjög fegrað- ar lýsingar á söguhetjum. Stíllinn er látlaus og stundum svolítið klisju- kenndur. Það verkar tjl dæmis ekki vel að kalla Óla Kr. Sigurðsson of- urhuga. En hann hefur verið dugnaðar- forkur og áræðinn. Viðskipti krefj- ast ekki ofurhuga. Guðmundur Heiðar Frímannsson BÖKMENNTIR Unglingabók ÉG ELSKA ÞIG - HELD ÉG eftir Jane Pitt. Nanna Rögnvaldar- dóttir þýddi. Iðunn 1994. 135 blaðsíður. SKÁLDSAGAN Ég elska þig - held ég gerist í Englandi nútímans og greinir frá vinkonunum Jan, Jane-Anne Braiden, og H, eða Harriet Catherine, Victoriu Wynd- ham-Jones, 17 ára, sem tekið hafa upp á því að reka ferðaþjónustu að sumarlagi í fjáröflunarskyni. Heimabænum Rye er lýst sem sögufrægum sem „táknar að á sumrin fyllist hér allt af fólki gjör- samlega að ástæðulausu" að dómi Jan (5). Með leiðsöguþjónustunni sinna þær stöllur síðan samskipt- um við foreldrana og hitt kynið sem heldur ganga brösuglega. Sögumaðurinn er Jan og segir frá umhverfi og heimilisaðstæðum í gamansömum og neikvæðum tóni til skiptis sem dregur talsvert dám af unglingi á tilteknu aldurs- skeiði. Svo vikið sé orðum að sögu- persónum er H foringinn í hópn- um, talsvert uppátektarsöm og á föstu með Paul en Jan er á báðum áttum yfir Skotanum James og Tim, sem hún alls ekki þolir fram- an af. Lesandinn fær góða innsýn í sálarástand þeirra vinkvenna, sem eru nánast í stöðugri geðs- hræringu. Minna fer fyrir lýsing- um á innræti piltanna sem er mið- ur, sérstaklega hvað varðar James sem ætlað er að vera mótvægi við gæðapiltinn Tim og er lýst sem fleðulegum tækifærissinna. Þær stöllur skipta með sér grátköstum, Jan lætur James plata sig lítillega og H hleypst á brott en allt fer þó vel að lokum, sem fyrirsjáan- legt var frá upphafi. Helmingur bókarkápu er bleikur og á henni eru hjörtu og grófkorna ljósmynd sem ekki er til þess fall- in að auka á trúverðugleik henn- ar. Einnig er þýðingunni talsvert ábótavant. Dæmi: „Sú staðreynd að hún hafði yfirleitt kveikt á miðstöðinni táknaði að það hlaut að vera eins kalt og mér hafði fundist fyrr um kvöldið“ (47). „Það var eiginlega sú staðreynd sem kom H af stað“ (6). „Helming- inn af tímanum er hann alveg að gera mig brjálaða. Helminginn af tímanum fmnst mér allt í lagi með hann“ (91). „Hún breyttist aftur í hrúku“ (91). Ég elska þig - held ég er kynnt á bókarkápu sem skemmtileg unglingabók um ástina, lífið og vináttuna en erfitt er að gera sér í hugarlund að lesandi, á tánings- aldri verði nokkurs vísari að henni lokinni. Eiga unglingar ekki rétt á metnaðarfyllra lestrarefni? Helga Kr. Einarsdóttir Öðrumtil eftirbreytni? Óli Kr. Sigurðsson , r JÓUl , QjVlXERJ \Ol D Ásgeir Smári Ebxarsson HVERGI MEIRA IJRVAL Fáar jólagjafir eru eins kærkomnar og góð íslensk myndlist. Við minnum á hið mikla úrval myndlistar sem við höfum ávallt til sölu. JÓLASÝNING Jólasýning Foldar er í haksalnum. Um er að i-æða söiusýningu á verkum fjölmargra þekktra listamanna. VERIÐ VELKOMIN Vinsandega lítið við í Gallerí Fold fyrir jólin, lítið á úrvalið og þiggið heitt kaffi og piparkökur. Opið til kl. 22.00 öll kvöld til jóla, nema a Þorláksmessu til kl. 23.00. Á aðfangadag er opið til kl. 12.00. Laugavegi 118 d, r-1 W\c,a iól Og gOtt (gengið inn frá Rauðarárstíg) G leóuegj o sími 10400 ogfarsœltnytio ■ ÞAR SEM LISTAVERKIN FÁST Blómið og kletturinn ROKMENNTIR Náttúrufræði SURTSEY Lífríki í mótun eftir Sturlu Friðriks- son. 112 bls. Hið íslenska náttúru- fræðifélag. Prentun: Steinholt hf. 1994. Verð kr. 3.480. SURTSEYJARGOSIÐ, sem hófst á haustdögum 1963, getur talist til merkisatburða í jarðsögunni. Einnig var það meiri háttar lexía fyrir vís- indamenn. Jarðfræðingar fylgdust spenntir með eynni sem reis úr hafi og stækkaði frá degi til dags. Mánuðir liðu. Síðan ár. Þar til dag einn að ljóst var að hin rámu regin- djúp vora hætt að ræskja sig. Eftir stóð eyjan, af grjóti gjörð og vikri, lífvana eins og jörðin í árdaga. Þá tók við nýr kapítuli sem var ekki jafnsýnilegur en engu ómerkari: Landnám lífs á eynni. Þar með hófst hið fjölþætta rannsóknastarf líffræðingsins Sturlu Friðrikssonar. Árangur þess leggur hann svo fram í þessari bók. Að sjálfsögðu beind- ust rannsóknimar fyrst og fremst að Surtsey sem slíkri. En þeim var um leið ætlað víðtækara markmið. Þar með fengist upplýst hvernig gróður og dýralíf gæti borist yfir höfin ianda á milli. Surtsey liggur fýrir opnu hafi. Fimm til sex kílómetrar eru til næstu smáeyjar en miklu lengra til lands. Tvennt fýsti vísindamenn öðru fremur að vita: Hversu langur tími liði frá gosi þar til líf næmi land á eynni, og eftir hvaða leiðum það líf mundi berast. Sumt gat strax legið í augum uppi. Húsflugur, sem snemma varð vart, hlutu t.d. að hafa borist með farangri manna. Annað reyndist erfiðara að greina. Dag einn hafði ánamaðkur gert sig þarna heimakominn. Hvaðan kom hann? Fuglar tóku fljótlega að tylla sér á eyna og fylgdust fuglaskoðarar grannt með ferðum þeirra. Árið 1970 hófst þar varp. Það hlaut að telj- ast til stóratburða í augum fuglaskoðar- anna. Fyrir náttúru- fræðingana, sem höfðu auga með öllum þátt- um hinnar lífrænu þró- unar, var sá viðburður engu síður góðs viti. Þetta voru sjófuglar mest sem sóttu fæðu sína á haf út. Fæðuna báru þeir hver að sínu hreiðri þar sem skor- dýr gátu nærst á leif- unum. Þess nutu smáfuglar sem nærast á skordýrum. Svo nýttist dritið sem áburður. Þannig myndað- ist smám saman jarðvegur og þar með gátu plöntur, sem bárast til eyjarinnar, tekið að festa rætur. Þannig mundi lífið aukast og marg- faldast og breiðast út stig af stigi. Höfundur getur þess að rann- sóknir hafi einnig farið fram á líf- ríki nálægra eyja svo komast mætti að raun um hvort dýr og plöntur hefðu borist þaðan. Vitað er að smádýr ýmis geta svifið langar leið- ir í loflinu. En hversu langar? Ennfremur er minnt á að Surtsey sé syðsti hluti Íslands og þess vegna lendingarstaður margra farfugla á leið sinni til landsins. Gerð hefur verið skrá yfir farfugla sem hafa viðkomu á eynni og athugað hvort og hvaða fræ þeir geti borið með sér. En þánnig kunna plöntur að berast um langan veg frá öðram löndum. Upplýst er að »af þeim tegundum æðri plantna, er fundist hafa í Surtsey sem einstaklingar í vexti eða lifandi fræ og græðling- ar, verður að álíta 72% hafa borist frá ytri eyjunum í næsta nágrenni og frá Heimaey. Um 21% þeirra kann að hafa borist ofan af landi, en um 7% fundinna fræja hafa kom- ið til eyjarinnar um enn lengri veg.« Merkilegar niðurstöður! Sturla Friðriksson telur að á tímabili kunni gróðurfar í Surtsey að verða fjöl- skrúðugra en á nálæg- um eyjum meðan landslag sé þar marg- breytilegra, strand- lengja t.d. með sand og malarfjöra. Fjaran muni þó smásaman eyðast og eftir muni standa hamraveggir á alla vegu líkt og á öðr- um úteyjum Vest- mannaeyja, og þá með sams konar gróðurfari og fuglalífi. Þó Surtseyjargosið sé einstakt fyrir sjónum þeirra sem nú lifa hafa fleiri slík orðið á sögulegum tíma. Telur höfundur upp allnokkur þess háttar gos sem annálar og aðrar heimildir greina frá, flest út af Reykjanesi. Hins vegar telur hann rangt sem sumir hafa getið sér til að gosið hafi á Heimaey eft- ir upphaf landnáms. Þar hafi ekki gosið á sögulegum tíma fyrr en 1973. Gos á þessum slóðum virðast því ekki vera tíð þó svo vilji til að einungis tíu ár hafi liðið milli Surts- eyjargossins og Heimaeyjargossins. Enn sjaldgæfara er að neðansjávar- gos skilji eftir sig landauka á borð við Surtsey. Texti bókar þessarar er skýr og auðskilinn og í alla staði fróðlegur. Til stuðnings er svo birtur fjöldi korta og skýringarmynda, auk fjöl- margra ljósmynda sem era ekki að- eins í þágu fræðanna heldur líka fyrir augað. Við íslendingar eram svo háðir náttúrunni að bók af þessu tagi hlýtur að minna okkur á hvar við eigum heima, hvað við þurfum að vita og hvað brennur undir fótum okkar. í fáum orðum sagt: Fræð- andi rit, fagurt og vandað! Erlendur Jónsson Sturla Friðriksson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.