Morgunblaðið - 20.12.1994, Side 36

Morgunblaðið - 20.12.1994, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Menntun í ferðaþjónustu Vits er þörf, þeim er víða ratar, dælt er heima hvað. ÞANNIG segir í Hávamálum, þessu foma kvæði okkar frá 10. öld sem trúlega er fyrsta kennslu- efnið í ferðaþjónustu hér á landi. Forfeður okkar á 10. öld vora með- vitaðir um mikilvægi þess að vera vel upplýstir um móttöku ferða- mannsins og því má með ólíkindum vera að við nú á 20. öldinni séum enn að velta fyrir okkur þörfinni fyrir menntun i ferðaþjónustu, hvers konar menntun og fyrir hveija, í stað þess að búa að langri menntahefð í þessari mikilvægu atvinnugrein eins og flest þau lönd sem við beram okkur við á öðrum sviðum. Enn hefur ekki verið mótuð nein heildarstefna um menntun fyrir ferðaþjónustugreinar þó margir hafi vissulega lagt sitt til málanna nú þegar. Staðan Haustið 1987 heim- ilaði Menntamálaráðu- neytið Menntaskólan- um í Kópavogi að fara af stað með sérstaka ferðabraut til stúd- entsprófs við MK - þá fyrstu sinnar tegundar innan skólakerfisins. Að höfðu samráði full- trúa atvinnulífsins, ráðuneytis og skólans var lagður grannur að almennri menntun í ferðaþjónustu. Á þeim 8 áram sem iiðin eru síðan kennsla hófst á þessu sviði innan skólans hafa átt sér stað miklar breytingar á um- fangi námsins, efnisinnihaldi og áherslum. Þar hafa fulltrúar at- vinnulífsins ásamt fagkennurum skólans lagt til hug- myndir enda nauðsyn- legt að fylgjast vel með þeim hröðu breyt- ingum sem nú eiga sér stað í atvinnugrein- inni. Samhliða stofnun ferðabrautarinnar hóf Menntaskólinn í Kópa- vogi einnig að bjóða upp á almenn kvöld- námskeið í ferðafræð- um. Með auknu um- fangi var ákveðið að stofna sérstakan kvöldskóla undir nafn- inu Ferðamálaskóla íslands í MK sem býð- ur upp á staka áfanga eða heilstætt ársnám í ferðafræð- um. Menntaskólanum í Kópavogi hefur verið falið móðurskólahlut- verk í menntun í ferðaþjónustu en í því felst að skólinn er miðstöð á þessu sviði innan skólakerfisins. Nokkrir framhaldsskólar aðrir hafa tekið upp kennslu í ferðaþjónustu- greinum í góðri samvinnu við MK. Þar vil ég sérstaklega nefna Fram- haldsskólann að Laugum sem legg- ur fyrst og fremst áherslu á starfs- nám innan hótel- og veitingagreina og Fjölbrautaskóla Suðurlands sem rekur ferðabraut líka þeirri sem er í MK. Örfáir aðrir framhaldsskólar bjóða upp á einstaka valáfanga í ferðagreinum eða línur í tengslum við málabrautir. Þá vil ég nefna aðra skóla innan opinbera kerfisins sem eru sér- hæfðir á ákveðnu sviði og sinna stóra hlutverki í menntun í ferða- þjónustu. Fyrst vil ég nefna Hótel- og veitingaskóla Islands sem upp- haflega var ætlað það hlutverk að mennta fólk í öllum þeim greinum er snúa að hótelum og veitingahús- um en skólanum vora aldrei skap- aðar aðstæður til þess og sinnir nú menntun matreiðslu- og fram- reiðslumanna sem eru mikilvægir hlekkir í ferðaþjónustunni. Nú hillir undir gjörbreyttar að- stæður á þessu sviði með tilkomu 5.000 fm nýbyggingar við Mennta- skólann í Kópavogi sem vonandi verður komin í gagnið á næsta skólaári. Þessi bygging mun hýsa núverandi starfsemi HVÍ ásamt kennslu í fleiri matvælagreinum m.a. bakara og kjötiðnaðarmanna. Starfsemi Leiðsöguskólans má rekja allt til ársins 1963. Menntun leiðsögumanna hefur mikil breyst frá því að vera námskeið, yfir í STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Tegund: Staufen Verð: 9.800,- Stærðir: 36-46 Iitur: Grænt/brúnt Höfum fleiri gerðir af gönguskóm Gjafakortin okkar eru góð, hentug og vinsæl jólagjöf PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR STEINAR WAAGE J? ppskóritin STEINARWAAGE SKÓVERSLUN JL veltusundi símí: 2121? SKÓVERSLUN^5 SÍA/U18519 VIÐ INGÓLFSTOKG SÍMI689212 Margrét Friðriksdóttir Ókeypis myndataka vegna Debetkorta og Vaxtalínukorta íKringlunni miðvikudaginn 21. des. kl. 13-18 fimmtudaginn 22. des. kl. 13-18 Við minnum viðskiptavini okkar á að öll bankakort falla úr gildi um næstu áramót BÚNAÐARBANKINN - Traustur banki Ætli skólakerfíð að sinna þörfum ferða- þjónustunnar, segir Margrét Fríðriksdótt- ir, er nám á háskóla- stigi mikil nauðsyn. heils vetrar fjölbreytt nám. Haustið 1991 fól Ferðamálaráð íslands Menntaskólanum í Kópavogi um- sjón með menntun leiðsögumanna. Sveitarfélögin hafa nú í síaukn- um mæli verið að gera sér grein fyrir mikilvægi ferðaþjónustunnar. Víða hafa verið ráðnir ferðamála- fulltrúar sem unnið hafa gott bytj- unarstarf í fræðslumálum á lands- byggðinni. Þá hafa einkaaðilar og fagfélög boðið upp á margskonar nám eða námskeið einkum fyrir starfsfólk í greininni. En hvert ber að stefna? Hver er þörf atvinnugreinarinnar fyrir menntun? Hvernig getur skólakerfið sinnt atvinnugreininni? Hvað er skynsamlegt að gera á næstu áram? Starfsnámsbrautir Nám á framhaldsskólastigi sem undirbýr nemendur undir störf í atvinnulífinu er mjög af skornum skammti hér á landi þegar önnur lönd leggja mikla áherslu á mikil- vægi framhaldsskólans í starfs- menntun. Mikill fjöldi ófaglærðra starfsmanna vinnur innan ferða- þjónustunnar í dag. Þetta starfs- fólk hefur oft á tíðum lítið nám að baki og á litla möguleika á námi á sínu sviði. Bjóða þarf upp á allt frá stökum námskeiðum upp í nokk- urra anna heilstætt nám. Hins veg- ar byggir slíkt nám á því að fulltrú- ar atvinnulífsins vinni með skólun- um enda er það skoðun mín að atvinnulífið eigi að notfæra sér hið opinbera skólakerfi miklu meira en gert er í dag. Við verðum að eyða þeim fordómum sem ríkja á milli skólanna og atvinnulífsins. Allt unga fólkið kemur út í atvinnulífið fyrr eða síðar og því hlýtur það að vera sameiginlegt metnaðarmál skólanna og atvinnulífsins að und- irbúningurinn sé við hæfi. Þróun starfsnáms á að haldast í hendur við mótun atvinnustefnu í greininni jafnframt því sem setja þarf ströng gæðaviðmið um starfsnám þannig að um viðurkennt nám sé að ræða og líklegt sé að sá sem hefur lokið náminu gangi fyrir öðram ómennt- uðum þegar ráðið er í störf. Segja má að innan þessa flokk- ist að mestu leyti það sem skólam- ir hafa nú þegar verið að fást við s.s. iðnréttindanám HVÍ og ferða- brautir framhaldsskólanna. Hins VÁKORT Eftirlýst kort nr.: 4507 4500 0021 1919 4507 4500 0021 6009 4507 4500 0022 0316 4543 3718 0006 3233 4548 9018 0034 2321 ÖLL ERLEND KORT SEM BYRJA Á: 4550 50** 4560 60** 4552 57** 4941 32** Aígreiðslufólk vinsamlegast takiö ofangreind tod úf umferð og sendiö VISA íslandi sundurkllppt. VEflÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klOfesta tort og visa á vágest. \\*æm VI5A ÍSLAND Álfabakka 16 - 109 Reykjavik . Sími 91-671700 ^-------- vegar vantar meiri fjölbreytni í námsframboðið en um leið þarf meiri samhæfing að koma til - við megum ekki dreifa kröftunum of víða til þess erum við einfaldlega of fá. Þeir skólar sem munu bjóða upp á lengra starfsnám eiga að vera mjög fáir en sérhæfðir og þá frekar að hafa með sér verkaskipt- ingu fremur en allir séu að reyna að gera allt og enginn almennilega. Fagháskóli Ef skólakerfíð ætlar að sinna þörfum ferðaþjónustunnar fyrir menntun er mikil nauðsyn að boðið verði nám á háskólastigi. Því öllum má ljóst vera að framhaldsskólinn uppfyllir ekki þarfir nema hluta þessa fólks sem atvinnulífið þarf á að halda. Hins vegar er það skoðun mín að slíkt nám eigi að fara fram innan fagháskóla en ekki í Háskóla íslands. Háskóli íslands er rann- sóknarháskóli sem ætlað er að vera vísindaleg rannsóknastofnun. Þar byggir námið fyrst og fremst á mjög fræðilegum granni. Hér væri skynsamlegra að byggja upp faghá- skólanám með starfsmenntun þar sem lögð sé meiri áhersla á þjálfun til starfa en dregið úr rannsókn- arnámi. Þessa leið hafa sífellt fleiri þjóðir valið með góðum árangri. Við eigum þó enn töluverð langt í land með að móta slíkt háskólastig þó undirbúningur að listaháskóla og uppeldisháskóla sé vel á veg kominn og nokkrir skólar bjóði nám á þessu stigi svo sem Tölvuháskól- inn, Samvinnuháskólinn, Tækni- skólinn o.fl. Slíkur fagháskóli á ferða- og hótelsviði ætti að sinna íjölbreyttu námi fyrir millistjórnend- ur í greininni. Áherslu ætti að leggja á innlenda ferðaþjónustu, sölu- mennsku og framlínu, upplýsinga- tækni, gestamóttöku, markaðsmál og rekstur svo dæmi séu nefnd. Meistaranám veitingagreina ætti að vera deiid í slíkum fagháskóla einn- ig nám leiðsögumanna. Öflugan íslenskan fagháskóla á sviði hótel- og ferðagreina er ekki hægt að byggja upp nema í nánu samstarfi við erlenda skóla á þessu sviði. Hægt væri að bjóða upp á 2-3 ára nám hér á landi sem tæki mið af íslenskum aðstæðum en væri þó skipulagt í samræmi við viðurkennda erlenda skóla. Þeir sem áhuga hefðu á frekara námi ættu greiða leið í mismunandi er- lenda fagháskóla eftir sérsviði sínu og fengju metið það nám sem þeir hefðu lokið hér á landi. Mikilvægt er fyrir íslenska ferðaþjónustu að ákveðnir starfsmenn hennar, t.d. stjórnendur, hafi erlenda sýn. í sameiginlegri menntastefnu Evr- ópusambandsins er lögð rík áhersla á að hvetja námsmenn til að stunda hluta námsins erlendis. Markmiðið er að 10 af hundraði námsmanna dveljist einhvern tíma á námsferlin- um utan síns heimalands. í ferða- þjónustu er þetta sérstaklega mikil- vægt og þar ætti hlutfallið trúlega að vera hærra. Jólalré 3ólatilboð Rauögrcni frá kr. 645, Fura frá hr. S20,- Hormansþinur !rá hr. 1.290,- Breiðholti og við Milkatorg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.