Morgunblaðið - 20.12.1994, Síða 61

Morgunblaðið - 20.12.1994, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 61 Geislar sólarinnar UNGLINGAR minnar, slíkt er skapferli hennar. Við notum því mest af tímanum okkar uppi til fjalla til að liggja í leti og ergja hver annan. Hurða- skellir bróðir er sérstaklega dug- legur í að gera at í okkur hinum strákunum, hann er svo líflegur, miklu líflegri en við hinir. Svo förum við í leiki, fallin spýta, króna og gijótkast. Ég vinn hina jóla- sveinana alltaf í gijótkasti en er frekar lélegur í hinu, það gerir fótafúinn. Ástæðan fyrir því að við erum kallaðir jólasveinar en ekki önnur er sú að við kjós- um helst að koma til byggða á þessum tíma, og það vill bara þann- ig til að þá eru jól- in. Ég veit ekki hver kom þeirri sögu af stað að við gæfum gjafír, Bjúgnakrækir bróðir minn hefur ekki alveg náð sér eftir að sagan sú fór af stað. Hann sem hlakkaði alltaf svo mik- ið til að koma til byggða og stela sér einhveiju í svanginn, núna þarf hann oft að ganga í gegnum þá niðurlægingu að honum er beinlínis gefíð að borða. Þetta hefur líka haft það í för með sér að við þurfum að burðast með einhveija poka fulla af eplum, sælgæti og gjöfum, og færa þetta litlum bömum. Það er alls ekki í eðli okkar, við viljum ekki láta neitt rosalega gott af okkur leiða, það er ein ástæðan fyrir því að við kjósum að lifa þessu æsilega piparsveinalífí. Er ég kannski bú- inn að segja of mikið, ég vil alls ekki að fólk fái ranga mynd af okkur bræðrunum, í raun og veru erum við allir mjög ljúfír og góðir og megum ekkert aumt sjá. Eins og þegar jólakötturinn festi sig í gaddavírsflækju þá grétum við allir og Stúfur og Kertasníkir fengu meira að segja ekka náðu sér ekki fyrr en Leppalúði var búinn að leysa köttinn. Sem betur fer endaði pað allt saman vel. Ég veit auðvitað hvernig ung- lingur lítur út, hann er einhvers staðar á milli þess að vera barn og fullorðinn og ferðast gjarnan um í hópum í stórum bílum sem era kallaðir strætisvagnar. Mér skilst að einn svona - unglingur getir verið á við marga fullorðna og morg börn þegar það kemur að því að fæða þetta og klæða. Ég skil bara ekki hvemig þið mann- fólkið nennið að skipta ykkur svona niður. Böm, unglingar, full- orðnir, gamalmenni, sjómenn, húsmæður og bændur. Heima hjá okkur jólasveinunum er ekki verið að draga fólk í dilka, við eram allir jafnir fyrir augliti Grýlu og enginn er meiri unglingur en hinn.’ Hananú og svo óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. við erum jólasveinar, það er í eðli okkar að hrekkja og valda usla, en ekki ganga á milli barna bros- andi og gefa gjafir Jólasveinatísk- an hefur heldur ekkert breyst í fleiri hundrað A ár, ég persónu- / \ lega hef þen- Coca sveina hefur rei viljað nota nan eldrauða cola-gervijóla- búning, og rautt aldrei farið mér neitt sérstaklega vel, ég er betri í sauðalitunum. En ég fæ bara engu um þetta ráðið, við bræðurnir eram bara krafðir um að vera í þessum rauðu göllum, og jafnvel sýna hegðun sem er okkur ekki eiginleg, eins og að faðma og kyssa lítil böm. Okkur er ekkert sérstaklega vel við börn í návígi, Tinna 13 ára Bíl Stína 13 ára Skútu Milla 13 ára Geisladiska „Ljós v Birta, \ bjart yfir öllum Vala ^venþaðekki kannsfc-í veit Berglind LO fB JQ Gnmur o (O c Finnst gaman í skólanum, en leið- ist heimanámið Nafn: Bjöm Zakarías Guðbjarg- arson. Heima: Reykjavík. Aldur: 15 ára. Skóli: Hlíðaskóli. Getur skólinn verið betri en hann er? Já, ef við hefðum meiri peninga gætum við gert meira en við ger- um t.d. haldið fleiri böll og svoleiðis, svo sitjum við líka á gólfínu í Hlíðaskóla en við eigum vist að fá bekki í jóla- gjöf. Mér fínnst námsefnið og kennslan vera góð eins og hún er. Hveiju vilt þú breyta í þjóðfélaginu?. Engu sérstöku, nema mér finnst mik- ið rugl með úti- vistartíma unglinga. Er til unglingavandamál? Já það held ég, drykkja ungl- inga og svoleiðis. Við verðum vandamál þegar við förum niður í bæ og drekkum, annars fer ekk- ert fyrir okkur. Er til foreldravandamál? Já það er örugglega til á sumum heimilum, þar sem foreldrar drekka og svoleiðis. Hvemig er fyrirmyndarunglingur? Það er unglingur sem lærir á hveijum degi og er ekki í neinu rugli, kemur snemma heim og er bara góður krakki. Hvernig eru fyrirmyndarfor- eldrar? Það eru skilningsríkir foreldrar sem eru ekki bara foreldrar heldur líka vinir manns, virða mann og þá virðir maður þá til baka, það sama gildir um kennara. Hugsa vel um mann og hafa tíma fyrir mann. Hvað vilt þú ráðleggja þeim sem umgangast unglinga? Að virða þá og hugsa ekki bara um þá sem unglinga heldur sem fólk. Hvað finnst þér skemmti- legast að gera? Fara í partí og spila körfubolta. Hvað fínnst þér leiðinlegast að gera? Læra heima. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég byija á því að fara í me-nntaskóla og svo sé ég til í framhaldi af því. Hver myndir þú vilja vera ef þú værir ekki þú? Shaquille O’Neal körfubolta- maður, en ég vil helst vera ég sjálf- ur. Hveijar eru draumaaðstæður unglinga? Skemmtun um hveija einustu helgi og minna að læra. Hver er munurinn á púða og pastarétti? Pastarétturinn er sennilega betri á bragðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.