Morgunblaðið - 20.12.1994, Side 64

Morgunblaðið - 20.12.1994, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, StMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 86 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK Viðskiptakjör batna og framleiðsla eykst Lyf lækka um 100 milljónir •—-'LYFJAVERÐLAGSNEFND sam- þykkti á fundi sínum í gær að skerða smásöluálagningu á lyfjum að meðaltali um 5 prósentustig frá og með 1. janúar næstkomandi. Guðmundur Sigurðsson, for- maður lyfjaverðlagsnefndar, sagði að samkvæmt áætlun sem gerð hefði verið og byggð væri á ákveðnu úrtaki gætu lyfjaútgjöld þjóðarinnar lækkað um 100 millj- ónir króna á ári vegna þessarar breytingar. „Þetta ér ákveðið vegna þess, að við athugun hefur komið í ljós að lyfjavelta hafði aukist fyrstu tíu mánuði ársins, án þess að sjáanleg- gr kostnaðarhækkanir hafi átt sér stað. í ljósi fyrri starfa nefndarinn- ar taldi ég því eðlilegt að leggja til við nefndina að álagningin yrði lækkuð,“ sagði Guðmundur. ------------------ Viðræður um Smuguveiðar JÓN Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra átti í gær fund með Andreij Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands, í Moskvu. Var ákveðið á fundinum að efna til viðræðna Sérfræðinga um sjávarútvegsmál. Ráðherrarnir undirrituðu yfirlýs- ingu um grundvallarreglur í sam- skiptum ríkjanna og var ákveðið að setja á laggirnar nefnd til að greiða fyrir samstarfí fyrirtækja og einstaklinga á viðskiptasviðinu. ■ Sérfræðingar ræða/11 Slapp ná- kaldur úr snjóflóði BÓNDINN á Saurum í Súðavík, Karl Georg Guðmundsson, sem er á áttræðisaldri, komst Iífs af eftir að snjóflóð féll á bæ hans á sunnudag. Lá hann fastur í snjónum þar til honum var bjarg- að eftir um hálfan annan klukku- tíma. „Ég var eiginlega búinn að gefast upp og bjóst ekkert við því að lifa lengur, enda orðinn nákaldur,“ segir Karl. Bærinn á Saurum er gjörónýtur eins og sést á myndinni, og fjárhúsin sem glittir í lengst til hægri eru rúst- ir einar. Sex kindur drápust. Flóðið féll úr Tröllagili í Súðavík- urfjalli sem sést í baksýn. ■ Varbúinnaðsætta/32-33 HAGVÖXTUR á næsta ári verður að mati Þjóðhagsstofnunar meiri en áður var áætlað, einkum vegna betri viðskiptakjara og aukinna þjóðarútgjalda. Atvinnuleysi verður minna og kaupmáttur meiri en áður var gert ráð fyrir. Þetta er þó háð ýmsum óvissuþáttum. Á þessu ári hefur útflutningur vöru og þjónustu aukist og viðskiptakjör batnað meira undanfarna mánuði en búist var við, einkum vegna hærra verðs á sjávarafurðum og áli. Þetta kemur fram í endurskoð- aðri þjóðhagsáætlun sem Þjóð- hagsstofnun hefur sent frá sér vegna afgreiðslu fjárlaga fyrir næsta árs. Þar kemur fram að á þessu ári hafí orðið meiri fram- leiðsla en búist var við í flestum greinum útflutnings og birgðir minnkað. Því verði afgangur á við- skiptajöfnuði meiri á þessu ári en gert var ráð fyrir í upphaflegri þjóðhagsáætlun frá í september sl., eða um sex milljarðar króna í stað þriggja milljarða. Meiri hagvöxtur Gert er ráð fyrir að landsfram- leiðsla aukist um 2% milli áranna 1993 og 1994, sem er það sama og þjóðhagsáætlun gerði ráð fyrir. Á næsta ári gerir Þjóðhagsstofnun nú ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 2,1% en í þjóðhagsáætl- un var gert ráð fyrir 1,4% aukn- ingu. Þá er nú gert ráð fyrir að þjóðartekjur aukist um 3% en í upphaflegri þjóðliagsáætlun var gert ráð fyrir 1,8% aukningu. Þá eru þjóðarútgjöld talin auk- ast um 3,3% sem er talsvert meira en gert var ráð fyrir í upphaflegri þjóðhagsáætlun, og stafar meðal annars af því að gert er ráð fyrir aukinni fjárfestingu, einkum vegna aukinna opinberra framkvæmda. Fjárlaganefnd leggur lokahönd á tillögur Framlag vegna vanda smábáta FJÁRFRAMLAG verður til stuðn- ings eigendum smábáta á aflamarki í fjárlögum næsta árs og ijárauka- lögum fyrir yfirstandandi ár. Samkvæmt upplýsingum Morgun- ^^Jjjlaðsins mun meirihluti fjárlaga- nefndar leggja til að Byggðastofnun fái samtals 40 milljónir á þessu og næsta ári til stuðnings smábátaeig- endum sem eiga í miklum vanda vegna kvótaskerðingar. Einnig fær Byggðastofnun samtals 70 milljóna framlag til að greiða fyrir atvinnu- uppbyggingu á svæðum þar sem feamdráttur hefur orðið í sauðfjár- framleiðslu. Þá mun vera gert ráð fyrir 40 milljónum til jarðræktarframlaga, einkum vegna haughúsbygginga. Meirihluti fjárlaganefndar leggur einnig til að framlag til Háskóla Is- lands og Landsbókasafns íslands- Háskólabókasafns hækki samtals um 100 milljónir á næsta ári. Þá hækkar framlag til Landhelgisgæslu vegna nýrrar björgunarþyrlu. Tillögur nefndarinnar verða vænt- anlega lagðar fram á Alþingi í dag. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs verði allt að 1,5 milljörðum hærri en áætlað var vegna betri horfa í þjóðarbúskapnum. Morgunblaðið/Hafþór Ferdinandsson Jólatréð komið á Hveravelli HAFÞÓR Ferdinandsson var að þessu sinni 50 klukkustundir í árlegum jólaleiðangri sínum á Hveravelli og hefur ferðin aldrei tekið jafn langan tíma. Ferðin sóttist seint vegna veðurs og þegar dekk fór af felgu á sunnu- dagsmorgunn ákváð Hafþór að sofa af sér veðrið. Er þetta í þrettánda sinn sem Hafdór fer með jólavarning til veðurathug- unarmanna. Hjónin á Hveravöll- um, Magnús Björnsson og Sigrún Þórólfsdóttir, sjást hér með jóla- tréð. ■ 50tímaferð/6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.