Morgunblaðið - 31.12.1994, Side 1
96 SIÐUR B/C/D
Gleðilegt nýár!
STOFNAÐ 1913
299. TBL. 82. ARG.
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
,
Yonir um
Eldur biossar upp í olíuhreinsunarstöð í Grosní, höfuðstað Tsjetsjníju
vopnahlé
1 Bosníu
Sarajevo. Reuter.
SAMEINUÐU þjóðirnar reyndu í
gær að knýja á stríðandi fylkingar
í Bosníu um að samþykkja fjögurra
mánaða vopnahlé, en nota á þann
tíma til að reyna að binda enda á
stríðið sem varað hefur í 33 mán-
uði. Sir Michael Rose, yfírmaður
heija SÞ í Bosníu, átti í gær tæplega
þriggja stunda fund með Ejup Ganic,
varaforseta Bosníu, og Bertrand de
Lapresle hershöfðingi reyndi að fá
Serba í Króatíu til að eiga aðild að
vopnahléi.
Rose hvatti Bosníustjórn til að
samþykkja áætlun, sem gerir ráð
fyrir að friðargæsluliðar fari með
stjórn svæða sem aðskilja Serba og
múslima. Búist var við því að frek-
ari viðræður þyrfti til áður en sam-
komulag næðist."
Bosníustjórn vill herða á orðalagi
í drögum að samkomulagi, sem Serb-
ar hafa samþykkt. Segir ónefndur
embættismaður stjórnarinnar að hún
vilji að gengið verði harðar fram í
því að framfylgja vopnahléinu en
verið hefur. Þá hefur stjórnin krafist
þess að bardagar í Bihac hætti, áður
en vopnahlé verði samþykkt.
Leiðtogar Bosníu-Serba sögðust
hins vegar í gærkvöldi ætla að undir-
rita vopnahléssamninginn í dag.
Vopnahlé virt að mestu
Vopnahléstillagan er árángur
friðarumleitana Jimmys Carters,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fyrr í
mánuðinum en þá náðist samkomu-
lag um sjö daga vopnahlé um jólin,
sem hefur verið haldið að mestu
nema í Bihac, þar sem Serbar og
uppreisnarherir múslima ■ beijast
gegn stjórnarhernum.
Hætta sögð á alvarleg-
um umhverfisspjöllum
Sleptsovsk, Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
HERSVEITIR Tsjetsjena og Rússa börðust í gær í grennd við Grosní,
höfuðstað Tsjetsjníju, og þykkur, svartur reykmökkur var yfir borg-
inni eftir að hlutar olíuhreinsunarstöðvar eyðilögðust í eldi og spreng-
ingu. Embættismenn í nágrannahéraðinu Ingúshetíu vöruðu við.
hættu á miklu umhverfisslysi ef eldurinn yrði ekki slökktur fljót-
lega. Rússar sögðu hins vegar litla hættu á því.
Reuter
Jólin nálgast í Moskvu
RÚSSNESKUR öryrki á heimasmíðuðum hjólastól kaupir gjafir
á markaði í miðborg Moskvu í gær. í Rússlandi eru jólin haldin
, 7. janúar og gjafir gefnar á nýársdag.
Dzhokhar Dúdajev, leiðtogi
Tsjetsjníju, lagði til við Borís Jelts-
ín, forseta Rússlands, að lýst yrði
yfir vopnahléi sem tæki gildi kl.
17 í dag, en Rússar höfðu ekki
svarað tillögunni í gær. Andrej
Kozyrev, utanríkisráðherra Rúss-
lands, lét svo um mælt að bardag-
arnir í Tsjetsjilíju væru harmleikur
en bætti við að Rússar ættu einsk-
is annars úrkosti en að beita her-
valdi.
Sendiherrar aðildarríkja Evr-
ópusambandsins í Moskvu ræddu
ástandið í Tsjetsjníju við Níkolaj
Afanasjevskíj, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Rússlands, og létu í ljós
áhyggjur af blóðsúthellingunum.
Leiðtogar vestrænna ríkja hafa
hingað til verið tregir til að gagn-
rýna hernaðaraðgerðir Rússa í
uppreisnarhéraðinu.
Ammoníakstankur
í hættu
Embættismaður í utanríkis-
ráðuneyti Tsjetsjníju sagði að eld-
urinn í hreinsunarstöðinni gæti
borist í ammoníakstank í grennd-
inni og valdið „umhverfisstórslysi
um öll Norður-Kákasushéruðin“.
Fréttaritari Reuters sagði að
reykjarmökkurinn hefði sést í
Sleptsovsk, við landamæri
Tsjetsjníju og Íngúshetíu og um
60 km frá Grosní. Embættismaður
í Íngúshetíu sagði að reykurinn
og sótið hefði þegar valdið miklum
vanda í héraðinu. „Náttúran getur
ekki tekið við svo miklu olíusóti.
Með hverri klukkustundinni sem
líður færist Kákasus nær umhverf-
isstórslysi."
Loftárásum vísað á bug
Fréttastofa Tsjetsjena sagði að
olíuhreinsunarstöðin hefði orðið
fyrir loftárás rússneskra herþotna.
Fréttastofan Interfax hafði hins
vegar eftir rússneskum embættis-
manni og hernaðarsérfræðingi að
ekki hefði verið ráðist á stöðina.
„Lagðar hafa verið jarðsprengjur
umhverfis allar slíkar verksmiðjur
samkvæmt fyrirmælum leiðtoga
Tsjetsjníju,“ sagði hann. „Engin
þeirra hefur orðið fyrir sprengju-
eða stórskotaárásum.“
Sérfræðingurinn sagði að lík-
lega væru um 10-20 tonn í
ammoníakstanknum, þannig að
ekki væri hætta á miklum um-
hverfisspjöllum.
Rússnéska stjórnin sagði í yfir-
lýsingu að hreinsunarstöð og kæl-
ingarhluti verksmiðjunnar hefðu
eyðilagst. Við venjulegar aðstæður
væru um 15 tonn í ammoníaks-
tanknum. „Það gæti aðeins ógnað
lífi fólks í næsta nágrenni verk-
smiðjunnar .. . það er engin þörf
á að flytja fólk á brott.“