Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 31. DESEMBBR 1994 MORGUNBLAÐIÐ Hættuleg flugelda- tegund LÖGREGLAN í Reykjavík lét í gær stöðva sölu á einni gerð flúgelda á markaði hér þar sem athugun leiddi í ljós að flugeldunum væri hætt við að springa í höfuðhæð. Lögreglan skorar á þá sem keypt hafa flugelda þá sem heita „Slar Bomb Ball Rocket“ að nota þá ekki heldur skila þeim til seljenda. Kjósi fólk að skjóta þeim upp hvet- ur lögreglan það til að gæta fyllstu varúðar. Ómar Smári Ármannsson að- stoðaryfirlögregluþjónn sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að lögreglan hefði talið ástæðu til að gera prófun á þessum flugeldum og hefði þá komið í ljós að hætt væri við að þeir spryngju í um það bil tveggja metra hæð. Ekki væri vitað um slys af völd- um flugeldanna sem hefðu verið seldir hér um skeið en ástæða hefði verið talin til að stöðva sölu þeirra. Ómar Smári sagði að lögreglan vildi benda þeim sem keypt hefðu Skóladagheimili Austurbæjarskóla Forstöðu- konan lætur af störfum GENGIÐ var frá starfslókum for- stöðukonu skóladagsheimilis Austurbæjarskóla á skólaskrif- stofu Reykjavíkur í gær. Hún læt- ur af störfum að eigin ósk frá og með 1. janúar nk. en hún hefur ekki verið í vinnu undanfarið vegna veikinda. Að sögn Viktors Guðlaugsson- ar, forstöðumanns skólaskrifstof- unnar, er máli því sem hófst með uppsögn starfskonu skóladags- heimilisins fyrir skömmu þar með lokið. Breytingar á rekstri Það mál var þannig vaxið að starfskonan bar ásakanir á hendur forstöðukonunni um að vinnu- framlag starfsmanna heimilisins væri ekki í samræmi við vinnu- skýrslur, en þær eru staðfestar af skólastjóra Austurbæjarskóla, eiginmanni forstöðukonunnar. Starfsmannahald Reykjavíkur- borgar fékk málið til athugunar og staðfesti meint ósamræmi. Þá komust borgarlögmaður og starfs- mannastjóri borgarinnar að þéirri niðurstöðu að ekki hefði verið eðli- lega að uppsögn starfskonunnar staðið og hefur henni verið boðin endurráðning. Viktor segir að frá áramótum verði rekstur skóladagheimilisins felldur undir rekstur heilsdags- skólans eins og gert hafi verið við aðra skóla í borginni þar sem skóladagheimili eru rekin innan veggja skólanna. Austurbæjar- skóli sé síðastur í röðinni þar sem þessi breyting sé gerð og hún sé í raun aðeins bókhaldslegt atriði, nemendur og starfsfólk muni ekki finna fyrir henni. MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út þriðjudaginn 3. janúar 1995. FRÉTTIR Droplaugarstaðir hjúkrunarheimili Morgunblaðið/Ámi Sæberg HJÁLMAR Björgvinsson að- stoðarvarðstjóri með nokkra flugelda þeirrar gerðar sem lögregla stöðvaði sölu á í gær. þessa flugelda að snúa sér til selj- enda en kysu einhverjir að skjóta þeim upp þrátt fyrir hættuna væri ástæða til að hvetja þá til að sýna ýtrustu varúð. STEFNT er að því að vistrými á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum við Snorra- braut verði orðin að hjúkrunar- rýmum um áramótin 1995 og 1996. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, yfirmaður öldrunardeildar Félags- málastofnunar Reykjavíkur, segir að gert sé ráð fyrir að breytingin verði smám saman og valdi ekki röskun fyrir íbúana. Hún segir að meiri heimaþjónusta og fjölgun þjónustuíbúða valdi því að meiri þörf. hafi smám saman orðið á hjúkrunarrými á dvalarheimilum. Húsinu breytt á byggingarstigi Sigurbjörg ségir að Droplaugar- staðir hafi verið byggðir sem dval- arheimili. Á byggingarstigi hafi Breytingin verði um áramótin 1995 og 1996 hins vegar 'verið tekin ákvörðun um að breyta efstu hæðinni í hjúkrunarrými. Hjúkrunarrými hafí verið 36 og vistrými 32. Smám saman hefur þróunin orðið sú að sífellt veikburðari einstakl- ingar hafa fengið vistrými á heim- ilinu og telur Sigurbjörg að 10 til 15 af íbúuum í vistrými þurfi í raun hjúkrunarrými. „Áuðvitað fer ekki hjá því að meiri þjónusta inni á heimilunum hefur haft þær af- leiðingar að dregið hefur úr þörf á vistrými. Á móti hefur orðið meiri þörf á hjúkrunarrými. Fólki fjölgar og það er orðið meira veik- burða en áður. Afleiðingin er sú að hjúkrunarrýmum á vistheimil- um hefur verið fjölgað. Ég nefni sem dæmi í Seljahlíð, á Grund og Hrafnistu og nú á Droplaugarstöð- um,“ sagði Sigurbjörg. Meiri kostnaður Sigurbjörg sagði að fyrirliggj- andi drög að fjárhagsáætlun borg- arinnar gerðu ráð fyrir kostnaði vegna nauðsynlegra breytinga sem gera þyrfti á húsnæði. Jafn- framt hefur verið skipaður vinnu- hópur til að gera tillögur um breyt- ingarnar. Sigurbjörg stýrir starf- inu og sagði hún að hafist yrði handa strax eftir áramót. Hún sagðist telja að málið væri komið í eðlilegan farveg og lagði áherslu á að breytingin verði smám saman og valdi ekki röskun fyrir íbúana. Morgunblaðið/Ámi Sæberg STARFSMAÐUR Verðbréfamarkaðar Islandsbanka gefur væntanlegum kaupendum ráðleggingar um hlutabréfakaup í gær. Metsala á hlutabréfum í gær „HressUegastajólaver- tíðin fram til þessa“ MIKIL sala var á hlutabréfum í gær eins og venjulega síðasta opn- unardag ársins, þegar fólk kaupir hlutabréf til að fá skattafslátt. Verðbréfafyrirtæki voru yfirleitt opin lengur. en venjulega, eða til klukkan 18, til að anna eftirspurn- inni. Talsmenn verðbréfafyrirtækj- anna eru sammála um að Jólaver- tíðin“ í ár sé líklega sú besta hing- að til og líklegt að metsala hafí verið í gær. Samkvæmt bráðbirgðatölum frá Verðbréfaþingi voru keypt hluta- bréf fyrir um 122 milljónir króna í gær, sem er nærri 10% af allri sölu ársins. Salan í ár er um 1.327 milljónir, en var 953 milljónir í fyrra, sem er um 40% aukning. Desembersalan ein var 587 millj- ónir, sem er nærri 50% aukning frá í fyrra. Aukningin getur verið enn meiri en þessar tölu gefa til kynna, þar sem ekki hafa öll viðskipti enn verið tilkynnt Verðbréfaþingi. „Það stefnir allt í að þetta verði metdagur í almennri hlutabréfa- sölu, bæði hvað varðar fjölda við- skipta og upphæð þeirra," sagði Gunnar Helgi Hálfdánarson, for- stjóri Landsbréfa. „Þetta ætlar að verða hressilegasta jólavertíðin fram til þessa,“ sagði hann, en hjá Landsbréfum stefndi í tvöfalt betri sölu í desember í ár en í fyrra." Hann sagði of snemmt að nefna nákvæmar tölur í því sambandi, þar sem nokkurn tíma tæki að gera daginn og mánuðinn upp. Til dæmis væri nýtt útboð á bréfum í íslenska hlutabréfasjóðnum ekki skráð fyrr en eftir áramót. Ekki lengur fyrir fáa útvalda Gunnar Helgi sagði að ástæðan fyrir góðri sölu nú væri aukin bjart- sýni á efnahagsástandið og eins væri mikið af nýju fólki sem keypti. Tilboð verðbréfafyrirtækjanna um hlutabréfakaup með afborgunar- kjörum hefði vakið athygli manna á þessum möguleika til skattfrá- dráttar, þó svo að fæstir hefðu síð- an nýtt sér afborgunarkjörin. „Svo er komin meiri reynsla og þekking á hlutabréfamarkaðnum, þetta eru ekki viðskipti fárra útvaldra eins og í byrjun," sagði Gunnar Helgi. Páll Árnason hjá Kaupþingi sagði að þar væri mikið að gera, enda biðu margir fram á síðastu stundu á síðasta degi til að kaupa hlutabréf til að fá skattafslátt. í gær var opið til 18 hjá Kaupþingi, en yfirieitt er lokað klukkan fjögur. Páll sagði of snemmt að segja til um hve hlutabréfasalan í vik- unni eða mánuðinum væri mikil, því salan stigmagnaðist fram að áramótum og stór hluti hennar færi fram á síðasta degi. Það væri þó óhætt að segja að salan hefði hafist fyrr og verið mun meiri í desember nú en í fyrra. Betri staða botnfisk- vinnslu REKSTRARHALLI á botnfísk- vinnslu er nú áætlaður tæp 2% miðað við skilyrði í desember, samkvæmt útreikningum Sam- taka fiskvinnslustöðva. Verð á sjávarafurðum hefur hækkað frá því í vor og hefur það bætt stöðu vinnslunnar um 2 pró- sentustig frá því í september. Hækkun á afurðaverði er misjöfn eftir tegundum, en minnst gætir hennar í almennri botnfiskvinnslu. Áætlað tap af rekstrinum hefur því lækkað úr tæpum tveimur milljörðum í einn miðað við stöðuna í haust. Tekjur botnfiskvinnslunnar eru rúmlega 43 milljarðar á einu ári. Gjöldin eru 39,7 millj- arðar. Verg hlutdeild íjár- magns er talin 3,3 milljarðar og reiknaðir afurðalánavextir um 1 milljarður. Reiknuð ár- greiðsla í stað afskrifta og fjár- magnskostnaðar er rúmir þrír milljarðar króna. Rekstrarhalli er því 826 milljónir króna, eða 1,9%. Staðan víða erfið „Þessir útreikningar stað- festa að áfram er tap á hefð- bundinni botnfiskvinnslu, sem er mikið alvörumál, þar sem botnfiskveiðar og vinnsla er burðarás í fjölmörgum sjávar- plássum. Engu að síður sýna þessar tölur að hallinn hefur minnkað, einkum vegna hækk- unar á verði saltfísks undan- farna mánuði,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fískvinnslustöðva. 90 millj. hagnaður SÍF eftir 9 mánuði HAGNAÐUR af rekstri Sölusam- bands íslenskra fiskframleiðenda nam 90,5 milljónum króna eftir fyrstu 9 mánuði ársins, að sögn Gunnars Amar Kristjánssonar, framkvæmdastjóra SÍF. Gunnar Örn sagði að hagnaður- inn myndi verða meiri þegar loka- uppgjör ársins lægi fyrir, en 53 milljón króna hagnaður varð af rekstri SIF allt árið í fyrra. Hann sagði að ástæðan fyrir bættri af- komu væri meira aðhald í rekstri og eins hefði SÍF keypt mikið af fiski sem fyrirtækið hefði sjálft tekið áhættu á. Þá hefði mjög gott verð fengist fyrir afurðir SÍF á mörkuðum erlendis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.