Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rífleg björgunarlaun
nái Hendrik B til hafnar
TAKIST skipveijum á varðskipinu
Tý að færa hollenska skipið Hendrik
B til hafnar á íslandi öðlast varð-
skipsmenn og Landhelgisgæslan rétt
til björgunarlauna. Þau ákvarðast
með hliðsjón af verðmæti skipsins
og farms, tímanum sem björgunin
tekur, þeirri hættu sem skipið var í
og þeirri hættu sem björgunarmenn
þurftu að leggja sig í. Valgarð Briem
hæstaréttarlögmaður, sem héfur
mikla reynslu af meðferð mála af
þessu tagi, vildi í samtaii við Morgun-
blaðið ekki giska á hve hátt hlutfall
af verðmáeti skips og farms björgun-
arlaun gætu orðið í tilviki Hendriks
B, enda væri slíkt háð mati á fyrr-
greindum þáttum og ýmsum öðrum
hverju sinni. Hann sagði þó ljóst að
björgunarlaunin yrðu rífleg.
Aðspurður sagði hann að talað
væri um rífleg björgunarlaun þegar
þau næmu meira en 25% af verð-
mæti þess sem bjargað er. Sam-
kvæmt lögum skulu 40% björgunar-
launa renna til áhafnar þess skips
sem vinnur að björgun en 60% til
útgerða.
Landhelgisgæslan hafði haft sam-
ráð við útgerð Hendriks B og trygg-
ingafélög áður en varðskipsmenn
fóru um borð í skipið til björgunar.
Skipið metið á 45-50 milljónir
Einar Hermannsson, skipaverk-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Sarabands íslenskra kaupskipaút-
gerða, sem hefur mikla þekkingu á
kaupskipamarkaði, sagði { samtali
við Morgunblaðið { gær að áætla
mætti að markaðsverð Hendriks B
sem smíðað var 1972 og er því 22
ára gamalt, væri á bilinu 45-50 millj-
ónir króna. Hins vegar eigi þá eftir
að taka tillit til hugsanlegra
skemmda sem orðið hafa á skipinu,
brú þess og siglingatækjum þegar
brotin riðu yfír í fyrradag.
Óskemmdur farmur
12 millj. virði
í lestum skipsins eru rúm 1.100
tonn af hveiti og um 700 tonn af
maísmjöli. Hjörleifur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fóðurblöndunnar sem
á lítinn hluta farmsins um borð, sagði
Morgunblaðinu í gær að varlega
mætti áætla að hvert tonn af hveiti
eða maísmjöli kostaði um 100 dollara
á heimsmarkaði. Komist allur
farmurinn óskemmdur í land nemur
verðmæti hans samkvæmt því um
180 þúsund bandaríkjadölum eða um
12,3 milljónum íslenskra króna.
Morgunblaðinu tókst ekki í gær
jxð afla upplýsinga um trygginga-
verðmæti skips og farms.
Aðspurður hvort réttarstaðan væri
sú að Hendrik B væri rekald í einsk-
is manns eigu sem Landhelgisgæslan
og varðskipsmenn eignuðust að mest
öllu leyti með björguninni, sagði
Valgarð Briem að því færi fjarri að
skipið væri orðið eignarréttarlaust
þótt það hefði verið á floti og yfírgef-
ið úti á rúmsjó. Björgunarlaun yrðu
eflaust rífleg, en til að láta í Ijós
nánara álit á hugsanlegum björgun-
arlaunum kvaðst Valgarð þurfa að
vita m.a. hve langan tíma tæki að
færa skipið til hafnar, hve mikla
hættu björgunarmenn hefðu þurft
að leggfa sig í við að fara um borð
og hvort skipið hefði verið að því
komið að sökkva eða hvort það hefði
flotið í einhvem tíma áfram þótt
björgunarmenn hefðu ekki hafst að.
„Lögin gefa ekki upp neina pró-
sentu,“ sagði Valgarð Briem og sagði
útkomu ákveðna með tiiliti til for-
dæma í svipuðum málum.
Hann sagði að tækist varðskips-
mönnum að færa skipið í land öðluð-
ust þeir haldsrétt í skipinu og gætu
þá krafíst þess að björgunarlaun yrðu
ákvörðuð samkvæmt íslenskum lög-
um þótt skipið hefði verið yfírgefið
á alþjóðlegu hafsvæði í íslenskri fisk-
veiðilögsögu en utan 12 mílna land-
helgi Islands.
I samtali Morgunblaðsins við Val-
garð Briem kom fram að í nýlegu
dæmi þegar björgunarlaun voru
greidd, þegar togarinn Ugligorsk
strandaði við Þorlákshöfn fyrir u.þ.b.
ári, hefðu björgunarlaun numið 10%
af vermæti skipsins. Þá hefði björgun
tekið skamma stund og ekki verið
mjög áhættusöm en á móti hefði
komið að togarinn var í miklum
háska sem hann gat ekki komist úr
fyrir eigin afli.
Útgerð fær 60%
en áhöfn 40%
Samkvæmt siglingalögum skal
skipta björgunarlaunum þannig nið-
ur að 60% komi í hlut útgerðar
björgunarskipsins sem í hlut á en
40% renni til áhafnar þess, björgun-
armanna.'
Samkvæmt lögum um Landhelgis-
gæslu skal hlutur stofnunarinnar í
björgunarlaunum renna til Landhelg-
issjóðs en hlutur áhafnar skal skipt-
ast að jafnri tiltölu miðað við föst
mánaðarlaun hvers og eins.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
30. desember 1994
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
ALLIR MARKAÐIR
Annarafli 85 76 83 391 32.336
Grálúða 155 155 155 10.000 1.550.000
Hrogn 220 61 118 183 21.540
Karfi 95 30 •. 65 190 12.255
Keila 72 . 45 63 5.291 331.227
Langa 105 63 92 1.287 118.656
Lúða 560 230 536 27 14.460
Lýsa 24 24 24 8 192
Skarkoli 122 97 T21 145 17.565
Skötuselur 190 190 190 4 760
Steinbítur 92 60 67 468 31.227
Tindaskata 10 10 10 ' 1.208 12.080
Ufsi 59 23 46 4.622 213.528
Undirmálsfiskur 110 65 97 3.207 310.958
svartfugl 100 100 100 247 24.700
Ýsa 193 80 152 14.690 2.238.124
Þorskur 160 98 147 18.994 2.791.827
Samtals 127 60.962 7.721.434
FISKMARKAÐUR SNÆFELLSNESS
Hrogn 220 220 220 53 11.660
Undirmálsfiskur 110 110 110 1.622 178.420
Ýsa sl 115 115 115 1.150 132.250
Þorskur sl 160 148 155 12.858 1.996.590
Samtals . 148 15.683 2.318.920
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA
Annar afli 85 76 83 391 32.336
Grálúða 155 155 155 10.000 1.550.000
Karfi 95 90 91 95 8.625
Keila 64 62 63 5.142 322.815
Langa 105 80 93 1.141 105.554
Lúða 560 560 560 25 14.000
Skarkoli 122 122 122 140 17.080
Skötuselur 190 190 190 4 760
Steinbítur 7.1 60 63 404 25.339
svartfugl 100 100 100 247 24.700
Tindaskata 10 10 10 1.208 12.080
Ufsi sl 35 35 35 111 3.885
Ufsi ós 30 23 29 1.900 55.594
Undirmálsfiskur 94 65 84 1.585 132.538
Ýsa sl 193 124 187 3.441 642.848
Ýsa ós 166 138 153 8.100 1.239.138
Þorskur sl 128 128 128 500 64.000
Þorskur ós 128 120 125 3.332 416.833
Samtals 124 37.766 4.668.124
FISKMARKAÐUR VESTMANNAEYJA
Hrogn 139 61 76 130 9.880
Karfi 50 50 50 39 1.950
Keila 72 45 56 149 8.413
Langa 95 63 90 146 13.102
Lúöa 230 230 230 2 460
Lýsa 24 24 24 8 192
Skarkoli 97 97 97 5 485
Steinbítur 92,- 92 92 64 5.888
Ufsi 59 59 59 2.611 154.049
Ýsa 130 80 112 1.999 223.888
Þorskur 151 98 136 2.304 314.404
Samtals 98 7.457 732.710
FISKMARKAÐUR (SAFJARÐAR
Karfi 30 30 30 56 1.680
Samtala 30 56 1.680
Stjórn Verðbréfaþings íslands
Ásökunum fram-
kvæmdastjóra Vinnslu-
stöðvarinnar mótmælt
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Verðbréfaþingi íslands:
„Stjórn Verðbréfaþing íslands
mótmælir harðlega þeim ásökun-
um sem fram hafa komið frá Sig-
hvati Bjarnasyni framkvæmda-
stjóra Vinnslustöðvarinnar hf. í
Vestmannaeyjum í garð stjórnar
Verðbréfaþings íslands. Hann hef-
ur gefíð í skyn í fjölmiðlum að
stjórn Verðbréfaþings hafi hafnað
skráningu hlutabréfa Vinnslu-
stöðvarinnar hf. og að einstakir
stjórnarmenn séu ekki hæfir til
að fjalla um umsókn fyrirtækisins.
Staðreynd málsins er hinsvegar
sú að á stjómarfundi Verðbréfa-
þings þann 19. desember sl. sam-
þykkti stjóm þingsins að hlutabréf
Vinnslustöðvarinnar hf. yrðu tekin
á skrá hjá þinginu, þegar ljóst
væri að útboð, sem stóð yfir, hafí
tekist. Gild rök liggja fyrir þessari
afgreiðslu og var um hana fullur
einhugur meðal stjórnarmanna.
Var verðbréfafyrirtækinu Handsal
hf., sem er umbjóðandi Vinnslu-
stöðvarinnar hf. í þessu máli, gerð
grein fyrir þessari afgreiðslu þegar
endanleg skráningarumsókn lá
fyrir.
Stjórn Verðbréfaþings hefur
samkvæmt 7. gréin reglna um
skráningu hlutabréfa á Verðbréfa-
þingi íslands fulla heimild til að
skilyrða afgreiðslu umsókna um
skráningu með þessum hætti, en
í 7. grein segir:
„Stjórn Verðbréfaþings sam-
þykkir, vísar frá eða hafnar um-
sókn með skriflegu svari innan 2
mánaða frá því að fullbúin um-
sókn var lögð fram og rökstyður
ástæður eða skilyrði afgreiðsl-
unnar. Samþykki hún að taka
bréfin á skrá þingsins tilgreinir
hún jafnframt hvenær skráningin
hefst.“
Dæmi eru um frestun á skrán-
ingu hlutabréfa af ýmsum ástæð-
um. Það er ekki venja Verðbréfa-
þings að fjalla um málefni ein-
stakra hlutafélaga í fjölmiðlum,
en vegna misskilnings og ásakana
í garð stjórnar Verðbréfaþings var
nauðsynlegt að gera opinberlega
grein fyrir þessu máli.
Hlutabréf Vinnslustöðvarinnar
hf. voru skráð í viðskiptakerfi
Verðbréfaþings íslands eftir að
borist hafði staðfesting á að'út-
boði hlutabréfa væri lokið. Hluta-
bréf SR-mjöls hf. voru einnig
skráð í viðskiptakerfi þingsins. A
fundi þann 19. desember sl. var
einnig samþykkt að taka hlutabréf
Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. á
skrá eftir áramót. Að þessum fé-
lögum meðtöldum verða því hluta-
bréf 25 félaga skráð á þinginu.
Doktors-
vörn í
merkja-
fræði
JÓHANN Óli Jónsson lauk nýverið
doktorsprófí í rafmagnsverkfræði
frá Cornell-háskóla í New York-
fylki. Leiðbeinendur voru Professor
Allan Stein-
hardt, Prof.
T.W. Parks og
Prof. John Guc-
kenheimer. Titill
ritgerðarinnar
var „Signal
Detection and
Estimation us-
ing Multiple
Windows“ og
Ijallaði hún um
skynjun og ákvörðun merkja þegar
notast er við fylki nema til ákvörð-
unar á bæði staðsetningu og tilvist
merkjagjafa.
Dr. Jóhann Óli er fæddur 28.
desember 1959 og ólst upp á Akur-
eyri. Foreldrar hans eru Hulda
Þórðardóttir og Jón Þór Bjarnason,
kennari. Hann lauk fiskimanna-
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík vorið 1982, 4. stigi Vél-
skóla íslands í Reykjavík 1983, og
prófi í veikstraums tæknifræði frá
Tækniskólanum í Kaupmannahöfn
1986. Eftir eins árs viðkomu í
„Danmarks Tekniske Hojskole"
hélt hann til Cornell-háskóla. Að
loknu doktorsnámi hóf hann störf
á „Wall Street" og vinnur nú við
gerð stærðfræðilíkana til verðlagn-
ingar á „exotic options contracts"
hjá fjármálafyrirtækinu Merrill
Lynch.
Jóhann ÓIi
Jónsson
Olíuverð á Rotterdam-markaði, 20. október til 29. desember
GENGISSKRÁNING
Nr. 250 30. desember 1994
Kr. Kr. Toll-
Eln. kl. 0.15 Kaup Sala Gongl
Dollari 68,21000 68,39000 68,61000
Sterlp. 106,56000 106,86000 107.14000
Kan. dollari 48,56000 48.72000 49,94000
Dönsk kr. 11.21100 11,24500 11.20000
Norsk kr. 10,07800 10,10800 10,03500
Sænsk kr 9,14300 9,17100 9,17300
Fmn. mark 14,39500 14,43900 14,21200
Fr, franki 12.75400 12,79200 12.76900
Belg.franki 2,14120 2,14800 2,13060
Sv franki 51,99000 52,15000 51,71000
Holl. gyllini 39.34000 39.46000 39.14000
Þýskt mark 44,03000 44,15000 43,84000
It. lýra 0,04197 0,04211 0,04234
Austurr. sch 6,25500 6,27500 6,22900
Port escudo 0,42810 0,42970„ 0,42930
Sp. peseti 0,51740 0.51920 0,52530
Jap.|en 0.68390 0,68570 0,69480
Irskt pund 105,48000 105,84000 105,65000
SDR(Sérst) 99,55000 99.85000 100.13000
ECU, evr.m 83,61000 83.87000 83,51000
Tollgongi fynr desembcr er sölugengi 28. nóvember.
Sjálfvirkur simsvari gengisskrámngar er 623270