Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Bill Clinton Bandaríkjaforseti ber sig vel
Stefnir að endurkjöri
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
hyggst sækjast eftir því að verða
frambjóðandi demókrata á ný 1996
og segist ekki sjá að nokkuð geti
breytt þeirri ákvörðun sinni.
Hann sagði í viðtali á fimmtudag
að endurkjör væri samt sem áður
ekki helsta keppikefli sitt. „Ef það
hefði verið mér efst í huga hefði
ég ekki efnt til allra þessara erfiðu
átaka við hagsmunahópa undanfar-
in tvö ár“, sagði Clinton.
Sjaldgæft er að bandarískur for-
seti lýsi svo snemma yfir ótvíræðum
vilja til að ná endurkjöri.
Er Clinton var spurður hvort eitt-
hvað gæti fengið hann til að hætta
við framboð 1996 svaraði hann:
„Nei, ég er við góða heilsu og stend
mig vel í starfi.“
Osigur demókrata í kosningunum
í nóvember hefur gefið þeim orð-
rómi byr undir báða vængi að Clint-
on muni ekki gefa kost á sér 1996.
A1 Gore varaforseti myndi þá fá
tækifærið en margir segja óvin-
sældir Clintons vera helstu ástæð-
una fyrir kosningaósigrinum. Tals-
maður Gore segir að varaforsetinn
myndi aldrei fara fram gegn forset-
anum.
I viðtali við útvarpsstöðvar
sagðist Clinton ekki telja að það
versta sem hent gæti forseta væri
að gegna starfinu aðeins í fjögur
ár.
Enn verra væri að yfirgefa emb-
ættið eftir fjögur eða átta ár og
hafa á tilfinningunni að eina afrek-
ið hafi verið að setja í forsetastóln-
um en ekkert hafi verið gert fyrir
almenning.
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 19
iáádáýz/auúuy/ia&ar
Ámœuœk ár.
áeáiu deai eeaá dáa.
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700, fax 620540.
Jón Guðmundsson, sölustjórí, lögg. fasteignasali,
Ólafur Stefánsson, viðskiptafræðingur, lögg. fasteignasali.
Fjármálaráðherra
Mexíkó segir af sér
Harðar að-
gerðir
boðaðar
Mcxíkó. Reuter.
JAIME Serra Puche, fjármálaráð-
herra Mexíkó, sagði af sér embætti
í fyrradag þegar Ernesto Zedillo,
forseti landsins, skýrði frá áætlun
um neyðarráðstafanair í efnahags-
málum. í ávarpi til landsmanna
sagði hann ráðstafanirnar erfiðar
en óhjákvæmilegar ef koma ætti í
veg fyrir óðaverðbólgu í kjölfar
gengisfellingar í síðustu viku.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum og
Kanada hafa þegar heitið sjö millj-
örðum dollara til styrktar mexí-
kóska pesónum.
Efnahagserfiðleikarnir í Mexíkó
hafa verið í gerjun í heilt ár en
undirrótin var allt of hátt gengi á
pesónum og gífurlegur kostnaður
seðlabankans við að verja hann falli.
A síðustu þremur mánuðum var
hann allt að 10 milljarðar dollara
og þá var gjaldeyrisvarasjóðurinn
næstum uppurinn. í síðustu viku
var svo gengið fellt um 15% og
markaðnum síðan látið eftir að
finna jafnvægið. Þar hélt fallið
áfram og er nú 40% alls.
Gífurlegt tap fjárfesta
Serra þykir hafa haldið illa á
þessum málum en í hans stað skip-
aði Zedillo Guillermo Ortiz, sem
verið hefur fjarskipta- og sam-
gönguráðherra. Hann var aðstoð-
arfjármálaráðherra í fyrri stjórn og
hefur skipun hans verið fagnað í
fjármálaheiminum en í síðustu viku
töpuðu mexíkóskir fjárfestar millj-
örðum dollara vegna gengisfelling-
arinnar.
Nánar verður skýrt frá efnahags-
aðgerðunum á mánudag en Zedillo
sagði, að eitt meginverkefnið væri
að ráða bót á gífurlega óhagstæðum
greiðslujöfnuði. Auk þess hefur
þegar verið gripið til mikilla vaxta-
hækkana en efnahagssérfræðingar
óttast, að þær og gengisfellingin
muni binda enda á hagvöxtinn í
landinu.
Bandaríkjastjórn og líklega sú
kanadíska einnig ætla að styðja við
pesóinn með allt að sjö milljörðum
dollara og verið er að ræða við full-
trúa annarra ríkja í sjö-ríkja-hópn-
um um aðstoð.
IIUTERWET
Alheims markaöstorg
I- Hönnum, smíðum og
hýsum gagnagrunna.
- Kjörinn miðill fyrir íslensk
fyrirtæki á alþjóða
vettvangi.
QLAIM
ÞEKKINGREYNSLAORYGGI
- mesta ávöxtun í áratug
KJÖRBÓK er einstakur sérkjarareikningur,
hún sameinar hagkvæmni, frelsi og afbragðs ávöxtun
• Innstæðan er alltaf laus til útborgunar
• Vextirnir hækka með tímanum
• Yfir 80.000 Islendingar kjósa KJÖRBÓK fyrir sparifé sitt
• Undanfarin 7 ár hefur annað þrep KJÖRBÓKAR gefið
6% meðaltalsraunávöxtun
KJÖRBÓK
- vinsælasti sérkjarareikningur íslendinga
Landsbanki
(slands
Bankl allra landsmanna
HfuNOAoars